Morgunblaðið - 12.01.2006, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umræður og deilurhafa komið uppmeð nokkuð
reglulegu millibili á um-
liðnum árum um hvort Ís-
land eigi að fullgilda sam-
þykkt Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar (ILO) nr.
158, frá árinu 1982, um
uppsagnir starfsmanna af
hálfu atvinnurekenda. Al-
þýðusambandið hefur
þrýst á um að þetta verði
gert. Samtök atvinnurek-
enda hafa lagst á móti.
Allur gangur hefur
raunar verið á fullgildingu
samþykkta ILO hér á landi. Fram
kom fyrir um tíu árum að á ár-
unum 1990–1992 veitti Alþingi
ríkisstjórn heimild til að fullgilda
fjórar samþykktir en í tvo áratugi
þar á undan var einungis ein sam-
þykkt fullgilt. Afstaða þeirra sem
gegnt hafa embætti félagsmála-
ráðherra á hverjum tíma hefur
ýmist verið með eða á móti inn-
leiðingu ILO-samþykktarinnar.
Þannig lýsti t.d. Jóhanna Sigurð-
ardóttir, þáverandi félagsmála-
ráðherra, því á árinu 1994 að
hyggja þyrfti að meiri vernd
launafólks gagnvart uppsögnum
og fyllilega komi til álita að taka
þetta mál upp að nýju. Fyrir
nokkrum dögum sagðist Árni
Magnússon félagsmálaráðherra í
útvarpsviðtali ekki ætla að beita
sér fyrir innleiðingu samþykktar-
innar.
Rök eru færð með og
á móti í vefsíðupistlum
Umræða um þessa umdeildu
samþykkt er nú að kvikna til lífs
enn á ný. ASÍ telur að umfjöllun
um fullgildingu samþykktarinnar
ljúki ekki fyrr en Alþingi tekur af-
stöðu til málsins. Kveður sam-
þykktin m.a. á um að fyrir upp-
sögn starfsmanns skuli vera gild
ástæða sem snertir hæfni hans
eða hegðun, eða hún sé byggð á
rekstrarlegum ástæðum atvinnu-
rekandans. Fjallað hefur verið um
samþykktina og hvort hún eigi að
öðlast gildi hér á landi á heimasíð-
um Samtaka atvinnulífsins og ASÍ
á seinustu dögum og öndverð
sjónarmið verið sett fram.
Rakinn er gangur málsins frá
því ársfundur ASÍ 2004 sam-
þykkti að beita sér fyrir því að Ís-
land staðfesti fyrrnefnda sam-
þykkt í vefsíðupistli ASÍ sl.
þriðjudag. Félagsmálaráðherra
var gerð grein fyrir málinu á fundi
með fulltrúum ASÍ í nóvember
2004 og samkvæmt frásögn ASÍ
taldi hann eðlilegt að taka málið
upp á vettvangi þríhliða ráðgjafa-
nefndar ráðuneytisins um málefni
ILO. Í henni sitja fulltrúar ASÍ,
SA og formaður frá félagsmála-
ráðuneytinu.
Staðfesting samþykktarinnar
hefur tvisvar áður komið til skoð-
unar hér á landi. Fyrst í félags-
málaráðuneytinu 1984–5 og svo í
ráðgjafanefndinni í byrjun 10.
