Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í KJÖLFAR sviplegs sjálfsvígs
manns á Ísafirði hafa fréttamenn
Kastljóssins farið hörðum orðum
um fréttaflutning DV og gagnrýnt
báða ritstjóra umrædds blaðs fyrir
þá stefnu að birta nöfn og myndir
af einstaklingum og fjalla um
ábornar sakir þeirra án þess að
sekt hafi verið sönnuð. Finnst mér
eins og hér megi greina stefnu-
breytingu hjá umsjónarmönnum
Kastljóss og hlýtur það að vera
mikill léttir fyrir fleiri en mig að
heyra það. Það bætir þó í engu
þann skaða sem nafn- og myndbirt-
ing Eiríks Pálssonar í Kast-
ljósþætti 13. október olli mér og
fjölskyldu minni. Sigmar Guð-
mundsson, einn af umsjón-
armönnum Kastljóssins, var þar
með til umfjöllunar hið hörmulega
mál Thelmu Ásdísardóttur og
systra hennar. Þar hikaði hann
ekki við að nafngreina og birta
mynd af Eiríki Pálssyni, afa mín-
um, sem var í fréttinni sakaður um
að hafa hindrað rannsókn yfirvalda
og verndað barnaníðinginn, föður
Thelmu.
Í Kastljósþættinum á miðviku-
daginn var gagnrýndu umsjón-
armenn þáttarins réttilega frétta-
mennsku af þessu tagi, þ.e. að nafn
og mynd séu birt af einstaklingi
sem borinn er þungum sökum án
þess að sekt sé sönnuð. Jóhanna
Vilhjálmsdóttir spurði m.a. Jónas
Kristjánsson, ritstjóra DV, eftirfar-
andi spurningar: ,,Hvernig rétt-
lætið þið svona blaðamennsku í
ljósi þess að þið hafið í sjálfu sér
ekki hugmynd um það hvort mað-
urinn sé sekur eða saklaus?“
Afi minn lést árið 2002 og getur
ekki borið fyrir sig neinar varnir.
Fjölskyldan getur ekki með óvé-
fengjanlegum hætti hreinsað mann-
orð hans af þessum fullyrðingum,
eins fjarstæðukenndar og þær eru
öllum þeim sem til afa míns
þekktu. Í augum ókunnugra situr
hins vegar umfjöllun Kastljóssins
eftir sem dómur yfir afa í þessu
máli.
Í ljósi þeirrar umræðu sem orðið
hefur þessa dagana um ónærgæt-
inn og á tímum siðlausan frétta-
flutning DV ætti umsjónarmönnum
Kastljóssins að vera orðið ljóst að
vinnubrögð af þessu tagi eru for-
kastanleg sama hvaða fjölmiðill á í
hlut.
EIRÍKUR ÓLAFSSON,
Eskihlíð 16a, 105 Reykjavík.
Stefnu-
breyting hjá
Kastljósinu?
Frá Eiríki Ólafssyni:
EINS og mörgum mun kunnugt eru
á þessu ári liðin 250 ár frá fæðingu
Wolfgangs Amadeusar Mozarts. Af
því tilefni munu tónlistarmenn heims-
ins einbeita sér að flutningi allra verk
Mozarts til heiðurs tónskáldinu.
Tímamótin munu eflaust setja mark
sitt á tónlistarútgáfur á verkum tón-
skáldsins, einstök verk, verkaflokkar
eða heildarútgáfur eiga eftir að rata í
hillur plötuverslana auk þeirra sem
þar eru fyrir. Útvarps- og sjónvarps-
stöðvar um heim allan munu sýna
vandaða dagskrá um tónskáldið, og
þeirra á meðal Ríkissjónvarpið.
Ríkisútvarpið Rás 1 tekur þátt í
leiknum af krafti og verða einstakir
dagskrárliðir er tengjast tónlist Moz-
arts auglýstir sérstaklega í dagskrá
útvarpsins. Þó er sérstök ástæða til
að benda á einn lið sem verður á dag-
skrá Rásar 1 á árinu.
