Morgunblaðið - 15.01.2006, Síða 67
dæma gæti maður séð fyrir sér
David Lynch og kannski Hitch-
cock …
„Jú, jú, báðir hafa vissulega haft
áhrif á mig. David Lynch hefur til
dæmis gert það óljósara en áður
hvenær eitthvað er raunverulegt og
hvenær óraunverulegt. Ég er mjög
hrifinn af myndunum hans. Líka
myndum Stanley Kubricks. Það er
erfitt að verða ekki fyrir áhrifum
frá þeim. Ég er sömuleiðis hrifinn
af Hitchcock og myndum eins og
Vertigo. Kvikmyndir þar sem hegð-
un fólks er dálítið skrýtin finnst
mér yfirhöfuð góðar.“
– Myndin þín var valin sem opn-
unarmynd í Cannes í fyrra og tók
þátt í aðalkeppninni um Gull-
pálmann. Hvað þýddi þetta fyrir
þig?
„Þetta var náttúrlega frábært.
Þér að segja eru hins vegar tvær
hliðar á þessu. Annars vegar heyr-
irðu að myndin þín hafi verið valin
á Cannes. Á opnunarkvöldinu og í
sviðsljósinu ertu upp með þér og
hugsar að þetta sé frábært fyrir
þig og myndina. Á hinn bóginn
verður myndin miklu útbreiddari
og þetta býr til svakalega pressu!
Fólk spyr sig náttúrlega af hverju í
ósköpunum þessi mynd hafi verið
valin til að vera á sjálfu opnunar-
kvöldinu og verður gagnrýnna en
ella. Á endanum er þetta hins veg-
ar auðvitað rosalega gott fyrir fer-
ilinn.“
– Já, stjarna þín virðist einmitt
skína stöðugt skærar.
„Ja, fyrri mynd mín, Harry, gekk
að minnsta kosti vel, sérstaklega í
Frakklandi. Það hjálpar! Eftir að
hafa gert mynd sem gengur vel er
auðveldara að fá fjármagn fyrir þá
næstu. Ég hef mikla ánægju af því
að gera myndir og vil halda því
áfram og sjá hvað gerist.“
Snjóbylur og týndur farangur
– Og núna ertu hér á Íslandi …
„Jú, jú! Þetta er samt ekki í
fyrsta skipti. Ég var líka hérna í
apríl í fyrra. Það er magnað að
geta ekið um án þess að sjá bók-
staflega neinn. Hvar eru allir? Ég
hef aldrei heyrt jafnhreina þögn og
úti í náttúrunni hér á Íslandi.“
– Hvað ætlarðu að gera hérna í
þetta skipti?
Dominik verður sposkur. „Ja, ég
fer í mat í sendiráðinu og þarf að
sinna hinu og þessu, fara í fleiri
viðtöl og svona. Tala við fólk …“
– Fara í móttöku með ráðherrum
og forsetanum og svona …
„Já, einmitt, þetta venjulega sem
ég geri þegar ég ferðast um og
kynni myndirnar mínar …“
Dominik fer að hlæja. Hann seg-
ist satt best að segja himinlifandi
með að vera kominn aftur hingað til
lands. Farangurinn hans týndist
reyndar á leiðinni og þegar hann
lenti var snjóbylur. Samt brosir
hann út að eyrum. Síðan hnyklar
hann brýr.
„Heyrðu, segðu mér svona að
lokum hvað er sniðugt að gera
hérna. Hvað gerir maður á Íslandi
á þessum tíma árs?“
læmingi
Alain, ein aðalpersónan í Lemming. „Alain er týpan sem vill hafa stjórn á
aðstæðum og hefur meira að segja atvinnu af stjórntækjum. Skyndilega
uppgötvar hann eitthvað sem hann veit ekki hvaðan er komið.“
sigridurv@mbl.is
’Ég sá fyrir mér mannsem var heima hjá sér
að gera við stíflaðan
vask og í pípulögnunum
reyndist vera fastur
læmingi. Ég vissi ekki
hvert þetta myndi síðan
leiða mig.‘
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 2006 67
AÐALSÖGUHETJURNAR
í Lemming eru Bénédicte
og Alain Getty sem eru
ungt og ástfangið par, bú-
sett í fallegri íbúð í út-
hverfi Toulouse í Frakk-
landi. Alain er verkfræð-
ingur og nýbyrjaður að
vinna hjá auðugu fyr-
irtæki. Þegar Bénédicte
undirbýr kvöldverðarboð
fyrir yfirmanninn og eig-
inkonu hans tekur hún
eftir því að eldhúsvask-
urinn hefur stíflast. Mat-
arboðið endar á óvænta
vegu og þegar stíflan í
vaskinum reynist vera
nagdýr sem ekki lifir í
Frakklandi – nefnilega læm-
ingi – fara hlutirnir úr bönd-
unum.
Aðalleikarar eru Laurent
Lucas, Charlotte Gainsbourg
og Charlotte Rampling. Myndin
er sýnd í Háskólabíói fram á
miðvikudag.
Óvæntur fundur í eldhúsvaski
Sími 553 2075
JUST
FRIENDS
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
eeee
H.J. / MBL
“…mikið og skemmtilegt sjónarspil...”
eeee
Dóri DNA / DV
eeee
HJ / MBL
A.G. / BLAÐIÐ
nan 16 ára
Eins og það sé ekki nóg að ala upp 12 börn
Prófaðu að fara með þau öll í fríið!
eee
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
M YKKUR HENTAR ****
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5,20, 8 og 10.40 B.I. 12 ÁRA
HOSTEL kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
BROTHERS GRIMM kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 3, 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
DRAUMALANDIÐ kl. 3
Frá Óskarsverðlaunaleikstjóra
“AMERICAN BEAUTY”
Mögnuð stríðsmynd með Jake Gyllenhaal og Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
3 BÍÓ Á AÐEINS 400 KR.** Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sprenghlægilegt framhald. Steve Martin fer enn og aftur á kostum!
400 KR. Í BÍÓ GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐUI I I T Sýnd kl. 2 og 4 ísl tal
Bara Lúxus
Sími 553 2075