Morgunblaðið - 27.01.2006, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 47
DAGBÓK
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4 Rf6
5. Rc3 e6 6. c5 Be7 7. Rf3 O-O 8. Dc2
b6 9. b4 a5 10. Ra4 axb4 11. Rxb6 Ha7
12. Re5 Rfd7 13. Rbxd7 Bxd7 14. Bd3
h6 15. Bd2 Bf6 16. f4 Rc6 17. Rxc6
Bxc6 18. Db2 Da5 19. Ke2 Dxc5 20.
Hac1 Dd6 21. Bxb4 Dxf4 22. Bxf8
Bxd4 23. Dd2
Staðan kom upp á minningarmóti
Keresar sem lauk fyrir skömmu í Tall-
inn í Eistlandi. Anatoly Karpov
(2672), fyrrverandi heimsmeistari í
skák, hafði svart gegn Vassily Yemel-
in (2529). 23... Hxa2! 24. Hc2 hvítur
hefði tapað drottningunni eftir 24.
Dxa2 Df2+. 24... Df2+ 25. Kd1 Ha1+
26. Hc1 Ba4+ 27. Bc2 Hxc1+ 28. Dxc1
Dxg2 29. He1 Df3+ og hvítur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Létt svar.
Norður
♠ÁK98
♥Á75 N/NS
♦ÁK
♣G862
Vestur Austur
♠105 ♠G64
♥G103 ♥KD
♦D653 ♦G1084
♣D1094 ♣ÁK73
Suður
♠D732
♥98642
♦972
♣5
Standard-spilurum er meinilla við
að passa opnun á einu laufi – og ekki
að ástæðulausu.
Spilið að ofan kom upp í 17. um-
ferð Reykjavíkurmótsins og sam-
kvæmt hefðbundnu Standard-kerfi
ber að opna á einu laufi í norður.
Strangt tekið þarf svarhönd að eiga
sex punkta til að svara, en með þessa
skiptingu er varla hægt að skilja
makker eftir í einu laufi. Nokkrir
sögðu þó pass og uppskáru kuldalegt
augnaráð frá makker og 100 í mínus-
dálkinn. Hinir sem svöruðu á einu
hjarta fengu plús-skor, hvort heldur í
stubb eða geimi. Það vinnast nefni-
lega bæði fjögur hjörtu og fjórir
spaðar í NS.
Fjögur hjörtu er einfalt spil, en í
fjórum spöðum þarf að vanda sig.
Segjum að út komi tígull. Þá er best
að dúkka hjarta með þá áætlun í
huga að nýta hliðarlitinn. Vörnin
verður að mæta því með laufi og
meira laufi til að stytta suður í
trompinu heima. En þá skiptir sagn-
hafi um áætlun og trompar þrjú lauf
heima. Þannig fær hann sjö slagi á
tromp og tíu í allt.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Styrktarsjóður Félags húsgagna- og inn-réttingaframleiðenda auglýsir eftir um-sækjendum um styrki til viðbótarnámsá sviði húsgagna- og innréttingasmíði.
Tilgangur sjóðsins er að efla kunnáttu í fram-
leiðslu húsgagna og innréttinga og styrkja fólk
til frekara náms í greininni erlendis.
Að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, formanns
Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda á
sjóðurinn rætur sínar að rekja til verka félags-
manna fyrir áratugum. „Félagið er rúmlega 70
ára og þegar Iðnaðarmannahúsið við
Hallveigarstíg 1 var byggt gáfu ýmsir aðilar
innan félagsins fjármagn en aðallega þó vinnu
við bygginguna. Þannig eignaðist félagið hlut í
því húsnæði. Á undanförnum árum höfum við
selt allan okkar eignarhluta þar og keypt fyrir
hlutabréf sem hafa ávaxtað sig prýðilega. Okk-
ur fannst ekki rétt að láta þá fjármuni renna
beint inn í Samtök iðnaðarins heldur vildum við
gera eitthvað við þessa peninga sem kæmi okk-
ar félagsmönnum að góðum notum.“
Á síðasta ári var svo ákveðið að verja vaxta-
tekjum af bréfunum til að byggja upp iðngrein-
ina. „Okkur datt í hug að verja þessu fé til að
styrkja þá sem vinna í húsgagna- og innrétt-
ingasmíði á Íslandi, bæði faglærða og ófag-
lærða, til að nálgast meiri menntun erlendis. Til
þess stofnuðum við þennan sjóð en í lögum hans
er þess sérstaklega getið að óheimilt er að
ganga á höfuðstól hans.“ Hann bendir á að víða
erlendis sé boðið upp á styttri og lengri nám-
skeið í iðninni. „Þar má t.d. nefna Danmörku.
