Morgunblaðið - 15.01.2006, Page 34

Morgunblaðið - 15.01.2006, Page 34
34 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ J úlíana Sigurveig Guðjóns- dóttir hefur nýlokið við að skrifa meistararitgerð um reynslu dætra af því að flytja foreldra sem þjást af heilabilun á hjúkrunarheim- ili. Júlíana Sigurveig, sem hér er kölluð Sigurveig, vann ritgerðina við hjúkrunarfræði- deild Háskóla Íslands undir leið- sögn dr. Margrétar Gústafsdóttur dósents. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig hjúkrunar- heimilisvistun aldraðra einstak- linga, sem þjást af heilabilun ber að og hvernig náinn ættingi reynir slík umskipti. Um er að ræða túlkandi fyrirbæralega rannsókn þar sem tekin voru tvö u.þ.b. klukkustund- arlöng viðtöl við sjö dætur aldraðra foreldra sem nýlega höfðu flutt á sérdeildir fyrir þennan hóp sjúk- linga á fimm hjúkrunarheimilum. Fyrra viðtalið fór fram sex vikum eftir flutninginn og það síðara inn- an þriggja mánaða. Úrvinnsla gagna fólst í því að greina og túlka inntak viðtalanna til þess að varpa ljósi á upplifun þátttakenda við þessi umskipti. Lengur heima en heilsa og aðstæður leyfðu Sigurveig segir það einkenna reynslu foreldranna sem komu við sögu í rannsókninni að þeir hafi í raun og veru verið lengur heima en heilsa og aðstæður leyfðu með góðu móti. „Tvö einkenni geta birst hjá sjúklingum sem eru mjög erfið fyrir aðstandendur en það eru ráf og jafnvægisvandamál. Þessi vandamál krefjast nánast gjörgæslu yfir ein- staklingunum vegna hættu á skaða. Það tekur á að þrauka við svona aðstæður. Því þó ýmislegt hafi hjálpað eins og dagvistun og önnur skammtímaúrræði fundu þessar dætur að hlutirnir voru komnir í óefni þrátt fyrir þessa hjálp. For- eldrarnir áttu þá ekki í neinn lang- tíma sólarhringsstað að venda, þrátt fyrir augljósa þörf. En aðdragandinn að flutningi á hjúkrunarheimili var langur. Og þrátt fyrir langan aðdraganda fengu aðstandendur mjög takmark- aðar upplýsingar og fræðslu um hvaða hjúkrunarheimili standa til boða, hvaða þjónustu þau veita og hvaða þættir í þjónustu teljast til gæða. En slíkri kynningu mætti jafnvel byrja á strax við sjúkdóms- greiningu og auka fræðslu síðan þegar vistunarmat er gert. Þegar tilkynning kom um laust pláss varð að hrökkva eða stökkva og ekki var um neinn frest að ræða eða aðlögun. Niðurstöðurnar sýndu að fyrirvari að innlögn var stuttur, oft einn til tveir dagar. Fjölskyld- unum fannst eins og þeim væri stillt upp við vegg. Þær þurftu að grípa rýmin eða sleppa þeim. Af ótta við að fá ekkert annað pláss fyrr en eftir langan tíma fannst að- standendunum þeir verða að taka plássið þótt ekki endilega hafi verið um að ræða þann stað sem þeir helst hefðu kosið fyrir foreldri sitt. Dætrunum fannst frekar ætlast til af þeim að þær væru þakklátar fyr- ir að fá þó yfirleitt pláss.“ Mikill léttir að fá pláss Dæturnar upplifðu mikinn létti við að fá pláss á hjúkrunarheimili fyrir foreldra sína. Allar urðu þær þó fljótt fyrir miklum vonbrigðum, í fyrsta lagi með það að fá takmark- aða aðstoð, stuðning og leiðbein- ingar frá heilbrigðisstarfsmönnum við þessi afdrifaríku tímamót sem flutningur á hjúkrunarheimili er. Sérstaklega hvað varðar upplýsing- ar um starfsemi hjúkrunarheimil- anna og undirbúning fyrir flutning og í öðru lagi vegna þess að þjón- ustan var lakari en þær bjuggust við. „Öllum dætrunum sem ég ræddi við í rannsókninni þótti umskiptin erfið. Algengara var að þeim fynd- ist þær hefðu í raun og veru ekki haft neitt val um hjúkrunarheimili þegar upp var staðið og það reyndi líka á að þurfa að flytja foreldri sitt í flýti á hjúkrunarheimilið. Ég varð satt að segja mjög leið yfir því hversu niðurstöður rann- sóknarinnar eru daprar,“ sagði Sig- urveig. „Og ég varð líka mjög hissa á hversu mikill þvælingur var á for- eldrum dætranna innan hjúkrunar- heimilanna. Sú regla virðist viðhöfð á hjúkrunarheimilum sem ekki hafa nóg af einbýlum að allir nýir byrji vistina á fjölbýlisstofum. Aðeins eitt foreldri fékk tímabundið inni á ein- býli strax við komu. Allir hinir for- eldrarnir, fimm konur og einn karl- maður, lentu á fjölbýlisstofum og síðan getur viðkomandi verið flutt- ur til og frá. Slíkur þvælingur er ákaflega erfiður fyrir alla, ekki síst gamalt fólk, svo ekki sé talað um þá sem þjást af heilabilun.