Morgunblaðið - 15.01.2006, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 63
MENNING
Viltu læra brids? Á byrjendanámskeiði Bridsskólans er ekki gert ráð
fyrir neinni kunnáttu og ekki er nauðsynlegt að koma með „makker“.
Það er fólk á öllum aldri og af báðum kynjum sem sækir skólann.
Láttu slag standa og lærðu brids í skemmtilegum félagsskap.
Framhaldsnámskeið: Hefst 25. janúar og stendur yfir í
10 miðvikudagskvöld frá kl. 20-23.
Viltu verða betri spilari? Á framhaldsnámskeiði Bridsskólans gefst
þér gott tækifæri til að bæta við kunnáttuna. Þú lærir nútíma sagnir,
hvassa spilatækni og samvinnu við makker í vörninni. Örugg og
skemmtileg leið til framfara.
Ítarleg kennslugögn fylgja báðum námskeiðum.
Kennari er Guðmundur Páll Arnarson.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 564 4247
milli kl. 13 og 18 virka daga.
Námskeiðin eru haldin í húsnæði Bridssambands Íslands,
Síðumúla 37, Reykjavík.
Innritun
á vorönn
Byrjendanámskeið: Hefst 23. janúar og stendur yfir í
10 mánudagskvöld frá kl. 20-23.
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
◆
BRIDSSKÓLINN
Útsala • Útsala • Útsala
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
Laugavegi 71, sími 551 0424.
Seyma
Seyma
Stórútsalan hafin
allar vörur með
40% afslætti
vegna breytinga
Hef opnað sálfræðiþjónustu hjá Meðferðar- og
fræðslusetri Forvarna ehf., Lágmúla 5, Reykjavík.
Veiti ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga og pör og held
fyrirlestra og námskeið fyrir fyrirtæki og almenning. Legg
áherslu á hugræna meðferð við allskyns erfiðleikum, svo sem
kvíða, depurð, námsörðugleikum, hjónabandserfiðleikum
og sviðsskrekk. Veiti einnig áfallahjálp samkvæmt kerfi
ICISF (international critical incident stress foundation).
Eyjólfur Örn Jónsson, Cand. Psych., sálfræðingur,
Lágmúla 5, 4. hæð, 108 Reykjavík.
Tímapantanir virka daga kl. 10–12 í síma 590 9290,
annars í síma 894 7898 eða á netfangi: eyjolfur@forvarnir.net
meiri næring
betri ending
er flutt á Laugaveg 56.
Útsala og fjöldi opnunartilboða!
Verið velkomin.
Laugavegi 56
Félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafn-ara (Cranio-sacral balancing) er tíuára og verið er að halda upp á afmæliðum þessar mundir,“ segir Gunnar
Gunnarsson, sálfræðingur og meðlimur í félag-
inu.
Hvað gerir svona meðferð fyrir fólk?
„Við lærum að vinda ofan af áföllum sem hafa
fest í líkamanum og valda alls kyns vandamálum,
t.d. mígreni og háum blóðþrýstingi, í rauninni
ótrúlega mörgu. Ef líkaminn er í klemmu út af
einhverju endar það með því að hann gefur sig
einhvers staðar. Læknar meðhöndla sjúkdóminn
en við meðhöndlum líkamann og hjálpum honum
að lækna sig sjálfan. Líkaminn gerir við sig og
þá hverfur sjúkdómurinn. Þetta er heildræn
nálgun.“
Hvaða tilfelli eru meðhöndluð?
„Líkaminn dregur okkur að þeim áföllum sem
eru föst í honum. T.d. er fæðingin heilmikið áfall
fyrir okkur og við vinnum með slík áföll sem
liggja í okkur sjálfum. Við vinnum mikið með
ungbörn og sumir eru jafnvel að vinna úr fæð-
ingu sinni þó að þeir séu orðnir sextugir.“
Hvernig er þetta unnið?
„Eftir því sem meðferðaraðili er afslappaðri
hleypir kerfið honum betur að sér, dýpra inn í
sig. Það er farið alveg inn í miðtaugakerfið. Þar
geta verið alls konar spenna, tog og skekkjur
sem við hjálpum líkamanum við að losa um. Fólk
getur komið til okkar með hvaða verki eða van-
líðan sem er. Markmið okkar er að láta lík-
amanum líða betur og vera í sátt við sjálfan sig.“
Hverjir geta farið í nám í höfuðbeina- og
spjaldhryggsmeðferð?