Á undanförnum árum hafa nokkrir
hinna frábæru tæknimanna útvarps-
ins hljóðritað, með íslenskum flytj-
endum, öll verk Mozarts sem hann
skrifaði fyrir einleiksfiðlu, alls 41
verk. Alls koma að þessum hljóðrit-
unum átján fiðluleikarar, fjórtán pí-
anóleikarar, þrír sellóleikarar og einn
semballeikari. Er hér um að ræða
stórvirki í íslenskri tónlistar-
hljóðritun þar sem svo margir af okk-
ar einstöku hljóðfæraleikurum koma
að metnaðarfullu samstarfi við Rík-
isútvarpið.
Arndís Björk Ásgeirsdóttir dag-
skrárgerðarmaður á Rás 1 mun
fylgja verkefninu heim í stofu hlust-
enda og verða hljóðritanirnar leiknar
á sunnudögum fram á vorið kl. 13:45
og verður fyrsti þátturinn á dagskrá
nk. sunnudag, 15. janúar. Er dag-
skrárgerð þessi liður í dagskrár-
stefnu Rásar 1 í að miðla hlustendum
því besta sem finnst og því besta sem
er að gerast í íslensku tónlistarlífi.
BJARKI SVEINBJÖRNSSON,
tónlistarráðunautur
Ríkisútvarpsins
Fiðla Mozarts
Frá Bjarka Sveinbjörnssyni:
AP
250 ár verða liðin frá fæðingu Wolf-
gangs Amadeusar Mozarts hinn 27.
janúar. Af því tilefnið mun Rík-
isútvarpið Rás 1 halda úti ýmsum
dagskrárliðum til heiðurs honum.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Háhæð - Parhús - Garðabæ
Hraunhamar fasteignasala hefur
fengið í einkasölu sérlega glæsilegt
ca 200 fermetra parhús ásamt 80
fermetra rými í kjallara, vel staðsett
á frábærum útsýnisstað í Hæða-
hverfi í Garðabæ. Eignin skiptist í
forstofu, forstofuherbergi, hol,
hjónaherbergi, eldhús, stofu, borð-
stofu, baðherbergi, þvottahús. Á
millilofti er sjónvarpshol, herbergi og geymslur. Gott 80 fermetra rými í kjallara
sem býður upp á mikla möguleika. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni
eru rauðeik og skífa. Fallegur garður með sólpöllum og tilheyrandi. Frábær stað-
setning . Verð kr. 55 millj. Myndir af eigninni á mbl.is.
Eikarás - Einbýli - Garðabæ
Tvílyft einbýli með innb. bílsk.,
samtals 320 fm. Möguleiki á auka-
íbúð. Eign í sérflokki. Húsið er mjög
glæsil. innréttað með sérsmíðuðum
innréttingum úr eik frá Tak á Akur-
eyri og gólfefni eru massíft eikar-
parket og steinn. Frágangur lóðar
er eftir. Glæsilegt hús á frábærum
stað. Útsýni.
Björtusalir - Kóp. - 5 herb.
LAUS STRAX. Sérlega glæsileg
130,8 fm 5 herb. íbúð á annarri
hæð í fimm íbúða húsi. Forstofa,
sjónvh., stofa, borðst., eldhús,
baðh., 3 barnah., hjónah., þvotta-
hús og geymsla. Fallegar innr.,
parket og flísar. Góðar s-svalir. Frá-
bær staðsetning. Stutt í skóla og
leikskóla. Verð 29,9 millj.
