Fréttablaðið - 11.03.2009, Qupperneq 15
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Ekkert fyrirtæki er í formlegu
söluferli hjá viðskiptabönkunum
þremur. Viðmælendur Markaðar-
ins segja fyrirtækjasölu í biðstöðu
nú um stundir. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Landsbankanum er
þess beðið að umsýslufélög komist
á koppinn sem muni sjá um ferl-
ið. Bankarnir hafa allir boðað
stofnun slíkra félaga.
Straumur seldi Senu í síðustu
viku og Íslandsbanki (áður Glitn-
ir) Árvakur fyrir hálfum mán-
uði. Bankinn seldi hópi fjárfesta
51 prósents hlut í Skeljungi í lok
ágúst í fyrra en situr enn á 49 pró-
sentum í olíufélaginu. Ekki liggur
fyrir hvort bankinn hyggist losa
sig við hlutinn í bráð. - jab
Ekkert til
sölu í bili
VERSLUN SKÍFUNNAR Sena var síðasta
fyrirtækið sem Straumur seldi áður en ríkið
tók bankann yfir. Aðrir bankar segja fyrir-
tækjasölu í biðstöðu. MARKAÐURINN/PJETUR
Miðvikudagur 11. mars 2009 – 10. tölublað – 5. árgangur
Göngum
hreint til verks!
Traustir Færeyingar
Bjóða
Íslendingum
tryggingar
Finnur Oddsson
Kreppan og
leiðir fram á
við 2
Verðhjöðnun í Kína | Vöruverð
í Kína lækkaði í febrúar í fyrsta
sinn í sex ár. Neysluverðsvísitalan
lækkaði um 1,6 prósent í mánuðin-
um. Þessi þróun undirstrikar hve
erfitt efnahagsástandið er í þessu
þriðja stærsta hagkerfi heims.
Olíuverð hækkar | Olíuverð var
komið upp í næstum 48 dollara á
fatið í gær. Talið er að OPEC-ríkin
ætli að tilkynna innan fárra daga
að dregið verði úr framleiðslu á
olíu, en þau hafa þegar minnkað
framboðið töluvert.
Jenið lækkar | Japanska jenið
heldur áfram að lækka gagnvart
dollar og evru. Þetta eru góð tíð-
indi bæði fyrir útflutningsfyrir-
tæki í Japan og fyrir Íslendinga
sem skulda í jenum.
Atvinnuleysi eykst | Atvinnu-
leysi í Bandaríkjunum mældist
8,1 prósent í febrúar og hefur
ekki verið meira í aldarfjórðung,
eða síðan 1983. Samkvæmt sam-
antekt Bloomberg-fréttastofunnar
spá sérfræðingar því að atvinnu-
leysið þar í landi fari upp í 9,4 pró-
sent á þessu ári.
Bjartsýni í Sviss | Seðlabanka-
stjórar nokkurra landa hittust í
Sviss og sögðust heldur bjartsýnni
á horfurnar en þeir hafa leyft
sér undanfarið. Þeir telja botni
kreppunnar brátt náð og eftir það
liggi leiðin hægt upp á við.
4
Edda Rós Karlsdóttir
Sér ekki fyrir
endann á
fjármálakreppunni
Reykjavík er dottin úr hópi dýrustu borga heims
að búa í. Í fyrra mældist hún sú fimmta dýrasta
í heimi, árið þar áður sú sjötta dýrasta, en er nú í
ár komin í 67. sæti samkvæmt mælingu tímaritsins
Economist.
Reykjavík er þar með næstódýrasta borg Vestur-
Evrópu, næst á eftir Manchester í Bretlandi, sem
lenti í sjötugasta sæti á heimsvísu.
Athygli vekur að könnunin var gerð í september í
fyrra, mánuði fyrir bankahrunið mikla. Reykjavík
væri því væntanlega komin miklu neðar á listann
væri sambærileg könnun gerð nú.
Dýrasta borg heims, samkvæmt könnuninni, er
líkt og fyrri ár Ósló, höfuðborg Noregs. Sú næstdýr-
asta er París en þar á eftir koma Kaupmannahöfn,
Helsinki og Frankfurt. Í sætum 6 til 10 eru Tókíó,
Zürich, Osaka Kobe, London og Vínarborg.
Íbúar í Reykjavík finna að vísu varla muninn, en
ferðalangar hingað njóta góðs af því að krónan hefur
hrunið í í samanburði við aðra gjaldmiðla.