„Ný námskeið hefjast hjá félaginu í janúar og
febrúar og skilyrði fyrir inntöku er fyrst og
fremst brennandi áhugi. Sjálfsheilun er hluti af
náminu. Að náminu loknu er tekið verklegt og
skriflegt próf og gert lokaverkefni.
Til að verða löggildur meðferðaraðili þarf
tveggja ára nám, námskeiðið er 300 stundir og
okkar skóli er í rauninni útibú College of Cranio
Psychotherapy í London sem er virtasti skóli
Evrópu í þessu fagi. Við ákváðum að taka upp
námskrá þess skóla. Námið felst í sex náms-
stigum, æfingum á milli og verkefnum. Tekin
eru stöðupróf reglulega, nemendur vinna með
kennara og hver annan.“
Nánari upplýsingar um félagið og námið er að
finna á slóðinni cranio.cc.
Menntun | Ný námskeið í höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð byrja í janúar
Gunnar Gunnarsson
er sálfræðingur, mennt-
aður í Árósum. Hann
hefur rekið sál-
fræðiþjónustu í tuttugu
ár og hefur allan tím-
ann unnið með líkam-
ann; sállíkamlega. Hann
er fulltrúi Evrópuráðs
sállíkamlegra meðferð-
arforma á Íslandi. Hann
er einstæður faðir, á
einn son.
Líkamanum hjálpað að lækna sig
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. Rc3 Rf6 6. d4 Be7 7. Bd3
Bg4 8. h3 Bh5 9. Be3 c6 10. De2 0-0
11. 0-0-0 He8 12. g4 Bg6 13. Re1 d5
14. Bxg6 hxg6 15. Rd3 Da5 16. Kb1
Bb4 17. Rxb4 Dxb4 18. h4 Rbd7 19.
Df3 Re4 20. Rxe4 dxe4 21. Dh3 Rb6
22. Bd2 Db5 23. h5 Rc4 24. Bc3 gxh5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Pamplona á
Spáni. Stórmeistarinn Zviad Izoria
(2.646) frá Georgíu hafði hvítt gegn
gegn gamla brýninu Jan Timman
(2.630). 25. d5! Með þessu rofna all-
ar varnir svarts á kóngsvæng þar eð
25...g5 væri svarað með 26. gxh5 og
25...cxd5 væri svarað með 26. Dxh5.
Timman reyndi að berjast áfram
með 25. ...Ra3+ en sú barátta varaði
stutt þar sem eftir 26. Kc1 gafst
hann upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Reykjavíkurmótið.
Norður
♠Á765432
♥D103 S/Enginn
♦--
♣DG7
Vestur Austur
♠K10 ♠G9
♥Á94 ♥K62
♦ÁKD976 ♦8543
♣109 ♣K654
Suður
♠D8
♥G875
♦G102
♣Á832
Í annarri umferð Reykjavíkurmóts-
ins kom upp spil þar sem geim stóð í
báðar áttir – fjórir spaðar í NS, en þrjú
grönd í AV.
Skoðum fyrst fjóra spaða í norður:
Sagnhafi gefur einn slag á tromp og
tvo á hjarta, en engan á lauf, því 109
falla undir litlu hjónin. Lukkuleg lega.
Og þrjú grönd í vestur: Spaði er lík-
legt útspil og gefur um leið níunda
slaginn. En jafnvel þótt norður byrji á
laufdrottningu, dugir það ekki nema í
þrjá laufslagi, því liturinn er stíflaður.
Sagnhafi getur þá sjálfur sótt sér úr-
slitaslaginn á spaða.
Á sex borðum af 20 spiluðu AV þrjú
grönd og unnu, en aðeins tvö pör sögðu
og unnu fjóra spaða. Þrjú pör spiluðu
spaðabút í NS, en annars fóru AV víða
of hátt í tígli.
Spil af þessum toga er erfitt að
melda af skynsemi. En hvort sem vest-
ur opnar á tígli, grandi eða sterku laufi,
ætti hann að vera fús til þess að segja
þrjú grönd eftir spaðasögn norðurs.
Þetta var einfalt fyrir þau pör sem
vöktu á sterku laufi í vestur:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- Pass
1 lauf * 3 spaðar Dobl * Pass
3 grönd Pass Pass Pass
Dobl austurs sýnir 6+ punkta og
vestur á enga aðra sögn þrjú grönd –
sem betur fer.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122