Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MILLJARÐA HAGNAÐUR
Hagnaður Kaupþings banka og
Straums-Burðaráss fjárfesting-
arbanka nam samtals um 80 millj-
örðum króna í fyrra. Munu bank-
arnir greiða ríflega 16 milljarða
króna til ríkissjóðs í skatta. Hagn-
aður Kaupþings banka var 49,3
milljarðar árið 2005 og hagnaður
Straums-Burðaráss 26,7 milljarðar
króna.
Stórsigur Hamas
Hamas-hreyfingin vann stórsigur
í kosningunum í Palestínu og mun
henni verða falið að mynda stjórn.
Hvorki Ísraelar né vestræn ríki
munu ræða við Hamas fyrr en sam-
tökin hafna ofbeldi og viðurkenna
tilverurétt Ísraelsríkis en ekki var
að heyra á Hamas-mönnum í gær, að
það yrði gert.
Farmur vörubíls losnaði
Farmur vöruflutningabifreiðar
losnaði í gær þegar honum var ekið í
gegnum hringtorg á Suðurlands-
braut við Breiðholtsbraut. Ökumað-
urinn stöðvaði bifreiðina og náði að
komast hjá því að farmurinn, sem
var nokkur tonn af timbri, dytti af og
yfir veginn. Þetta er í annað skipti á
þremur dögum þar sem farmur
vörubifreiðar losnar og skapar
hættu vegna slælegra vinnubragða
við festingu.
Lagt hald á kannabis
Lögreglan í Reykjavík lagði í gær
hald á mikið magn af kannabisefnum
í iðnaðarhúsnæði í miðborginni.
Tvennt var handtekið vegna málsins.
Sigur í fyrsta leiknum á EM
Íslenska landsliðið í handknattleik
fór í gær með sigur af hólmi í fyrsta
leik liðsins á Evrópumeistaramótinu
í Sviss. Íslendingar unnu þá lið Serb-
íu/Svartfjallalands með 36 mörkum
gegn 31.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 30
Fréttaskýring 8 Viðhorf 32
Úr verinu 12 Bréf 35
Viðskipti 14 Minningar 36/42
Erlent 16/18 Myndasögur 46
Minn staður 20 Dagbók 46/49
Höfuðborgin 21 Staður og stund 49
Akureyri 22 Leikhús 50
Landið 23 Bíó 54/57
Daglegt líf 24/25 Ljósvakamiðlar 58
Menning 26, 50/57 Veður 59
Umræðan 27/35 Staksteinar 59
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is
Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Berjakökur Berjakökur
Komið og smakkið.
Helgarkynning
Bakarameistarans.
ÍSLENSKA ríkið ber, samkvæmt
dómi Hæstaréttar frá í gær, skaða-
bótaábyrgð á líkamstjóni sem kona
hlaut vegna meinsemdar í baki sem
starfsmönnum Landspítalans yfir-
sást fyrir mistök að greina og veita
meðferð við í framhaldi af læknis-
rannsókn á konunni í desember 1997.
Börn konunnar kröfðust viður-
kenningar á bótaskyldu ríkisins og í
héraðsdómi, sem dæmdi þeim í vil,
var margt talið benda til þess að ef
gripið hefði verið til viðeigandi rann-
sókna hefði mátt sjá sýkingu þá sem
leiddi til þess að konan var lögð inn á
sjúkrahús í mars 1998. Sönnunar-
byrði um að svo hefði ekki verið var
lögð á ríkið og taldi héraðsdómur þá
sönnun ekki hafa tekist. Þar sem rík-
ið hefði ekki leitað mats dómkvaddra
manna eða lagt fram önnur gögn til
að hnekkja niðurstöðu héraðsdóms
var hún staðfest í Hæstarétti. Talið
var að með mati læknis Trygginga-
stofnunar ríkisins hefðu verið leidd-
ar nægar líkur að því að konan hefði
orðið fyrir líkamstjóni sem ríkið gæti
borið skaðabótaábyrgð á. Var því
fallist á kröfur barnanna.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson, Garðar Gíslason,
Markús Sigurbjörnsson og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Óskar Thor-
arensen hrl. flutti málið fyrir ríkið og
Jóhannes Albert Sævarsson hrl. og
Guðrún Helga Brynleifsdóttir hdl.
fyrir stefnendur.
Bótaábyrgð felld
á ríkið vegna
mistaka á LSH
FÖNGULEGIR hreindýrahópar voru að
krafsa eftir æti við Steinavötn í Suðursveit
þegar ljósmyndara bar að. Þau tóku þó fljót-
lega á sprett þegar hann fór að athafna sig.