Þar eru mjög fínir skólar sem bjóða upp á alls-
kyns námskeið, m.a. þar sem kennt er á nýtísku
vélar og tölvubúnað þeim tengdum.“
En er þörf á því að styrkja iðnaðinn sérstak-
lega með þessum hætti? „Það verður að segjast
eins og er að húsgagnasmíði hefur kannski ekki
akkúrat verið tískunámið á undanförnum ár-
um,“ svarar Guðmundur. „Húsgagna- og inn-
réttingaiðnaður á í gríðarlegri samkeppni við
innflutning og gengisstefnan er ekki hagstæð
fyrir okkur sem erum í húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðslu. Enda hefur fyrirtækjum fækk-
að gríðarlega í þessum iðnaði á undanförnum
áratugum.“
Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr
sjóðnum en að sögn Guðmundar fer upphæð og
fjöldi styrkjanna eftir því hversu margar um-
sóknirnar verða. Umsóknir má senda til Sam-
taka iðnaðarins, Borgartúni 35 merkt Félagi
húsgagna- og innréttingaframleiðenda. Um-
sóknarfrestur er til 1. mars 2006.
Iðnaður | Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Styrkir til náms erlendis
Guðmundur Ásgeirs-
son er framkvæmda-
stjóri Á. Guðmundsson.
Hann er húsgagnasmið-
ur að mennt, útskrif-
aðist frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1979 og hef-
ur starfað við hús-
gagnaframleiðslu síð-
an.
Hann hefur starfað í
stjórn Félags hús-
gagna- og innréttingaframleiðanda undan-
farin 15 ár og verið formaður frá árinu 2001.
Guðmundur er kvæntur Helgu Sigríði Ólafs-
dóttur og eiga þau tvö börn.
VERSLUNARPLÁSS ÓSKAST
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Höfum kaupanda að 200-300 fm
verslunarplássi á Laugaveginum.
Staðgreiðsla í boði.
Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
Um er að ræða alla húseignina nr. 13, sem er
kjallari, tvær hæðir og ris. Húsið saman
stendur af þremur íbúðum. Í kjallara er sam-
eiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, alls er
húsið um 280 fm. Eignin er skráð íbúð á 1.
hæð og íbúð á 2. hæð og í risi. Allar íbúðirnar
eru í tryggri leigu.
Á 1. hæð og 2. hæð hússins eru rúmgóðar,
fallegar og mikið endurnýjaðar 3ja herb. íbúðir,
auk 3ja herb. íbúðar í risi. Í kjallara eru svo
geymslur sem fylgja íbúðunum, svo og þvotta-
hús og þurrkherbergi. Ástand húss að utan mjög gott. Stigagangur og önnur sam-
eign í ágætis ástandi. Búið er að endurnýja rafmagn og rafmagnstöflur, járn á þaki
lítur vel út. Í heild afar fallegar og vel skipulagðar íbúðir í húsi sem lítur vel út.
Eignin selst í heilu lagi.
OPIÐ HÚS VERÐUR SUNNUDAGINN 29. JAN. FRÁ KL. 13-14.30
SÖLUMENN Á STAÐNUM
ÓSKAÐ ER EFTIR TILBOÐI Í EIGNINA
SELJAVEGUR 13, heildareignin - 3 íbúðir
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Síðumúla 33 - Sími 588 9490 - www.lyngvik.is - lyngvik@lyngvik.is
F A S T E I G N A S A L A
SÍÐUMÚLI - SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Um er að ræða vel staðsett 155
fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð.
Húsnæðið skiptist í opið rými,
þrjár skrifstofur, fundarherbergi,
eldhúsaðstöðu, tvær snyrtingar
og ræstiherbergi.
Verð 23 millj.
Hlutavelta | Þessir duglegu krakkar,
Hjörtur Ingason, Agnes Ársælsdóttir
og Unnur Eiðsdóttir, söfnuðu flöskum
að andvirði 5.201 til styrktar Rauða
kross Íslands.
