Morgunblaðið - 15.01.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.01.2006, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚTGJÖLD HÆKKA Útgjöld vegna stjórnsýsluverk- efna í landbúnaði hafa hækkað mik- ið á síðustu sex árum. Kostnaður við rekstur landbúnaðarráðuneytisins hefur hækkað um 78% á þessu tíma- bili, en 219 milljónir fara til reksturs þess samkvæmt fjárlögum. Framlög ríkissjóðs til Bændasamtaka Íslands hafa hækkað um 86% frá árinu 2000 og verða 488 milljónir í ár. Þessi hækkun er mun meiri en út- gjaldaaukning fjárlaga á þessu sex ára tímabili en hún er um 56%. Til samanburðar má nefna að útgjöld vegna reksturs fjármálaráðuneyt- isins jukust um 53% á tímabilinu. Kynnir fjarskiptaáætlun Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra mun á næstunni kynna áætlun um það hvernig staðið verð- ur að uppbyggingu fjarskipta á landsbyggðinni hvað snertir há- hraðatengingar og farsímakerfi, undir yfirskriftinni Altengt Ísland, en ríkisstjórnin ákvað síðastliðið haust að verja 2,5 milljörðum króna af söluverði Símans til slíkra verk- efna. Samgönguráðherra mun kynna þessa fjarskiptaáætlun á fundum víða um land næstu vikurnar og fjarskiptasjóð sem stofnaður var með þessu fé. Gætu orðið frumkvöðlar Wallace S. Broecker, jarðefna- fræðingur frá Columbia-háskóla í New York í Bandaríkjunum, segir að Íslendingar geti orðið frum- kvöðlar í þróun á bindingu koltvíox- íðs í jörðu og að íslenskur berg- grunnur þyki mjög ákjósanlegur til þess. Hann segir að möguleiki sé á að frumgerð búnaðar til að nema á brott koltvíoxíð úr andrúmsloftinu verði hýst á Íslandi en slíkur bún- aður er nú í þróun hjá fyrirtæki í Tucson í Arizona. Wallace er staddur hér á landi, ásamt föruneyti frá Columbia- háskóla, fyrir tilstuðlan forseta Ís- lands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og mun eiga fundi með íslenskum vísindamönnum og orkufyrirtækjum til að ræða loftslagsmál. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 53/56 Stangveiði 26 Myndasögur 60 Þjóðlífsþankar 33 Dagbók 60/63 Forystugrein 36 Víkverji 60 Reykjavíkurbréf 36 Staður og stund 62 Sjónspegill 38 Leikhús 64 Umræðan 41/49 Bíó 66/69 Bréf 46 Sjónvarp 70 Brids 51 Staksteinar 70 Hugvekja 52 Veður 71 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir kynningarbæklingur frá Terra Nova. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is MENNTASKÓLI Borgarfjarðar, sem ætlunin er að taki til starfa haustið 2007 í Borgarnesi, verður væntanlega þriggja ára framhalds- skóli og mun starfa eftir nýrri náms- skrá um breytt námsskipulag til stúdentsprófs, samkvæmt upplýs- ingum úr menntamálaráðuneytinu. Verður hér um tilraunaverkefni að ræða og mun menntamálaráðuneytið bera ábyrgð á mótun námsfyrir- komulags og skilyrðum húsnæðis. Stjórn skólans mun bera ábyrgð á byggingu skólahúss, stofnun og rekstri skólans og taka síðan við hlutverki skólanefndar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað sex manna stýrihóp til að undirbúa stofnun framhaldsskólans á grund- velli hugmynda heimamanna, en þar komu háskólarnir í Borgarfirði og sveitarstjórnir við sögu. Samkvæmt þeim verður stofnað hlutafélag um rekstur skólans og er ætlunin að safna 100 milljóna króna hlutafé. Fyrstu skrefin í undirbúningi skóla- starfsins snúa að mótun nýs náms- fyrirkomulags og