Morgunblaðið - 27.01.2006, Qupperneq 20
Reykjavík | Verslunareig-
endur við Laugaveg leggja
mikla áherslu á að við-
skiptavinir geti horft á varn-
inginn sem þeir bjóða til sölu í
gegn um hreinar rúður.
Gluggaþvottur er því hluti af
þeirra reglulegu vinnu. Á
myndinni er Hulda versl-
unarmaður í verslunni Soho á
Laugavegi að þvo gluggana.
Það er einkum salt og
óhreinindi frá götunni sem vill
setjast á gluggana. Eftir
sterkar suðvestanáttir eru
gluggarnir því oft mjög
óhreinir. Veðrið hefur reyndar
verið milt síðustu daga og því
ekkert því til fyrirstöðu að fá
sér göngutúr í miðbænum og
skoða inn um búðarglugga.
Morgunblaðið/Ásdís
Allt hreint og fínt á Laugavegi
Þvottur
Höfuðborgin | Akureyri | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs-
dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114.
Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds-
dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi-
@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Mjólkurframleiðslan | Félag kúabænda
á Suðurlandi stendur fyrir málþingi nk.
þriðjudag, 31. janúar, um stöðu og mögu-
leika íslenskrar mjólkurframleiðslu. Mál-
þingið verður haldið í félagsheimilinu
Þingborg í Hraungerðishreppi og hefst kl.
12.
Þrjú framsöguerindi verða á mál-
þinginu. Sveinn Agnarsson, Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands, fjallar um
stöðu og horfur í mjólkurframleiðslu. Guð-
brandur Sigurðsson, forstjóri MS, fjallar
um markaðsmöguleika erlendis. Þá verður
Elvar Eyvindsson bóndi, Skíðbakka II,
Landeyjum, með erindi sem hann kallar
„Möguleikar til lækkunar framleiðslu-
kostnaðar á kúabúum“.
Að loknum framsöguerindum verða um-
ræður og fyrirspurnir til framsögumanna.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sameining stéttarfélaga | Verkalýðs-
félag Öxarfjarðar hefur boðað til fé-
lagsfundar á mánudag, 6. febrúar, í Öxi,
Kópaskeri. Fyrir fundinum liggur tillaga
um að gengið verði til viðræðna við Verka-
lýðsfélag Húsavíkur um sameiningu félag-
anna. Í fundarboði til félagsmanna kemur
fram að mikilvægt sé að félagsmenn mæti á
fundinn og taki þátt í umræðum um framtíð
félagsins, segir á vef Verkalýðsfélags Húsa-
víkur.
Lífræn ræktun | Umhverfishópur Stykk-
ishólms hélt í vikunni fund um lífræna
ræktun. Menja von Schmalensee, líffræð-
ingur á Náttúrustofu Vesturlands, fjallaði
um það í hverju lífræn ræktun felst og
hvaða munur er á lífrænt ræktuðum afurð-
um og hefðbundnum.
Fram kemur í frétt á heimasíðu nátt-
úrustofunnar að hún leitaðist við að svara
ýmsum spurnum, svo sem hvort lífrænt
ræktuð matvara geti haft áhrif á heilsufar
okkar og hvort við höfum efni á að kaupa
slíkar vörur. Góð mæting var á fyrirlest-
urinn og sköpuðust skemmtilegar umræður
að honum loknum.
fyrir framan húsin og
bera þara og ýmiss konar
drasl alveg að húsunum.
Í Haganesvík eru tals-
verðar byggingar síðan
þar var kaupfélag starf-
andi og rekið sláturhús.
