Morgunblaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 61
DAGBÓK
Dummy texti,Dummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy textiDummy
• Matvælavinnsla með góða markaðsstöðu.
• Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 400 mkr.
• Þekkt húsgagnaverslun.
• Gott bakarí í heildsölu og smásölu.
• Heildverslun með fæðubótar- og heilsuvörur.
• Meðalstór trésmiðja. Leiðandi fyrirtæki á sínu sérsviði.
• Stór heildverslun með þekktar vörur, m.a. fyrir byggingariðnaðinn.
• Glæsileg lítil gjafavöruverslun í Kringlunni.
• Traust tryggingamiðlunarfyrirtæki í Danmörku. Góður rekstur.
• Þekkt undirfataverslun með langa og góða rekstrarsögu. Hentugt fyrir duglega konu sem
vill eignast eigin rekstur. Auðveld kaup.
• Traust fasteignasala óskar eftir framsæknum fasteignasala sem meðeiganda. 5 starfsmenn
í dag en þörf á fleirum.
• Fjárfestir óskast til að taka stöðu í MBO (Management Buy-Out) í góðu fyrirtæki. 70 mkr. í
4-5 ár.
• Stórt tæknifyrirtæki. Heppilegt fyrir mikinn markaðsmann.
• Meðeigandi óskast að lítilli auglýsingastofu í miklum vexti.
• Lítið málmiðnaðarfyrirtæki með mikla sérstöðu.
• Umboðs- og heildverslun á Vesturlandi. Ársvelta 150 mkr.
• Mjög arðbært sandblástursfyrirtæki sem hægt er að flytja hvert á land sem er.
• Stórt bílaþjónustufyrirtæki.
• Meðalstór heildverslun-sérverslun með heimilisvörur. Mjög góð framlegð.
• Þekkt heildsala með byggingavörur.
• Fjárfestir óskast að þekktu fyrirtæki sem ætlar í útrás.
• Lítið framleiðslufyrirtæki með langa og góða rekstrarsögu.
• Lítil heildverslun með fjölbreyttar vörur og góðan sölumann óskar eftir sameiningu við
stærra fyrirtæki. Góð framlegð.
• Mjög arðbær verslun og veitingarekstur úti á landi. Hagstætt verð.
• Sérverslun með íþróttavörur.
• Arðbært vinnuvélaverkstæði með föst verkefni.
• Stórt þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði.
• Þekkt heildverslun með gólfefni.
• Meðalstórt framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 150 mkr.
• Rótgróið fyrirtæki í hreinsun og útflutningi æðardúns. Góð afkoma. Hentar til flutnings út
á land.
Lilja Margrét Hreiðarsdóttir framkvæmdastjóri, lilja@kontakt.is, gsm 698 0989
Bútasaumur
Til 15. febrúar eru öll efnin hjá okkur,
á 750-900 kr. pr/m. líka flúnnel. Full
búð af nýjum efnum frá Benartex o.fl.
Það er þess virði að koma á Selfoss.
butabaer@simnet.is, Eyravegi 15, Selfossi, s:482 2930
Opið alla virka daga 11-18 og laugardaga 11-14
Ath. hópar geta hringt og pantað annan tíma.
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
600-700 fm skrifstofuhúsnæði á
höfuðborgasvæði oskast. Húsnæðið þarf helst
að vera á enni hæð. Staðgreiðsla í boði
Allar nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson.
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Þorrablótið verð-
ur föstudaginn 27. jan. kl. 17. Sal-
urinn opnaður kl. 16.30. Kvennakór-
inn Heklurnar syngja undir stjórn
Bjarkar Jónsd. Óskar Pétursson
syngur við undirleik Jónasar Þóris.
Þorvaldur Halldórs sér um stuðið á
ballinu. Happdrætti og fjöldasöngur.
Skráning í síma 535-2760 fyrir
miðvikud. 25. jan.
Dalbraut 18 - 20 | Félagsstarfið er
öllum opið. Fastir liðir eins og venju-
lega. Skráning á postulínsnámskeið
stendur yfir. Þorrablótið verður 3.
febrúar. Notendaráðsfundur kl. 10 17.
jan. Síminn hjá okkur er 588-9533
Handavinnustofa Dalbrautar 21-27
er opin alla virka daga milli kl. 8 og
16.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Hljómsveitin Klassík leikur fyrir
dansi. Þorrablót verður haldið á Hót-
el Örk fimmtudaginn 26. janúar kl.
