Fréttablaðið - 11.03.2009, Síða 10
10 11. mars 2009 MIÐVIKUDAGUR
LANDBÚNAÐARMÁL Skuldir mjólkur-
bænda á Íslandi nema rúmlega
30 milljörðum króna og líkur eru
leiddar að því að þrjú af hverj-
um tíu kúabúum eigi undir högg
að sækja vegna skuldsetningar.
Mjólkurbú hér á landi eru rúm-
lega 700 talsins. Samtök bænda
kalla eftir því að fjármögnun kúa-
búa verði tryggð til lengri tíma,
sérstaklega með það í huga að
bú og heimili bænda eru yfirleitt
óaðskiljanleg eining.
Skuldastaða mjólkurbænda
hefur farið hraðversnandi á
undan förnum árum. Skuldir
þeirra voru um 20 milljarðar í
ársbyrjun 2006 en eru rúmlega
30 milljarðar í dag. Bændur hafa
verið hvattir til uppbyggingar og
hafa fjárfest í atvinnutækjum
og mjólkurkvóta. Hluti þessarar
uppbyggingar hefur verið fjár-
magnaður með erlendum lánum.
Athygli vekur að fjölmörg mjólk-
urbú skulda lítið eða ekkert sem
bendir til að erfitt eða ómögulegt
sé fyrir fjölda mjólkurbænda að
bjarga sínum fyrirtækjum, nema
til komi aðgerðir stjórnvalda eins
og afskriftir skulda. Ljóst er að
skuldir einstakra mjólkurbúa eru
50 til 150 milljónir.
Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtaka Íslands,
segir stöðu mjólkurbænda hafa
farið hratt versnandi á undanförn-
um árum. Skuldir mjólkurbænda
hafi verið um 20 milljarðar árið
2006 en hafi farið hratt vaxandi.
Aðspurður hvort bændur hafi farið
offari í lántökum segir Haraldur
að svo geti verið í einhverjum til-
fellum. „Höfum þó hugfast að allar
forsendur fyrir uppbyggingunni
hafa kollvarpast. Það er heldur
ekkert leyndarmál að það var rek-
inn stífur áróður fyrir því að lítil
áhætta væri fyrir bændur að taka
erlend lán. Á gróðæristímanum
voru bændur hvattir til lántöku af
því að veð þeirra væru svo sterk,
en það gleymdist að horfa á veltu-
tölur búanna.“
Haraldur segir að til þess að
setja í samhengi hversu rekstrar-
umhverfi bænda hefur versnað
mikið þá voru útgjöld meðalstórs
kúabús til áburðarkaupa árið
2007 um 960 þúsund krónur. Í vor
stefnir í að reikningurinn verði 2,5
milljónir. Sveinn Sigurmundsson,
framkvæmdastjóri Búnaðar-
sambands Suðurlands, segir að á
Suðurlandi séu um 260 kúabú. Af
þeim telji sambandið að rúmlega
fimmtíu eigi í verulegum vanda og
sami fjöldi nái rétt að halda sjó.
„Þetta eru þeir sem hafa verið að
endurbæta aðstöðu sína og kaupa
mjólkurkvóta. Þetta eru frekar
ungir bændur en eldri, eins og
eðlilegt er, þó erfið skuldastaða
einskorðist ekki við aldur. Þetta
er í mörgum tilfellum ungt barna-
fólk, sem eykur á alvarleika máls-
ins.“ Sveinn segir að á Suðurlandi
sé meirihluti búanna vel sett sem
undirstriki hvað staða skuld-
settustu búanna sé gríðarlega
erfið. svavar@frettabladid.is
Skuldir mjólkurbúa
gríðarlega þungar
Íslensk mjólkurbú skulda um 30 milljarða króna. 700 mjólkurbú eru á Íslandi.
Þrjú af hverjum tíu eru talin eiga í verulegum vanda. Ungir bændur eru helst í
vanda og er það litið alvarlegum augum þar sem bú og heimili bænda eru eitt.
ÚR KJÓSINNI Mikil uppbygging hefur verið á mjólkurbúum á Íslandi og mjólkurkvóti
keyptur til að ná fram stærri og hagkvæmari búum. Myndin tengist efni fréttarinnar
ekkert. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
RYK Í RÍAD Heiftarlegur ryk- og sand-
stormur reið yfir Sádi-Arabíu í gær og
þurfti að loka jafnt flugvöllum sem
höfnum. Þessi kona fór engu að síður
ferða sinna í höfuðborginni Ríad.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDLAND, AP Dalaí Lama, sem er
í senn andlegur og veraldlegur
leiðtogi Tíbeta, segir að kínversk
stjórnvöld hafi gert lífið í Tíbet
að „helvíti á jörðu“.
Tíbetar og stuðningsmenn
þeirra víða um heim minntust
þess í gær að hálf öld er liðin frá
því að Dalaí Lama flúði ásamt
hópi fólks undan ofríki Kínverja
til Indlands, þar sem hann hefur
haft aðsetur síðan.
Í ávarpi sínu í gær sagði
Dalaí Lama að Kínastjórn komi
fram við tíbetsku þjóðina eins
og „glæpamenn sem eigi líflát
skilið“. - gb
Tíbetar minnast uppreisnar:
Dalaí Lama
ásakar Kínverja
MÓTMÆLI Í BERLÍN Þessi snáði tók þátt
í mótmælum fyrir utan kínverska sendi-
ráðið í Berlín. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Togararallið hafið
Árleg stofnmæling botnfiska á
Íslandsmiðum, eða togararall eins
og verkefnið er kallað í daglegu tali
hófst í síðustu viku. Fimm skip taka
þátt í verkefninu. Vorrallið hefur farið
fram árlega síðan 1985. Stofnstærð,
aldurssamsetning, fæða, ástand og
útbreiðsla helstu fisktegunda er þá
rannsakað.
SJÁVARÚTVEGUR
STJÓRNMÁL „Lauslega áætlað sýn-
ist mér að með þessum hætti geti
þjóðarbúið fengið fjóra til átta
milljarða króna
og það eru mikl-
ir fjármunir
þegar litlu er
til að dreifa,“
segir Kjart-
an Ólafsson,
alþingismaður
Sjálfstæðis-
flokks, sem
skorað hefur á
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra að láta selja um fjögur
þúsund listaverk úr eigu föllnu
bankanna. Kjartan telur það eðli-
lega forgangsröðun að halda eðli-
legri starfsemi í gangi í bönkun-
um „frekar en bankarnir safni
málverkum á veggi og í geymslur,“
segir í áskorun Kjartans. - gar
Þingmaður Sjálfstæðisflokks:
Listaverk banka
gefi 8 milljarða
KJARTAN ÓLAFSSON