Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 44
Fréttir á SMS 44 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN NÚ GET ég ekki orða bundist lengur. Nýaf- staðnir samningar milli Reykjavíkurborgar og Eflingar/starfsmanna- félags Reykjavíkur- borgar gefa kærkomna hækkun til ófaglærðra og háskólamenntaðra starfsmanna á leik- skólum. En hvað með leik- skólakennara sem bera ábyrgð á stjórnun og faglegu starfi leikskól- anna? Staðan í dag er sú að við leikskólakennarar erum orðnir lægri í launum en margt af því ófag- lærða fólki sem starfar okkur við hlið. Það hefur verið umræða um að það séu aðeins nokkrir ófaglærðir/ háskólamenntaðir sem ná því að vera hærri í launum en leikskóla- kennararnir. Það skiptir einfaldlega ekki máli því það á ekki að viðgang- ast að stétt sem er sérmenntuð í ákveðnu fagi sé lægri í launum en ófaglærðir/ háskólamenntaðir sem vinna þeim við hlið. Á sama tíma og leikskólakennarar á mínum vinnu- stað samglöddust okkar vinnu- félögum með nýja samninga, fórum við að spyrja okkur; til hvers í ósköpunum fórum við í 3 ára há- skólanám? Þetta var eins og að fá rýting í bakið og eflaust hefur það einnig verið hjá þeim leikskólakenn- aranemum sem eru í námi við Kennarahá- skóla Íslands. Hvaða skilaboð eru þeir að fá? Einnig höfðu sum- ir Eflingarstarfsmenn á orði að þeir ætluðu ekki að huga að námi í leikskóla- kennarafræðum ef staðan verður svona. Nú á að stofna vinnuhóp til að skoða þessi mál fram að launa- málaráðstefnu sveitarfélaga hinn 20. janúar. Einnig hefur verið lagt til að leikskólakennarar dragi uppsagnir sínar til baka meðan farið er yfir málin. Í mínum huga er aðeins verið að draga málið á langinn og því óþarfi að draga uppsagnir til baka. Það þarf að koma til móts við leik- skólakennara með raunhæfar launa- hækkanir áður en það gerist. Undirrituð starfar sem aðstoð- arleikskólastjóri en er orðin 10.000 krónum lægri í launum á mánuði en ófaglærður deildarstjóri á mínum vinnustað. Ég útskrifaðist frá Fóst- urskóla Íslands 1996 og tók viðbót- arnám til B.ED. gráðu með fullri vinnu 2001–2003. Þessi staða er ekki ásættanleg og ég skora á vinnuhópinn að koma með raunhæfar tillögur um launa- hækkanir leikskólakennara sem fyrst. Til hvers að mennta sig sem leikskólakennari? Sigríður Sigurjónsdóttir fjallar um menntun og kjaramál leik- skólakennara ’Þessi staða er ekkiásættanleg og ég skora á vinnuhópinn að koma með raunhæfar tillögur um launahækkanir leik- skólakennara sem fyrst.‘ Sigríður Sigurjónsdóttir Höfundur er aðstoðarleikskólastjóri leikskólans Ásborgar. www.thinghol t . is OPIÐ HÚS Hraunbraut 12 - jarðhæð sunnudaginn 15. jan. frá kl. 14 til 15. Glæsileg vel skipulögð og mikið endur- nýjuð 86 fm 3ja herberga íbúð á jarðhæð + 13 fm geymsla á besta stað í Kópavogi. Verið velkomin. Sveinn Guðmundsson hdl., lögg. fasteignasali Borgartún 20, 105 Reykjavík • thingholt@thingholt.is Sími 590 9500 Til leigu. Hlíðasamári, Kópavogi Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Um er að ræða nýbyggingu, 6 hæða verslunar-, þjónustu- og skrifstofubygging. Mjög góð staðsetning á einum besta stað í Smáranum. Glæsilegt útsýni, samtals ca. 1944 fm. Jarðhæð - verslun og þjón- usta ca 324 fm. 2.-6. hæð - skrifstofur og þjónusta ca. 324 fm. hver hæð. Mögulegt er að skipta hverri hæð upp í 2-4 einingar. Góð bílastæði eru við húsið. Húsið er mjög áberandi og er aðgengi og staðsetning mjög góð. Húsnæðið afhendist í september 2006. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson í símum 822 8242 og 588 4477. FANNBERG FASTEIGNASALA ehf. EYJAFJÖLL – LANDSPILDUR Til sölu eru tvær landspildur undir Austur-Eyjafjöllum. Önnur er 12,7 ha að stærð, en hin er 5,6 ha. Landið er gróið og grasgefið og hentar vel til beitar. Útsýni er afar fallegt. Verð: Tilboð. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Fannbergs fasteignasölu ehf. í síma 487 5028. Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur Húsið er laust mjög fljótlega. Sýni í dag mjög gott og vel skipulagt tvílyft raðhús, samtals 236,8 fm, með innbyggðum góðum bílskúr. Húsið stendur á mjög góðum stað í Kópavog- inum, frábært útsýni til norðurs og austurs. 7 svefnherbergi. Mögulegt að skipta húsinu í tvær íbúðir (jafnvel 3). Hús í mjög góðu standi. Nýtt gler. Stutt í leikskóla, grunnskóla og verslanir. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-15 LITLIHJALLI 5 Í KÓPAVOGI Verið velkomin. Ef einhver annar tími hentar betur þá endilega hafið samband. Sölumaður: Þórhallur, sími 896 8232 Suðurlandsbraut 54, við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Vorum að fá í einkasölu vandað skrifstofuhúsnæði á 3. hæð með útsýni í góðu lyftuhúsi í verslunarmiðstöðinni í Hamraborg. Húsnæðið skiptist m.a. í stóra mót- töku og er gengt úr móttökunni út á suðursvalir, 16 góð skrifstofuherbergi, funda- herb., eldhús og snyrtingar. Fullkonar tölvulagir í öllum herb., kerfisloft og linoleum- dúkar á gólfum. Auðvelt að nýta húsnæðið sem tvær sjálfstæðar eigningar. Í Hamraborg og nágrenni er öll þjónusta. Staðsetning er mjög miðsvæðis miðað við helstu þjónustukjarna á stór-Reykjavíkursvæðinu. Selst í einu lagi. Verð 43,5 millj. HAMRABORG – VANDAÐ SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI MIKIL umfjöllun hefur verið um leikskóla nú á sl. haustmisseri. Því miður virðast það helst vera umræð- ur undir neikvæðum formerkjum sem rata í fjölmiðla, ég vildi gjarnan að þeir fjölluðu um þá miklu þróun sem átt hefur sér stað á starfsemi leikskóla. Algjör bylting hefur átt sér stað í kennslu og uppeldi ungra barna hér á landi undanfarna áratugi, þar á meðal hafa leikskólar þróast í fyrsta skólastigið. Samhliða þessu hefur menntun leikskóla- kennara þróast í öflugt háskólanám þar sem sífellt fleiri stunda rannsóknatengt framhalds- nám og reglubundna endurmenntun. Á ári hverju vinna leikskólar að þró- unarverkefnum, þróa nýtt kennslu- efni og taka þátt í alþjóðlegu starfi. Í ljósi þessara breytinga og þeirra samfélagshátta er ríkja í okkar sam- félagi, þar sem báðir foreldrar vinna utan heimilis, er ljóst að leik- skóladvölin er veigamikill þáttur í samfélaginu. Flest börn eru í leik- skólanum mestan hluta vökutíma síns og er hann því stór hluti af dag- legu lífi þeirra. Á því aldursskeiði er börn eru í leikskól- anum er þroski þeirra hvað örastur, þar er lagður grunnur að mót- un einstaklingsins og unnið í samræmi við þau námsvið er leik- skólar kenna sam- kvæmt aðalnámskrá. Leikskólagangan hefur áhrif á skólagöngu barna síðar á lífsleið- inni og því afar mik- ilvægt að til hennar sé vandað. Mikil framsækni ríkir í íslensku samfélagi og hávær umfjöllun um blómlegan líftækniiðnað og útrás á fjármálamarkaði og er það vel. En gleymum ekki innviðunum, grunn- urinn að vexti samfélagsins þarf að vera lagður strax við upphaf skóla- göngu, innan veggja skólanna dvelur framtíðarmannauðurinn. Ég vil beina því til mennta- málaráðherra og annarra þeirra er móta menntastefnu landsins að íhuga vel hvernig þeir geta styrkt námsumhverfi leikskólans þannig að þar starfi vel menntaðir og hæfir einstaklingar. Þar þurfa að vera að- stæður til að þróa starfið og byggja upp sterka fræðilega þekkingu sem er sífellt í mótun og í takt við þróun samfélagsins. Foreldra hvet ég til að standa vörð um þá kennslu sem börnum þeirra ber að fá samkvæmt íslensk- um lögum og gera kröfur um það besta þeim til handa. Gerum nauðsyn góðrar mennt- unar og uppeldi íslenskrar bernsku ekki að umræðu á tyllidögum, ger- um hana að raunveruleika. Yngstu þegnar landsins eru mikils virði. Hvers virði eru yngstu þegnar þessa lands? Halldóra Pétursdóttir fjallar um gildi menntunar og uppeld- is barna á fyrstu skólastigunum ’... innan veggja skól-anna dvelur framtíð- armannauðurinn.‘ Halldóra Pétursdóttir Höfundur er leikskólastjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.