Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ 11. janúar 1976: „Umsagnir breskra blaða um atburðina á fiskimiðunum við Ísland síð- ustu daga benda til þess, að í Lundúnum ríki í grundvall- aratriðum misskilningur á af- stöðu Íslendinga til þessara atburða. Þannig lítur Lund- únablaðið Times svo á, að sú ákvörðun íslensku ríkisstjórn- arinnar að leita til Atlants- hafsbandalagsins sé til marks um vonleysi meðal Íslendinga vegna þess, að ekki hafi tekist nema í fáum tilvikum að und- anförnu að klippa á togvíra breskra togara. Fréttamaður Guardian telur það vera skoð- un bresku stjórnarinnar að Íslendingar séu í hættulega mikilli geðshræringu. Í stríði skiptir miklu, að hvor aðilinn um sig hafi sem ríkastan skilning og þekkingu á sjónarmiðum og afstöðu hins. Þá eru minni líkur til þess, að menn geri vitleysur. Athafnir Breta hér við land og raunar öll afstaða þeirra frá upphafi, í samninga- viðræðum þeim, sem fram fóru, flotaíhlutunin og aðgerð- ir herskipanna hafa vakið mikla furðu manna hér og vakið upp spurningar um, hvers vegna Bretar hagi sér svo heimskulega, sem raun ber vitni um. Margt bendir til, að þeir geri það vegna þess, að þeir misskilji stöðuna í grundvallaratriðum. Það kann að stafa af því, að breska sendiráðið í Reykjavík sendi frá sér til utanríkisráðuneyt- isins í London algerlega rang- ar upplýsingar um afstöðu Ís- lendinga og andrúmsloft hér á landi í þessari deilu.“ . . . . . . . . . . 12. janúar 1986: „Ragnar Halldórsson, formaður Verzl- unarráðs Íslands, setti fram skoðanir um peningamál okk- ar Íslendinga í grein í Morg- unblaðinu um áramót, sem ástæða er til að staldra við. Í grein þessari viðrar formaður Verzlunarráðsins þá hug- mynd að við Íslendingar hættum að burðast með eigin gjaldmiðil og tökum upp sam- starf við aðra þjóð um slíkt og bendir í því sambandi á for- dæmi Lúxemborgar og Liech- tenstein. Í grein þessari segir Ragnar Halldórsson m.a.: „Í fljótu bragði virðist sjálfstæði þjóðar fela í sér, að hún hafi eigin gjaldmiðil, gefi út sjálf- stæða mynt. Ef einhver legði til að við tækjum upp danskar krónur í stað þeirrar íslenzku, hljómar það sem svik við landið og það sem íslenzkt er. En bíðum við. Peningar eru einungis tæki sem notað er sem gjaldmiðill í viðskiptum, til að geyma verðmæti og til að vera mælikvarði á verð- mæti. Þessu þríþætta hlut- verki þjónar íslenzka krónan illa vegna þess að hún heldur ekki verðgildi sínu. Við mun- um skipta um vog, sem vigt- aði rangt, reynist ekki unnt að lagfæra hana. Af sömu ástæðu gæti verið rétt að taka upp annan og betri gjaldmiðil í viðskiptum.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í Lesbók Morgunblaðsins í dag, laug- ardag, birtist viðtal við Hafþór Yngvason, forstöðumann Listasafns Reykjavíkur, sem tók við því starfi sl. haust eftir að hafa búið og starfað lengi í Bandaríkjunum. Í viðtali þessu segir Hafþór m.a.: „Ég sé ekki annað en hér á Íslandi sé til það mikill auður, að það ætti að vera hægt að sækja fé út í atvinnulífið. Núna þegar sýning- arnar, sem hér eru framundan fara að verða skýrari þá mun ég leita út og virkilega reyna að fá fólk til liðs við mig. Allt frá því að ég byrjaði að vinna í listunum hef ég unnið við þann skilning, að það þurfi að fjármagna listina með einkafram- taki líka. Borgin leggur fram ákveðna upphæð og vissulega er hægt að gera eitthvað fyrir hana. En viðhorf mitt er að síðan bætum við við þá upphæð og getum fyrir vikið gert miklu meira. Auðvitað er hægt að hugsa sem svo, að maður geri bara eitthvað fyrir þá peninga, sem manni eru réttir en það er líka hægt að líta á þá peninga, sem byrjunina á einhverju meira.