skilyrða fyrir hús- næði skólans, þar sem farnar eru nýjar leiðir m.a. í fullorðinsfræðslu. Náið samstarf við háskólana Runólfur Ágústsson, rektor Við- skiptaháskólans á Bifröst, sem unnið hefur að undirbúningi málsins í hér- aði og verður í stýrihópi sem menntamálaráðherra hefur skipað, sagði að þeir Ágúst Sigurðsson, rekt- or Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri, hefðu lagt fyrir bæjarráð Borg- arbyggðar í ágúst sl. þá hugmynd að skólinn yrði þriggja ára menntaskóli og tilraunaskóli á því sviði. Þeir gera ráð fyrir tveggja ára sameiginlegum kjarna, með töluvert mikilli áherslu á stærðfræði. Síðasta árið skiptist hóp- urinn. Annars vegar félagsvísinda- og viðskiptadeild, þar sem kennsla verði í samstarfi við Viðskiptaháskól- ann á Bifröst. Hins vegar náttúru- fræði- og raunvísindadeild, þar sem kennt verði í samvinnu við Landbún- aðarháskólann á Hvanneyri. Að sögn Runólfs hafa þeir Ágúst snúið bökum saman í málinu því þeir telji afar mikilvægt að fá framhalds- skóla í byggðina, til að treysta há- skólasamfélagið. „Við erum að missa fólk út af svæðinu, bæði nemendur og starfsfólk, þegar börn þess kom- ast á framhaldsskólaaldur. Það er liðin tíð að foreldrar vilji senda 16 ára börn frá sér og ekki bjóðandi upp á það í nútímasamfélagi,“ sagði Run- ólfur. Þriggja ára mennta- skóli í Borgarnesi Nýr menntaskóli Borgfirðinga verður tilraunaskóli SVAVAR Gestsson, sendiherra Ís- lands í Danmörku, sagði í ræðu sem hann flutti við opnun Erró- sýningar í Dan- mörku í vikunni að sér fyndist stundum sem þeim Dönum sem skrifuðu í blöð, einkum Berlingske, lík- aði ekki allt of vel við Íslend- inga. „Það er kannski mis- skilningur en það verkar stundum þannig á mig.“ Svavar sagði, er hann vék að þessu efni, að heilmikið færi fyrir Íslandi í Danmörku um þessar mundir. Það væri vegna þess að duglegt fólk væri að fjárfesta sparnaðinn að heiman í fyr- irtækjum og húsum í Danmörku. Meðal annars væri verið að ávaxta lífeyrissjóðina en lífeyrissjóðir Ís- lendinga væru sterkari en nokkur dæmi væru til um annars staðar. Svavar tók fram að Íslendingar hefðu fjárfest í fyrirtækjum víðar en í Danmörku. „Og okkur er alls staðar vel tekið nema helst í þessu gamla blaði [Berlingske] en það á áreiðanlega líka eftir að breytast. Ég las í Børsen um daginn fyr- irsögn um að Íslendingar hötuðu Berlingske; það er hreinn mis- skilningur; okkur þykir þvert á móti vænt um Berlingske. En það er stundum eins og sú ást sé ekki endurgoldin og að Berlingske sé ekki beint skotið í okkur. En áður en langt um líður verður íslensk- um fjármunum eins vel tekið í Danmörku og altaristöflunni úr Múlakirkju eða silfurkaleiknum úr Svalbarða eða drykkjarhornunum forkunnarfögru en allt þetta hefur um áratugi og aldir verið í danska þjóðminjasafninu. Aldrei hef ég séð Berlingske kvarta undan því.