Fréttablaðið - 01.04.2009, Page 10
10 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
SAMGÖNGUR Ekki hefur verið
hægt að koma bíl úr Árneshreppi
um tveggja mánaða skeið vegna
ófærðar. Reyndar hefur verið
meira og minna ófært úr hreppn-
um allt þetta ár að sögn Jóns Guð-
björns Guðjónssonar, veðurathug-
unarmanns frá
Litlu-Ávík.
Einnig var
ófært innan
sveitarinnar í
gær og fyrra-
dag svo að börn
komust ekki í
skólann.
„Það hefur
eiginlega verið
ófært hingað frá
því í desember,“
segir Edda Hafsteinsdóttir sem
búsett er í Norðurfirði. „Reyndar
komst hann Hrafn [Jökulsson, rit-
höfundur] á jeppanum suðureftir
í lok janúar en ég held að bíllinn
hafi ekki komist hingað norður
aftur síðan.“
Margrét Jónsdóttir, útibússtjóri
Kaupfélags Steingrímsfjarðar í
Norðurfirði, segir að þó einhverja
daga gefist færi á að moka leiðina
til Hólmavíkur skafi strax yfir
veginn aftur á þessum slóðum.
Fólkið hefur því nýtt sér flug til að
komast suður en flogið er tvisvar
í viku frá Gjögri til Reykjavíkur.
„Þetta hefur verið versti veturinn í
mörg ár,“ segir Jón Guðbjörn Guð-
jónsson veðurathugunarmaður.
En þó er ekki barlómnum fyrir
að fara. „Ég er nú orðin svo gömul
sem á grönum má sjá þannig að
þetta hefur ekki mikil áhrif á
mig,“ segir Margrét sem hefur
búið alla sína tíð í Árneshreppi.
Edda flutti hins vegar fyrir sex
árum frá höfuðborginni norður á
Strandir og unir hag sínum afar
vel. „Ég tek þessu bara vel, þetta
leggst ekkert illa í mig,“ segir
hún. „Og það er ósköp gott að vera
hérna núna eins og ástandið er í
þjóðfélaginu, við finnum voðalega
lítið fyrir þessari kreppu nema að
vöruverðið hefur hækkað. Þannig
að ég er ósköp fegin að hafa tekið
þetta skref.“ Útibússtjórinn hefur
af sjálfsögðu ekki farið varhluta af
hærra vöruverði. „Já, vöruverðið
er orðið hátt, maður skammast sín
eiginlega fyrir að selja vörurnar á
þessu verði.“
Jón Guðbjörn segir að vissulega
séu ekki allir jafn sáttir í ófærð-
inni. „Við sem höfum verið hér
lengi erum vissulega vön þessu en
aðrir eiga erfitt með að sætta sig
við það að búa ekki við eðlilegar
samgöngur, sem er kannski eðli-
legt,“ segir hann.
Þrjátíu og þrír búa í Árneshreppi
og þegar talað er um sameiningu
spyr Edda strax á móti „hverjum
eigum við að sameinast? Eins og
samgöngurnar eru þá lægi beinast
við að við myndum þá sameinast
Reykjavík þangað sem við kom-
umst tvisvar í viku þegar veður
leyfir.“
jse@frettabladid.is
Finna lítið fyrir kreppunni
í ófærðinni í Árneshreppi
Ófært hefur verið úr Árneshreppi frá áramótum. Einn komst suður í janúar en bíllinn hefur ekki komist
aftur norður. Börn hafa ekki komist í skóla vegna ófærðar síðustu tvo daga. Fólk unir hag sínum samt vel.
EDDA
HAFSTEINSDÓTTIR
SNJÓMOKSTUR Í ÁRNESHREPPI Verið
var að moka snjó í gær svo hægt væri
að komast að flugvélinni sem flýgur að
Gjögri og börn komist til skóla í dag.
MYND/LITLIHJALLI.IT.IS
ÁRNESHREPPUR Oft er talað um svæðið sem sveitina þar sem vegurinn endar. Í
vetur hafa sveitungar hins vegar hvorki komist norður né suður.
Margrét Jónsdóttir, útibússtjóri
Kaupfélags Steingrímsfjarðar á
Norðurfirði, mun láta af störfum 30.
apríl næstkomandi. Þá lýkur 59 ára
starfsferli hennar hjá Kaupfélaginu
og einnig Gunnsteins Gíslasonar
eiginmanns hennar sem lætur þá
einnig af störfum. „Vissulega verða
þetta viðbrigði þegar maður verður
allt í einu hættur að vinna,“ segir
hún. „En ég fer bara á bekkinn og
spjalla við fólk ef mér leiðist.“ Bekk-
ur þessi í Kaupfélaginu hefur verið í
Kaupfélagshúsinu frá því að það var
reist árið 1953 og ræða hreppsbúar
þar oft málin.
Edda Hafsteinsdóttir tekur við af
Margréti.
SAMTALS 118 ÁR HJÁ KAUPFÉLAGINU
MARGRÉT OG GUNNSTEINN
Gjögur
Reykjarfjö
rður
Norðurfj
örður
Ófe
igsf
jörð
ur
Litla-Ávík
NÝR OG TRAUSTUR
KOSTUR Í SPARNAÐI
OG FJÁRFESTINGUM
HUGARAFL Japanskir vísindamenn hjá
bílarisanum Toyota sýndu í gær nýja
tegund vélmennis sem getur tekið við
skipunum frá heilabylgjum stjórnand-
ans. Flókinn búnað þarf til að nema
heilabylgjurnar, sem geta fengið vél-
mennið til að hreyfa hendur og fætur.
NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Lífeyrissjóður Rang-
æinga hefur ekki þegið gjafir eða
boðsferðir frá fyrirtækjum sem
sjóðurinn hefur fjárfest í. Fram-
kvæmdastjóri hefur tekið að hluta
til þátt í laxveiðiferð á vegum
innlends samstarfsaðila sumarið
2008, eða í einn og hálfan dag.
Þá hefur hann þegið jólagjafir
frá helstu samstarfsaðilum á sviði
eignastýringar. Þetta kemur fram í
svari hans við fyrirspurn Frétta-
blaðsins um boðsferðir, veiðiferðir
og aðrar gjafir á tímabilinu 2005-
2008. - ghs
Lífeyrissjóður Rangæinga:
Aðeins farið í
eina veiðiferð
Sundlaug verði steinasafn
Tvo tilboð bárust í gömlu sundlaugina
á Höfn í Hornafirði. Hærra tilboðið er
fimm milljónir króna og gerir ráð fyrir
að sundlauginni verði breytt í steina-
safn. Samkvæmt tveggja milljóna
króna áætlun verður listamiðstöð og
kaffihús í gömlu lauginni. Bæjarstjórn
á eftir að ákveða sig en hefur þó sam-
þykkt að Hvítasunnukirkjan fái heitan
pott sem losnar.
HORNAFJÖRÐUR