“ Forstöðumaður Listasafns Íslands vekur hér máls á efni, sem tímabært er að ræða meira um og með skipulegri hætti en gert hefur verið, sem er stuðningur einkaframtaksins við menningu og listir. Þótt einkafyrirtæki hafi lengi veitt menningar- starfsemi og listamönnum ákveðinn stuðning má þó segja, að það hafi fyrst gerzt að ráði á síðustu 10 árum. Í u.þ.b. sjö ár þar á undan gekk þjóðin í gegnum eina dýpstu efnahagskreppu, sem hér kom upp á 20. öldinni og það var ekki fyrr en á árinu 1995 að fór að rofa til. Frá þeim tíma hafa landsmenn búið við mikla og vaxandi velgengni og velmegun, sem kannski hefur náð hámarki nú. Samhliða hefur það gerzt að framlög einkafyr- irtækja til menningarstarfsemi hafa aukizt veru- lega. Það á ekki sízt við um banka og sparisjóði, sem hafa haft yfir miklum fjármunum að ráða, en einnig önnur fyrirtæki eins og tryggingafélög og fleiri félög, sem hafa notið góðs af velgengninni og hafa verið tilbúin til að láta hluta afraksturs- ins ganga til bæði menningarstarfsemi, góðgerð- arstarfsemi og félagasamtaka sem vinna með einum eða öðrum hætti að stuðningi við þá, sem höllum fæti standa. Í því sambandi er ástæða til að minna á, að geðræktarverkefnið var í upphafi fjármagnað að verulegu leyti með myndarlegum framlögum nokkurra einkafyrirtækja. Menningarstarfsemin á Íslandi stendur hins vegar í miklum blóma og þarf á verulegu fjár- magni að halda. Að meginefni til koma þeir pen- ingar úr almannasjóðum. Þannig er starfsemi Þjóðleikhússins, Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Íslenzku óperunnar og Listasafns Íslands að mestu leyti fjármögnuð með fé úr ríkissjóði auk þeirra tekna, sem þessar stofnanir afla með starfsemi sinni. Starfsemi Leikfélags Reykjavíkur/Borgarleik- hússins og Listasafns Reykjavíkur er að veru- legu leyti fjármögnuð af Reykjavíkurborg auk þeirra tekna, sem þessir aðilar afla með starf- semi sinni. En til viðbótar hafa flestar eða allar þessar menningarstofnanir fengið stuðning frá öflugum einkafyrirtækjum og þá ekki sízt fjármálafyrir- tækjum. Hið opinbera fé dugar til þess að halda þessum menningarstofnunum gangandi en tæpast meir. Miklar sveiflur eru í eigin tekjum þessara stofn- ana, ótrúlega miklar, og erfitt að festa hendur á hvað veldur. Það er t.d. ljóst að almennt hefur verið minni aðsókn að leikhúsum og tónleikum frá sl. haust en um skeið áður. Hvað veldur, þegar svo mikil velmegun ríkir í samfélaginu, sem raun ber vitni um? Er það verkefnavalið? Eru einhverjir straumar á ferðinni í þjóðfélaginu, sem leikhúsin og tónleikahaldarar ná ekki að fanga? Hin opinberu fjárframlög eru af svo skornum skammti að sveiflur í eigin tekjum geta gengið mjög nærri þessum stofnunum. Er raunsætt að ætla, að þær hafi möguleika á að fá svo mikinn stuðning frá einkaaðilum, að það dugi til að tryggja óhindraða og eðlilega starf- semi? Hafþór Yngvason er bersýnilega þeirrar skoð- unar en getur verið að sú bjartsýni byggist á því, að hann hefur dvalið lengi í öðru landi og er fyrst nú að byrja að kynnast hinum íslenzka veruleika í upphafi 21. aldarinnar? Þreyttir listamenn Þeir eru ófáir íslenzku listamennirnir, sem á undanförnum árum hafa sagt við viðmæl- endur sína, að þeir séu þreyttir og uppgefnir á því að ganga á milli fyrirtækja til að leita eftir stuðningi við menningarstarfsemi, sem þeir vilja standa fyrir. Öllum ber þeim saman um að þeim sé vel tekið. En öllum ber líka saman um, að yf- irleitt séu svörin þau, að umsóknir um fjárstuðn- ing séu svo margar að engin leið sé fyrir viðkom- andi fyrirtæki að veita öllum, sem sækja um viðunandi úrlausn. Í mörgum tilvikum tekst að safna 250 þúsund krónum hér og 250 þúsund krónum þar en það kostar mikla vinnu og tekur langan tíma. Í fjölmiðlum birtast oft fréttir um velgengni íslenzkra listamanna í öðrum löndum, hvort sem um er að ræða glæpasagnahöfunda, tónlistarmenn, leikhópa eða myndlistarmenn en fæstir gera sér grein fyrir hversu mikil vinna hef- ur verið lögð í að fjármagna þessar