Morgunblaðið - 15.01.2006, Side 24

Morgunblaðið - 15.01.2006, Side 24
24 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ feimnir og stressaðir en aðrir tala ákveðið og af mikilli tilfinningu. Yfir öllu er samt einhver aðdáunarverð yfirvegun. Fanginn neitar sakargiftum Maðurinn við hliðina á mér fær hljóðnemann í hendurnar og fullyrðir að hinn ákærði hafi leitt hóp á þessu svæði sem drap fjölda fólks. Erfitt sé á endanum að segja til um hversu marga. Fanginn neitar að hafa haft nokkuð með slíkan hóp að gera. Mannfjöldinn hristir höfuðið. Aðrir slá sér á lær og skella upp úr. Vitnisburðirnir halda áfram og sól hækkar á lofti. Það er orðið heitt í skýlinu. Inn á milli hringja gemsar. Sumir svara símtölunum, aðr- ir ekki. Sumir senda sms. Á laugardagsmorgni í höfuðborginni Kigali verður fólkið sem ég man eftir að hafa heyrt um í Rúanda ekki bara „eitthvert“ fólk í landi langt í burtu, heldur manneskjur af holdi og blóði sem horfa for- vitnar á mig, brosa, halda um skjalatöskur, leita í handtöskum, laga gleraugun og segja frá því sem þær lentu í. Ég gjóa augum á gallabux- ur og íþróttaskó, stuttermaboli og eyrnalokka og allt í einu slær það mig hvað framandleikinn er lítill. Ég ranghvolfi í mér augunum og remb- ist við að púsla saman ásökunum um fjölda- morð – framandi fyrir langt að kominn Íslend- ing – og jafnlítið framandi fólki og því sem ég sit á meðal. Einmitt vegna þess hve hugmyndin um rétt- arhöld vegna fjöldamorða er fjarlæg, mætti ég eilítið hikandi til leiks. Mér var hins vegar tekið opnum örmum. „Vitnaleiðslurnar eru öllum opnar og það er fínt að umheimurinn heyri af gacaca og velti fyrir sér afleiðingum fjölda- morðanna,“ var hvíslað að mér og ég látin setj- ast á fremsta bekk. Myrt á leið á Hótel Les Milles Collines Tungumálið sem fólkið talar nefnist kin- yarwandan. Til að skilja hvað fram fer fæ ég ungan mann sem talar góða ensku til að túlka fyrir mig. Sá sem fyrst kvaddi sér hljóðs tekur aftur til máls og talar í þetta skipti mikið og lengi. Túlkurinn hallar sér að mér og segir manninn hafa athyglisverða sögu að segja. Hann viti um átta tútsa í einni fjölskyldu sem hafi verið á flótta á leið til Hótel Les Milles Collines. Það er hótelið þar sem kvikmyndin Hótel Rúanda gerist. Fjölskyldan var stoppuð við vegatálma. „Þar stóð þessi maður ásamt öðrum og dró fólkið út úr bílnum. Og hvað gerði hann síðan? Jú, drap það allt,“ segir maðurinn. Fanginn hristir höfuðið en virðist farið að líða verulega illa. Hann stendur lúpulegur í miðjum hringn- um og gott ef hann er ekki kominn með kökk í hálsinn. Skyndilega verður hann stórkostlega bjánalegur í bleiku stuttbuxunum sínum og svörtu leðurskónum – aumkunarverður á ein- hvern undarlegan hátt. Maðurinn bjóst líklega ekki við því að þurfa nokkurn tímann að svara fyrir gjörðir sínar, hvað þá á nýrri öld fyrir framan fjölda fólks. Ætli hann sé um það bil að fara að játa á sig eitthvað af því sem hann er sakaður um? Ég get ekki hætt að horfa á manninn. Hann tekur eftir glápinu og lítur ískalt á mig. Ég horfi fast á hann, hann á mig og hvorugt lítur undan. Andartakið stendur í stað. Eitt