Morgunblaðið - 15.01.2006, Qupperneq 60
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
Svínið mitt
© DARGAUD
OG Í FRÉTTUM ER
ÞETTA HELST...
KLIKK
KLIKK
ANSANS!
ÞETTA ER
ÓÞÆGILEGUR
STÓLL
ÞESSI ER Í MJÖG
GÓÐU FORMI
ÞRÁTT FYRIR ÞAÐ
AÐ VERA
FÁRVEIKUR
HA...
HANN?
HANN BLÓTAR
EINS OG
FIMMTUGUR
SJÓARI
HANN ER
VEIKUR!
HANN ER
VEIKUR! ?!?
RÓLEGUR VÆNI! ÉG VERÐ AÐ RÆÐA
ÞETTA VIÐ FORELDRA ÞÍNA
GRRRR!!
ÞETTA ER
SMITANDI!!
EKKI KOMA NÁLÆGT
HONUM. HANN ER
VEIKUR
ÞETTA ER
SMITANDI
HANN SMITAÐI
LÆKNINN
Dagbók
Í dag er sunnudagur 15. janúar, 15. dagur ársins 2006
Húsgögn eru efst íhuga Víkverja
enda hefur mikið ver-
ið rætt um húsgögn
og húsgagnaverslanir
í fjölskyldu hans að
undanförnu. Vinir
Víkverja, sem nýverið
fluttu í nýtt húsnæði,
voru búnir að finna
réttu húsgögnin í
íbúðina löngu fyrir
jólahátíðina í virtum
og þekktum hús-
gagnaverslunum í
Reykjavík.
x x x
Þar sannaðist að menn geta lofaðupp í ermina – þrátt fyrir harða
samkeppni. Vinir Víkverja höfðu í
mörgum tilvikum greitt fyrir vöruna
löngu fyrir jól og var tjáð af sölu-
mönnum að varan yrði komin í
þeirra húsakynni fyrir hátíð ljóss og
friðar. En það kom á daginn að að-
eins hluti þeirra skilaði sér til lands-
ins í tæka tíð. Og í einu tilviki var
búið að selja öðrum aðila vöruna
sem vinir Víkverja höfðu greitt fyrir
– áður en þeir gátu sótt hana.
x x x
Það sem fór fyrir brjóstið á vinumVíkverja var hve slök þjónustan
var þegar mest á
reyndi. Svör starfs-
manna voru með þeim
hætti að þeim virtist í
raun vera alveg sama
hvort viðskiptavin-
urinn væri að fá vör-
una sem búið var að
greiða fyrir. Þeir voru
sannfærðir um að geta
selt einhverjum öðrum
þá vöru síðar. Sölu-
mennirnir höfðu held-
ur ekki frumkvæði að
því að „lána“ önnur
húsgögn á meðan beð-
ið var eftir þeim réttu
– vinir Víkverja þurftu að beita öll-
um brögðum til þess að fá eitthvað
til þess að sitja í yfir hátíðirnar.
Viðskiptahalli við útlönd er í
sögulegu hámarki og líklega er mik-
ill handagangur í öskjunni í versl-
unarrekstri – í góðærinu. En það
má ekki gleyma því að við-
skiptavinir eru flestir með minni á
við fíl þegar kemur að slakri þjón-
ustu í verslun og viðskiptum – eða
hvað?
Vonbrigði og reiði einkenndu
samskipti þeirra sem um er rætt í
þessu tilviki og líklega liggur leið
þeirra á önnur mið þegar kemur að
því að versla húsgögn í nánustu
framtíð.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Kína | Lítill drengur gengur hér við risastóran ísskúlptúr í borginni Harbin í
Kína. Þar hafa ekki bara börnin verið að leik í snjónum eins og á höfuðborg-
arsvæðinu að undanförnu, listamenn hafa líka látið til sín taka í tilefni af vetr-
arhátíð sem hófst í borginni síðastliðinn fimmtudag.
Reuters
Vetrarhátíð í Kína
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100.
Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Trúin er fullvissa um það, sem menn vona, sannfæring
um þá hluti, sem eigi er auðið að sjá. (Hebr. 11, 1.)