Fréttablaðið - 23.03.2009, Side 6

Fréttablaðið - 23.03.2009, Side 6
6 23. mars 2009 MÁNUDAGUR Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Kúplingar Ert þú sátt(ur) við þá ákvörðun Seðlabankans að lækka stýri- vexti í 17 prósent? Já 31% Nei 69% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú farið á skíði innan- lands í vetur? Segðu þína skoðun á visir.is Erlendir kröfuhafar SPRON vör- uðu stjórnvöld bréflega við því að yfirtaka rekstur SPRON, og eru afar ósáttir við að hafa verið hundsaðir. Tilboð um niðurfell- ingu um fimmtungs af skuldum sparisjóðsins hafði verið lagt fram, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að kröfuhaf- arnir hafi getað sagt sér sjálfir að svona myndi þetta enda. Mat Fjármálaeftirlitsins hafi verið að tilboðið hafi verið ófullnægjandi. Veittur hafi verið frestur á frest ofan til að ná samkomulagi, en það hafi ekki tekist. - bj Vöruðu stjórnvöld við yfirtöku: Erlendir kröfu- hafar ósáttir AÐGERÐIR FJÁRMÁLAEFTIRLITSINS Fjármálafyrirtækið Saga Capital mun greiða fimmtán milljarða króna skuld við Seðlabankann, sem er til komin vegna endur- hverfra viðskipta, á næstu sjö árum. Samningar um þetta náðust í gær. Flest smærri fjármálafyrir- tæki landsins stunduðu endur- hverf viðskipti við Seðlabankann. Í þeim fólst að félögin keyptu skuldabréf, til dæmis í viðskipta- bönkunum, og veðsettu þau gegn láni í Seðlabankanum með samn- ingi um að kaupa skuldabréf- in aftur síðar. Við fall bankanna urðu skuldabréf þeirra verðlaus, og smærri fjármálafyrirtækin lentu í vandræðum. - bj Samið við Saga Capital: Greiða skuldina á sjö árum Ríkisvaldið tekur áhættu með því að taka yfir rekstur Spari- sjóðabankans, segir Guðjón Guðmunds- son, fram- kvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða. Hann segir samtökin ekki sátt við þá leið sem farin hafi verið. Staðan hafi vissulega verið erfið, en bankinn hafi verið kominn langt með að finna leiðir út úr þeirri stöðu. „Við höfðum trú á því að það myndi takast,“ segir Guðjón. Hann segir áhættu ríkisins fel- ast í því að Sparisjóðabank- inn hafi séð um greiðslumiðlun við erlenda aðila, en nú séu þau samskipti öll á hendi eins aðila, í gegnum Seðlabankann. - bj Samband íslenskra sparisjóða: Taka áhættu með yfirtöku GUÐJÓN GUÐMUNDSSON Fjármálaeftirlitið hefur skipað fimm fulltrúa í skilanefnd Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON), í kjölfar yfirtöku eftir- litsins á sparisjóðnum. Formaður skilanefndarinnar er Hlynur Jónsson héraðsdóms- lögmaður. Aðrir nefndarmenn eru Davíð Arnar Einarsson, Fel- dís Lilja Óskarsdóttir, Guðrún Torfhildur Gísladóttir og Jóhann Pétursson. Skilanefndin mun fara með málefni SPRON, og hafa umsjón með meðferð eigna. - bj Skilanefnd SPRON skipuð: Hafa umsjón með eignum Sparisjóðabankinn mun sækja um greiðslustöðvun í kjölfar yfir- töku Fjármálaeftirlitsins (FME), segir Agnar Hansson, forstjóri Sparisjóðabankans. Rúmlega 60 manns starfa hjá bankanum og segist Agnar gera ráð fyrir því að þeir mæti áfram til vinnu til að sinna ákveðnum verkefnum fyrir sparisjóðina og Seðlabankann. Hvað það muni vara lengi vildi hann ekki segja. Agnar vildi ekki tjá sig um afstöðu stjórnenda bankans um yfirtöku FME, en sagði yfir- lýsingar að vænta að loknum stjórnarfundi í dag. - bj Forstjóri Sparisjóðabankans: Sinna einhverj- um