ferðir og oft eru þær farnar án þess, að listamennirnir sjálfir fái yfirleitt nokkuð greitt fyrir sína vinnu. Það viðhorf er enn landlægt að listamenn eigi að gefa sína vinnu. Af hverju skyldu þeir gefa sína vinnu? Er sanngjarnt að nota þá stöðu, að þeir hafa áhuga á að koma verkum sínum á framfæri og vilja ýmislegt til þess vinna? Nei. Það er ekki sanngjarnt. Á seinni árum hafa þau fyrirtæki sem á annað borð vilja leggja fram fjármuni til menningar markað sér ákveðna stefnu og leggja þá fram meiri peninga til stuðnings við færri verkefni og hugsunin á bak við slíka stefnumörkun áreiðan- lega sú, að peningarnir nýtist betur. En kjarni málsins er sá, að það á við um flesta listamenn, að þeim hrýs hugur við því verkefni að ganga á milli fyrirtækja í leit að fjárstuðningi við tiltekin verkefni á sviði menningarlífsins. Svo eru auðvitað til miklir sölumenn í röðum listamanna, sem eru jafn miklir listamenn í að selja hug- myndir sínar og sjálfa sig eins og þeir eru á því sviði listsköpunar, sem þeir hafa helgað krafta sína. Ef horft er á þessi mál frá sjónarhóli fyrirtækj- anna, sem hafa vilja og löngun til að styðja menn- ingarstarfsemina í landinu lítur þetta nokkurn veginn svona út: fyrirtækin hafa engan frið fyrir fólki, sem leitar eftir fjárstuðningi við einhvers konar menningarstarfsemi. Af þeim sökum hafa þau nú orðið falið ákveðnum starfsmönnum það verkefni að sjá um slíkar umsóknir og afgreiða þær. En þau spyrja sjálf sig þeirrar spurningar, hvað þau fái út úr slíkum stuðningi. Í undantekn- ingartilvikum biðja þau ekki um neitt í staðinn og þá kannski fyrst og fremst vegna þess að stuðn- ingurinn er veittur vegna jákvæðrar afstöðu til menningarinnar en starfsemi fyrirtækjanna með þeim hætti að þau þurfa ekki á kynningu að halda hér innan lands. En flest segja: hvað fáum við í staðinn? Þetta er eðlileg spurning en það er líka vand- meðfarið hvert endurgjaldið á að vera. Fyrir nokkrum árum var t.d. til fyrirtæki, sem hét Ís- landssími og veitti ákveðinni menningarstarf- semi myndarlegan fjárstuðning. En á móti voru starfsstöðvar þeirrar menningarstofnunar svo rækilega merktar fyrirtækinu með blaktandi fánum þess og öðrum hætti að það hlaut að vekja upp andúð þeirra, sem leituðu á vit menningar- innar í viðkomandi stofnun. Þess vegna þarf end- urgjaldið að vera hóflegt þannig að það ofbjóði ekki unnendum menningarinnar. Það sem hér er sagt um menningarstofnanir í þessu samhengi getur líka átt við um íþrótta- félög. Þau njóta sum hver öflugs stuðnings fyr- irtækja, sem ætlast þá til þess að þeirra sé getið með einhverjum hætti á móti. Fyrir allmörgum árum var hægt að velta því fyrir sér hvort íþróttafélögin eða samtök þeirra væru í raun að selja pláss í fjölmiðlum. Sú spurning vaknaði vegna þeirrar áherzlu, sem lögð var á að nafn stuðningsaðila kæmi fram í fréttum fjölmiðla. Þótt sumir fjölmiðlar a.m.k. spyrntu við fótum var það til lítils vegna þess, að íþróttasamtökin tóku einfaldlega upp á því að gefa íþróttamótum ný nöfn, þannig að þau bera nú nafn þeirra fyr- irtækja, sem stuðninginn veita. Svo má líka segja sem svo, að fjölmiðlarnir séu ekki of góðir til þess að veita mikilvægri starfsemi íþróttafélaganna stuðning með því að nefna nöfn stuðningsaðil- anna. Allt þarf þetta þó að vera í hófi. Er hægt að sækja fé út í atvinnulífið? Hafþór Yngvason, forstöðumaður Lista- safns Reykjavíkur, er þeirrar skoðunar, að hægt sé að sækja fé út í atvinnulífið. Það er engin spurning um, að það er hægt, a.m.k. á með- an vel gengur. En hér skal fullyrt að um leið og ný efnahagskreppa skellur yfir – og að því mun koma – verða þessi fjárframlög þau fyrstu, sem skorin verða niður. En við núverandi aðstæður er spurningin kannski sú, hvort það er hægt í þeim mæli, að úrslitum geti ráðið og leitt til mun öfl- ugri menningarstarfsemi