augna- blik hætti ég að heyra en blikka síðan augunum og allt verður eðlilegt aftur. Handsprengjur og naglalakk Strákur um tvítugt stígur fram. Hann er í hvítum stuttermabol, með gleraugu og minnir sterklega á einhvern. Hvernig sem ég brýt heilann get ég ekki áttað mig á hverjum hann líkist sem ég þekki. Drengurinn talar lágt og er mjög feiminn. „Ég veit um mann sem reyndi að fela sig en hann og tveir aðrir drápu. Ég þekkti hann vel. Þeir drápu hann með handsprengju og skutu hann líka,“ hvíslar hann. Fanginn horfir út í fjarskann. Eitt andartak er eins og hann sundli. Kannski er það engin furða. Hann hefur staðið hreyfingarlaus í miðjum hringnum í hátt í einn og hálfan tíma. Það seinasta sem ég heyri er vitnisburður konu um þrítugt sem hefur reglulega gjóað augunum til mín og brosað hlýlega. Hún er í gallapilsi, með rautt naglalakk og fallegar flétt- ur í hárinu. Hún staðhæfir að hún viti fyrir víst að fanginn hafi drepið nokkra af þeim sem þeg- ar hafa verið nefndir. Þegar ólöglærðir dæma Eftir að hafa verið viðstödd gacaca sækja endurtekið á mig hugsanir um hvernig þjóð taki á öðrum eins hörmungum og áttu sér stað í Rúanda. Þar hefur nú verið friður í mörg ár og landið er svo að segja horfið af korti heims- fréttanna. Minningarnar um morðin hafa hins vegar hvergi farið. Hvað tekur við að öllu loknu? Eitthvað varð að gera til að koma í ákveðinn farveg málefnum allra þeirra sem sakaðir voru um þátttöku í því sem átti sér stað. Fullyrt var að áratugi, jafnvel allt upp í 150 ár, myndi taka að útkljá þau í gegnum hefðbundna dómstóla- leið. Það gengi augljóslega ekki og því yrði að finna upp á einhverju öðru. Auk þess væri mik- ilvægt að fara einfaldlega í gegnum það sem gerðist og ná sáttum. Hugmyndin um breytt og bætt gacaca varð að veruleika. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti hug- myndarinnar. Lögfræðingar hafa gagnrýnt gacaca og mannréttindasamtök hafa lýst yfir áhyggjum yfir að fólk fái ekki réttláta með- höndlun mála sinna. Spurt hefur verið hvort boðlegt sé að láta ólöglært fólk dæma aðra í allt að 30 ára fangelsi. Ég heilsa upp á starfsmenn aðalskrifstofu gacaca-dómstólsins og ber spurninguna undir þá. „Við þjálfuðum þá sem almenningur kaus til að vera í kviðdómnum. Við settum saman þar til gerðar reglur til að leiðbeina þeim. Svar- ið er því já,“ segir skrifstofustjórinn Peter Karasira og bætir við að eftir að ásakanir séu komnar fram og fólk hafi annaðhvort játað eða miklar vísbendingar liggi fyrir að það hafi drýgt ákveðinn glæp, sé litið til reglnanna til að sjá hver refsingin eigi að vera. Glæpunum sé raðað í ákveðna röð eftir alvarleika. Peter segir að það mikilvæga við gacaca sé að það fari fram á þorps- og hverfisstiginu. „Fólkið á hverjum stað veit hvað gerðist. Það verður að hafa tækifæri til að segja það sem það veit. Með þess hjálp reynum við að fá mynd af því sem gerðist.