Morgunblaðið - 15.01.2006, Page 30

Morgunblaðið - 15.01.2006, Page 30
30 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ hennar, þ.e. hún átti að veita hern- um tekníska aðstoð. Þarna voru trésmiðir og aðrir með iðnmenntun, flestir eldri menn. Sumir voru orðnir of gamlir fyrir hefðbundna herþjónustu, að minnsta kosti á þessum tíma, það þótti náttúrlega enginn of gamall til að berjast í stríðslok. Ég var yngstur í þessum flokki.“ Brýr og vegir styrktir fyrir undanhaldið Geir og félagar gegndu störfum á þeim slóðum sem kalla mátti norð- vesturhluta Sovétríkjanna á þeim tíma. Aðalstöðvar TENO voru í Ríga í Lettlandi og þaðan var deildin send til starfa vítt og breitt á yfirráðasvæði Þjóðverja í aust- urvegi, til Eistlands og Litháen, Póllands og Hvíta-Rússlands. „Við litum á þetta allt saman sem eina heild, enda voru öll landamæri á reiki á þessum tíma og í raun ómögulegt að segja hvar Eystra- saltslöndin eða Pólland enduðu og hvað Sovétríkin byrjuðu. Þessar línur gátu líka breyst hratt eftir því sem stríðandi fylkingar hörfuðu eða sóttu fram á við,“ segir hann. Í stað þess að deildin stiklaði á milli þeirra staða sem hennar var þörf hverju sinni, sneri hún eftir hvert verkefni aftur til Ríga, þar sem yf- irforingi TENO hafði aðsetur, maj- ór að tign, og hélt þaðan til viðkom- andi vinnusvæða þegar kallið kom. Vegna verkfræðimenntunar sinnar fékk Geir strax stöðu lautinants, eins og sjá mátti á einkenn- ismerkjum á búningi hans, og stýrði hann framkvæmdum ásamt yfirlautinant á vettvangi.. Meðlimir deildarinnar voru búnir rifflum og skammbyssum til að geta varið hendur sínar og klæddust grænum einkennisbúningum, með tilheyr- andi tignarmerkjum á öxlum og handleggjum, þannig að ekki fór á milli mála að þeir væru fulltrúar Þriðja ríkisins. „Við fengum hins vegar aldrei SS-úniform, enda voru þetta menn í verkamannavinnu en ekki þátttakendur í stríðinu í þeim skilningi að þeir tækju þátt í bar- dögum,“ segir hann. „Hlutverk okkar var að end- urbyggja brýr sem höfðu verið sprengdar í loft upp eða brenndar, byggja nýjar brýr þar sem þess gerðist þörf, styrkja vegi og annað í sama dúr. Undir lokin fólst starf okkar mestmegnis í að styrkja þær brýr sem fyrir voru svo að þær þyldu álagið samfara undanhaldi þýska hersins frá austurvígstöðv- unum, þunga skriðdreka og vöru- bíla. Það kom fyrir að við þyrftum að byggja mannvirki upp svo að segja frá grunni og ég man t.d. eft- ir einni stórri timburbrú sem hafði verið brennd fyrir utan prímeru- undirstöður þannig að aðeins stólp- arnir stóðu eftir í vatninu. Ég man hins vegar ekki til þess að við höf- um komið að lagfæringum eða lagningu lestarspora eða öðru slíku sem snerti lestarsamgöngur. Þetta flutningskerfi, bæði aðflutningsleið- irnar og síðan leiðirnar fyrir und- anhaldið, var gríðarlega umfangs- mikið og þurfti stöðugt að halda því við til að allt gengi greiðlega fyrir sig. Við urðum varir við að und- anhaldið væri í bígerð, en sáum ekki með eigin augum illa farna og vígþreytta hermenn á leið frá aust- urvígstöðvunum og urðum í raun og veru lítið varir við þennan þátt styrjaldarinnar. Við sáum auðvitað þýskar flugvélar í lofti en ég man ekki til þess að hafa nokkurn tíma séð rússneska flugvél. Miðað við það sem gerist í dag vorum við vanbúnir að tækjum og