verkefnum „Fólk var ofboðslega slegið, þessar fréttir komu okkur algerlega á óvart,“ segir Ólafur Már Svavars- son, formaður Starfsmannafélags SPRON. Forstjóri fyrirtækisins ásamt stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins og skilanefnd SPRON fundaði með starfsmönnum á Grand hóteli í gær. Þar var farið yfir stöðu fyrirtækisins og starfsmannanna, sem eru um 200. „Fundurinn var mörgum mjög erfiður,“ segir Ólafur. „Það var grátið og mikið tilfinningaflóð, enda er þetta mjög erfitt fyrir marga.“ Starfsmönn- um var boðið upp á áfallahjálp á fundinum. Fall SPRON er mikið áfall fyrir starfsfólkið, sem býr nú við algera óvissu um framtíðina, segir Ólaf- ur. Starfsfólkið muni væntanlega allt fá uppsagn- arbréf, en einhverjir muni fá starf hjá Kaupþingi í framhaldinu. Svo virðist sem það verði ekki margir. Ólafur segir að það hafi verið algert reiðar- slag fyrir starfsfólk að fá fréttir um að hafa misst vinnuna í beinni útsendingu í fréttum sjónvarps- stöðvanna á laugardag. Starfsmenn voru í gær fullvissaðir um að þeir fengju laun um næstu mánaðamót og að laun í upp- sagnarfresti, ótekið leyfi og annað verði greitt. - bj Starfsmenn fréttu af atvinnumissi í beinni útsendingu sjónvarpsstöðvanna: Reiðarslag að missa vinnuna TIL FUNDAR Guðmundur Hauksson, forstjóri SPRON, boðaði starfsmenn til fundar á Grand hóteli í gær til að skýra þá stöðu sem upp er komin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Óumflýjanlegt var að Fjármála- eftirlitið tæki yfir rekstur Spari- sjóðs Reykjavíkur (SPRON) og Sparisjóðabankans, segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. Tíminn til að finna aðrar lausnir rann einfaldlega út. Lengi hefur legið fyrir að félög- in áttu í miklum vanda, það hefur raunar legið fyrir frá því áður en viðskiptabankarnir fóru í þrot í október, segir Gylfi. „Ég á von á því að við séum nokkurn veginn farin að sjá fyrir endann á þessari hrinu sem hófst í október, en það er auðvitað ekki útilokað að einhver fjármálafyrir- tæki fari í þrot,“ segir Gylfi. Til þess að SPRON og Spari- sjóðabankinn hefðu átt einhverja framtíð fyrir sér hefðu kröfu- hafar þurft að slá mjög af sínum kröfum. Þrátt fyrir að viðræður hafi átt sér stað mánuðum saman var lending ekki í sjónmáli, segir Gylfi. Nú hafi lausafjárstaðan verið orðin svo erfið, hjá SPRON sérstaklega, að sjóðurinn hefði í raun getað farið í þrot hvenær sem er. Fjármálaeftirlitið (FME) tók á laugardag yfir starfsemi SPRON og Sparisjóðabankans. Nýtti eftir- litið þar heimildir sem það fékk með neyðarlögunum frá 7. októb- er síðastliðinn. Eftir hrun bankakerfisins í október hafa bæði SPRON og Sparisjóðabankinn starfað á undan þágu frá FME vegna ónógr- ar eiginfjárstöðu. Þá hefur Seðla- bankinn lánað þeim fé með skilyrði um tryggingar og að samningar næðust við lánadrottna. Þrátt fyrir þetta versnaði lausa- fjárstaða SPRON og Sparisjóða- bankans. Því mat Seðlabankinn stöðu félaganna þannig að þau gætu ekki staðið við skuldbind- ingar sínar gagnvart viðskipta- vinum og kröfuhöfum. Þá hefði slæm staða þeirra getað haft nei- kvæð keðjuverkandi áhrif á önnur fjármálafyrirtæki í landinu. Áætlað hefur verið að kostnaður ríkisins við bankahrunið verði um 470 milljarðar króna. