Morgunblaðið - 15.01.2006, Side 14
14 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Indversk verkakona hvílir sig í Nýju-Delí. Indland er meðal þeirra landa þar sem
mestur er hagvöxtur um þessar mundir, en þó býr tæplega þriðjungur þjóðar-
innar undir fátækramörkum. Á ráðstefnunni í Malí verður meðal annars fjallað
um áhrif hnattvæðingar á fátækustu íbúa heimsins.
Reuters
„Veröld okkar er ekki til sölu“ stendur á borða á fundi World Social Forum í
Bombay á Indlandi fyrir tveimur árum. Í þessari viku hefst fundur WSF í Malí.
Þegar helstu viðskiptajöfrarheimsins, stjórnmálamennog sérfræðingar með ólíkatitla koma saman í Davos íSviss til að ræða og leggja
línurnar varðandi hina efnahagslegu
hnattvæðingu hittast andstæðingar
þessa sama fyrirbæris á öllu óform-
legri fundum, bera saman bækur sín-
ar og samhæfa aðgerðir.
Fundur þeirra fyrrnefndu kallast
World Economic Forum (WEF) sem
hefur verið þýtt sem heimsviðskipta-
ráðstefnan en þeirra síðarnefndu
World Social Forum (WSF) sem má
ef til vill þýða sem félagslega heims-
ráðstefnu eða samræðuvettvang fé-
lagshreyfinga í heiminum.
World Social Forum á að hluta til
rót sína í hreyfingu sem hefur verið
kennd við andstöðu gegn hnattvæð-
ingu (Anti-globalization Movement)
en kýs yfirleitt sjálf að kalla sig al-
þjóðlega réttlætishreyfingu.
Stór mótmæli við fund Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (World Trade
Organization) í Seattle árið 1999 eru
oft talin marka upphaf þessarar and-
spyrnuhreyfingar þótt raunar megi
rekja hana mun lengra aftur. Mót-
mælin í Seattle urðu til þess að fresta
þurfti fundi Heimsviðskiptastofnun-
arinnar en það sem gerði þau merki-
leg var að þarna komu saman mót-
mælendur frá ólíkum löndum, frá
ólíkum hreyfingum og með ólík mark-
mið. Það eina sem þeir áttu sameig-
inlegt var andúðin á kapítalismanum í
hnattvæðingunni.
Frá mótmælunum í Seattle hefur
orðið sífellt erfiðara fyrir helstu ráða-
menn efnahagslífsins og pólitískra
leiðtoga að funda án þess að hafa mik-
inn viðbúnað og oft skerst í odda milli
mótmælenda og lögreglu.
Fyrsta samkoma World Social
Forum var haldin árið 2001 í Porto
Alegre í Brasilíu. Tímasetningin var
engin tilviljun; einmitt á sama tíma og
fundur World Economic Forum í
Sviss. Það voru brasilísk félagasam-
tök sem undirbjuggu ráðstefnuna en
hún hefur síðan þá verið haldin þar í
landi þrisvar og einu sinni á Indlandi.
Í ár verður hún haldin í þremur lönd-
um: Malí, Venesúela og Pakistan en
ráðstefnunni í Pakistan hefur verið
frestað um tvo mánuði vegna jarð-
skjálftanna fyrir skömmu. Þess í stað
verður boðað til fundar þar sem sér-
staklega verður fjallað um náttúru-
hamfarir, hlutverk stjórnvalda og al-
þjóðlegra afla, neyðarhjálp o.fl.
