Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ HUGVEKJA Mannkynið hefur lík-ast til ekki upp-lifað hraðaribreytingar ánokkru tímaskeiði sögunnar en þær, sem hófust með Iðnbyltingunni fyrri í Evrópu upp úr miðri 18. öld og hafa staðið allt til þessa dags. Þá kom m.a. vefstóllinn fram á sjónarsviðið (1764) og gufu- vélin (1769), auk þess sem einokun hverskonar var afnumin og frelsið var haft að leiðarljósi í athöfnum. Iðnbyltingin síðari (um 1860–1900) markaði enn frekari skil. Þá komu fimm nýjungar til sögunnar, hver annarri afdrifaríkari. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor útlist- aði þær í tímaritinu Vísbendingu 16. febrúar 2001, en þetta voru nán- ar tiltekið:  rafmagn (Thomas A. Edison fann upp ljósa- peruna 1875, dagarnir lengdust, og orkuverð lækkaði um meira en 90% á nokkrum áratug- um),  sprengivélarafl (sprengihreyfillinn kom til sögunnar í Þýzkalandi 1870–1885, samgöngur bötnuðu, staðbundnir vinnumarkaðir stækk- uðu, og verzlun stórefldist),  efnagerð (plast) og læknislyf (meðalævin tók að lengjast, hafði verið örstutt, aðeins um 30 ár, í Evrópu allar götur fram að því),  loftskeyti (1844) – og síðan síminn (1876), grammófónninn (1877), kyrrmyndavélin (1880 og árin þar á eftir), kvikmyndavélin (1881– 1888) og útvarpið (1899), og allt þetta gerbylti upplýsingamiðlun, samskiptum og skemmt- un, og síðast en ekki sízt  vatnslagnir og holræsagerð (aðgangur að hreinu vatni jók þrifnað, dró úr sjúkdómum og lengdi meðalævina enn til muna). Og svo er það tæknibyltingin nýja, sem hefur fleytt okkur inn á ótrúlegustu brautir. Þetta eru góðu fréttirnar. Hitt gerðist nefnilega líka, eink- um á seinni hluta 20. aldar, að sam- skiptamynstur fólks tók að breyt- ast. Í þeim átökum beið kurteisin mikið afhroð, og hefur eiginlega ekki rétt úr kútnum síðan. Upp úr 1970 er þérun t.d. að mestu horfin úr íslenskum veruleika. Og staðan núna er þannig, að aga- og virðing- arleysi er regla fremur en und- antekning með lýðum. Bæði hér, sem og víðast hvar erlendis. Þetta byrjar inni á heimilunum, fer þaðan með börnunum í skólann, og heldur áfram með þeim út í lífið eftir að námi er lokið. Og þá er mál- ið orðið dálítið snúið, því „erfitt er að kenna gömlum hundi að sitja“. Hnefarétturinn fær þar af leiðandi að ríkja, eins og hægt er að komast, olnbogaskot og meiðingar og annar dólgsháttur. Fjölmiðlar eru engin undantekn- ing í þessu sambandi, heldur ágætt dæmi um það sem ég hef verið að nefna. Þar eru leikreglur beygðar og sveigðar eftir þörfum, jafnvel mölvaðar. Sumir halda þó enn í forn gildi, byggð á orðum og gjörð- um Jesú Krists, en aðrir hunsa slík- an „pempíuhátt“ og eru fyrir löngu komnir út fyrir það sem leyfilegt ætti að vera og boðlegt. Ein for- síðufrétta DV úr liðinni viku er bara kornið sem fyllti mælinn. Þar á undan voru óteljandi svipuð tilvik, ýmist úr umræddu dagblaði eða öðrum vafasömum pésum, sem ættu ekki að eiga sér tilverurétt, ef allt væri með felldu. Og eins er með suma ljósvakamiðlana. Á öllum þessum stöðum er tilgangurinn einn látinn helga meðulin; það á að selja ósómann, og beita til þess öll- um ráðum. Erfiðlega hefur gengið að draga ritstjóra og aðra slíka til ábyrgðar, því iðulega hafa þeir sloppið alveg eða með hlálega bótagreiðslu, í stað fangelsisvistar eða opinberrar hýð- ingar, sem – ef ekki verður breyt- ing á starfsháttum í náinni framtíð – þyrfti að koma á laggirnar á Ís- landi, að margra áliti. Lagabókstaf- urinn er of veikur. Frumvarpi, sem væntanlegt er á Alþingi innan tíðar, er reyndar ætlað að koma siðferð- inu til bjargar, gera það áhættu- samara og dýrara fyrir aðstand- endur og starfsmenn fjölmiðla að ganga nærri persónu einstaklinga með umfjöllun sem meiðandi getur talist. Og vonandi að það takist. Í framtíðinni skyldum við öll muna rússneska spakmælið: „Orð er eins og fugl. Fljúgi það af vörum manns er ekki auðvelt að ná því aft- ur.