Morgunblaðið - 15.01.2006, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 59
FRÉTTIR
Lexus IS 200 sport GULLMOLI
- Einn með öllu. Árg. 2001, ek. 75,
silfurgrár, topplúga, þjófavörn,
leður, dökkar rúður, 17" sumar/
vetrardekk. Sjálfskiptur. Sími 899
8960 - Gunnar.
Nánar: sgvelar.com/lexus
Jeep Liberty til sölu. Árg. 2004,
ek. 23 þ. Vél 3.7, ssk., útb. kr. 350
þ. Sími 694 3636.
Subaru Legacy 2,0 GL árg. '99,
ek. 132 þús. km. 4wd, skr. '06
1999. Rauður. 5 d. Sjálfsk. 2000cc.
Ný nagladekk, lítið notuð sumar-
dekk. Ný tímareim og bremsukl.
framan. Smurbók. Uppl. 695 5115.
Nissan Almera 4 SLX.1600
Bíllinn minn er til sölu árg. 1996,
lítið keyrður aðeins 130.000 km.
Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum,
sumar- og vetrardekk. Skoðaður
án athugasemda, mjög vel
hugsað um hann að öllu leyti.
Upplýsingar í síma 694 2326.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 5691100
FYRIRMYNDARVIÐURKENNING CP
félagsins (Félag spastískra) var veitt í
annað sinn í vikunni. Hún er veitt
einstaklingum sem eru fötluðum fyr-
irmynd og sýna að fötlun þarf ekki að
vera fyrirstaða.
Í ár eru það þeir Bjarki Birgisson
og Guðbrandur Einarsson sem eru
fyrirmyndamenn félagsins. Í fyrra-
sumar unnu þeir það afrek að ganga
hringinn um landið undir slagorðinu
haltur leiðir blindan, en Bjarki er
haldinn tvenndarlömun og Guð-
brandur er sjónskertur. Gönguna
skipulögðu þeir í samstarfi við Sjón-
arhól, Íþróttasamband fatlaðra og
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands.
Á tæplega sjö vikum gengu þeir um
1200 kílómetra, eða um 24 kílómetra
á dag og kynntu með því Sjónarhól
rækilega. Morgunblaðið fyldist vel
með þeim félögum.
Í tilkynningu frá CP félaginu segir:
„Þeir sýndu með þessu afreki sínu að
fötluðum er nánast ekkert ómögulegt
ef þeir ætla sér eitthvað og eru þar
með sannar fyrirmyndir.“ Að auki er
Bjarki gamall keppnismaður í sundi
og keppti meðal annars á Ólympíu-
móti fatlaðra í Sydney árið 2000 og
hefur sett 7 heimsmet.
Fyrstu einstaklingarnir sem fengu
þessa viðurkenningu voru Kristín Rós
Hákonardóttir og Jón Oddur Hall-
dórsson fyrir árangur sinn á Ólymp-
íumóti fatlaðra í Aþenu.
Haltur og blindur til fyrirmyndar
Þeir Guðbrandur og Bjarki þóttu sýna mikinn styrk í hringferðinni í sumar.
ÓLAFUR F. Magnússon, borgarfulltrúi
F-lista, hyggst leggja fram eftirfarandi
tillögu í borgarstjórn þann 17. janúar nk.
Tillagan lýtur að niðurfellingu strætóf-
argjalda barna, unglinga, aldraðra og ör-
yrkja.
„Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkir
að fela Reykjavíkurborg að beita sér fyr-
ir því innan stjórnar Strætó bs. að far-
gjöld barna og unglinga að 18 ára aldri
ásamt fargjöldum aldraðra og öryrkja
verði felld niður.
Kostnaði vegna niðurfellingar far-
gjalda hjá þessum hópum verði mætt
með auknu framlagi sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu til fyrirtækisins.
Samhliða niðurfellingu fargjaldanna
verði lögð mikil áhersla á að sem flestir
íbúar höfuðborgarsvæðisins nýti almenn-
ingssamgöngur með því að gera sérstakt
átak í þeim efnum.“
Samkvæmt upplýsingum í greinargerð
með tillögunni lagði Ólafur, í samræmi
við stefnuskrá F-listans, fram tillögu í
borgarstjórn Reykjavíkur 2. október
2003 um að fargjöld barna og öryrkja
yrðu felld niður, en að fargjöld unglinga
yrðu lækkuð til samræmis við fargjöld
aldraðra. Tillögunni hafi ekki verið illa
tekið af meirihluta R-listans í borgar-
stjórn, en hún síðan verið svæfð í þáver-
andi samgöngunefnd borgarinnar og
ekkert gert með hana.
Margrét Sverrisdóttir varaborgar-
fulltrúi flutti sambærilega tillögu haustið
2004.
Vill fella niður strætófargjöld barna,
unglinga, aldraðra og öryrkja