Vettvangur fremur en samtök
WSF eru ekki samtök í sjálfu sér
heldur umræðuvettvangur fé-
lagshreyfinga og grasrótarhreyfinga
alls staðar að úr heiminum sem eiga
það sameiginlegt að vera mótfallnar
nýfrjálshyggju og heimi sem er
stjórnað af fjármagni eða hvers konar
heimsvaldastefnu. Þetta er ekki einn
fundur heldur mörg hundruð fundir
þar sem vandi íbúa heimsins er rædd-
ur. Fjallað er um ólík vandamál sem
eru þó öll talin eiga rót sína í kapítal-
ískri hnattvæðingu. Þarna eru um-
hverfisverndarsinnar sem hafa fylgst
með stórfyrirtækjum flytja starfsemi
sína til landa þar sem kröfur um um-
hverfisvernd eru vægari, verkalýðs-
félög sem gagnrýna stórfyrirtæki og
segja þau misnota ódýrt vinnuafl frá
fátækum löndum og baráttufólk gegn
fátækt sem fullyrðir að allra fátæk-
asta fólkið verði út undan í hnattvæð-
ingunni og tapi jafnvel á henni.
Árið 2001 tóku tíu þúsund manns
þátt í WSF en talið er að fyrir ári síð-
an hafi þátttakendur verið vel á annað
hundrað þúsund. Félagasamtök geta
staðið fyrir fundum eða viðburðum en
stjórnmálaflokkum og hernaðarleg-
um samtökum er meinuð þátttaka
þótt einstaklingum sé frjálst að fylgj-
ast með því sem fram fer. Mikil
áhersla er lögð á fjölbreytileika þeirra
sem sækja WSF og þess vegna er lítið
um sameiginlegar ályktanir þótt
starfað sé eftir ákveðnum viðmiðum.
Skipulag og framkvæmd er í höndum
félagasamtaka. Sambærilegar sam-
komur eru síðan haldnar á smærri
svæðum en sem dæmi má nefna að
European Social Forum var síðast
haldið í London 2004.
Misrétti samofið kapítalisma
Á WSF er unnið í mismunandi
málaflokkum. Á einum stað er verið
að ræða umhverfismál á meðan hópur
fólks veltir fyrir sér samhenginu milli
feðraveldis og nýfrjálshyggju. Kjör-
orð WSF eru: Við eigum val um öðru-
vísi veröld eða „Another world is
possible“ og virðing fyrir mann-
réttindum og jafnrétti er í forgrunni.
Litið er svo á að hnattvæðingin sé á
forsendum stórfyrirtækja sem séu
síðan studd af ríkisstjórnum og al-
þjóðlegum stofnunum. Ójöfnuður
kynja og kynþátta og ill meðferð á
náttúrunni séu eyðileggjandi fylgi-
fiskar kapítalismans.
Á WSF er lögð áhersla á raunveru-
legt lýðræði. Þess vegna talar engin
einn einstaklingur í nafni ráðstefn-
unnar og engar ákvarðanir eru tekn-
ar sem gilda fyrir alla. Öllu valdi einn-
ar manneskju yfir annarri er hafnað
og beiting ofbeldis af hálfu ríkisins er
fordæmd. WSF boðar ekki einn al-
heimssannleik. Á WSF eru hópar sem
vilja að hnattvæðingunni sé stýrt í
betri farveg, t.d. með alþjóðlegum
stofnunum, en líka hópar sem vilja
afturhvarf til tímans fyrir hnattvæð-
ingu með sjálfbærum búskap. Mikið
hefur verið tekist á um hvort stefna
skuli að umbótum eða hreinni og
beinni byltingu.
Gagnrýni á WSF
Þátttakendur í World Social For-
um eru langt frá því að vera einsleitur
hópur og tilraunir til að flokka hópa
sem einmitt berjast gegn hvers kyns
flokkun hafa fallið í grýttan jarðveg.
Sumir fréttamiðlar hafa því miður lát-
ið í veðri vaka að þarna sé um einn
hóp að ræða og fréttirnar hafa litast
af þeirri tilhneigingu að setja sama-
semmerki milli mótmæla og óeirða.