“ Að ég tali nú ekki um það, sem Einar Benediktsson orti fyrir margt löngu: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Að endingu langar mig svo að birta eftirfarandi texta, sem ég rakst á við handahófskennda leit á netinu, á heimasíðu þá 15 ára Reykjavíkurdömu, Hrundar Er- lingsdóttur, sem núna er víst ný- orðin 17 ára (www.folk.is/hrunsla). Þar fer greinilega heilbrigð sál og jákvæð og góður fulltrúi kynslóðar sinnar. Hún ritar m.a. þetta: Kurteisi er dyggð. Hún er nauðsynlegur hluti af mannlegum samskiptum. Ef það væri ekki til kurteisi væri heimurinn ja allavega í svolít- ið verra ástandi en nú. Kurteisi – mannleg samskipti. Ef ég er kurteis þá verður fólkið í kringum mig (sem ég á samskipti við) sjálfkrafa kurt- eist á móti, því svo virðist sem maður upp- skeri nákvæmlega eins og maður sáir. Alla- vega fyndist mér frekar skrýtið ef einhver setti niður kartöflur og yrði svo rosa hissa að það komi ekki upp rófur eða gulrætur. Það virkar bara ekki þannig. Betur verður þetta ekki sagt. Kurteisi „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skul- uð þér og þeim gjöra“, sagði meistarinn forðum. Sigurður Ægisson hefur í dag til umfjöllunar þau orð hans, sem því miður virðast ekki ná að snerta öll hjörtu sem í landinu okkar slá. sigurdur.aegisson@kirkjan.is FRÉTTIR LANDSBÓKASAFNI var nýlega afhent til eignar og varðveislu skák- bókasafn Guðmundar Arnlaugs- sonar menntaskólakennara og fyrsta rektors við MH. Guðmundur, sem lést fyrir 9 árum, hafði óskað eftir því að skákbækur hans, svo og blöð og -tímarit, yrðu viðbót við Fiske-safnið svonefnda. Við þeirri ósk er nú orðið. Í safninu eru tæplega 400 bækur og margir árgangar skákblaða, mótsskráa o.þ.h., rituð á 12 mismun- andi tungumálum og nokkur á fleiri en einu. Rit á ensku, þýsku og ís- lensku eru mest áberandi en þar er einnig að finna bækur og blöð á dönsku, sænsku, hollensku, rúss- nesku og spænsku auk annarra. Elsta bókin, The Adventure of Chess, kom út í New York árið 1859. Annars eru ritin aðallega frá því eft- ir fyrra stríð og fram undir síðustu aldamót. Það eru því litlar líkur á að um mikla skörun við gjöf Fiskes sé að ræða þótt það hafi ekki verið at- hugað sérstaklega. Guðmundur Arnlaugsson var þjóðþekktur fyrir störf sín fyrir skákgyðjuna. Á yngri árum tefldi hann talsvert, einkum í skákfélagi stúdenta hér og einnig í Kaup- mannahöfn. Hann var í landsliðs- flokki í Danmörku og varð að velja á milli þess að tefla fyrir Íslands hönd, sem hann gerði, eða Danmerkur á Ólympíuskákmótinu í Buenos Aires 1939. Guðmundur tefldi á 5 ólympíu- mótum og var fararstjóri íslenskra skákmanna á slík mót, m.a. til Moskvu 1956. Hann varð fyrstur Íslendinga til að skrifa um skák í dagblöð og gerði slíkt í áratugi. Reglulegir útvarps- þættir hans um skák nutu vinsælda hlustenda um allt land. Í þessum þáttum nýtti hann sér bæði ferskar skákfregnir utan úr heimi, sem hann fékk úr tímaritunum, og einnig sögulegar skákir úr bókunum. Guðmundur varð, fyrstur Íslend- inga, viðurkenndur alþjóðlegur skákdómari árið 1972. Hann var að- stoðardómari í heimsmeistara- keppni aldarinnar það ár, þegar Fischer vann titilinn af Spassky í Reykjavík. Ferðaðist hann síðar víða um lönd sem skákdómari og er nokkur hluti safnsins mótsblöð frá þessum atburðum. Skákbókasafn Guðmundar Arnlaugssonar til Landsbókasafns Elsta ritið frá árinu 1859 Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Guðmundur Arnlaugsson fylgist hér með Guðlaugu Þorsteinsdóttur (11 ára) tefla árið 1972. Guðlaug varð síðar Íslandsmeistari í skák.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.