“ Svavar sagði að Danmörk væri landið sem Íslendingar leituðu fyrst til, enn þann dag í dag, þrátt fyrir liðlega sextugt lýðveldi. Í Danmörku væru um eitt þúsund íslenskir stúdentar í námi – en um 150 í Svíþjóð og um 70 í Noregi. „Hér búa um tíu þúsund Íslend- ingar, hingað koma fjórar til fimm flugvélar á dag fullar af fólki og hér eru íslenskir menningar- viðburðir svo algengir að það er ekki nokkur leið að hafa tölu á þeim. Svo má kannski bæta því við, eins og til skýringar, að fjár- festing íslenskra aðila er alltaf til orðin í góðri samvinnu við Dani; dönsk fyrirtæki og banka. Gagn- rýni á umsvif Íslendinga hér er því í raun gagnrýni á danska sam- starfsaðila, banka og sölufyr- irtæki. Þegar Íslendingar hófu umsvif í Svíþjóð fyrir átta árum eða svo bar fyrst á ónotum í garð Kaupþings, það breyttist fljótlega enda kom í ljós að ónotin stöfuðu frá þeim sem höfðu orðið undir í samkeppninni við Íslendingana. Þannig gerast kaupin oft á eyri öf- undarinnar.“ Svavar Gestsson, sendiherra í Danmörku Stundum eins og Berlingske sé ekki beint skotið í okkur Svavar Gestsson MAÐUR um þrítugt var sleginn nið- ur fyrir utan veitingastaðinn Kaffi Amsterdam í Reykjavík um sjöleytið í gærmorgun og fluttur meðvitund- arlaus á slysadeild. Árásarmaðurinn var handtekinn og fluttur á slysa- deild þar sem hann hafði brákað sig á hendi. Tveir menn aðrir sem líka áttu einhvern þátt í átökunum voru einnig fluttir meiddir á slysadeild. Þá var maður fluttur á slysadeild eftir að ráðist var á hann á Lækj- artorgi um sexleytið í gærmorgun. Hélt hann að þrír eða fjórir menn hefðu ráðist á sig. Samkvæmt upplýsingum læknis á slysadeild var líklegt að mennirnir gætu farið heim í gær, laugardag, að loknum aðgerðum og rannsóknum. Ráðist á tvo menn í Reykjavík STARFSMENN Fiskistofu flytja nú um helgina aðalskrifstofu stofn- unarinnar í Dalshraun 1 í Hafn- arfirði, nýja húsið sem Ris ehf. er að byggja í Engidalnum, við gatna- mót Hafnarfjarðarvegar, Álftanes- vegar og gömlu Reykjanesbraut- arinnar. Fiskistofa hefur frá stofnun 1992 verið í gamla Fiskifélagshúsinu við Ingólfsstræti 1 í Reykjavík sem reist var 1933 og hét Höfn eftir gömlum bóndabæ sem stóð þar. Hjá Fiskistofu vinna um hundrað manns, þar af um 60 í Reykjavík og fá nú allir þeir starfsmenn sitt eigið skrifstofupláss enda stækkar að- staðan úr 1.500 m² í 2.000 m² að sögn Þórðar Ásgeirssonar fiski- stofustjóra sem tók þátt í flutning- unum með sínu fólki. „Hér erum við hörkuvel staðsett bæði fyrir starfsmenn og okkar við- skiptavini sem koma víða að,“ sagði Þórður og bætti við að nú væri stofnunin loksins öll undir sama þaki en matvælasviðið hefur verið á hrakhólum síðan það var stofnað 1993 og var nú síðast staðsett í Tryggvagötu. „Nú verðum við tilbúin hér á mánudagsmorgun og símanúmerið verður áfram hið sama en hér verð- ur loksins rúmgott fundarherbergi sem hlotið hefur nafnið Höfn, svo áfram verður fundað í Höfn,“ sagði Þórður og sinnti aðkallandi erind- um úr öllum áttum. Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Fiskistofa flytur í Hafnarfjörð MAÐURINN sem lést í árekstri strætisvagns og flutningabíls á Sæ- braut á föstudag hét Pétur Sigurðs- son og var fæddur árið 1946. Pétur var kjötiðnaðarmaður að mennt og starfaði sem strætisvagnstjóri. Hann lætur eftir sig eiginkonu og uppkomin börn. Lést í um- ferðarslysi ÞJÓFAR er stolið höfðu bíl, sem fór út af Reykjanesbraut skammt frá Fitjum á föstudagskvöld og skemmd- ist mikið, skildu hann þar eftir en svo heppilega vildi til að lögreglan gat rakið fótspor þeirra frá bifreiðinni og handtók þrjá pilta við Njarðarbraut. Þeir höfðu ekki aldur til að aka bíl. Piltarnir voru færðir til lögreglu- stöðvar vegna frekari rannsóknar á málinu. Röktu fótspor þjófanna ♦♦♦ ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.