en við nú búum við. Það er hæpið. Fjárframlög íslenzku fyrirtækj- STÉTTARFÉLAG GEGN HAGSMUNUM LAUNAFÓLKS? Kennarar við Norðlingaskólabirta í Morgunblaðinu í gær yf-irlýsingu, þar sem þeir útskýra samkomulagið, sem þeir hafa gert við Reykjavíkurborg og skólastjóra skól- ans um laun og vinnutíma. Félag grunnskólakennara hefur neitað að samþykkja þetta samkomulag, m.a. á þeim forsendum að í því sé ekki sú tak- mörkun á kennsluskyldu, sem virðist vera alfa og ómega kennarasamtak- anna við gerð kjarasamninga. Kennarar við Norðlingaskóla segja m.a.: „Vinnan fer fram á tímabilinu 8– 17 á virkum dögum og fyrir þetta eru greidd 30–35% hærri laun. Öll vinna umfram 42,86 tíma á viku telst yfir- vinna,“ segja kennarar og benda á raunverulegt dæmi um 73.000 króna launahækkun kennara, sem starfar samkvæmt samkomulaginu. Kennararnir benda á að vinnuskipu- lagið sé sveigjanlegt og einstaklings- bundið og geri það kleift að hafa við- fangsefni kennara ólík. „Hvernig vinnutími kennara er skipulagður er ákveðið af skólastjóra og kennara í sameiningu og því hafa kennarar sjálfir um það að segja hvernig skipting vinnutímans er,“ segir í yfirlýsingunni. „Það sem af er þessu skólaári hefur enginn kennari í Norðlingaskóla náð því að kenna 27 kennslustundir á viku (sem er kennsluskylda kennara sam- kvæmt kjarasamningi KÍ og LN) þar sem starfið hefur kallað á að meiri tími fari til annarra starfa en kennslu s.s. undirbúnings og skipulagningar þeirra kennsluhátta sem viðhafðir eru í skól- anum.“ Kennararnir lýsa loks furðu sinni á afstöðu forsvarsmanns Félags grunn- skólakennara – þar er væntanlega átt við Ólaf Loftsson formann – „því hér er um að ræða félagsmenn í Félagi grunn- skólakennara sem sjálfir vilja taka þátt í tilrauninni og eru mjög sáttir við hana að öllu leyti. Með því að samþykkja ekki tilraunina sem við stöndum öll heilshugar að sjáum við ekki annað en að stéttarfélagið okkar vinni gegn okk- ar hagsmunum.“ Hvernig ætlar forysta Félags grunn- skólakennara að svara þessum fé- lagsmönnum sínum? Í hverra þágu starfar hún? KRAFTURINN Í BORGARFIRÐI Allt stefnir nú í að nýr menntaskólitaki til starfa í Borgarnesi haustið 2007, aðeins tveimur árum eftir að hug- myndin að stofnun hans var sett fram. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í gær kemur fram að í ágúst í fyrra óskaði bæjarráð Borgarbyggðar eftir hug- myndum háskólanna á Bifröst og Hvanneyri um framhaldsskóla í hér- aðinu. Viku síðar mættu rektorar há- skólanna á fund bæjarráðs og lögðu fram mótaðar hugmyndir, sem voru sam- þykktar. Fljótlega tók Borgarfjarðar- sveit einnig þátt í undirbúningnum. Viku síðar lagði Sparisjóður Mýrasýslu fram 40 milljónir króna í hlutafé fyrir hluta- félag, sem stofnað verður um rekstur skólans. Nokkrum vikum síðar lá fyrir tillaga um námsskipulag, frumteikning- ar að skólahúsi og drög að fjárhagsáætl- un. Eftir rúmlega mánuð á að auglýsa eftir skólameistara og hefja fram- kvæmdir við nýtt skólahús í hjarta Borg- arness. Ætlunin er að safna 100 milljónum króna í hlutafé og verður leitað til fleiri fyrirtækja á svæðinu, svo og almenn- ings, sem vill stuðla að því að reistur verði framhaldsskóli í hans heimabyggð. Menntamálaráðuneytið hefur tekið hug- myndum heimamanna vel og vinnur með þeim að framgangi málsins. Öll er þessi saga með talsverðum ólík- indum, vegna þess hversu hratt er geng- ið til verks. En hún sýnir vel fram á kosti þess að beita nýrri hugsun og nota að- ferðir einkaframtaksins í menntamálum. Draga má í efa að Borgfirðingar fengju nýjan skóla á tveimur árum ef fara ætti hina hefðbundnu leið ríkisrekstrarins. Og þessi saga sýnir líka vel þann mikla kraft, sem býr í Borgfirðingum um þess- ar mundir og þeir sækja ekki sízt til há- skólanna tveggja í héraðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.