19. Skráning á skrifstofu FEB og í
síma 588-2111.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13-16
opin myndlistarsýning Sólveigar Eg-
gerz. Á þriðjud. og föstud. kl. 10.30
létt ganga um nágrennið. Á fimmtud.
kl. 12.30 myndlist, umsj. Nanna S.
Baldursd. Á föstud. kl. 9-16 fjölbreytt
föndurgerð, m.a. rósamálun, umsj.
Helga Vilmundard. Veitingar í hádegi
og kaffitíma í Kaffi Berg.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Skráning í framsagn-
arhóp, ljóða- og hagyrðingahóp
stendur yfir. Þorrablótið er 27. jan-
úar kl. 17. Kíktu við í kaffi og kynntu
þér dagskrána. Dagblöðin liggja
frammi og sjónvarpið er í Betri stof-
unni. Allir velkomnir. Bókmennta-
klúbbur kl. 20 18. jan.
Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá
Egilshöll klukkan 10 á morgun, mánu-
dag.
Vesturgata 7 | Þorrablót verður
haldið föstudaginn 10. febrúar, nánar
auglýst síðar. Upplýsingar og skrán-
ing í síma 535 2740.
Kirkjustarf
Háteigskirkja | Alla mánudaga kl. 13
er spiluð félagsvist í Setrinu í Há-
teigskirkju. Kaffi kl. 15.
Hjallakirkja | Eldra æskulýðsfélag
Hjallakirkju, Dittó, heldur fundi kl.
20-22.
Hveragerðiskirkja | Kynning-
arfundur um alfa-námskeið mánu-
daginn 16. janúar kl. 20 í Hveragerð-
iskirkju. Upplýsingar og innritun í
síma 483 4255 eða 862 4253 eða
á: jon.ragnarsson@kirkjan.is
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK,
Holtavegi 28, þriðjudaginn 17. jan. kl.
20. Lofgjörðar og bænasamvera.
Umsjón Þórdís Ágústsdóttir, Rúna
Þráinsdóttir og fleiri konur. Kaffi. All-
ar konur eru velkomnar.
50 ÁRA afmæli. Í dag, 15. janúar,er fimmtugur Jóel Krist-
jánsson, útibússtjóri KB banka á
Sauðárkróki. Hann verður að heiman
en stefnir á að bjóða til veislu á Dun-
hóli aðra helgi í júlí.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Enginn mokstur á
gangstéttum
ÉG bý í Hamrahlíð 17 og gekk út í
Kringluna sl. föstudagsmorgunn.
Það var 20 cm nýfallinn snjór á öll-
um gangstéttum og varla hægt að
komast um. Ég er sjónskertur og
átti mjög erfitt með það. Vil ég
benda á að það þarf að ryðja líka fyr-
ir gangandi vegfarendur. Snjóruðn-
ingstæki fara og ryðja göturnar en
Hamrahlíðin er einn svellbunki og
ég þori ekki út á götuna því umferð-
in er það mikil. Svo finnst snjó-
moksturmennirnir ekki kunna að
moka gangstéttar því þeir skilja eft-
ir snjóhrygg við gatnamót og gang-
brautir þar sem fólk þarf að komast
yfir. Svo er verið að tala um öryggi
borgaranna, hvar er það?
Finnst lágmark að hægt sé að
halda gangstéttum hreinum fyrir
kosningar.
Einn í vandræðum.
Þvoið ykkur að neðan!
UNDANFARNA mánuði hef ég far-
ið reglulega í sund. Við erum heppin
hér á Íslandi að hafa þessar heilsu-
lindir og ættum að vera sem allra
duglegust að nýta okkur þær.
Eitt er það þó sem angrar mig í
sturtunum, mér finnst margar kon-
ur ekki þvo sér nægilega vel áður en
þær fara ofan í sundlaugina. Sýnist
mér sem um einhvers konar blygð-
unarsemi sé að ræða því að ég er
einkum að tala um að þær þvo sér
ekki nógu vel að neðan. Kannski
finnst þeim óbærilegt að láta kyn-
systur sínar sjá að þær þvoi sér á
þessum viðkvæma stað, allavega
sleppa þær því margar. Ég kalla það
ekki þvott að sápa á sér skapahárin
og strjúka svo sem tvo hringi fram-
an á með fætur vandlega saman.
Mér virðist yngri konur og ungar
stúlkur mun feimnari en þær eldri.
