Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 23
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Sauðárkrókur | Nýlega var úthlutað öðru
sinni úr minningarsjóði Jóns Björnssonar, tón-
skálds og kórstjóra frá Hafsteinsstöðum í
Skagafirði. Ákveðið var að styrkja Jón Þor-
stein Reynisson frá Mýrakoti, 17 ára harm-
onikkunemanda við Tónlistarskóla Skaga-
fjarðar, og hlaut hann 150 þúsund krónur úr
sjóðnum.
Jón Þorsteinn segir styrkinn koma sér vel,
alltaf sé ánægjulegt að fá hvatningu og klapp á
bakið í tónlistarnáminu. Hann mun í vor ljúka
fyrri hluta framhaldsprófs í harmonikkuleik,
en síðari hlutanum væntanlega í lok haust-
annar á næsta vetri. Auk tónlistarnáms er
hann í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á
Sauðárkróki.
Jón Þorsteinn hóf tónlistarnám fimm ára
gamall og þá á blokkflautu, en síðan nám á
píanó og dragspilið sjö ára. Fram til 14 ára ald-
urs lærði hann jöfnum höndum á píanó og
harmonikku en eftir það hefur nikkan átt hug
hans allan. Hann mun hafa verið átta ára þeg-
ar hann lék einleik á harmonikkuna með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands á tónleikaferð hennar
um Skagafjörð. Árið 1999 tók hann þátt í hæfi-
leikakeppni ungra harmonikkuleikara sem
haldin var á vegum Harmonikkufélags
Reykjavíkur og sigraði þar. Árið 2002 hélt
MENOR, Menningarsamtök Norðlendinga,
einleikarakeppni í harmonikkuleik og einnig
þar stóð hann uppi sem sigurvegari.
Frábærar viðtökur
Í tilefni af 100 ára árstíð Jóns Björnssonar í
febrúar 2003 gaf fjölskylda hans út hljómdisk
með úrvali laga tónskáldsins í flutningi fjöl-
margra listamanna úr Skagafirði. Allur ágóði
af sölu disksins rennur í þennan sjóð, sem er
ætlað að styrkja unga og efnilega nemendur til
frekara tónlistarnáms. Umsjón með útgáfunni
hafði Eiður Guðvinsson á Sauðárkróki, frændi
Jóns, og aðstoð við lagaval og annan frágang
plötunnar veitti Stefán R. Gíslason, söngstjóri
Karlakórsins Heimis.
Að sögn Eiðs hafa viðtökur við plötunni ver-
ið frábærar og eitt þúsund stykkja upplag
senn á þrotum. Strax hafi verið ákveðið að láta
ágóðann renna til styrktar ungu tónlistarfólki í
Skagafirði. Vildi Eiður koma á framfæri þökk-
um til allra sem styrkt hafa útgáfuna, sér í lagi
til Stefáns söngstjóra. Þriðja úthlutun úr
sjóðnum mun fara fram að ári, en þess má að
lokum geta að fyrsti styrkþeginn, Sveinrún
Eymundsdóttir, er komin í framhaldsnám í
flautuleik á erlendri grundu.
Sjóður Jóns Björnssonar
styrkir harmonikkunemanda
Ljósmynd/Óli Arnar
Harmonikkuleikari Jón Þorsteinn Reynisson
styrkþegi með nikkuna, ásamt Eiði Guðvins-
syni, aðstandanda plötunnar til minningar
um Jón frá Hafsteinsstöðum.
Borgarnes | Úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingarmála
hefur fellt úr gildi bygging-
arleyfi fyrir tengi- og við-
byggingu á Brákarbraut 13
og 15 í Borgarnesi, en áður
hafði úrskurðarnefndin fellt
úr gildi heimild fyrir um-
ræddri framkvæmd í auglýstu
deiliskipulagi að svæðinu.
Málið varðar deiliskipulag
gamla miðbæjarins í Borg-
arnesi, en deiliskipulagið var
upphaflega auglýst sumarið
2004. Íbúi við Brákarbraut
kærði skipulagið til úrskurð-
arnefndarinnar og krafðist
þess að það yrði í heild fellt úr
gildi og að lagt yrði fyrir bæj-
arstjórn að auglýsa það að
nýju, þar sem málsmeðferð
sveitarstjórnar hefði verið verulega áfátt.
Úrskurðarnefndin fellst á það með kær-
anda að málsmeðferð sveitarstjórnar hafi að
ýmsu leyti verið áfátt. Þrátt fyrir þessa ann-
marka sé ekki tilefni til að fella skipulagið úr
gildi í heild sinni. Eftir standi hins vegar að
ákvörðun um stærð og fyrirkomulag tengi-
og viðbyggingarinnar og um byggingarreit
hennar virðist fyrst hafa verið tekin eftir að
sveitarstjórn samþykkti skipulagstillöguna
og sendi hana Skipulagsstofnun til af-
greiðslu.
Efnisbreyting gerð
„Í þessu felst að efnisbreyting var gerð á
skipulagstillögunni án atbeina sveit-
arstjórnar og virðist bæði greinargerð og
uppdrætti hafa verið breytt eftir samþykkt
sveitarstjórnar. Samrýmist slík málsmeðferð
ekki ákvæðum skipulags- og byggingarlaga
um undirbúning og gerð skipulagsáætlana og
er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að
ekki sé í hinu umdeilda skipulagi fullnægj-
andi heimild fyrir umdeildri tengi- og við-
byggingu á Brákarbraut 13 og 15.“
Segir úrskurðarnefndin jafnframt að telja
verði að kærandi eigi lögvarða hagsmuni
tengda umræddri breytingu, bæði vegna
sjónrænna áhrifa og aukinnar umferðar, sem
gera verði ráð fyrir að fylgi auknu bygging-
armagni á svæðinu.
„Verður krafa kæranda um ógildingu því
tekin til úrlausnar en með hliðsjón af með-
alhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/
1993 þykir ekki koma til álita að ógilda skipu-
lagið í heild heldur verður einungis leyst úr
kröfu kæranda að því er tekur til tengi- og
viðbyggingarinnar á Brákarbraut 13 og 15.
Þykir rétt, vegna réttaráhrifa auglýsingar
um skipulagið í B-deild Stjórnartíðinda, að
ógilda þá heimild sem er í auglýstu skipulagi
til byggingar tengi- og viðbyggingar á Brák-
arbraut 13 og 15 í Borgarnesi,“ segir síðan.
Brákarbraut Deilt er um skipulag við þessi tvö hús.
Byggingarleyfi í miðbæ
Borgarness fellt úr gildi
Morgunblaðið/Árni Sæberg