Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR eftir 2 daga ! MIKINN VIÐBÚNAÐ ÞARF Komi til þess að fuglaflensan sem nú breiðist út um Evrópulönd verði að heimsfaraldri í mönnum þarf að grípa til margs konar viðbúnaðar hér á landi. Meðal annars er hugs- anlegt að millilandaflug verði tak- markað við Keflavíkurflugvöll þar sem einnig yrði húsnæði sem nýtt yrði fyrir einangrun fólks. Myndir af misþyrmingum Áströlsk sjónvarpsstöð sýndi í gær áður óbirtar myndir af mis- þyrmingum á föngum í Abu Ghraib- fangelsinu í Bagdad í Írak á árinu 2003. Þykir viðbúið að þær muni kynda enn undir æsingnum í ísl- ömskum löndum en múslímar víða eru reiðir vegna birtingar skop- mynda af spámanninum Múhameð. Um tvö þúsund umsóknir Rúmlega þrjú hundruð fleiri um- sóknir um hreindýraveiðileyfi bár- ust í ár samanborið við í fyrra en umsóknarfrestur rann út á miðnætti á þriðjudag. Á milli 1.980 og 1.990 umsóknir höfðu borist til Umhverf- isstofnunnar á Egilsstöðum í gær en hugsanlegt er að fleiri umsóknir séu ókomnar í pósti. Straumi hleypt á ný ker Áfanga var náð í stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga þegar straumi var hleypt á fyrstu kerin af þeim 260 sem bætast við. Verður haldið áfram að ræsa ker fram í ágústmánuð þegar framleiðslan á að komast á fullt skrið. „Ég skaut vin minn“ „Það er ekki hægt að kenna öðr- um um. Ég er sá sem tók í gikkinn og skaut vin minn,“ sagði Dick Che- ney, varaforseti Bandaríkjanna, í gærkvöldi er hann gekkst við ábyrgð á því að hafa skotið óvart úr haglabyssu á veiðifélaga sinn. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 30 Fréttaskýring 8 Umræðan 30/33 Úr verinu 14 Bréf 33 Erlent 16/17 Minningar 34/37 Minn staður 18 Brids 38 Suðurnes 22 Hestar 43 Höfuðborgin 20 Myndasögur 41 Akureyri 21/22 Dagbók 44/47 Landið 23 Staður og stund 46 Austurland 21 Leikhús 48 Daglegt líf 24/23 Bíó 50/53 Neytendur 24/25 Ljósvakamiðlar 54 Menning 26/27 Veður 55 Forystugrein 28 Staksteinar 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %      &         '() * +,,,                   LÖGREGLAN í Naíróbí hefur handtekið höfuðpaurinn í hinni al- varlegu árás sem gerð var á heimili þar í borg 13. janúar þegar vopnaðir innbrotsþjófar héldu íslenskri stúlku ásamt fjölda fólks í gíslingu og beittu grófu ofbeldi. Árásin var gerð 13. janúar og voru þar að verki fimm menn sem ruddust inn í miðju teboði og rændu heim- ilisfólk og gesti þess. Íslenska stúlk- an var í vist á heimilinu á vegum Al- þjóðlegu ungmennaskiptanna og var send til Íslands fljótlega að lokinni athugun á sjúkrahúsi. Tæpum mánuði eftir innrásina, eða síðastliðinn föstudag, hafði lög- reglan hendur í hári foringja ræn- ingjahópsins eftir fyrirsát lögreglu við stað sem nefnist Ongata Rongai um 30 km suður af Naíróbí. Hinn handtekni á sakaferil að baki sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins og var eftirlýstur fyrir tvö morð, nauðgun og vopnuð rán. Aðdragandi handtökunnar var með þeim hætti að bróðir húsráð- andans sem lenti í árásinni var staddur í strætisvagni og sá hinn grunaða koma inn í vagninn. Hafði hann áður séð myndir af ræningj- anum og áttaði sig á að um sama mann var að ræða. Sendi hann lög- reglu sms-skilaboð úr vagninum og brást lögreglan við með því að senda menn í veg fyrir vagninn þar sem hinn grunaði var handtekinn. Með eindæmum fólskuleg árás Samkvæmt lýsingu eins fórnar- lambsins sem Morgunblaðið hefur verið í sambandi við var árásin með eindæmum fólskuleg. 15 manns voru í teboðinu og áttu sér einskis ills von þegar ræningjarnir létu til skarar skríða. Bæði börn og fullorðnir voru í boðinu og var það tiltölulega nýhafið þegar tveir menn vopnaðir byssum réðust inn. Héldu þeir rakleiðis út í bakgarð hússins þar sem fólkið var samankomið og skipuðu öllum að leggjast niður. Atburðurinn kom svo flatt upp á fólkið að það hélt að um grín væri að ræða að sögn heimildar- mannsins en alvaran kom fljótlega í ljós. Í fyrstu óttuðust ræningjarnir að nágrannar sæju hvað væri á seyði og ráku því fólkið inn í hús og bundu það. Í þessu bættist þeim liðsauki þriggja félaga sinna sem einnig voru vopnaðir byssum. Fólkið var bundið á höndum og fótum og jafnvel keflað. Börnin voru einnig bundin. Þegar hér var komið sögu hófu þeir bar- smíðar á varnarlausu fólkinu, en virtust ekki vita af íslensku stúlk- unni og annarri sænskri sem voru sofandi á