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að sú upphæð breytist ekki við tíðindi helgarinnar. Gert hafi verið ráð fyrir tapi á því fé sem ríkið hafi lagt í félögin strax í október á síðasta ári. Steingrímur segir ekki komið í ljós hvað yfirtaka á SPRON og Sparisjóðabankanum muni kosta. Sparisjóðabankinn skuldaði Seðla- bankanum um 180 milljarða króna, en á móti því koma eignir, segir Steingrímur. brjann@frettabladid.is Óumflýjanlegt að FME tæki stjórnina Fjármálaeftirlitið (FME) hefur tekið yfir stjórn SPRON og Sparisjóðabankans. Félögin hafa átt í erfiðleikum frá því fyrir bankahrunið. Seðlabankinn taldi þau ekki getað staðið við skuldbindingar og fór fram á að FME tæki þau yfir. ■ Innlán viðskiptavina SPRON fær- ast í Kaupþing. Allir skilmálar halda sér og innistæður eru tryggðar. ■ Greiðslukort útgefin af SPRON munu virka áfram, sem og heima- banki viðskiptavina. ■ Útlán SPRON verða áfram í þrotabúinu, utan við yfirdrátt við- skiptavina, sem fer með reikningum í Kaupþing. ■ Starfsmenn SPRON ráða því sjálfir hvort þeir koma til vinnu í dag. Margir munu ætla að koma til að ganga frá starfsstöðvum sínum. Reiknað er með því að útibúin verði opin þeim viðskiptavinum sem vilji leita upplýsinga, en þar verður engin formleg starfsemi. ■ Viðskiptavinir geta einnig sótt upplýsingar í útibú Kaupþings. ■ Starfsemi annarra sparisjóða en SPRON verður með með eðlilegum hætti í dag. Útibú verða opin og heimabanki aðgengilegur. ÚTIBÚ OPIN EN ENGIN STARFSEMI FUNDAÐ MEÐ STARFSMÖNNUM Yfirtaka FME á SPRON kom starfsmönnum í opna skjöldu. Fundað var með starfsmönnum sparisjóðsins og dótturfélaga hans á Grand hóteli í gær, og farið yfir stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sex sparisjóðir hafa sótt um að fá fjárframlög frá ríkinu til að mæta þeim vanda sem að sparisjóðun- um steðjar. Umsóknirnar hafa verið sendar Fjármálaeftirlitinu og Seðlabankanum til umsagnar. Um er að ræða Byr sparisjóð, Sparisjóð Norðfjarðar, Sparisjóð Keflavíkur, Sparisjóð Vestmanna- eyja, Sparisjóð Svarfdæla og Sparisjóð Bolungarvíkur. Ríkið hefur heimild til að leggja sjóðunum til allt að tuttugu pró- sentum af eigin fé. Áætlað hefur verið að kostnaður ríkisins við að koma sparisjóðunum til bjargar sé um 20 milljarðar króna. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra segir að sú upphæð eigi að vera vel rífleg, nú þegar ljóst sé að ekki þurfi að leggja fé í að bjarga Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis með sama hætti. Hann segir stjórnvöld stað ráðin í að standa vörð um sparisjóða- kerfið í landinu. Spurður hvort skilyrði fyrir fjárframlögum ríkisins sé ein- hvers konar samruni sparisjóða segir Steingrímur að það þurfi ekki endilega að koma til strax. Þó sé líklegt að sparisjóðakerfið verði endurskipulagt. - bj Stjórnvöld staðráðin í að standa vörð um sparisjóðina segir fjármálaráðherra: Sex sparisjóðir vilja aðstoð VANDI Ríkið hefur heimild til að leggja sparisjóðum til allt að 20 prósentum af eigin fé. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sjóðir frystir Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að frysta inneignir í verðbréfasjóðum og fjárfestingasjóðum SPRON. Þar á meðal er sjóður með séreignasparn- aði. Frysting sjóðanna er gerð til að tryggja jafnræði þeirra sem eiga í sjóðunum. Frekari ákvarðana um framtíð sjóðanna er að vænta. SPRON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.