Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 49

Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 49 UMRÆÐAN Hvort sem þú þarft að selja eða leigja atvinnuhúsnæði, þá ertu í góðum höndum hjá Inga B. Albertssyni. Nú er góður sölutími framundan, ekki missa af honum. Vandaðu valið og veldu fasteignasölu sem er landsþekkt fyrir traust og ábyrg vinnubrögð. Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali ATVINNUHÚSNÆÐI HAFÐU SAMBAND SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-16 LAUGARÁSVEGUR 53 - Efri hæð og ris m/bílskúr Vorum að fá í sölu glæsilega 6 her- bergja efri hæð og ris, vel ríflega 120 fm í þessu glæsilega húsi á besta stað í Laugarásnum. Íbúð- inni fylgir 26 fm bíl- skúr eða samtals 146 fm. Eignin skipt- ist í: Forstofu með yfirbyggðum svölum til norðurs, hol, bað- herbergi með horn- baðkari, eldhús með nýrri innréttingu. 2 svefnherbergi með skápum. 2 samliggj- andi stofur, svalir til suðurs. Efri hæð: 2 rúmgóð svefnherbergi og góð geymsla. Mikið endurnýjuð eign með frábæru útsýni yfir Laugardalinn. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Verð 34,5 millj. Einar og Margrét taka á móti þér og þínum í dag á milli kl. 14 og 16. MIKIL umræða hefur verið um málefni geðfatlaðra undanfarið og því ber að fagna. Mál þeirra hafa farið leynt og barátta fyrir bætt- um kjörum þessa hóps er kannski sú sem síst hefur verið háð þegar kemur að málefnum minnihlutahópa. Allir sem vinna að málefnum geðfatlaðra eru sam- mála um að átaks sé þörf í búsetumálum þeirra og fjármagn af söluandvirði Símans hefur verið eyrna- merkt til þess að bæta úr því ófremdarástandi sem ríkt hefur í áratugi. Við erum langt á eftir Bandaríkjunum í þessari þróun þar sem flutningur fólks af stofnunum út í samfélagið hófst strax á fimmta áratug síðustu aldar. Þetta hafði í för með sér lokun á stórum stofnununum sem hýst höfðu fatlaða stærstan hluta ævi þeirra og bygg- ingarnar fengu annað hlutverk. Ein- hverjum þeirra var til dæmis síðar breytt í fangelsi. Samfélagið var hins- vegar illa undir það búið að taka við þessu fólki og margir lentu á göt- unum eða á stöðugu flakki inn og út af sjúkrahúsi. Baráttuhreyfingar fatl- aðra, þar sem fatlaðir sjálfir eru í far- arbroddi, hafa síðan barist fyrir rétt- indum og tækifærum fatlaðra í samfélaginu til jafns við hina ófötluðu og fjölmörg stuðningsúrræði urðu til líkt og gerst hefur hér á landi á stutt- um tíma. En betur má ef duga skal og nú skal stilla strengi í sameiginlegu átaki í búsetumálum geðfatlaðra. Markmiðið er að veita geðfötluðum stuðning til langs tíma á venjulegu heimili til að ná stjórn á eigin lífi og njóta sín með lágmarks inngripi geðheilbrigð- iskerfisins. Aðstand- endur geðfatlaðra og geðfatlaðir sjálfir hafa kvatt sér hljóðs og vinna ötulir að úrbótum. Öll- um þeim sem starfa við þjónustu geðfatlaðra er það hinsvegar ljóst að fleiri en eitt kerfi þarf að standa að þjónustu við þennan hóp og það reynir verulega á góða samvinnu og skýra stefnumótun. Því miður er það þannig að á með- an heilbrigðisstarfsfólk bíður eftir að félagslega kerfið geri átak í búsetu- málum geðfatlaðra mun ekkert ger- ast. Og á meðan starfsfólk í fé- lagslega kerfinu bíður eftir að heilbrigðisstarfsfólkið, sem hefur menntun og þjálfun til að sinna þessu verkefni, gangi út af Kleppsspítala með skjólstæðingum sínum þá gerist heldur ekkert. Það er hinsvegar nauðsynlegt að gera þjónustukerf- unum kleift að vinna samhliða að þessum málum til frambúðar og af sameiginlegri ábyrgð, með hagsmuni geðfatlaðra í huga fremur en þjón- ustukerfanna sjálfra. Nú er bara að vona að ráðamenn láti enn og aftur til sín taka og aðstoði við að rjúfa ósýni- lega múra sem reistir hafa verið með lögum og reglugerðum utan veggja Kleppsspítala. Slíkir múrar valda stundum meiri fötlun en sjúkdóm- urinn sjálfur. Ingibjörg Hrönn Ingimars- dóttir fjallar um aðstæður geðfatlaðra ’Nú er bara að vona aðráðamenn láti enn og aftur til sín taka og að- stoði við að rjúfa ósýni- lega múra sem reistir hafa verið með lögum og reglugerðum utan veggja Kleppsspítala.‘ Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir Höfundur er geðhjúkrunarfræðingur og MA-nemi í fötlunarfræði við HÍ. Brjótum múrinn: Kastljósum- ræða um búsetumál geðfatlaðra Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.