Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
1. apríl 2009 — 79. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Áslaug Arnoldsdóttir hjúkrunar-fræðingur er einn reyndasti sendi-fulltrúi Rauða krossins á Íslandi og hefur starfað með hléum á átaka-svæðum frá árinu 1996. Síðastliðið haust var hún kölluð til Pakistans þar sem hún dvaldi í tvo mánuði. „Í lok ágúst voru gerðar árásir á ættflokkahéruð í Pakistan, rétt við landamæri Suður-Afganistans, en þar hafa talibanar hreiðrað umsig. Við það urðu 250 þ
fólkið var ekki á leiðinni heim í bráð enda hefur ástandið á svæðinu versnað til muna síðan í haust.“Áslaug var eina konan í teyminu. Hún þurfti að vera í hefðbundnum fatnaði, var ekki heilsað með handa-bandi og var ýtt til hliðar í samræð-um. Ég var alveg gapandi yfir þess-ari framkomu en svo áttaði ég mig á því að konur voru hve i áog k
verkefni mínu lauk þurfti ég hins vegar að fara til minna yfirmanna og tjá þeim að það yrði að vera karl-maður sem myndi leysa mig af. Þetta þótti mér mjög þungbært en ég komst að raun um að ég komst ekki nema ákveðið langt í samn-ingaviðræðum þar sem égkona “
Sinnti hjálparstarfi í Pakistan í skugga átaka
Áslaug Arnoldsdóttir hefur starfað fyrir Rauða krossinn um margra ára skeið og er hjálparstarf órjúfan-
legur hluti af lífi hennar. Síðastliðið haust lá leið hennar til Pakistan þar sem hún aðstoðaði flóttamenn.
Áslaug lítur til með særðum eftir sjálfsmorðssprengjuárás í norðvesturhluta Pakistan.
MYND/ÚR EINKASAFNI
ITALIUFERDIR.COM er heimasíða þar sem finna má skemmtilegar hjóla- og gönguferðir um Ítalíu. Átta daga útivistar- og ævintýraferð er meðal þess sem er í boði í sumar.
s
g Mjódd
Næsta námskeiðhefst 3. apríl n.k.
Kerlingarfjöll um páskanaSjá nánar á www.utivist.is
ÁSLAUG ARNOLDSDÓTTIR
Við hjálparstörf í tvo
mánuði í Pakistan
• á ferðinni • fermingar • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Meiri þægindi og
aukið geymsluþol
Nú er MS rjóminn í ½ l
umbúðum með tappa.
12
daga
geymslu-þol
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
–
0
4
8
7
Dr. Spock í
útvarp
Semur páskaleik-
rit fyrir Rás 2.
FÓLK 38
FÓLK Hópsena fyrir bandarísku
kvikmyndina Iron Man 2 verður
tekin upp á Svínafellsjökli eftir
páska. Fimmtíu manna tökulið
er væntanlegt til landsins ásamt
leikstjóra myndarinnar, Jon
Favreau.
Áheyrnarprufur verða haldnar
í spilasal Nexus á Hverfisgötu
klukkan tólf í dag en það er
Reykjavik Casting sem sér um
þær. Gísli Einarsson, eigandi
Nexus, sagðist spenntur yfir
þessu öllu saman. -fgg/sjá síðu 28
Hópsena fyrir Iron Man 2:
Áheyrnarprufur
í Nexus í dag
TÓMAS TÓMASSON:
Verður sextugur á
laugardaginn
Sönnun þess að hamborgar eru ekki fitandi
FÓLK 38
Æfir menntskælingar
Menntamálaráðherra telur rétt
að Söngkeppni framhaldsskól-
anna sé tekin upp og sýnd í
Sjónvarpinu.
FÓLK 38
Auknar vinsældir
Tímaritið Húsfreyjan
hefur komið út í 60 ár.
TÍMAMÓT 20
2 1
6
10
8
HLÝINDI SYÐRA Í dag verða
NA 10-18 m/s norðvestan til,
hvassast á Vestfjörðum. Annars
mun hægari. Rigning og síðar
skúrir sunnan- og austanlands en
yfirleitt slydda á láglendi nyrðra.
Hiti 1-12 stig.
VEÐUR 4
SMIÐURINN SVITNAR Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari og trésmiður, var ekki með hamarinn á lofti í Glasgow í gær en
svitnaði engu að síður á blaðamannafundi á Hampden Park. Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson létu sér fátt um finnast enda
öllu vanir. Ísland mætir Skotum ytra í kvöld í einum mikilvægasta leik liðsins í áraraðir. MYND/KENNY RAMSAY
Grindavík í
úrslit
Grindavík mætir KR
í úrslitum Iceland
Express-deildar
karla. Grindavík
sigraði Snæfell í
Hólminum í gær.
ÍÞRÓTTIR 32
Ólafur Jóhannesson:
Það lið sem
tapar er úr leik
FÓTBOLTI Það er mikið undir á
Hampden Park í Glasgow í kvöld
þegar Skotar taka á móti Íslend-
ingum í undankeppni HM 2010.
