Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UNDANFARNA daga hefur birst
inn á öll íslensk heimili fréttaflutn-
ingur af tónleikum fólks sem kallar sig
náttúruunnendur og hefur í skjóli þess
m.a. sett upp tónleika
þar sem þeir sem ekki
fylkja sér að baki þeim
eru taldir vera á leið til
náttúruleysis.
Ég verð að viður-
kenna að nú finnst mér
hafa verið gengið of
langt í þeirri umræðu
sem hófst með umræðu
um Eyjabakka og hefur
síðan verið um álvers-
framkvæmdir og virkj-
anagerð. Ég er mikill
náttúruunnandi, hef far-
ið víða um hálend-
issvæði Íslands og er sannfærður í
þeirri skoðun minni að hvergi í heim-
inum finnum við jafn fallega náttúru
og hér, víðáttur og fjölbreytileiki í lit-
um og landslagi er stórbrotið. Oft
finnst mér eins og landið okkar hafi
verið skapað fyrir göngufólk og há-
lendisgarpa. Að auki hef ég gengið til
veiða, en þó aðeins með það í huga sem
útiveru með því ívafi að færa lítils hátt-
ar björg í bú. Hef verið yfirlýstur and-
stæðingur þess að greiða stórar upp-
hæðir fyrir mínar veiðar, enda finnst
mér það kalla á ofveiði og skort á virð-
ingu fyrir náttúrunni.
Ég bjó austur á Héraði, fluttist það-
an fyrir 17 árum, árið 1989. Á þeim
tíma var enn útgerð á öllum fjörðum,
frá Bakkafirði í norðri til Hornafjarðar
í suðri. Félagar mínir sumir voru svo
heppnir að fá pláss á togurum sinna
sjávarplássa og ég gat meira að segja
farið í síld um helgar á haustin, til að
kaupa gel í hárið og gallabuxur á fæt-
urna.
Ég kom reglulega austur. Smám
saman fór ég að verða var við breyt-
ingar. Frystihúsum var lokað, togarar
fóru úr plássum og vinir mínir, unga
fólkið, fór suður. Eins og ég hafði gert.
Á löngu tímabili fannst mér sárt að
fara austur á land. Sveitarfélög sam-
einuðust, íþróttafélögin fylgdu í kjöl-
farið. Jafnvel var öllum verslunum
sveitarfélags lokað þannig að íbúar
þurftu að keyra langar leiðir eftir
mjólk og brauði. Allan þennan tíma
reyndu menn að finna nýja atvinnu-
vegi til að taka við af fiskinum, enda
var sá atvinnuvegur smám saman að
hverfa úr þorpunum. Þessi þrauta-
ganga var átakanleg, iðandi sjávar-
þorp urðu að svefnbæjum og sama
virtist hvað var reynt,
markaðir voru of litlir til
að koma af stað atvinnu
sem gæti komið í stað
þess sem var horfið.
Allt frá því ég man
eftir mér ræddu menn
um stóriðju. Hún gæti
leyst málin. Þegar svo
umræðan um það fór á
fullt, með umhverf-
isumræðunni sem að
sjálfsögðu fylgdi. Ég var
ekki viss um hvað var
rétt. Enda náttúruunn-
andi.
Svo ég fór austur. Flaug yfir Kára-
hnjúka. Keyrði firðina, frá Eskifirði í
norðri og suður úr. Talaði við fólk.
Lífið snýst alltaf um hagsmuni.
Meiri og minni. Ég tel að hagsmunir
fólksins á Austurlandi séu meiri en
þeir sem fórnað er í náttúrunni á
Kárahnjúkum. Uppbyggingin sem við
verðum vör við þegar komið er til Eg-
ilsstaða, í Reyðarfirði svo ekki sé talað
um göngin milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar. Uppbyggingin er með
ólíkindum. Loksins er uppbygging ut-
an höfuðborgarsvæðisins og Akureyr-
ar, eitthvað jákvætt heyrist. Fólks-
fjölgun á Héraði og byggingar
íþróttamannvirkja. Þekktar verslanir
uppgötva að markaður er til fyrir
vörur sínar.
Þarna tel ég kjarna málsins liggja.
Alveg er ég sammála þeim nátt-
úruverndarsinnum sem hafa fyllt alla
fréttaþætti og fréttadálka um það að
við verðum að fara gætilega í stóriðj-
umálum.
Ég tel að þeir eigi að gera slíkt hið
sama. Þeir eiga að fara gætilega í það
að dæma aðgerðir sem hafa gjörbylt
lífsháttum margra samlanda sinna til
hins betra sem algera vitleysu og land-
inu til skammar.
Sumir þessara einstaklinga eru með
ríkari einstaklingum landsins. Aðrir
eru vel stæðir. Þeir eiga ekki að þurfa
að finna „eitthvað annað“ fyrir fólk úti
á landi að gera en að búa til stóriðjur.
Hvernig væri að þessir einstaklingar
færu nú aftur austur, keyrðu ekki
bara veginn upp á Kárahnjúka (sem
reyndar var ekki til fyrir virkjun)
heldur færu líka út á meðal fólks og
aðstoðaði það við að koma á fót at-
vinnuvegum og tækifærum sem ekki
koma niður á náttúrunni? Leggja
raunverulegt lið!
Eða er það ekki einstaklinganna
sjálfra að koma til aðstoðar? Er það
þjóðin í heild, ríkið sem á að koma að
málum? Að sjálfsögðu! Við eigum að
sjá til þess að allir þegnar landsins fái
að njóta þess góðæris sem við hér fyrir
sunnan njótum, í þeirri ógnarþenslu
sem hér er. Út frá umræðum og frétt-
um undanfarinna daga held ég að
þetta fólk, sem til dæmis stóð fyrir
mögnuðum tónleikum í Laugardals-
höll, telji hagsmuni fólks út á lands-
byggðinni ekki mikilvæga.
