Fréttablaðið - 01.04.2009, Síða 56
32 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabla-
SKOTLAND-ÍSLAND
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Glasgow
eirikur@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísland mætir í kvöld Skot-
landi á Hampden Park í Glasgow í
undankeppni HM 2010. Um er að
ræða gríðarlega mikilvægan leik
fyrir bæði lið sem vilja gera allt
sem í þeirra valdi stendur til að
tryggja sér annað sæti riðilsins.
„Ég held að það lið sem tapar
þessum leik sé úr leik hvað annað
sæti riðilsins varðar. Þar að auki tel
ég að jafntefli muni gagnast báðum
liðum lítið,“ sagði Ólafur á blaða-
mannafundi á Hampden Park í gær.
Hann sagði þó bjartsýni ríkja bæði
hjá sér og leikmönnum fyrir leikinn
mikilvæga.
„Við settum smá pressu á okkur
með því að gefa það út að við ætl-
uðum að vinna þennan leik. En ég
tel að allar forsendur séu til staðar
til að það geti gengið upp. Ég trúi
því og leikmennirnir eru á sama
máli.“
Ísland og Skotland eru sem stend-
ur jöfn að stigum í öðru sæti riðl-
ins, bæði með fjögur stig eftir fjóra
leiki. Hollendingar mæta Makedón-
íumönnum á sama tíma í kvöld og
ef þeir fyrrnefndu halda upptekn-
um hætti má búast við því að það lið
sem sigrar á Hampden Park í kvöld
verði komið með þriggja stiga for-
ystu á næsta lið í öðru sæti.
Hermann Hreiðarsson landsliðs-
fyrirliði sagði að það væri hefndar-
hugur í leikmönnum eftir að hafa
alltaf tapað fyrir Skotum.
„Allir þessir leikir gegn Skotum
hafa verið jafnir. Leikurinn í haust
gat til að mynda farið á hvorn veg-
inn sem var. En það er engu að
síður ljóst að við þurfum að eiga
hörkuleik til að eiga möguleika,“
sagði Hermann Hreiðarsson.
Ólafur bjóst ekki við því að til-
kynna byrjunarliðið fyrr en á fundi
með leikmönnum tæpum þremur
klukkutímum fyrir leik.
„Ég er ekki búinn að ákveða byrj-
unarliðið því það er enn mörgum
spurningum ósvarað. Ég fæ von-
andi svör við þeim á æfingunni í
kvöld,“ sagði hann í gær.
Nokkuð hefur verið um forföll í
íslenska liðinu og fyrirséð að Ólaf-
ur þarf að stóla á unga og óreynda
menn á miðju íslenska liðsins, þar
sem Brynjar Björn Gunnarsson og
Stefán Gíslason eru fjarverandi.
„Það var vissulega slæmt að
missa þessa menn og ljóst að ég
þarf því að velja reynsluminni
menn. En ég hef samt ekki áhyggj-
ur af þeim sem koma til með að
spila þennan leik – þeir munu
standa sig,“ sagði Ólafur Jóhann-
esson landsliðsþjálfari.
Trúum á sigur gegn Skotum
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari telur að það lið sem muni tapa leik í
Skotlands og Íslands í kvöld eigi enga möguleika á því að ná öðru sæti í riðli
liðanna í undankeppni HM 2010. Jafntefli dugir báðum liðum skammt.
ÍHUGULL Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur um margt að hugsa fyrir leikinn mikilvæga í kvöld. Hann sést hér á æfingu á
Hampden Park í gærkvöldi. MYND/KENNY RAMSAY
Eiður Smári Guðjohnsen segir að leikmenn hlakki mjög til að takast
á við sterkt landslið Skota á Hampden Park í Glasgow í kvöld.
Leikurinn er liður í undankeppni HM 2010 og það lið sem sigrar
verður komið í ansi vænlega stöðu. „Nú erum við aftur komnir í þá
stöðu að við fáum tækifæri til að ná lengra í keppni eins og
þessari. Við vitum að það er búist við því að við stönd-
umst álagið sem fylgir slíkum áskorunum og sé ég enga
ástæðu fyrir því að það sé ekki hægt,“ sagði Eiður á
blaðamannafundi í gær.
„Ég held að leikurinn verði svipaður og aðrir leikir
milli liðanna hafa verið. Þetta hafa yfirleitt verið nokkuð
jafnar viðureignir en við höfum mátt þola nokkra
pressu frá þeim í upphafi leiksins. Það verður mikilvæg-
ast að við stöndum af okkur þann kafla. Við höfum líka
alltaf fengið okkar tækifæri og yfirleitt náð að skora,“ sagði
Eiður.
Hann sagði að leikmenn íslenska liðsins væru
hungraðir og að þeir hlökkuðu til. „Við vitum vel
að með sigri erum við komnir í góða stöðu. Við
vitum líka að við erum að fara mæta sterku skosku landsliði sem er
með frábæran heimavöll. Við þurfum bara að minna sjálfa okkur á
að þetta er hægt.“
Spurður um styrkleika skoska landsliðsins sagði Eiður að þar væri
það liðsheildin, líkt og hjá íslenska landsliðinu. „Þeirra styrkleiki
liggur í öflugri liðsheild og því megum við eiga von á mjög
hörðum leik.“
Hann átti þó ekki von á því að hann yrði neitt sérstak-
lega tekinn úr umferð af andstæðingum sínum í leiknum.