Bæði lið eiga í harðri baráttu
um annað sæti riðilsins sem
gefur umspilsleiki um laust sæti
á HM. Ísland er í öðru sæti sem
stendur en mjótt er á mununum.
„Ég held að það lið sem tapar
þessum leik sé úr leik í barátt-
unni um annað sætið. Jafntefli
mun gagnast báðum liðum lítið,“
sagði Ólafur Jóhannesson lands-
liðsþjálfari á blaðamannafundi á
Hampden Park í gærkvöldi.
„Við settum smá pressu á
okkur með því að gefa það út að
við ætluðum að vinna þennan
leik. En ég tel að allar forsendur
séu til staðar til þess að það geti
gengið upp. Ég trúi á sigur og
leikmennirnir eru á sama máli,“
sagði Ólafur.
Leikurinn hefst klukkan 19.00
í kvöld og er í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport. - esá / nánar á síðu 32
VIÐSKIPTI Bankaráðsmenn Lands-
bankans og félög þeim tengd
fengu um 40 milljarða króna lán
frá bankanum á fyrstu sex mán-
uðum síðasta árs. Á sama tíma
nam eigið fé bankans 198 millj-
örðum króna.
Ári fyrr skulduðu bankaráðs-
menn Landsbankans 9,9 milljarða.
Heildarlánveitingar til bankaráðs-
ins og tengdra félaga námu því
tæpum 50 milljörðum í júnílok á
síðasta ári. Um þremur mánuðum
síðar bættust 33 milljarðar króna
á núvirði við vegna ábyrgða á XL
Leisure Group. Skuldir banka-
ráðsmanna hjá Kaupþingi námu
36,8 milljörðum króna en Glitnis
33,7 milljörðum.
Ekki liggur fyrir hvaða banka-
ráðsmenn og félög fengu lánin. Þó
er skýrt tekið fram í uppgjörum
Landsbankans að kjölfestufjárfest-
irinn Samson eignarhalds félag, sem
bankaráðsformaðurinn Björgólfur
Guðmundsson og sonur hans Björg-
ólfur Thor Björgólfsson stýrðu, hafi
ekki verið veitt lánafyrirgreiðsla.
Hins vegar er ekkert sagt um lán-
veitingar til annarra félaga sem
skráð eru á þá feðga.
Kröfur á bankaráðsmenn gömlu
bankanna þriggja og félög sem þeim
eru tengd liggja bæði í búum gömlu
bankanna og þeim nýju. Skiptingin
fer eftir því hvort félögin sem lánin
fengu séu skráð hér eða erlendis.
Árni Tómasson, formaður skila-
nefndar Glitnis, segir kröfurnar
virkar og sé unnið að því hörðum
höndum að innheimta þær. Óvíst
sé þó um heimtur enda lítið í búi
margra félaganna sem um sé að
ræða. „Það sama gildir um banka-
ráðsmennina og aðra. Kröfur þeirra
verða innheimtar,“ segir hann og
bendir á að margar leiðir séu í skoð-
un til innheimtu krafnanna. .„Við
verðum að meta í hverju tilviki
hvað við erum tilbúin til að ganga
langt,“ segir hann. - jab / Sjá Markaðinn
Bankaráðsmenn jusu
stórfé úr bönkunum
Bankaráðsmenn viðskiptabankanna þriggja og félög þeim tengd skulduðu
bönkunum 150 milljarða þegar bankarnir féllu. Óvíst er með heimtur krafna.
EIGANDI NEXUS Gísli Einarsson sagðist
mjög spenntur yfir þessu öllu saman.
ALÞINGI Sjálfstæðismenn hótuðu
að koma í veg fyrir að frumvarp
um breytingar á gjaldeyrishöftum
fengi afgreiðslu á Alþingi í gær ef
frumvarp um breytingar á stjórnar-
skrá yrði afgreitt úr nefnd í gær-
kvöldi, eins og til stóð.
Minnihlutastjórn Samfylkingar
og Vinstri grænna átti ekki annan
kost en að fresta afgreiðslu stjórnar-
skrárfrumvarpsins eftir um 90
mínútna þref, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins.
Eftir að samkomulag náðist um
að taka breytingar á gjaldeyris-
höftum á dagskrá var talið víst að
málið yrði samþykkt, en umræður
stóðu enn á Alþingi þegar Frétta-
blaðið fór í prentun í gær.
„Það er ljóst að það hefur myndast
tvöfaldur markaður með gjaldeyri,
það er ekkert sem er æskilegt,
þvert á móti,“ segir Friðrik J. Arn-
grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Hann segir útgerðarmenn leggja
áherslu á jafnræði.
Friðrik segir að það hafi komið á
óvart að ekki hafi verið tekið fyrir
vöruskipti þegar gjaldeyrishöftin
voru upphaflega sett. Útvegsmenn
sem stundað hafi þess konar við-
skipti hafi að mati LÍÚ ekki brotið
lög. - bj, kóp / sjá síðu 2
Þingmenn Sjálfstæðisflokks hótuðu að tefja frumvarp um gjaldeyrishöft:
Stjórnarskrárfrumvarp fast í nefnd