verkfærum, vorum sáralítið vél- væddir og unnum allt í höndunum, en miðað við aðstæður og annað höfðum við það sem til þurfti. Við höfðum líka nóg af timbri, því að á þeim stöðum sem við störfuðum var nóg af skógi. Við önnuðumst samt sem áður ekki skógarhöggið sjálfir, það var í höndum heimamanna á hverjum stað, en við sáum um að saga trén niður og gera efniviðinn nothæfan fyrir okkar vinnu. Við vorum þarna haustið og veturinn 1943–44 og þarna var helv… kuldi. Þetta var þó tæpast vosbúð svo að orð væri á gerandi og við nutum þess að fá úthlutað góðum loðfóðr- uðum stígvélum, en ekki þessum hefðbundnu hermannastígvélum. En kuldinn var raunar bara verstur á daginn, þegar við vorum að vinna. Þess á milli höfðum við bækistöðv- ar á stað sem ég myndi fremur kalla vinnubúðir en herbúðir og þar var ágæt aðstaða. Okkar vinna fór síðan mestmegn- is fram í dreifbýli og á fáförnum slóðum og þá fluttum við okkur inn í bóndabýli, hlöður og annað af sama tagi, stundum inn í þorp. En við þurftum aldrei að fara inn í borgirnar að Ríga frátalinni og þar fengum við sem vorum ekki óbreyttir betri gistingu, í íbúðar- húsnæði sem herinn leigði eða hafði yfirtekið. Við höfðum ekki yfir neinu að kvarta, þannig séð, og meira að segja maturinn var skrambi fínn – besta viðurværið sem ég fékk á stríðsárunum. Auðvitað var um einhvern nið- ursuðumat að ræða en síðan keyptu menn eða stálu belju eða svíni og slátruðu. Við höfðum af- bragðsgóðan kokk og trúlega leit yfirstjórnin svo á að það væri mik- ilvægt að gefa þeim sem áttu að sigra Rússana almennilega að éta. Við gerðum bara það sem ætlast var til af okkur og reyndum að gera það vel. Það sem við lagfærð- um eða byggðum stóð áfram á með- an við vorum á staðnum, við vorum ekki það nálægt aðalvíglín- unni, en hvort þessi mann- virki voru seinna eyðilögð veit ég ekkert um.“ Spáði lítið í fallna félaga Geir segir að yfirleitt hafi sam- komulag við íbúa landsvæðanna sem þeir fóru yfir verið friðsamlegt og mótspyrna við veru þeirra þar takmörkuð. „Við áttum yfirleitt ágæt samskipti við innfædda. Þarna voru gjarnan einhver sveita- býli í kring og stöku þorp og við gengum þar óáreittir um götur bæja og þorpa, hvort sem þar bjuggu Pólakkar, Lettar, Litháar eða Hvít-Rússar. Það var hægt að tala við þetta fólk og ekki ástæða til að vera hræddur. Ég býst líka við að menn hafi haft vit á að vera samvinnuþýðir, því annars hefði herinn verið sendur á vettvang til að hreinsa til,“ segir hann. Sveit Geirs fór þó ekki alfarið varhluta af átökunum sem stóðu yfir, þeir höfðu veður af aðgerðum skæruliða og sættu meðal annars nokkrum sinnum árásum frá slíkum and- spyrnuhópum. „Við vorum vopnaðir rifflum og skammbyssum en ég man þó ekki eftir neinum hand- sprengjum. Við vorum við öllu bún- ir og eitt leiddi af öðru. Við vissum aldrei hvað biði okkar hinum megin við skóginn eða á bakvið næstu beygju, en möguleikinn á árásum var alltaf til staðar og við gerðum okkur fullkomlega grein fyrir því,“ segir hann. „En þetta voru ekki stöðugar erjur og oftast lifðum við frið- samlegu lífi og sinntum okkar störfum, en það kom vissulega fyrir að leikar æstust. Við fórum á vöru- bílum á milli staða, 20–30 menn og stundum einhverjir verðir þótt það væri fremur sjaldgæft. Það kom þó fyrir að við hefðum herflokk okkur til halds