Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 35
rannsóknir styðja þá niðurstöðu að starfsfólk tekur oft ekki eftir eða lætur hjá líða að meta það mikla til- finningalega álag sem flutningur á stofnun er fyrir margar fjölskyldur. Ekki síst þegar hann ber brátt að og lítill sem enginn undirbúningur á sér stað fyrirfram. Það olli einnig óþarfa óöryggi og kvíða hjá viðmæl- endum mínum að vita ekki strax í upphafi til hvers var ætlast af þeim sem aðstandendum eða hverjir starfshættir stofnunarinnar voru. Það skiptir miklu máli að að- standendur fái upplýsingar um það sem snýr að dvölinni og starfsem- inni. En reyndin virðist sú að að- standendur þurfa að sækja sér þessar upplýsingar að miklu leyti sjálfir eða reka sig á. Vandamálið er líka það að þeir fá ekki ráðrúm til að undirbúa sig eða sína. Það er engin tími gefinn til þess, þeir þurfa að taka ákvörðun um að taka plássið eða hafna því. Enginn virðist þora að hafna plássi enda eru í Reykjavík tæplega 300 aldr- aðir á biðlista í brýnni þörf eftir plássi á hjúkrunarheimili. Því miður virðist gamalt fólk fá nánast stöðu þurfalinga þegar það er komið inn á hjúkrunarheimili.“ Ekkert einkalíf á fjölmennisstofum Sigurveig segir fólk hafa lítið sem ekkert einkalíf á fjölmennis- stofum. „Fólk getur oft ekki haft persónulega muni sína í friði og hefur ekki alltaf aðgang að þeim þar sem þeir eru þá oft lokaðir inn í læstum skápum sem einungis starfsfólkið hefur aðgang að. Hver vill vera viðstaddur þegar alls ókunnugur herbergisfélagi heyir sitt dauðastríð? Hver vill þurfa að búa í herbergi með ókunnugri manneskju sem manni líkar alls ekki við? Ætlum við að sætta okkur við það?“ Hún segir líka spurningu að hve miklu leyti mönnun sé fullnægjandi. Starfsfólk hafi e.t.v. ekki tíma né krafta til að sinna nema brýnustu grundvallarþörfum einstaklinganna sem þar búa. Erfitt sé fyrir flesta einstaklinga nú til dags að sætta sig til dæmis við að komast ekki í bað nema einu sinni í viku og jafnvel sjaldnar. Eða að ganga í óhreinum fötum. „Ég skil eiginlega ekki hvers vegna við sem þjóð sættum okkur við þetta,“ segir hún. „Það er eins og það sé þegjandi samkomulag að setja ekki meira fjármagn í þessi málefni. Er það vegna þess að það er engin arðsemi af þessum rekstri? Sumir hlutir verða einfald- lega ekki metnir til fjár, þannig er það bara.“ Ýmislegt væri hægt að gera til úrbóta að mati Sigurveigar. Fyrir utan að fjölga rýmum, bjóða upp á einkaherbergi fyrir þá, sem þjást af heilabilun, þarf að stórbæta upplýs- ingagjöf til aðstandenda. Aðstand- endur þyrftu að geta gengið að upplýsingum um t.d. hugmynda- fræði heimilanna, sem væri jafnvel aðgengileg á netinu. Meiri fyrirvari þyrfti að vera á flutningnum svo fólkið hafi tíma til að undirbúa hann og umskiptin sem honum fylgja. Nýr íbúi þyrfti að hafa tengilið sem kynnti sér æviágrip hans og sér- þarfir. Fjölga þyrfti fagfólki m.a. í því skyni að efla þjálfun íbúanna og virkni, bæta launakjör starfsmanna og bjóða upp á aðlaðandi starfs- mannastefnu. Efla þyrfti fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk, ekki síst hvað varðar siðfræðileg álitamál í umönnun sjúklinga sem þjást af heilabilun. Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir og innrétta lítil herbergi sem afdrep fyrir heimilisfólk og heimsóknargesti á deildum þar sem fjölbýli eru í meirihluta. Það vekur athygli hvað dæturnar voru almennt ánægðar með dagvist- arstofnanir fyrir aldraða sem þjást af heilabilun. Það segir Sigurveig benda til þess að hér á landi sé til kunnátta til að hugsa mjög vel um sjúklinga sem þjást af heilabilun. Öllum foreldrunum fór aftur „Það kom fram í orðum dætr- anna að það hafi verið skref niður á við fyrir foreldrana að fara á hjúkr- unarheimili miðað við þá virkni, þjálfun og faglegu vinnubrögð sem voru viðhöfð í dagvistuninni,“ segir Sigurveig. „Öllum foreldrunum í þessari rannsókn fór verulega aftur bæði andlega og líkamlega, fyrstu þrjá mánuðina á hjúkrunarheimil- unum. Ég vona að niðurstöður rann- sóknarinnar geti orðið hvatning til að gera betur og vekja okkur til umhugsunar um stöðu elsta fólksins okkar svo við gerum úrbætur bæði fljótt og vel í þessum málaflokki. Hagsmunir aldraðra snerta okkur öll því ef við fáum að lifa nógu lengi verðum við öll gömul. Við erum öll á sama báti hvað þetta varðar.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 35 Tækniþróunarsjóður Umsóknarfrestur er til 15. febrúar Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr. 4/2003 um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins Tækniþróunarsjóður fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og háskólar Sjóðurinn veitir framlög til nýsköpunarverkefna sem eru til þess fallin að auka sam- keppnishæfni íslensks atvinnulífs. Forsenda fyrir aðkomu sjóðsins er að fyrir liggi vel mótuð hugmynd um hagnýtt gildi og líklegan ávinning sem þróun viðkomandi verkefnis getur leitt til. Framlag til framúrskarandi verkefna getur numið allt að 30 milljónum króna saman- lagt á þrem árum. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar næstkomandi. Eyðublöð og nánari upplýsingar um Tækniþróunarsjóð eru á heimasíðu Rannís, www.rannis.is ... upplýsingum um laun, verktakagreiðslur, hlutafé, lán, bifreiðahlunnindi o.fl. á árinu 2005 ... Síðasti skiladagur: RAFRÆN SKIL - 6. febrúar PAPPÍRSSKIL - 26. janúar Skilist til skattstjóra viðkomandi umdæmis RSK RÍKISSKATTSTJÓRI ALLT UM rafræn skil á rsk.is/vefskil Hafið þið SKILAÐ TIL SKATTSINS LAUNAGREIÐENDUR, HLUTAFÉLÖG, FJÁRMÁLASTOFNANIR ... MIKILVÆGT ER AÐ UPPLÝSINGAR BERIST TÍMANLEGA VEGNA FORSKRÁNINGAR Á FRAMTÖL Sjá nánar auglýsingu í Stjórnartíðindum um skil á upplýsingum á árinu 2006 ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar Dalvegi 28 – Kópavogi Sími 515 8700 BLIKKÁS – Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.