Economist gerir árlega verðsamanburð á 140 borg-
um víðs vegar um heim. Í hverri borg fara útsendar-
ar tímaritsins á stúfana að kanna verð á 160 vöru-
tegundum, allt frá brauði til glæsibifreiða. Síðan er
vísitala reiknuð út fyrir hverja borg, byggt á vegnu
meðaltali verðupplýsinganna. - gb
Ódýrt að búa í Reykjavík
Samkvæmt nýbirtri könnun tímaritsins Economist er Reykjavík fallin úr
hópi dýrustu borga heims. Verður líklega neðar á lista í næstu könnun.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Svo gæti farið að allt að 192 milljónir evra hið minnsta,
jafnvirði um 27,5 milljarða króna, falli í skaut skila-
nefndar Straums vegna eignasölu bankans upp á
síðkastið, samkvæmt heimildum Markaðarins.
Þetta er meðal annars vegna sölu bankans á pólska
símafyrirtækinu Netia, sem gekk í gegn á föstudag
í síðustu viku og skilar sér til bankans í dag. Allt
er tilbúið fyrir sölu á bresku ferðaskrifstofunni XL
Leisure Group en áætlað söluandvirði, sem von er á
að skili sér eftir næstu mánaðamót, nemi rúmum 60
milljónum evra. Þá er áætlað að kanadíska frysti-
og kælivörufyrirtækið Versacold, sem hefur verið
í söluferli síðan á fyrri hluta síðasta árs, geti skilað
hundrað milljónum evra í búið.
Skilanefnd Fjármálaeftirlitsins tók lyklavöldin í
fjárfestingabankanum á mánudagsmorgun eftir að
Seðlabankinn neitaði honum um lán upp á átján millj-
ónir evra, um 2,5 milljarða króna, til að mæta greiðslu
á láni upp á 33 milljónir evra sem féll á gjalddaga
á mánudag. Bankinn lánaði Straumi 133 milljónir
evra, tæpa 19 milljarða króna á núvirði, í desember
í fyrra.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sagði í sam-
tali við Fréttablaðið í gær að stjórnendum bankans
hefði átt að vera ljóst hvert stefndi. Hefði Fjármála-
eftirlitið ekki gripið í taumana hefðu breskir kollegar
þeirra gert það.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær var lán
Straums afar lítið í samanburði við þá gjalddaga sem
fram undan eru. Bankinn á að greiða 329 milljónir
evra á þessu ári en 412 milljónir á því næsta. Þar af
eru tæpar 290 milljónir evra á gjalddaga á fyrri hluta
þessa árs. Fram hefur komið að bankinn ætlaði að
greiða erlendar skuldir með sölu erlendra eigna.
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch felldi lánshæfis-
einkunn Straums úr B í D, en það merkir að bankinn
er gjaldþrota en fyrirtækið telur að ekki sé hægt að
reiða sig á að kröfur bankans fáist greiddar.
Ekki náðist í Gylfa Magnússon þegar eftir því var
leitað í gær. Gunnar Haraldsson, stjórnarformaður
Fjármálaeftirlitsins, sagði að verið væri að fara yfir
málið.
Peningar á leiðinni
Straumur hóf að losa um eignir þegar halla tók undan fæti í
haust. Fyrsta uppskeran ætti að skila sér í dag.
Báðar Úrvalsvísitölurnar í Kauphöllinni fengu skell eftir þjóðnýtingu
Straums á mánudag og hafa aldrei verið lægri í lok dags og í gær.
Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) endaði í 284 stigum en sú nýja
(OMXI6) endaði í tæpum 585 stigum.
Straumur verður tekinn úr nýju Úrvalsvísitölunni í dag. Félögum í
vísitölunni mun þó ekki fækka við það því færeyski bankinn Föroya
Bank fer inn í skiptum fyrir fjárfestingabankann. Nokkur stærðar-
munur er á bönkunum. Á föstudag í síðustu viku var markaðsverð-
mæti Straums 17,7 milljarðar króna. Markaðsverðmæti færeyska
bankans var hins vegar einn milljarður króna í lok dags í gær.
Ú R V A L S V Í S I T Ö L U R A L D R E I L Æ G R I
Útlendingar hafa verið áhugalitlir
um útboð ríkisvíxla- og bréfa en
áhugi innlendra aðila hefur verið
meiri. Þetta kemur fram í saman-
tekt Greiningar Íslandsbanka.
Þar er vísað í yfirlit Seðlabanka
Íslands yfir lánamál ríkisins, en
þar kemur fram að útlendingar
keyptu aðeins um 0,7 milljarða
króna í útboði ríkisvíxla um miðj-
an febrúar, en alls voru 10 millj-
arðar króna seldir í útboðinu.
Þá héldu erlendir fjárfestar sig
alfarið frá útboði tveggja lengstu
ríkisskuldabréfaflokkanna, sem
er í takti við takmarkaðan áhuga
útlendinga á skuldabréfaflokkum
með langan líftíma. - bj
Útlendingar
áhugalitlir