GRÆNAMÝRI - GLÆSILEG
Glæsilegt sérbýli/parhús sem er 2 hæðir og kjallari. Á 1. hæð er anddyri,
gestasnyrting, hol, eldhús, borðstofa, stofa m. kamínu, sólstofa. Á 2. hæð
eru 3 herbergi, stórt sjónvarpshol/vinnuherb., þvottaherbergi og bað-
herbergi. Í kjallara eru tvö stór herbergi, geymslur, hvíldarherbergi, vinnu-
herbergi en frá því útgengt í garð ófullgert gufubað og snyrting. Húsið er
allt hið vandaðasta. Á öllum gólfum 1. og 2. hæðar er gegnheilt parket
nema á forstofu, gestasn., baðh. og þvh. en þar eru flísar. Kjallari er allur
flísalagður. Lóðin er mjög falleg, með lokaðri timburverönd sem gengið er í
úr stofum, grasflöt með kryddgarði og fallegum trjám (gullregni o.fl.) 5558
SUÐURMÝRI - GLÆSILEG EIGN
Glæsilegt parhús á mjög vinsælum stað á Seltjarnarnesi. Húsið er
nýlegt, byggt árið 1999 og er á tveimur hæðum. Húsið skiptist í
eldhús, stofu, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr á neðri hæð. Á
efri hæðinni eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi og leikkrókur.
Húsinu fylgir fallegur garður þar sem er heitur pottur og falleg tré.
Hellulögð verönd auk timburverandar. V. 42,0 m. 5541
Gullfalleg 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í 4ra
hæða fjölbýlishúsi í þessu vinsæla hverfi. Tvö
góð svefnherbergi, baðherbergi, rúmgóð stofa,
glæsilegt eldhús með kirsuberjarinnréttingu,
þvottahús innan íbúðar. Mjög snyrtileg sameign,
gott ástand á húsinu að utan. Þetta er björt og
vel skipulögð eign á góðum stað, stutt í alla
þjónustu, þ.e.a.s. leikskóla, skóla og verslanir.
Verð 22,4 millj. kr.
Páll og Karítas taka vel á móti væntanlegum
kaupendum frá kl. 16-17 í dag, sunnudag.
GALTALIND 13 - KÓPAVOGI
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 16-17
Falleg og mjög vel skipulögð 3ja herbergja
83,2 fm íbúð á 1. hæð auk frístandandi bíl-
skúrs, 23,8 fm á sunnanverðu Seltjarnarnesi,
samtals 107 fm. Komið er inn í anddyri. Eldhús
með nýlegri, fallegri innréttingu. Innaf eldhúsi
er þvottahús og geymsla. Stofan er björt og
rúmgóð með útgengi á svalir þaðan sem geng-
ið er út á verönd og út í garð. Tvö herbergi
með skápum. Flísalagt baðherb. með sturtu og
snyrtilegri innréttingu. Bílskúr með rafmagni
og hita. Gólfefni: Ljóst parket, dúkur og flísar á
gólfum. UM ER AÐ RÆÐA ÍBÚÐ Á BESTA
STAÐ Á SELTJARNARNESI. Verð 25,9 millj.
Ólafur Finnbogason, sími 822 2307, sölumaður tekur vel á móti væntanlegum kaupendum
ásamt Grétari og Ingu frá kl. 14-16 í dag, sunnudag.
VALLARBRAUT 10 - SELTJARNARNESI
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 14-16
Dögg Pálsdóttir hrl. lögg. fast.sali ● Þýri Steingrímsdóttir lögg. fast.sali
Andri Sigurðsson sölustjói ● Ólafur Finnbogas sölumaður
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Dofraberg 21 - Hf. - Parhús
Opið hús í dag frá kl. 15:00-16:00
Sérlega fallegt parhús, 210 fm, og er
á tveimur hæðum. 4 svefnh., stofa,
sjónvarpshol, 2 baðherb., þvottahús,
eldhús með borðkrók, forstofa, svalir
og bílskúr. Þetta er gott hús sem vert
er að skoða, nánar á mbl. is. SÖLU-
MAÐUR FRÁ HRAUNHAMRI Á
STAÐNUM. Laust fljótlega.