“ Starfsmaður á skrifstofunni bendir á að þótt Stríðsglæpadómsstóllinn í Tansaníu hafi verið starfræktur í mörg ár hafi hann ekki afgreitt nema mál um tíu manna. „Það varð því að gera eitthvað annað. Auk þess að klára málin snýst þetta um að fólk taki afleiðingum gjörða sinna. Grundvallaratriðið er að skiptast á upplýsingum og draga hlutina fram í dagsljósið. Ef gerendur játa og þolendur fyrirgefa, þá leiðir það til sátta. Við þurfum sættir í Rúanda og gacaca snýst um sættir,“ segir hann og bætir við að sumir sem setið hafi inni öll þessi ár reynist raunar ekki hafa gert neitt af sér. Gacaca geti leitt í ljós að þeir hafi meira að segja hjálpað tútsum og bjargað þeim. Þeirra vegna og allra vegna sé mikilvægt að mál hinna grunuðu séu tekin fyrir og þeim seku refsað en hinum sleppt. „Auk þess er gacaca hérlent kerfi og sýnir okkur að Rúanda getur sjálft fundið lausn á sínum vandamálum. Það er gott fyrir okkur Rúandabúa að finna.“ Hrædd við að segja sannleikann Eftir að hafa rætt við starfsfólkið á skrifstof- unni tek ég einn af mörgum gacaca-dómurum í Kigali tali. Hann heitir Habimana Amon og er tútsi. Amon var sjálfur í Kenýa meðan fjölda- morðin áttu sér stað en faðir hans og bróðir voru í Rúanda og báðir teknir af lífi. Í kvið- dómnum með honum eru bæði hútúar og túts- ar. „Okkur hefur verið kennt að dæma eftir ákveðnum reglum og við gerum það,“ segir hann. „Stundum kemur í ljós að einhver var í raun skipuleggjandi morðanna og tilheyrir þeim hópi sem gacaca á ekki að fást við heldur stríðsglæpadómsstóllinn í Tansaníu. Þá látum við málið frá okkur til lögfræðinganna þar,“ segir hann og bætir við að hitt og þetta hafi vissulega komið upp á en við því hafi verið að búast. Það sem helst standi í vegi fyrir eðlilegri framkvæmd þessarar nýju tegundar af gacaca sé að erfitt geti verið að fá fólk til að tala. Það segi ekki alltaf allan sannleikann. Af ótta við hefndir þori það hugsanlega ekki að segja allt það sem það viti. Lögfræðingar hafa einmitt bent á að gacaca fylgi engin vitnavernd. Habimana bendir á að sumir hafi líka ef til vill tekið þátt í öllu saman. „Eftir því sem meiri reynsla kemst á gacaca er fólk hins vegar að verða minna og minna hrætt við að tala. Það hefur skilið að mark- miðið er að sættast. Þeir sem vissu að þeir höfðu gert eitthvað af sér, venjulegt fólk en ekki skipuleggjendur það er að segja, voru á tímabili hræddir um að verða hugsanlega drepnir en þeir hafa áttað sig á að þetta snýst um mögulega fangelsisvist en ekki dráp. Með tímanum fara margir að játa hluti sem þeir neituðu til að byrja með. Þeir halda ef til vill að aðrir muni ekki hvað þeir gerðu en þegar þeir standa augliti til auglits frammi fyrir þeim, breytist margt. Þeir sem játa fá líka vægari dóm en þeir sem neita en eru fundnir sekir. Stundum er líka bara um það að ræða að fólk stal einhverju meðan allt þetta gekk á og þá er það dæmt til að skila því eða bæta á annan hátt.