og trausts á vinnustaðnum. Við lentum í fyrirsátum, skæru- liðarnir réðust annaðhvort á okkur á leiðinni á vinnustað eða biðu okk- ar við komuna þangað, en árásir voru ekki gerðar meðan sjálf vinn- an stóð yfir og ég man ekki heldur eftir neinum næturárásum, þótt undarlegt megi virðast. Yfirleitt gerðist þetta á morgnana og frem- ur sjaldan, kannski 3–4 sinnum. Markmið skæruliðanna var að gera eins mikinn usla og þeim var unnt, drepa og eyðileggja, en taka þó sem minnsta áhættu. Þeir leyndust í skógum eða í hvarfi, skutu og skutu en hurfu síðan á brott.Við þurftum að sjálfsögðu að verja hendur okkar, annars hefði enginn komist lífs af, svöruðum fyrir okkur og stökktum þeim á brott. Nokkrir félagar mínir féllu í þessum árásum og aðrir særðust, en það var eins og við var að búast; það stóð yfir styrjöld. Ég er kannski svona kaldlyndur eða kærulaus, en ég var ekkert að velta þeim sem drápust of mikið fyrir mér; þakkaði bara mínum sæla að það var hann eða þessi en ekki ég sjálfur. Þegar maður er kominn í þessa þjónustu er maður þar og á í raun ekkert val lengur. Það þýðir ekkert fyrir mann að spekúlera frekar í því. Ég vissi aldrei hvað ótti var, enda er það svo að ef maður er hræddur undir þessum kring- umstæðum er það óbærilegt og menn verða bara vitlausir á því að reyna. Ég veit ekki til þess að mér hafi tekist að drepa neinn, en ég segi ekki að maður hafi ekki reynt.“ Hafði ekki vitneskju um útrýmingabúðir Aðspurður hvort að þeir hafi með nokkrum hætti fengið nasasjón af aðgerðum til að útrýma gyðingum á þessum ferðum, þá aðallega í Pól- landi, svarar hann neitandi. „Við vissum að gyðingar höfðu misst eignir, verið hraktir á brott og sumir sætu í fangabúðum, en við sáum hvorki né vissum um útrým- ingarbúðirnar. Þau mál fóru al- gjörlega leynt og útilokað fyrir vinnuflokk eins og við tilheyrðum að fá einhverja vitneskju um slíkt. Það eina sem við heyrðum um fjöldadráp snerti Pólverja og þau morð voru skrifuð á reikning Sov- étmanna. Þar var um að ræða fjöldagrafirnar í Katyn-skógi þar sem fundist höfðu grafir með á að giska tíu þúsund líkum, mestmegn- ir pólskir hermenn og liðsforingjar, sem Sovétmenn áttu að hafa tekið af lífi. Við heyrðum um þetta aftur og aftur og var greinilega mikið „propaganda“ mál í augum Þjóð- verja.“ Geir minnist þess að hafa fengið eitt eða tvö bréf frá Íslandi meðan hann starfaði innan TENO og sent einhver bréf sjálfur, þannig að bæði bárust honum fregnir að heiman og fjölskylda hans vissi lítillega hvern- ig hans málum væri háttað. Bréf bárust þó seint og illa, enda þurfti t.d. bréf frá Íslandi að sæta rit- skoðun Breta áður en það komst til Geir (lengst til vinstri) rúmlega tvítugur ásamt tveimur ónefndum félögum sínum. Myndin var sennilega tekin í Noregi. Þýskir hermenn fleyta sér yfir landamærafljót á meðan verkfræðingasveit endurreisir bílabrú. Liðsmenn TENO við störf í rústum eftir loftárás bandamanna. Á meðan þýski herinn geysist inn í Sovétríkin leggja þýskar verk- fræðisveitir í skyndi brú yfir Berezinu-fljót í Hvíta-Rússlandi. ’Við vildumberjast við kommúnista en höfðum ekkert sér- stakt á móti hinum, Bret- unum og Bandaríkja- mönnunum.‘ Armband með merki tæknilegu hjálp- arsveitanna. Geir um fertugt með hatt á höfði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.