Hreindýrin hafa haldið sig á og við tún rétt
vestan við Steinavatnabrúna, að sögn Ingi-
mars Bjarnasonar, bónda á Jaðri í Suð-
ursveit. Þau komu óvenju snemma á túnin
núna, sáust fyrst fyrir jól, en hafa venjulega
ekki komið fyrr en á útmánuðum. Ingimar
sagði að dýrin yllu ekki teljandi tjóni á girð-
ingum. „Þau eru svo létt á sér og lítill bagi
að girðingum fyrir þau, hlaupa yfir þær eins
og ekki neitt. Það er helst ef þau reka horn-
in í og festa sig þannig, en það er lítið um
það,“ sagði Ingimar.
Síðastliðið vor báru tvær hreinkýr alveg
við túnin og sáust með nýborna kálfa. Menn
hafa ekki tekið eftir því áður í Suðursveit.
„Þau eru að ýta sér nær og nær,“ sagði Ingi-
mar.
Morgunblaðið/RAX
Hreindýr hleypa á sprett
FÉLAGSFUNDUR í Dómarafélagi
Íslands telur rétt að fresta ákvörðun
um málsókn á hendur stjórnvöldum
vegna afnáms ákvörðunar Kjara-
dóms. Jafnframt telur fundurinn rétt
að stjórn félagsins efni til viðræðna
við stjórnvöld um hvaða fyrirkomu-
lag skuli haft á ákvörðun launa dóm-
ara.
Í ályktun félagsfundarins frá í gær
er vefengt að lög um afnám ákvörð-
unar Kjaradóms séu samrýmanleg
ákvæðum stjórnarskrárinnar, ekki
síst þegar litið sé til stöðu og sjálf-
stæðis dómsvaldsins.
Síðar segir: „Til að tryggja viðun-
andi stöðu dómsvaldsins til frambúð-
ar að því er ákvörðun launa varðar,
telur fundurinn rétt að stjórn félags-
ins efni til viðræðna við stjórnvöld um
það hvaða fyrirkomulag skuli haft þar
á. Felur fundurinn stjórn félagsins að
koma sjónarmiðum þess á framfæri
við nefnd sem falið hefur verið að
endurskoða lög um Kjaradóm og
kjaranefnd, nr. 120/1992. Fundurinn
bindur vonir við að vinna nefndarinn-
ar leiði til þess að betri skipan verði
komið á ákvarðanir um laun dómara
og jafnframt verði leiðrétt sú skerð-
ing launa sem tekur gildi 1. febrúar
nk. Einnig telur fundurinn mikilvægt
að fyrirbyggt verði í framtíðinni að
handhafar annarra valdþátta ríkisins
geti breytt ákvörðunum sem þegar
hafa verið teknar samkvæmt lögum
um laun dómara af þar til bærum að-
ilum. Þá leggur fundurinn áherslu á
að kjör dómara verði ákveðin sjálf-
stætt og án beinna tengsla við laun
þjóðkjörinna fulltrúa og ráðherra.
Að framangreindu virtu telur fund-
urinn rétt að frestað verði ákvörðun
um málsókn að svo stöddu.“
Ályktun félagsfundar Dómarafélagsins
Ákvörðun um
málsókn frestað
að svo stödduÍSLENDINGAR eru yfirleitt meðhærri heildarlaun en hinar þjóð-
irnar á Norðurlöndum. Þeir þurfa
hins vegar að vinna mun lengri
vinnutíma fyrir laununum en hinar
þjóðirnar og eru eftirbátar þeirra í
flestum tilvikum þegar tekið hefur
verið tillit til þess. Efnahagsleg lífs-
kjör hér eru sambærileg eða ívið
lakari en það sem gerist á hinum
Norðurlöndunum.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri skýrslu um sam-
anburð á lífskjörum á Norð-
urlöndum, Noregi, Danmörku og
Svíþjóð, og hér sem Alþýðu-
samband Íslands hefur unnið.
Þar kemur ennfremur fram að
þegar heildarlaun hafa verið vegin
saman við verðlag eru laun hér al-
mennt lægri en í Danmörku, sam-
bærileg við það sem gerist í Noregi
og hærri en í Svíþjóð, þar sem verð-
lag hér er hærra en í þessum lönd-
um.
Þá kemur fram að laun kvenna
standast verr samanburð við laun
kvenna hjá hinum Norðurlanda-
þjóðunum en laun karla, enda eru
heildarlaun karla á Íslandi há mið-
að við hinar Norðurlandaþjóðirnar.
Athugunin tók einnig til skatt-
kerfisins í löndunum. Skatttekjur
sem hlutfall af landsframleiðslu eru
lægstar hér eða 41% samanborið
við 45% í Noregi, 50% í Danmörku
og 51% í Svíþjóð. Útgjöld til vel-
ferðarmála eru einnig mun lægri
hér á landi en hjá hinum þjóðunum.
Þannig eru þau 23,9% af vergri
landsframleiðslu hér, 25,1% í Nor-
egi, 31,2% í Danmörku og 33,6% í
Svíþjóð, þar sem þau eru hæst.
Sambærileg
lífskjör við
hin Norð-
urlöndin
Morgunblaðið/Golli