Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands
námu 23,9 milljörðum kr. í gær.
Mest viðskipti voru með hlutabréf
eða fyrir 14.479 milljónir króna. Úr-
valsvísitala aðallista hækkaði um
2,25% í dag og er 6.216,89.
Viðskipti með hlutabréf Kaup-
þings banka voru fyrir 7.112 millj-
ónir króna og hækkuðu bréfin um
3,6% en félagið kynnti afkomu sína í
dag. Straumur Burðarás kynnti einn-
ig afkomu sína í dag og nam hækkun
félagsins 3,8%.
Úrvalsvísitalan
hækkar um 2,25%
● AGNAR Friðriksson, forstjóri
Coldwater Seafood UK, dótturfyr-
irtækis Icelandic Group, hefur látið af
störfum að eigin ósk, að því er segir í
tilkynningu sem gefin var út í gær.
Agnar hefur stýrt Coldwater UK í
tæp sextán ár, eða frá því í apríl
1990. Ákveðið hefur verið að Finn-
bogi A. Baldvinsson, forstjóri Ice-
landic Europe, taki við stjórn félags-
ins.
Agnar Friðriksson
hættir hjá Coldwater
● EIK FASTEIGNAFÉLAG var rekið
með 626,8 milljóna króna hagnaði á
síðasta ári samanborið við 208,9
milljóna króna hagnað árið 2004.
Tekjur Eikar námu 897 milljónum
króna, þar af voru tekjur í erlendri
mynt um 151 milljón króna.
Starfsemi Eikar snýst um kaup,
rekstur og útleigu atvinnuhúsnæðis.
Árið 2005 bættust 24.000 fermetrar
í eignasafn félagsins, að því er segir
í fréttatilkynningu. Heildarverðmæti
eignasafns Eikar er 12.263 milljónir
króna.
Eik skilar 627 milljóna
króna hagnaði
HAGNAÐUR Kaupþings banka á
síðasta ári var sá mesti í sögu bank-
ans, og reyndar mesti hagnaður sem
íslenskt fyrirtæki hefur skilað á einu
ári. Hagnaðurinn nam 49,3 milljörð-
um króna. Það er nærri þrefalt meiri
hagnaður en árið 2004, en þá skilaði
bankinn einnig mesta hagnaði frá
upphafi, 17,7 milljörðum króna.
Greiningardeildir hinna viðskipta-
bankanna höfðu spáð methagnaði hjá
Kaupþingi banka á árinu 2005, en
hagnaðurinn varð enn meiri en þær
spár gerðu ráð fyrir.
Arðsemi eigin fjár Kaupþings
banka á árinu 2005 nam 34,0% en var
25,5% árið áður. Heildareignir bank-
ans jukust um eitt þúsund milljarða
króna milli ára, eða um 63%, og námu
2.540 milljörðum í árslok 2005.
Í tilkynningu frá Kaupþingi banka
kemur fram að stjórn bankans muni
leggja til við aðalfund að hluthöfum
verði greiddir liðlega 6,6 milljarðar
króna í arð vegna ársins 2005, sem
svarar til um 13,5% af hagnaði.
Greiddar verða 10 krónur í arð á
hvern hlut.
Mikil aukning gengishagnaðar
Hreinar vaxtatekjur Kaupþings
banka jukust um liðlega 14 milljarða
króna milli ára og voru 32,7 millj-
arðar í fyrra. Hreinar þóknunar-
tekjur jukust einnig umtalsvert og
fóru úr 13,3 milljörðum árið 2004 í
22,4 milljarða á árinu 2005. Í til-
kynningu bankans segir að aukning
þessara tekna skýrist að miklu leyti
af miklum vexti í þóknunartekjum
hjá Eignastýringu og einkabanka-
þjónustu bankans, bæði vegna til-
komu breska bankans Singer &
Friedlander í samstæðuna og árang-
urstengdra þóknana. Af tekjuliðun-
um jókst gengishagnaður bankans
hins vegar mest á milli ára, eða um
21,0 milljarð, og var 37,3 milljarðar í
fyrra. Í tilkynningunni segir að
ástæða þessarar miklu hækkunar sé
einkum hagstæðara markaðsum-
hverfi á norrænum fjármálamörkuð-
um en árið áður.
Launakostnaður bankans jókst
um 58% á milli ára og nam 20,3
milljörðum í fyrra. Framlag á
afskriftareikning útlána minnkaði
hins vegar á milli ára úr 3,8 millj-
örðum í 2,5 milljarða. Hins vegar
voru 1,9 milljarðar færðir á afskrift-
areikning vegna viðskiptavildar. Þar
er um að ræða afskriftir í tengslum
við sölu á hlut dótturfélags Kaup-
þings í Finnlandi í félaginu Neo-
markka í lok síðasta árs, endur-
skipulagningu í Noregi og afskriftir
á húsnæði Singer & Friedlander í
London.
Skattar tæpir 7 milljarðar hér
Heildarskattgreiðslur Kaupþings
banka fyrir árið 2005 nema 11,2 millj-
örðum króna, hér á landi og erlendis
þar sem bankinn er með starfsemi.