Engu síður hefur World Social
Forum fengið á sig gagnrýni úr öllum
áttum. Bent hefur verið á að þarna sé
aðeins verið að finna að nýfrjáls-
hyggju en að engar raunverulegar til-
lögur til úrbóta séu lagðar fram. Hóp-
ar anarkista hafa mótmælt því að
WSF geri tilraunir til að vera eins og
miðstýrt bákn sem tekur ákvarðanir
fyrir alla. Þeir sem eru hvað mest á
móti ráðstefnunni hafa bent á að hin
kapítalíska hnattvæðing sé eina leiðin
til að berjast gegn fátækt í heiminum
og hægrisinnaðir andstæðingar
hnattvæðingar hafa gagnrýnt WSF
fyrir að vera vinstri sinnaða samkomu
sem rúmi ekki fleiri pólitísk sjónar-
mið.
Hvað sem öðru líður hefur þeim
sem sækja WSF fjölgað ár frá ári sem
bendir til þess að málstaðurinn sé að
breiðast út og rödd þeirra sem hafna
kapítalískri hnattvæðingu verður sí-
fellt háværari. Það verður því spenn-
andi að fylgjast með því sem þarna fer
fram. WSF í Malí hefst 17. janúar og
lýkur 23. en í Venesúela stendur sam-
koman yfir frá 24.–29. janúar.
Helstu heimildir
http://www.weforum.org
http://www.forumsocialmundial.org.br
http://www.fsmmali.org
http://notendur.centrum.is/~einarol/
http://www.wikipedia.org/
Við eigum
val um öðru-
vísi veröld
Tugþúsundir flykkjast nú til Malí í V-Afríku til að taka þátt
í World Social Forum sem haldið verður dagana 19.–23.
janúar nk. Halla Gunnarsdóttir rekur hér sögu þessarar
heimssamkomu verkalýðs- og grasrótarhreyfinga en hún er
stödd í Malí ásamt Alistair Inga Gretarssyni til að fylgjast
með því sem fram fer.
halla@mbl.is
WORLD ECONOMIC FORUM (WEF), eða
heimsviðskiptaráðstefnan, var fyrst haldin árið
1971 en þetta er sjálfstæð hreyfing sem hefur
það að markmiði að bæta heiminn með því að
hvetja leiðtoga til að vinna saman að pólitískri
og efnahagslegri stefnumótun, bæði hnattrænt
sem og á afmarkaðri svæðum.
Þessi fundur ratar iðulega í fréttir enda
koma þar saman valdamiklir leiðtogar, bæði af
pólitíska sviðinu sem og úr viðskiptalífinu.
Hinn íslenski viðskiptajöfur, Björgólfur Thor
Björgólfsson, hefur t.d. setið þessa ráðstefnu
vegna þátttöku sinnar í verkefninu Young
Global Leaders eða ungir hnattrænir leiðtogar
og á þessu ári verður íslenski listamaðurinn
Ólafur Elíasson í þeim hópi. Á þessum vett-
vangi árið 2003 lýsti Colin Powell, þáverandi
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, því yfir að
Bandaríkjamenn væru tilbúnir að ráðast inn í
Írak upp á sitt eindæmi vildu Sameinuðu þjóð-
irnar ekki samþykkja nýja ályktun um vald-
beitingu og Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, nýtti ávarp sitt árið 2004 í að gagnrýna of
eindregna áherslu á stríðið gegn hryðjuverk-
um.
Hvað sem öðru líður lýsir það kannski vel
þeim hópi sem þarna situr að leikkonunni
Sharon Stone, sem sat ráðstefnuna fyrir ári
síðan, tókst á fimm mínútum að safna 62 millj-
ónum króna til að draga úr barnadauða í Afr-
íku. Þetta gerði hún með því að kveðja sér
hljóðs í framhaldi af ávarpi hagfræðingsins
Jeffrey Sachs sem benti á að 150 þúsund börn
létust á mánuði í þessari fátæku heimsálfu
vegna þess að þau vantaði moskítónet til að
sofa undir. Stone ánafnaði þegar tíu þúsund
dollurum eða í kringum 620 þúsund íslenskum
krónum til baráttunnar og fundurinn lét ekki á
sér standa. Þegar tilkynnt var að 62 milljónir
króna hefðu safnast var enn fjöldi framlaga
ótalinn en ætla má að í kringum tvö þúsund
manns hafi verið á fundinum.