„Ég hef yfirleitt verið sá leikmaður sem hefur fengið
mestu athyglina fyrir leikina en ég held að það skipti engu
máli þegar hann svo hefst. Ég mun reyna að spila minn
bolta og hjálpa mínum samherjum. Svo lengi sem við
vinnum saman sem eitt lið getum við náð góðum árangri.“
Skömmu fyrir landsleikjatörnina bárust fregnir af því að
Eiður hefði þurft að sleppa æfingu hjá Barcelona vegna
magakveisu. Hann var spurður út í þetta á blaðamannafund-
inum. „Nei, ég er ekki lengur með magakveisu,“ sagði
hann og brosti út í annað. „Hún gekk fljótt yfir.“
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN: ER EKKI LENGUR MEÐ MAGAKVEISU OG KLÁR Í SLAGINN Í KVÖLD
Það ríkir mikil tilhlökkun meðal leikmanna
> Ekki uppselt á Hampden
Fulltrúar skoska knattspyrnusambandsins telja ólíklegt
að uppselt verði á leik Skotlands og Íslands sem fer fram
á Hampden Park í Glasgow í kvöld. Völlurinn tekur 50
þúsund manns og höfðu í gærkvöldi um 40 þúsund miðar
selst. Skotar hafa verið einkar duglegir að
fjölmenna á útileiki liðsins og voru til að
mynda 16 þúsund Skotar í Amsterdam um
síðustu helgi þótt ekki hefðu allir miða
á leik sinna manna gegn Hollandi.
En áhuginn heima fyrir virðist fara
dvínandi enda hafa Skotar ekki
unnið leik á Hampden Park í
næstum tvö ár.
FÓTBOLTI Skoska pressan fjallaði í
gær mikið um þær mannabreyt-
ingar sem gætu átt sér stað í
byrjunarliði skoska landsliðsins
fyrir leikinn gegn Íslandi í kvöld.
Skotar töpuðu fyrir Hollandi um
helgina, 3-0, og er hætt við því að
menn missi sæti sitt í byrjunar-
liðinu vegna þessa.
Allan McGregor markvörður
fékk sjaldgæft tækifæri í byrj-
unarliðinu í Amsterdam en hefur
verið harkalega gagnrýndur
fyrir frammistöðu sína í leikn-
um. Craig Gordon sat á bekkn-
um en hann hefur verið aðalmark-
vörður Skota undanfarin ár.
Þeir Stephen McManus og Alan
Hutton voru ekki í vörn Skota um
helgina vegna meiðsla en fastlega
er reiknað með því að þeir verði
báðir í byrjunarliðinu í kvöld
á kostnað þeirra Christophers
Berra og Grahams Alexander.
Þeir Gary Teale og sóknarmað-
urinn Kenny Miller eiga það á
hættu að missa sín sæti. Teale
átti vægast sagt slakan dag og
Miller notaði þau fáu færi sem
Skotar fengu í leiknum afar illa.
Talið er að James Morrison
gæti tekið stöðu Teale og að hinn
22 ára gamli Stephen Fletcher
hjá Hibernian verði í fremstu
víglínu. Þá er ekki útilokað að
Chris Iwelumo verði í sókninni
og þá jafnvel við hlið annað hvort
Millers eða Fletchers.
George Burley landsliðsþjálf-
ari, hefur yfirleitt notast við
4-3-3 liðsuppstillingu en gæti
freistast til þess að stilla upp
sókndjörfu 4-4-2 liði. Það er enn
mörgum spurningum ósvarað um
byrjunarlið Skota, og líka Íslend-
inga, fyrir kvöldið. - esá
Miklar vangaveltur um byrjunarlið Skota í dag:
Fimm breytingar?
KÖRFUBOLTI Það verða KR og
Grindavík sem leika til úrslita
um Íslandsmeistaratitilinn í
körfubolta. Þetta varð ljóst í gær-
kvöld þegar Grindvíkingar lögðu
Snæfellinga í fjórða leik liðanna
í undanúrslitaeinvíginu 85-75.
Leikurinn var jafn framan af og
Snæfell hafði nauma forystu í
hálfleik. Síðari hálfleikur-
inn var hins vegar betri
hjá Grindvíkingum og
setti pressuvörn þeirra
heimamenn nokkuð
út af laginu.
Menn eins og Helgi
Jónas Guðfinns-
son, Nick Brad-
ford og Þorleifur
Ólafsson sáu til
þess með góðum
rispum í síð-
ari hálfleiknum
að einvígið fór
ekki í oddaleik. Segja má
að það hafi verið gamli
refurinn Helgi Jónas sem
kveikti í Grindavíkur-
liðinu þegar hann skoraði
ótrúlega körfu frá miðlínu
þegar lokaflautið gall í
þriðja leikhlutanum.
„Við vildum reyna
að halda uppi hraðanum í
leiknum og það gekk upp. Nú
er bara að undirbúa sig fyrir
seríuna við KR. Við höfum
unnið þá einu sinni í vetur svo
við eigum góða möguleika í
þá,“ sagði Helgi Jónas Guð-
finnsson. - bb
Grindavík komið í úrslitin gegn KR eftir sterkan sigur, 75-85, í Hólminum:
Helgi Jónas kveikti í Grindvíkingum
Snæfell-Grindavík 75-85
Stig Snæfells: Lucious Wagner 21, Hlynur
Bæringsson 15 (16 frák.), Sigurður Þorvaldsson
12, Jón Ólafur Jónsson 12, Magni Hafsteinsson
7, Atli Hreinsson 4, Gunnlaugur Smárason 3.
Stig Grindavíkur: Nick Bradford 23, Þorleifur
Ólafsson 18, Helgi Jónas Guðfinnsson 14, Guð-
laugur Eyjólfsson 9, Páll Kristinsson 8, Brenton
Birmingham 6, Arnar Freyr Jónsson 4, Páll Axel
Vilbergsson 3.