Þess vegna legg ég til að þessi ágæti
hópur setjist nú niður og beri saman
bækur sínar. Bubbi, gamalt átrún-
aðargoð landsbyggðarinnar og einn úr
þeirra hópi, getur sungið „Aldrei fór
ég suður“, enda raunsönn lýsing þess
sem hefur gerst úti á landi undanfarna
áratugi. Verkefni hópsins finnst mér
eigi að vera eitt.
Breyta málflutningi sínum á þann
hátt að sýna landsbyggðinni og íbúum
hennar þá virðingu að skoða málið í
heild sinni og aðgæta hvaða hags-
munir eru meiri hagsmunir og hverjir
eru minni.
Fólkið úti á landi á þá virðingu skil-
ið. Frá þeim. Frá okkur öllum!
Nú er komið að
því að sýna virðingu
Magnús Þór Jónsson fjallar um
náttúruvernd og hagsmuni
landsbyggðarinnar ’Út frá umræðum ogfréttum undanfarinna
daga held ég að þetta
fólk, sem til dæmis stóð
fyrir mögnuðum tón-
leikum í Laugardalshöll,
telji hagsmuni fólks úti
á landsbyggðinni ekki
mikilvæga. ‘
Magnús Þór Jónsson
Höfundur er deildarstjóri
grunnskóla í Reykjavík.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Glæsilegt tvílyft 215 fm parhús í Hjalla-
hverfi í Kópavogi. Húsið skiptist í fimm
herbergi, stóra stofu/borðstofu, eldhús og
tvær snyrtingar. Gólfefni er parket og flís-
ar. Eigninni fylgir fullbúinn og flísalagður
bílskúr, hellulagt bílaplan með hitalögn,
miklar skjólgirðingar og sólpallar ásamt
hellulögn með hita. Heitur pottur er á bak-
lóðinni með skjólveggjum í kring. Að
framan er sólpallur og vandaður gosbrunnur. Mjög mikið hefur verið lagt í garðinn og
útfærslu á honum.
EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR. Verð 44,9 millj.
Húsið verður til sýnis sunnudaginn 15. janúar frá kl. 15-16
LÆKJARHJALLI 4 - PARHÚS
OPIN HÚS HJÁ GIMLI
Falleg 3ja-4ra herbergja íbúð á 2. hæð í
góðu sex íbúða fjölbýli. Tvö herbergi og
tvær samliggjandi stofur. Útgangur á suð-
ursvalir úr stofu. Góðar innréttingar. Bað-
herbergi nýlega endurnýjað. Parket og
flísar á gólfum. Fallegt útsýni. Húsið hefur
fengið gott viðhald, m.a. endurnýjað raf-
magn o.m.fl. Verð 17,6 millj.
Eignin verður til sýnis
sunnudaginn 15. janúar
frá kl. 14-16
NÓATÚN 26 - 3JA-4RA HERB. ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ
Góð 74 fm 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í
góðu fjölbýli. Tvö rúmgóð herbergi og
stór og björt stofa. Góðar innréttingar.
Stórar vestursvalir. Parket og flísar á gólf-
um. Sameign í góðu standi. Eignin er laus
fljótlega. Verð 16,8 millj.
Eignin verður til sýnis
sunnudaginn 15. janúar
frá kl. 14-16
FURUGRUND 24 - 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ.
Falleg, sjarmerandi og mikið endurnýjuð
2ja herbergja 51 fm íbúð á 1. hæð í fjölbýli
við Hringbrautina í Vesturbæ Reykjavíkur.
Fallegar og nýlegar innréttingar. Baðher-
bergi nýlega flísalagt. Björt stofa og rúm-
gott herbergi. Góð sameign. Eignin getur
losnað fljótlega. Verð 12,5 millj.
Eignin verður til sýnis
sunnudaginn 15. janúar
frá kl. 14-16
HRINGBRAUT 103 - 2JA HERB. ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ
Góð og mikið endurnýjuð efri hæð í fjór-
býli (tvö hús samtengd). Tvö rúmgóð her-
bergi og stór og björt stofa. Nýlegar inn-
réttingar. Parket og flísar á gólfum. Falleg
og stór lóð. Eign sem hefur mikla mögu-
leika. LAUS FLJÓTLEGA.
Verð 16,5 millj.
Eignin verður til sýnis
sunnudaginn 15. janúar
frá kl. 14-16
SAMTÚN - EFRI HÆÐ
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Bakkabraut 2 - Kópavogi
Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali
Til leigu mjög gott ca 1.900 fm iðnaðarhúsnæði við Bakkabraut í Kópavogi. Húsnæðið skiptist annars vegar í skrifstofu-
og starfsmannarými og hins vegar í þrjá stóra sali með mikilli lofthæð og innkeyrsludyrum. Gott malbikað plan er fyrir
framan. Hér er um að ræða mjög rúmgott húsnæði sem hentað getur margvíslegri starfsemi. Hagstæð leigukjör.
Upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson sölumaður í síma 840 4049
Viðarhöfði - Nýtt á skrá
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Til sölu/leigu ca 529 fm á annari hæð við Viðarhöfða Reykjavík.
Um er að ræða einn stóran sal, tilb. til innréttinga. Núverandi eigandi er
tilbúin til þess að innrétta hæðina eftir þörfum kaupanda og/eða leigjanda.
Góð staðsetning. Verð tilboð.
Uppl. veitir Magnús Gunnarsson í s. 822 8242 og 557 5030.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111