“ Við lifum í sama samfélaginu Þeir sem ég ræði við í Rúanda eru venjulega ánægðir með að þessi leið hafi verið farin. Þótt þeir tiltaki ýmsa annmarka á henni segja flest- ir að eitthvað hafi orðið að gera. Þetta hafi þeg- ar allt kemur alls verið skásti kosturinn. Fréttamaður nokkur, Charles Kabonere, seg- ist ekki hafa trúað því að það að taka hið forna gacaca og útfæra með þessum hætti, yrði nokkurn tímann að veruleika. Bæði var ljóst að útfærslan yrði flókin – um væri að ræða þús- undir dómstóla sem koma yrði upp um allt land – og hugmyndin hafi auk þess verið fjarlæg. „Ég bjóst aldrei við því að eiga eftir að sjá fórnarlömb og morðingja sitja hlið við hlið og fara í saumana á því sem gerðist. Ef þú hugsar um það, þá verður fólk samt í raun að koma saman – þeir sem drápu og þeir sem urðu fyrir öllu saman. Við lifum eftir allt í sama samfélag- inu. Við þurfum að horfast í augu við það sem gerðist og halda síðan áfram.“ sigridurv@mbl.is Götulíf í höfuðborginni Kigali. Þar eins og um allt land fara fram vitnisburðir yfir þeim sem sakaðir eru um að hafa tekið þátt í fjöldamorðunum. Starfsmenn á aðalskrifstofu gacaca-dómstólsins sem útfærður var til að taka á því sem gerðist í fjöldamorðunum. „Við þurfum sættir í Rúanda og gacaca snýst um sættir,“ segja þeir. Í RÚANDA búa tveir þjóðernishópar, hútúar og tútsar. Þeir tala sama tungumál og verða ekki auðveldlega aðgreindir í útliti, þótt benda megi á ákveðin einkenni sem dæmi- gerð fyrir hvorn hóp fyrir sig. Tútsar eru í miklum minnihluta en hútúar í meirihluta. Þrátt fyrir það voru tútsar í gegnum tíðina valdameiri. Þegar Rúanda varð nýlenda Belga öðluðust tútsar síðan enn meiri völd. Þeir stjórnuðu landinu fyrir Belga. Hútúar gerðu á endanum uppreisn gegn stjórn minnihlutans og sögðu hann kúga sig. Belgar neyddust til að gera pólítískar breyt- ingar. Þegar Rúanda fékk sjálfstæði árið 1962 voru völdin hjá hútúum. Þá voru þúsundir tútsa komnar í útlegð til nágrannaríkjanna og tugþúsundir höfðu verið drepnar. Árið 1990 réðust tútsar í útlegð inn í Rúanda og reyndu að ná landinu aftur en tókst ekki. Þetta voru uppreisnarmenn sem kölluðu sig Rwandan Patriotic Front, RPF. Árið 1993 var skrifað undir friðarsamninga á milli rúönsku stjórnarinnar og RPF. Óöldina lægði hins vegar ekki. Öfgafólk í hópi hútúa hélt uppi markvissum áróðri um að losa bæri sig við alla tútsa. Ljóst var að skelfilegir at- burðir voru um það bil að eiga sér stað. Í apríl 1994 hófust fyrir alvöru fjöldamorð hútúa á tútsum. Alþjóðasamfélagið aðhafðist ekkert en útlendingum var flogið út úr land- inu í hópum. Margir fullyrtu eftir á að þjóðir heims hefðu brugðist. Hraðinn á morðunum var gríðarlegur. Á þremur mánuðum voru að minnsta kosti 800.000 manns myrtar í landi þar sem íbúa- fjöldinn var á milli 7 og 8 milljónir. Hútúum tókst að drepa meirihluta allra tútsa og sömuleiðis þúsundir Hútúa sem þóttu of um- burðarlyndar. Rúanska stjórnin tók ekki með í reikninginn andspyrnu tútsa í RPF. Þeir börðust gegn hútúum og tókst í júlí 1994 að ná höfuðborg- inni og koma á fót nýrri stjórn. Í framhaldinu flýðu landið yfir milljón hútúar sem óttuðust hefndir. Yfir 100.000 voru settir í fangelsi, sakaðir um þátttöku í fjöldamorðunum. Marg- ir þeirra sitja enn inni. Rúanda hefur komið um langan veg síðan árið 1994 og nýja stjórnin hefur einbeitt sér að því að ná sáttum. Forseti landsins er Paul Kagame sem hefur lagt áherslu á að fólk tali um sig sem Rúandabúa í stað hútúa eða tútsa. Hvað átti sér stað í Rúanda?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.