Nú er unnið við að gera
Fljót | Unnið er við gerð
grjótvarnargarðs í Haga-
nesvík í Fljótum. Garð-
inum er ætlað að verja
byggingar í Haganesvík
fyrir ágangi sjávar, en í
miklu brimi gengur sjór-
inn alveg upp á kantinn
undirstöðu fyrir vænt-
anlega grjótvörn. Garð-
urinn verður um 300
metra langur og er ætl-
unin að gerð hans ljúki í
vetur. Verktakar eru
Víðimelsbræður sf. í
Skagafirði.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Varnaraðgerðir við Haganesvík
Vísa eftir AndrésBjörnsson eldri úrSkagafirði var
rangfeðruð í útvarpi. Hún
var eignuð hálfbróður
hans og alnafna Andrési
Björnssyni útvarpsstjóra.
Þeir voru samfeðra og út-
varpsstjórinn skírður í
höfuðið á eldri bróður
sínum, sem fallið hafði frá
á besta aldri.
Vísa Andrésar eldri er
svohljóðandi:
Leiðist mér og líkar ei
að lifa á meðal varga
en aftur geng ég er ég dey
og ætla að drepa marga.
Kunnasta vísa Andrés-
ar eldri er ef til vill:
Ferskeytlan er Frónbúans
fyrsta barnaglingur
en verður seinna í
höndum hans
hvöss sem byssustingur.
Andrés orti þingvísu
undir hætti stuðlafalls:
Eyrnamörk eru óþörf
hér í salnum.
Þekkist allur þingsins fans
á þessum parti líkamans.
Á meðal varga
pebl@mbl.is
Siglufjörður, Ólafsfjörður | Kosið verður
um sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og
Siglufjarðarkaupstaðar í eitt sveitarfélag á
laugardaginn. Ef sameiningin verður sam-
þykkt verður til um 2.300 manna sveitarfé-
lag, en íbúar beggja sveitarfélaga sam-
þykktu tillögu um sameiningu allra
sveitarfélaga við Eyjafjörð síðastliðið
haust.
Íbúafundir þar sem sameiningin var
kynnt var haldinn á Siglufirði á þriðjudag
og á Ólafsfirði á miðvikudag. Á fundunum
kynnti samstarfsnefnd um sameiningu
sveitarfélaganna kosti og galla sameining-
ar. Fulltrúi Háskólans á Akureyri var
einnig á fundunum og svaraði fyrirspurn-
um.
Síðastliðinn laugardag samþykktu íbúar
fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum
sameiningu sveitarfélaganna sem mun
taka gildi í kjölfar sveitarstjórnarkosning-
anna 27. maí næstkomandi. Samþykki íbú-
ar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sameiningu
næstkomandi laugardag verða sveitar-
félögin í landinu 85 við næstu sveitar-
stjórnarkosningar. Við upphaf núverandi
kjörtímabils sveitarstjórna voru sveitar-
félögin 105.
Kosið um
sameiningu
um helgina
Selfoss | Unnið er að því að viðbygging við
Heilbrigðisstofnun Suðurlands verði
hækkuð um eina hæð. Á fundi sínum 19.
janúar samþykkti bæjarráð Árborgar 30%
þátttöku í byggingarkostnaði þessarar
þriðju hæðar nýbyggingarinnar.
„Bæjarráð Árborgar fagnar áformum
um að byggja nú þegar þriðju hæðina ofan
á viðbyggingu sem nú er unnið að við Heil-
brigðisstofnun Suðurlands á Selfossi. Á
hæðinni er gert ráð fyrir hjúkrunardeild
fyrir aldraða. Sveitarfélagið Árborg er
reiðubúið að taka þátt í byggingarkostnaði
þriðju hæðarinnar, allt að 30%, ásamt öðr-
um sveitarfélögum á Suðurlandi sem
áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu.“
Lögð er áhersla á að söluandvirði hús-
næðis og lóðar renni óskipt til byggingar
þriðju hæðarinnar.
Vilja að við-
bygging verði
þrjár hæðir
♦♦♦
Nýr héraðsdómari | Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra hefur skipað Arnfríði
Einarsdóttur, skrifstofustjóra héraðsdóms
Reykjavíkur, í embætti héraðsdómara við
héraðsdóm Reykjaness frá og með 1. febr-
úar nk. Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá dómsmálaráðuneytinu.