Stórfyrirtæki og leiðtogar
Í kringum þúsund stórfyrirtæki eru aðilar
að World Economic Forum en samkvæmt
heimasíðu samtakanna líta þau öll á það sem
skuldbindingu sína að gera heiminn að betri
íverustað. Þannig séu þau fús til að leggja fram
sérfræðiþekkingu sína og aðstoð til að hvetja
til efnahagslegra og félagslegra framfara um
allan heim. Þetta eru fyrirtæki á borð við Coca
Cola, Nike, Nestlé, Siemens og Microsoft.
Þegar heimsráðstefnan er haldin koma sam-
an fulltrúar þessara fyrirtækja auk pólitískra
og trúarlegra leiðtoga og ýmissa sérfræðinga
en í kringum tvö þúsund manns sitja ráðstefn-
una árlega. WEF hefur einnig gert tilraunir til
að bjóða frjálsum félagasamtökum (NGOs) að
taka þátt í ráðstefnunni með misgóðum ár-
angri enda virðist ýmislegt skilja þar í milli.
Gagnrýnendur segja WEF vera eitt allsherjar
viðskiptaþing þar sem ríkustu fyrirtæki heims
geti gert samninga hvert við annað og um leið
myndað hagsmunatengsl við valdamikla
stjórnmálaleiðtoga. WEF hefur hins vegar
bent á að margir gagnrýnendur fari fram með
látum og jafnvel ofbeldi en að samtökin séu vel
undir búin að taka mið af málefnalegri gagn-
rýni sem sé sett friðsamlega fram. Til að mæta
gagnrýni er t.d. nú haldin opin ráðstefna sam-
hliða heimsráðstefnu WEF í Davos þar sem al-
menningur getur tekið þátt og látið sína rödd
heyrast.
Mikill viðbúnaður
WEF stendur að ýmiss konar rannsóknum
og birtir m.a. reglulega lista þar sem þjóðum er
raðað upp eftir samkeppnishæfni auk þess að
veita ýmiss konar viðurkenningar. Þannig hef-
ur Íslensk erfðagreining fengið viðurkenningu
fyrir frumkvöðlastarf og fyrir ári var Alcoa,
móðurfyrirtæki Fjarðaráls sem stendur að
byggingu álversins í Reyðarfirði, í þriðja sæti á
lista yfir fyrirtæki sem hafa þótt skara fram úr
varðandi sjálfbæra þróun. Á listanum voru
hundrað fyrirtæki valin úr hópi tvö þúsund
stórfyrirtækja.
Þrátt fyrir góð og gild markmið hefur starf-
semi WEF verið umdeild og árlega safnast
fjöldi fólks saman í Davos til að mótmæla ráð-
stefnunni. Stórfyrirtækin sem eru aðilar að
samtökunum eiga sér misfagra sögu auk þess
sem fundir valdamikilla pólitískra leiðtoga
hafa undanfarin ár haft mikil mótmæli og jafn-
vel óeirðir í för með sér. Í fyrra brugðu sviss-
nesk yfirvöld á það ráð að meina á þriðja
hundrað mótmælendum að koma inn í landið
og þúsundir lögreglumanna og hermanna voru
í viðbragðsstöðu.
Viðskiptajöfrar í baráttu fyrir betri heimi
Reuters
Leikkonan Sharon Stone stal senunni á Heims-
viðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss í fyrra
þegar hún safnaði einni milljón Bandaríkjadala,
62 milljónum ísl. kr., til handa bágstöddum
börnum í Afríku á fimm mínútum.