efri hæð hússins. Ræningjarnir fundu stúlkurnar hins vegar þegar þeir fóru um efri hæðina og ráku þær í hóp hinna fanganna og bundu þær. Samkvæmt frásögn heimildarmannsins var sænsku stúlkunni nauðgað í árásinni og var hún flutt á kvennaspítala þeg- ar ræningjarnir loks létu sig hverfa. Öll hugsanleg verðmæti voru tek- in af fólkinu, veski, greiðslukort, skart og peningar. Konuna sem átti húsið beittu þeir kyrkingartaki þangað til hún féll í yfirlið og sömu útreið fékk íslenska stúlkan. Um- sátrið stóð yfir í tvær klukkustundir og héldu ræningjarnir þá á braut, læstu fólkið inni og tóku með sér húslyklana. Sagði heimildarmaður- inn að það hefði tekið fólkið um 10 mínútur að leysa af sér fjötrana og brjóta sér leið út til að gera nágrönn- um viðvart. Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglunni í Naíróbí og hafa íslensk lögregluyfirvöld einnig komið að málinu. Lögreglan í Naíróbí handtekur höfuðpaurinn í árásinni sem íslensk stúlka varð fyrir ásamt fjölda fólks Eftirlýstur fyrir tvö morð, nauðgun og rán Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is FLESTUM nægir að sjá eina stöðu- mælasekt á framrúðunni til að naga sig í handarbökin fyrir gleymsk- una. En fyrir kemur að sektirnar hlaðast upp þegar bílar eru ekki hreyfðir lengi og geta legið ýmsar ástæður fyrir því. Ljóst má vera að kostnaðurinn fyrir bíleigandann er töluverður þegar svona háttar til. En gjaldið rennur til Bílastæða- sjóðs Reykjavíkurborgar sem gerir ráð fyrir 384 milljóna kr. tekjum af stöðumælum og stöðubrotum fyrir árið 2005. Tekjurnar voru komnar í 259 milljónir í septemberlok 2005. Fyrir árið 2006 eru áætlaðar tekjur sjóðsins 432 milljónir kr. sam- kvæmt því sem fram kemur á vef sjóðsins bilast.skyrr.is/. Nýjasti greiðslumátinn í stöðumæla er með gsm-símum og er hægt að skrá sig í gegnum slóðina simastaedi.is.Morgunblaðið/Ómar Dýrt og kalt fyrir bílinn ÞINGFLOKKUR Vinstri grænna hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um að fram fari þjóð- aratkvæðagreiðsla um stóriðjufram- kvæmdir samhliða kosningum til sveitarstjórna hinn 27. maí nk. „Við viljum spyrja hvort þjóðin vilji áframhaldandi stórfellda uppbygg- ingu stóriðju í landinu á næstu árum eða hvort hún vilji að allar frekari framkvæmdir af því tagi verði settar í biðstöðu að minnsta kosti til ársins 2012,“ segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður VG. Í tillögunni er lagt til að dómsmálaráðherra verði falið að undirbúa og kynna kosn- inguna. Í greinargerð tillögunnar segir að atvinnustefna stjórnvalda hafi, síð- ustu áratugi, einkennst mjög af áherslum á stórvirkjanir í stærstu fallvötnum landsins í þágu álfram- leiðslu fjölþjóðafyrirtækja. Ögmund- ur sagði að þessi mál, þ.e. stóriðju- málin, snertu ýmis grundvallaratriði, s.s. mengunarmál, umhverfisvernd og framtíð efnahagslífsins. „Við teljum því eðlilegt að þjóðin fái tækifæri til að segja hug sinn í þessum efnum.“ Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður sagði að í ljósi þeirrar umræðu sem fram hefði farið um þjóðaratkvæða- greiðslur, í kringum störf stjórnar- skrárnefndarinnar, fyndist sér tíma- bært að menn stæðu við stóru orðin. Hún sagði að allir virtust vilja, í orði kveðnu að minnsta kosti, að þjóðin fengi að kjósa um mikilvæg málefni. „En hvenær eigum við að láta til skar- ar skríða? Við gerðum það ekki við Kárahnjúkavirkjun, en þá skulum við gera það núna.“ Þjóðin fái að kjósa um stóriðjustefnuna RANNSÓKN á morðinu á Jóni Þór Ólafssyni verkfræð- ingi hjá ENEX og Brendu America Salinas Jovel í El Salvador hefur ekki leitt til handtöku enn sem komið er. Að sögn Violetu Polanco, talsmanns lögreglunnar í San Salvador getur lögreglan ekki tjáð sig um einstök atriði rannsóknarinnar en staðfest er þó að krufning á hinum látnu hefur farið fram á rétt- arlæknisfræðistofnun og að krufningarskýrsla sé komin til lögreglu. „Það er ekki búið að hand- taka neinn og við getum hvorki tjáð okkur um ástæðu morðanna, né um tengsl hinna myrtu að svo stöddu,“ sagði Polanco. Rannsóknina annast úrvalsdeild lögreglunnar sem er sérhæfð í að rannsaka glæpagengi og skipulagða glæpastarfsemi í El Salvador. Vegna málsins hefur Al- þjóðadeild ríkislögreglustjóra sent fyrirspurn til alþjóðalög- reglunnar Interpol í El Salva- dor. Morðrann- sóknin hefur ekki leitt til handtöku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.