Samkvæmt upplýsingum frá bankan-
um eru skattgreiðslur hér á landi á
bilinu 6,5–7,0 milljarðar króna. Heild-
arskattar bankans á árinu 2004 námu
4,2 milljörðum króna hér á landi og
erlendis.
Í tilkynningu Kaupþings banka er
haft eftir Hreiðari Má Sigurðssyni,
forstjóra bankans, að það sé ánægju-
legt að sýna enn eitt metárið, þar
sem allar helstu starfsstöðvar bank-
ans skili methagnaði. „Við búumst við
áframhaldandi vexti á árinu 2006 og
sá vöxtur mun skapa enn fleiri tæki-
færi fyrir viðskiptavini okkar, en
sem fyrr er lykilatriðið að þjóna
þörfum þeirra,“ segir Hreiðar Már.
Enn eitt metárið hjá
Kaupþingi banka
-. !
-. !
/
!
0
! 1 %
2 *
)
344445
67'55
65378
973:4
'8:4
+33''(
+3756
#
#
;
'9866'(
3583(9
84478
'3(3:
93745
'968(
9(':
+8'96
+::'
384:4(9
385974
!"#"
49,3 milljarða hagnaður sá mesti hjá íslensku fyrirtæki
Uppgjör
Kaupþing banki
gretar@mbl.is
● TVÖ FÉLÖG í eigu Magnúsar Krist-
inssonar, stjórnarmanns í Straumi-
Burðarási, Smáey og MK-44, keyptu
í gær hvort um sig 50 milljónir hluta í
Straumi-Burðarási á genginu 18,85.
Er kaupverð bréfanna því 1.885
milljónir króna.
Eftir viðskiptin er Smáey komin
með 5,44% í Straumi-Burðarási fjár-
festingarbanka. Straumur-Burðarás
kynnti afkomu síðasta árs í dag og
nam hagnaður félagsins 26,7 millj-
örðum króna.
Magnús Kristinsson
kaupir í Straumi
HAGNAÐUR Straums-Burðaráss
Fjárfestingabanka hf. á árinu 2005
nam um 26,7 milljörðum króna eftir
skatta en, var um 6,7 milljarðar árið
2004. Síðasti ársfjórðungur reyndist
sérstaklega hagfelldur en þá nam
hagnaður bankans um 12,6 milljörð-
um króna samanborið við um 460
milljónir á sama tíma 2004. Í frétta-
tilkynningu frá bankanum segir að
aðstæður á fjármálamarkaði hafi
verið með besta móti árið 2005 og
hagfelldar rekstri bankans. Gengis-
munur af hlutabréfaeign bankans
hefur verið stærsti tekjuliðurinn í af-
komu hans en góð aukning er jafn-
framt í vaxta- og þjónustutekjum
bankans. Hagnaður var af rekstri
allra tekjusviða bankans á árinu.
Arðsemi eigin fjár var um 46,5%.
„Bankinn skilaði bestu afkomu
sinni frá upphafi, hagnaði upp á 26,7
milljarða króna, arðsemi eigin fjár
var mjög góð eða um 46,5% og eigið
fé bankans er um 115 milljarðar
króna,“ segir Þórður Már Jóhann-
esson, forstjóri Straums-Burðaráss
fjárfestingarbanka.
„Sérstaklega ánægjulegt er að
tekjudreifing bankans hefur aukist
milli ára og er það í samræmi við
stefnu okkar um að breikka tekju-
myndun og efla Straum-Burðarás
sem sérhæfðan fjárfestingabanka,“
segir Þórður.
Heildareignir bankans jukust um
190% á árinu, námu 259 milljörðum
króna í árslok 2005 samanborið við
um 90 milljarða í árslok 2004. Eigið
fé jókst um rúma 82 milljarða króna
milli ára eða 259%.
Í tilkynningunni segir að stjórn
bankans mun leggja til á aðalfundi
að hluthöfum verði greiddir um 6,7
milljarða króna í arð vegna ársins
2005 sem svarar til 25% af hagnaði
og nemur 0,65 kr. á hvern hlut. Hluti
arðgreiðslunnar verður í skráðum
hlutabréfum.
Mikill gengishagnaður
Horfur eru sagðar ágætar á
rekstri bankans í byrjun árs 2006.
Stefnt er að örum vexti og lögð verð-
ur áhersla á að auka hlutfallslega
vægi hreinna vaxta- og þjónustu-
tekna á móti gengishagnaði af verð-
bréfaeign. Afkoma bankans 2005 er
sögð í samræmi við þá stefnu.
Hagnaður bankans var í samræmi
við væntingar greiningardeildar KB
banka en eitthvað undir væntingum
greiningardeildar Landsbankans,
sem gerði ráð fyrir rúmlega 15 millj-
arða króna hagnaði á fjórða ársfjórð-
ungi. Segir í Hálffimmfréttum grein-
ingardeildar KB banka að gott
uppgjör bankans skýrist að þessu
sinni af sérlega miklum gengishagn-
aði af hlutabréfum, sérstaklega
hagnaði af eignarhlutum bankans í
Íslandsbanka, Finnair og Actavis.