“ Allir foreldrar í óvissu með endanlegan íverustað Það kom fram í viðtölunum að allir foreldrarnir voru í raun í óvissu með endanlegan íverustað á hjúkrunarheimilunum. Þessi þvæl- ingur og það að vera óheppin með herbergisfélaga hafði slæm áhrif á líðan foreldranna og öryggistilfinn- ingu þeirra. Áberandi var að það foreldri sem fékk einbýlið strax í byrjun, en það foreldri var heldur ekki fært á milli staða fyrstu þrjá mánuðina, virtist líða mun betur en hinum sex og umskiptin voru þess vegna því foreldri og aðstandendum þess mun auðveldari en hjá hinum. Sigurveig segir að dæturnar hafi almennt lítið vitað hvað var fram- undan né hvaða þjónusta væri í boði á hjúkrunarheimilinu. Greini- legt sé að það vanti fræðslu um starfsemi hjúkrunarheimilanna og hvaða þjónusta sé þar í boði, ekki síst hvað varðar afþreyingu og þjálfun m.a. til að koma í veg fyrir mikil vonbrigði fjölskyldna. „Fólk vonast eftir góðri þjónustu og að þörfum hinna öldruðu sé sinnt,“ segir Sigurveig. „Dæturnar töldu foreldra sína búa við lítil lífs- gæði á hjúkrunarheimilunum. Heimilisbragur á deildunum var fremur bágborinn að þeirra mati. Deildirnar virkuðu líflausar og óvirkar og stærri deildirnar óró- legri en þær minni. Þetta gerði það að verkum að algengt var að dæt- urnar litu á deildirnar frekar sem geymslustaði en heimili. Að öllu jöfnu fannst þeim þó grunnþörfum þokkalega sinnt og mataræðið gott. Þjálfun og afþreying var mun minni en vonir dætranna stóðu til og alltof lítið var farið út af stofnunum í t.d göngutúra að þeirra mati. Þarf að upplýsa aðstandendur um kosti Mér finnst nauðsynlegt að að- standendur séu vel upplýstir um hvaða þjónusta sé í boði þ.m.t. þjálfun og virkni og hvaða þættir teljast til gæða í umönnun. Góð vitneskja almennings og stjórn- valda í þessu tilliti myndi án efa auka líkur á auknum gæðum innan hjúkrunarheimilanna. Þá er einnig nauðsynlegt að heilbrigðisstéttir geri fólki kleift að aðlagast þessum miklu umskiptum. Nýlega erlendar Meistararitgerð um flutning aldraðra sem þjást af heilabilun á hjúkrunarheimili Hagsmunir aldraðra snerta okkur öll Rannsókn Júlíönu Sigurveigar Guðjónsdóttur á reynslu dætra af því að flytja foreldra með heilabilun á hjúkrunarheimili ætti að vekja til umhugsunar vegna þess að í öllum þeim tilvikum sem hún rannsakaði fór foreldrunum aftur á fyrstu þremur mánuðunum eftir flutning. Hún spyr hvernig við sem þjóð sættum okkur við þær aðstæður sem þessu fólki er boðið upp á. Júlíana segir hér frá rannsókn sinni. Morgunblaðið/Þorkell Fjölskyldunum fannst, að sögn Sigurveigar, líkt og þeim væri stillt upp við vegg þegar rými losnaði. Þær þurftu að grípa rýmið eða sleppa því. Ekki var um neinn frest eða aðlögun að ræða og fyrirvarinn oft stuttur. Grand Hótel Reykjavík 20. janúar kl. 8:00 - 10:00 Dagskrá: 8:10 Vi›skiptasérleyfi, vaxtarbroddur atvinnulífsins? Almennt um notkun sérleyfa. Emil B. Karlsson, forstö›uma›ur Félags um vi›skiptasérleyfi. 8:25 Vaxtamöguleikar me› n‡tingu vi›skiptasérleyfa „Business Expansion by Franchising - Development in General“. Torben Leif Brodersen, framkvæmdastjóri Félags um vi›skiptasérleyfi í fi‡skalandi. 9:00 Sérleyfi í alfljó›legu samhengi „International Aspect of Franchising“ Rolf Gerhard Kirst framkvæmdastjóri Uniglob Travel. 9:35 Design Europa - Reynslusaga íslensks sérleyfisfyrirtækis í útrás. Birgir Halldórsson, framkvæmdastjóri Design Europa. 9:45 Spurningar og svör 10:00 Fundarlok Fundarstjóri: Sigur›ur Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og fljónustu. fiátttökugjald: 3.500 kr. Innifalinn er morgunmatur og bókin Vi›skiptasérleyfi – rit um stofnun og rekstur sérleyfisfyrirtækja eftir Emil B. Karlsson. Skráning á svth@svth.is e›a í síma 511 3000. Viðskiptasérleyfi Markaðstækifæri morgundagsins Útflutningsrá› Íslands, SVfi-Samtök verslunar og fljónustu og Vi›skiptaskrifstofa utanríkisrá›uneytisins standa fyrir kynningu á vi›skiptasérleyfum (Franchise). Fundurinn er ætla›ur fleim sem hyggjast sækja á n‡ja marka›i. M IX A • fít • 6 0 0 1 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.