áratugar 20. aldar. Í umfjöllun
ráðgjafanefndarinnar nú kom í
ljós að skoðanir ASÍ og SA á sam-
þykktinni voru mjög ólíkar. ASÍ
telur ljóst að aðilar vinnumarkað-
arins séu ekki sammála um að
hrinda samþykktinni í fram-
kvæmd með kjarasamningum og
því beri ráðherra að leggja málið
fyrir Alþingi eins og gert er ráð
fyrir í 5.mgr. 19.gr. stjórnarskrár
ILO. ASÍ segir það hafa komið
verulega á óvart þegar ráðherra
tilkynnti í fréttatíma Ríkisút-
varpsins að hann myndi ekki beita
sér fyrir staðfestingu samþykkt-
arinnar hér á landi. Gerir ASÍ þá
kröfu að ráðherrann standi við
fyrirheit um að taka málið til efn-
islegrar umfjöllunar. „Í því felst
að formleg afstaða hans og ráðu-
neytisins komi fram í störfum
þeirrar nefndar sem hann fól um-
fjöllun um málið, þ.e. þríhlíða ráð-
gjafanefnd ráðuneytisins um mál-
efni ILO og síðan að hann skili
þeirri niðurstöðu til Alþingis
ásamt tillögu sinni um það hvort
staðfesta beri samþykktina form-
lega eða ekki.“
Gagnstæð sjónarmið koma aft-
ur á móti fram í umfjöllun SA um
ILO-samþykktina og þýðingu
hennar á vefsíðu SA. „Ákvörðun
um fullgildingu þessarar sam-
þykktar yrði jafnframt ákvörðun
um grundvallarbreytingu íslensks
vinnuréttar,“ segir SA. „Þar er
það meginregla að vinnuveitandi
og starfsmaður hafa gagnkvæman
uppsagnarrétt að virtum lög- og
samningsbundnum uppsagnar-
fresti. Vinnuveitandinn þarf því
almennt ekki að rökstyðja upp-
sagnir starfsfólks og sýna fram á
að fyrir þeim sé gild ástæða, þótt
frá því séu undantekningar svo
sem varðandi trúnaðarmenn
stéttarfélaga, barnshafandi konur
og foreldra í fæðingarorlofi.“
Bent er á að víða á meginlandi
Evrópu sé stöðnun í efnahagsmál-
um og mikið atvinnuleysi vanda-
mál. Mörg þessara ríkja séu þjök-
uð af stífum og ósveigjanlegum
vinnumarkaðsreglum sem m.a.
dragi úr nýsköpun, viðbragðsflýti
fyrirtækja, efnahagslegum um-
svifum og ráðningum í störf. Upp-
sagnarverndin dragi úr möguleik-
um fólks að komast á vinnu-
markaðinn og ráðning starfs-
manns verði áhættumeiri fyrir
fyrirtæki. Íslendingar hafi borið
gæfu til að viðhalda tiltölulega
sveigjanlegum reglum á vinnu-
markaði.
Fréttaskýring | ASÍ og SA takast á um
alþjóðasamþykkt ILO um uppsagnir
Aukin vernd eða
sveigjanleiki
Kröfu beint að ráðherra að standa við
fyrirheit um efnislega umfjöllun
Ekki þarf að rökstyðja uppsagnir hér á landi.
33 ríki hafa fullgilt hina
umdeildu samþykkt ILO
Samtök atvinnulífsins benda á
að þó að samþykkt ILO hafi verið
í gildi í yfir 20 ár hafi aðeins 33
ríki fullgilt hana, þar af 9 af 28
aðildarríkjum EES. Magnús
Norðdahl, lögfræðingur ASÍ,
segir í nýjum pistli þá staðhæf-
ingu SA ranga, að ríki sem búi
við ríka uppsagnarvernd séu
þjökuð af stífum og ósveigjan-
legum vinnumarkaðsreglum.
Finnland og Svíþjóð sem séu í
forystu um nýsköpun og umsvif
hafi t.d. staðfest samþykktina.
Eftir Ómar Friðriksson og
Guðna Einarsson
HELGI Einar sem var á gangi um
Hafnarfjarðarhöfn milli élja í gær
rakst á þennan þokkalega sel sem
ljósmyndarinn var að mynda. Sel-
urinn var spakur en vildi þó ekki
fiskinn sem honum var boðinn.
Hvarf hann svo í hafið og hefur ef-
laust talið sig fá eitthvað betra að
nærast á í undirdjúpunum.
Morgunblaðið/Ásdís
Má bjóða þér síld?