Fjórföldun hagnaðar
Straums-Burðaráss
$ % & $
''(
. !
<
!
)
/
!
0
!
)
+'8(
35:4
94:66
364'
3654
+:86'
343
#
;
38887(
338(73
838
:(3
787'
3:3
:77
+39:6
+'(
:7:(9
9'446
!"#"
!
! !
Uppgjör
Straumur-Burðarás
bjarni@mbl.is
NOVATOR Telecom Poland II, sjálf-
stæð rekstrareining Novators, fjár-
festingafélags Björgólfs Thors
Björgólfssonar, á nú meira en
fimmtungshlut í pólska símafyr-
irtækinu Netia og ræður yfir 22,37%
atkvæðamagns að því er kemur
fram í tilkynningu til pólsku kaup-
hallarinnar. Í henni kemur einnig
fram að Novator Telecom Poland sé
með það í skoðun að auka enn frekar
við hlut sinn í Netia, eða allt upp að
33% á næstu tólf mánuðum enda líti
Novator á Pólland og fjarskipta-
markaðinn þar og þá sérstaklega
símafyrirtækið Netia sem vænlegan
langtímafjárfestingarkost.
Eykur hlut
sinn í Netia
BRESKA
fjármálafyr-
irtækið
Syndicate
Asset Man-
agement hef-
ur gert yf-
irtökutilboð í
annað breskt
fjármálafyr-
irtæki, Savoy
Asset Management. Greint var
frá því í Morgunblaðinu hinn 8.
janúar sl. að slíkt tilboð hefði
verið gert en þá var ekki vitað
hver stóð að baki og taldi blaðið
The Independent að ef til vill
væru Íslendingar þar á meðal.
Nú hefur hins vegar verið
gert opinbert að Syndicate Ass-
et Management standi að baki
tilboðinu.
Samkvæmt staðfestum heim-
ildum Morgunblaðsins eru tveir
íslenskir hluthafar í Syndicate.
Þeir eru athafnamaðurinn Jón
Ólafsson, sem á um 12,8% hluta-
fjárins, og Straumur-Burðarás
fjárfestingarbanki sem á um
6,4%. Fjallað var um Syndicate í
breska fréttabréfinu CityWire
Courier og þar sagt að það væri
„farartæki íslensk fjármagns“.
Talið var að hluthafar væru,
auk ofannefndra, Íslandsbanki,
KB banki og SPRON. Þetta hef-
ur Morgunblaðið ekki fengið
staðfest.
Jón Ólafsson
Bjóða í
breskt
fjármála-
fyrirtæki
!"#
$%%&$
' () *(#&
! "# #
+,
-$ ./(01 "2
,(/%
./(01 "2
3
%%
-!/ ./(01 "2
45/6# "2
7
4
./(01 "2
8 ./(01 "2
97
#5
#%$ "2
01:$#4 3
#% "2
!40# "2
8
#5
#%$ 97
# "2
/&7 "2
(
$+
$(# "2
9 "2
,/
0;0/<30/=
/> ?>/"25
#%$ "2
@0/ "2
!"#
-$(# ./(01 "2
$%;
/%
=0/ 97
# "2
./
#$ "2
A
;1$=?
# "2 '+&7
#$+ ./(01 "2
*
/=5(/
#$/ "2 B &/?$ "2
C ,7
#,$+ &,/(7&0;
/D44$#4
;$=,!=$# "2
E$##70,!=$# "2
$
% & '
$%&7$ D?
"?
/=
/ "2
7>,0/"F7
4 0=0/7
# -"2
'()
* 'G
H=
,
-$=%2-&/=
<
<
<
<
<
<
<
<
3/&D,$#4 "/>
"D//
-$=%2-&/=
<
<
< <
<
< < < <
<
<
<
<
<
< <
<
<
<
I J
<
<
I < J
<
I
J
<
I
J
I < J
I J
I <J
I <J
I J
I
J
I
J
I J
<
<
<
<
<
<
I <J
<
<
<
<
I
J
A&$7
/-$=%$1,$
4$#
$75(= H 7(%
4K
01
7
2
2
2
2
2 2
2 2
2 22 2
2
2
2
2 2 2
2
2 <
<
<
<
2
<
<
<
<
2
E$=%$1,$ H :62 %/2
A2 L , 040#
/7$,$ ?!7$
-$=%$1,
<
<
<
<
<
<
<
<
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN keypti í
haust 4,5% hlutafjár í sænska fjár-
festingarfélaginu Invik og óinn-
leystur gengishagnaður af fjárfest-
ingunni er um 134,5 milljónir króna.
Frá þessu er greint í sænska blaðinu
Dagens Nyheter í gær. Þar er haft
eftir Óskari Magnússyni, forstjóra
TM, að hagnaðurinn sýni berlega
hvers vegna TM fjárfesti í félaginu.
TM er fjórði stærsti hluthafi í In-
vik en félagið er þekkt sem eitt
helsta valdafélag Stenbeck-
ættarinnar sænsku.
TM fjárfestir í Svíþjóð