Þessi háttsemi þykir mér und-
arleg á okkar tímum þar sem ekki er
hægt að fara í leikhús, opna sjón-
varp, hlusta á útvarp eða lesa blöð
án þess að verða var við að burtu
virðist feimnin við að nefna alla lík-
amshluta og stundum beinlínis gert
út á það.
Hættum nú þessum tepruskap og
þvoum okkur óhikað alls staðar.
Þuríður.
Lausnin er einföld
ÞAÐ er lítið að marka tuð og
hneykslan yfir ákveðinni tegund
blaðamennsku ef verkin tala ekki.
Lausnin er sáraeinföld: Hætta að
kaupa þessi blöð!
Borgari.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU í blárri umgjörð fund-
ust við Rauðavatn sl. sunnudag.
Upplýsingar í síma 868 1617.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
BÓKAÚTGÁFAN Salka byrjar nýtt ár
með útgáfu bókarinnar Endalaus orka.
Höfundur er Judith
Millidge en Nanna
Rögnvaldardóttir
þýddi.
Hér má sjá yfir
200 uppskriftir að
ljúffengum og holl-
um ávaxta- og
grænmet-
isdrykkjum. Sumir eru hressandi, aðrir
fyrirbyggjandi, enn aðrir eru eiturefna-
og vatnslosandi og hentugir fyrir föst-
ur, sumir eru kjörnir fyrir smáfólkið og
svo má ekki gleyma framandi veislu-
drykkjum sem krydda stemninguna.
Endalaus orka er bók um holla lifn-
aðarhætti, fagurfræði og lífsgleði.
Bókin er í kiljubroti, 256 blaðsíður
og prýdd fjölda ljósmynda. Hún er
prentuð í Kína og leiðbeinandi verð er
3.290 krónur.
Salka hefur einnig gefið út bókina Ef
ég get hætt getur
þú það líka.
Valgeir Skag-
fjörð leikari og fyrr-
um stórreyk-
ingamaður deilir
hér með les-
endum reynslu
sinni af því að
hætta reykingum
fyrir fullt og allt. Þetta er persónuleg og
áhrifarík bók fyrir alla þá sem vilja
hætta að reykja og eru orðnir lang-
þreyttir á skyndilausnum. Þjóðþekktir
einstaklingar hafa reynt aðferðir Val-
geirs með góðum árangri og þar má
meðal annarra nefna Einar Má Guð-
mundsson rithöfund, Eyþór Gunn-
arsson tónlistarmann og Súsönnu
Svavarsdóttur rithöfund.
Bókin er í kiljubroti, hún er prentuð í
Litrófi og er 137 blaðsíður. Jóhann Jó-
hannsson hannaði kápu og leiðbein-
andi verð er 2.990 krónur – sem er
andvirði um það bil 5 sígarettupakka.
Tvær nýjar bækur
frá Sölku
SÝNINGIN Huldukonur í íslenskri
myndlist og samnefnd bók eru af-
rakstur 25 ára rannsóknarvinnu
Hrafnhildar Schram listfræðings.
Sýningin fjallar um ævi og verk tíu
kvenna sem voru nær allar fæddar
á síðari hluta 19. aldar. Sýningin
var opnuð sunnudaginn 4. desem-
ber og er í Bogasal Þjóðminjasafns
Íslands. Sýningarhönnuður er Elín
Edda Árnadóttir.
Vegna þess hversu ósýnilegar
þessar konur hafa verið löndum
sínum, en aðeins tvær þeirra sýndu
myndverk sín opinberlega í lifanda
lífi, hefur höfundur kosið að kalla
þær huldukonur. Þær konur sem
hér er fjallað um nutu þeirra for-
réttinda að nema myndlist erlendis
á síðustu áratugum 19. aldar og
upp úr aldamótum. En engin þeirra
gerði myndlist að ævistarfi eða átti
sér sjálfstæðan og óslitinn listferil
eftir að hún sneri heim.
Framlag þeirra er engu að síður
hluti íslenskrar menningar- og
kvennasögu ekki síður en listasögu.
Allar tilheyrðu þær efri stétt
þjóðfélagsins, voru dætur embætt-
ismanna, kaupmanna og efnaðri
bænda og nutu í námi stuðnings
fjölskyldna sinna.
Hrafnhildur Schram listfræð-
ingur verður með leiðsögn um sýn-
inguna í dag, sunnudaginn 15. jan-
úar, kl. 15.00.
Leiðsögn um myndlist huldukvenna