Fréttablaðið - 01.04.2009, Blaðsíða 58
34 1. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
KÖRFUBOLTI Deildarmeistarar
Hauka og bikarmeistarar KR
spila í kvöld hreinan úrslitaleik
um Íslandsmeistaratitil kvenna í
körfubolta. Einvígið er eins jafnt
og hugsast getur, bæði lið hafa
unnið einn heimaleik og einn úti-
leik og einn leikur hefur farið alla
leið í framlengingu.
Hildur Sigurðardóttir, fyrir-
liði KR, hefur leikið frábærlega
með KR-liðinu í úrslitakeppninni
og hún er sú eina af leikmönnum
kvöldsins sem spilaði leikinn fyrir
sjö árum þegar síðasti oddaleikur
um titilinn fór fram.
KR-liðið mun leika sinn ellefta
leik í úrslitakeppninni og Hildur
segir stöðuna á liðinu verða flotta
miðað við allt álagið.
„Þetta er vissulega búinn að vera
langur vegur en hann er búinn að
vera skemmtilegur,“ segir Hildur
sem hefur sagt skilið við meiðslin
sem háðu henni framan af tímabili.
„Það er gaman að geta sýnt sínar
bestu hliðar núna,“ segir Hildur
sem hefur skoraði 19,5 stig, tekið
8,8 fráköst og gefið 4,9 stoðsend-
ingar í leik í úrslitakeppninni.
Góðar í úrslitaleikjunum í vetur
KR-liðið hefur unnið alla „úrslita-
leiki“ sína eftir áramót og Hildur
segir að þar hafi góður stuðningur
á bak við liðið skilað sér. „Barátt-
an hefur líka komið okkur langt og
við munum mæta í þennan leik til
þess að berjast,“ segir Hildur.
Hildur er í allt öðru hlutverki í
KR-liðinu í dag en fyrir sjö árum
þegar KR vann úrslitaleik um titil-
inn á móti ÍS á útivelli. Hildur var
þá 21 árs gömul og yngsti lykilleik-
maður liðsins. Í dag er hún fyrir-
liði KR-liðsins og fer fyrir liðinu
innan sem utan vallar. „Ég kann
alveg ágætlega við þetta hlutverk
að vera að leiðbeina og að miðla
minni reynslu,“ segir Hildur.
Haukar tefla fram tveimur
útlendingum, Slavicu Dimovsku
frá Makedóníu og Moneku Knight
frá Bandaríkjunum, en vinni KR-
liðið verður það annað kvennaliðið
frá árinu 1995 sem vinnur Íslands-
meistaratitilinn án þess að vera
með erlendan leikmann.
Treyst til að klára þetta sjálfar
„Við erum mjög ánægðar með
þessa ákvörðun hjá KR-ingum að
vera ekki að bæta við leikmönn-
um og leyfa okkur að gera þetta
sjálfar,“ segir Hildur og bætir
við: „Þeir treystu okkur til þess
að klára þetta og við höfum sýnt
það að við erum með það sterkt lið
að við þurftum ekki einhverja til
þess að taka ábyrgðina af okkur,“
segir Hildur.
Leikurinn fer fram á sama tíma
og landsleikur Skotlands og Íslands
en Hildur hefur ekki áhyggjur af
því.
„Ég held að það yrði skemmti-
legra fyrir fólk að mæta á Ásvelli
en að sitja heima í sófa. Það gæti
endað á dramatískan hátt en ég
vona að við náum bara að klára
þetta á venjulegan hátt,“ segir
Hildur og hún ætlar að gefa allt í
þetta. „Við getum tekið okkur gott
frí eftir þetta þannig að það er um
að gera að gefa allt í þetta þannig
að maður fari allavega sáttur frá
leiknum,” segir Hildur að lokum.
Fleiri spá Haukum sigri
Fréttablaðið fékk fimm þjálfara í
deildinni til þess að spá fyrir um
leikinn. Þrír spáðu Haukum sigri
en tveir búast við að KR-ingar
verði meistarar. Flestir búast líka
við því að Hildur Sigurðardóttir
verði kosin best. ooj@frettabladid.is
Fyrsti úrslitaleikur um titilinn í 7 ár
Haukar og KR leika til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna á Ásvöllum klukkan 19.15 í kvöld. Það hef-
ur ekki verið oddaleikur í lokaúrslitum karla eða kvenna síðan KR-konur unnu titilinn síðast árið 2002.
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, var þá í sigurliði á útivelli og hún getur endurtekið leikinn í kvöld.
FRÁBÆR Í ÚRSLITAKEPPNINNI Hildur Sigurðardóttir hefur farið fyrir útlendingalausu
KR-liði í úrslitakeppninni. FRÉTTABLÐAIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Oddaleikur kvölds-
ins milli Hauka og KR verður sá
fjórði í sögu lokaúrslita Íslands-
móts kenna. Hinn fyrsti vannst
á heimavelli en tveir þeir síðustu
hafa unnist á útivelli.
Keflavík vann KR 68-64 í
fyrsta oddaleiknum um titilinn
sem fram fór árið 1994.Árið 2000
vann Keflavík 43-58 sigur á KR
í KR-húsinu í oddaleik um titil-
inn. Síðasti oddaleikur fór fram
í Íþróttahúsi Kennaraháskólans
árið 2002. ÍS vann fyrstu tvo leiki
lokaúrslitanna en KR jafnaði og
tryggði sér síðan titilinn með 64-
68 sigri í úrslitaleiknum. - óój
Oddaleikir lokaúrslita kvenna:
Síðustu tveir
unnust á útivelli
KÖRFUBOLTI Haukakonur geta
tryggt sér þriðja Íslandsmeist-
aratitilinn á fjórum árum með
sigri á KR í oddaleiknum í kvöld.
Haukaliðið hefur unnið báða
oddaleikina sem liðið hefur spilað
í úrslitakeppni en þeir voru báðir
í undanúrslitum og á móti ÍS.
Haukar unnu ÍS 91-77 í odda-
leik undanúrslitanna 2006 og end-
urtóku leikinn síðan með 81-59
sigri árið eftir. - óój
Haukakonur í úrslitakeppni:
Hafa aldrei tap-
að oddaleik
FYRIRLIÐI HAUKA Kristrún Sigurjóns-
dóttir á fullri ferð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPÁ ÞJÁLFARA KVENNA-
DEILDARINNAR
Jón Halldór Eðvaldsson, Keflavík:
Meistari: Haukar
Best: Hildur Sigurðardóttir, KR
Ari Gunnarsson, Hamar
Meistari: Haukar
Best: Hildur Sigurðardóttir, KR
Pétur Guðmundsson, Grindavík:
Meistari: KR
Best: Guðrún Gróa Þorsteinsd., KR
Robert Hodgson, Val:
Meistari: Haukar
Best: Slavica Dimovska, Haukum
Högni Högnason, Snæfelli:
Meistari: KR
Best: Hildur Sigurðardóttir, KR