Stórir bílar – mikill hraði
VIÐ vorum að koma úr Reykjavík sl.
mánudagskvöld, það var ágætt færi
en mikil þoka á Hellisheiðinni. Þegar
við vorum á leið upp brekkuna við
Skíðaskálann þá brá okkur heldur
betur því fram úr okkur tók flutn-
ingabíll með aftanívagn með miklum
háum farmi – og hann tók fram úr
okkur hægra megin. Til þess að
hann kæmist fram úr okkur urðum
við að færa okkur á akreinina fyrir
umferðina á móti. Ég tók eftir að
tengivagninn var ekki með númer en
hann var frá Landflutningum.
Þessir stóru flutningabílar eru oft
á miklum hraða og taka fram úr
fólksbílum en það á ekki að líða að
svona stórir bílar taki fram úr á
svona miklum hraða.
Við sem ökum mikið á þjóðvegum
þekkjum hvað þessir stóru bílar
keyra hratt og taka óspart fram úr
öðrum ökutækjum. Það getur ekki
verið að svona stórir bílar megi
keyra svona hratt. Manni stendur
stuggur af þessum flutningabílum
og hvet ég yfirvöld til að fylgjast
betur með þessu.
Selfyssingur.
Vsk-bílar og pallbílar
ÉG vil vekja athygli á bílunum með
rauðu númerin og misnotkunina á
þeim. Þessir bílar eru sendir út um
allt og standa jafnvel heima hjá not-
endum á kvöldin og nóttunni. Þeir
eru sendir út um sveitir, notaðir til
að flytja hestakerrur og rusl í sorpið
og það er jafnvel skroppið á þeim í
bíó. Það virðist ekkert eftirlit vera
með þessum bílum. Þessir bílar með
rauðu númerin eru vsk-bílar, þ.e.
fyrirtækin fá virðisaukaskattinn
endurgreiddan og endurgreiddan
vsk af eldsneyti. Og það er hinn al-
menni greiðandi sem er að greiða
með þessum bílum.
Og svo eru það stóru pallbílarnir.
Þessir bílar eru yfir 3,5 tonn og eiga
að vera á vörubílastæðum þar til
gerðum, en eiga ekki að vera á bíla-
stæðum við heimahús eða fjölbýli
þar sem maður sér þá iðulega. Fáir
ökumenn þessara bíla hafa réttindi á
þá því það þarf meirapróf til að
keyra bíl yfir 3,5 tonn. Það virðist
ekkert eftirlit vera með þessum bíl-
um heldur.
Bílstjóri.
Köttur týndist frá
Holtabyggð í Hafnarfirði
KÖTTURINN er högni, fullvaxinn,
svartur með rauða ól en ekkert
merkispjald. Hann hefur aldrei
komið út og ratar ekki heim. Hans
er mjög sárt saknað. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um ferðir hans
vinsamlega hafið samband við Birtu
eða Atla í síma 824 4313 eða
554 4957. 5.000 kr. fundarlaun!
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
RÍFLEGA þriðjungur frönsku þjóð-
arinnar talar ekki ensku, þrátt fyrir
að meirihluti hennar telji nám í öðr-
um tungumálum mikilvægt. Þetta
kemur fram í nýlegri rannsókn á
vegum franska dagblaðsins Dim-
anche Ouest France, sem gerð var
með þátttöku 1.004 Frakka yfir 15
ára aldri.
Tólf prósent þátttakenda sögðust
tala ensku reiprennandi, sex prósent
sögðust skilja hana og tala vel, og
48% sögðust skilja hana „meira og
minna“ en ekki tala hana reiprenn-
andi.
Þriðjungur þeirra sem tóku þátt í
könnuninni sagði það forgangsatriði
að kenna erlend tungumál, og var
meirihluti þeirra sem þannig svör-
uðu á aldrinum 50–64 ára, búsettur í
París eða gegndi háum stöðum.
Um 750 milljónir manna eru tald-
ar tala ensku sem annað tungumál,
samkvæmt vefsíðu British Council,
sem ætlað er að efla breska menn-
ingu og enska tungu.
Þriðjungur
Frakka talar
ekki ensku
Reuters