Morgunblaðið - 16.02.2006, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
eftir 2 daga !
STRAUMI var hleypt á fyrstu ker-
in í nýjum áfanga álvers Norðuráls
á Grundartanga í gær, en þegar
stækkunin verður að fullu komin í
notkun verður ársframleiðsla ál-
versins komin úr um 90 þúsund
tonnum í dag í 220 þúsund tonn. Í
næsta áfanga er svo ráðgert að
stækka um 40 þúsund tonn til við-
bótar.
Það var Jack Gates, aðstoðarfor-
stjóri Century Aluminum, móður-
félags Norðuráls, sem hleypti
straumi á fyrsta kerið af þeim 260
sem bætast við með stækkuninni
við hátíðlega athöfn í kerskálanum
í gærmorgun. Í framhaldinu
klipptu þau Valgerður Sverrisdótt-
ir iðnaðarráðherra og Logan W.
Kruger, nýr forstjóri Century Al-
uminum, á borða og opnuðu leið að
kerunum.
Stækkunin verður tekin í notkun
smátt og smátt fram eftir ári, og
straumi hleypt á síðustu kerin í
ágúst. Þó er enn verið að reisa
eystri hluta kerskálans sem hýsir
kerin sem sett voru í gang í gær.
Um er að ræða 130 þúsund tonna
aukningu á framleiðslu á ársgrund-
velli, sem er tæplega 150% aukning
á framleiðslugetu. Stækkunin gerir
álverinu kleift að framleiða um 220
þúsund tonn, og þegar eru uppi
áform um stækkun í 260 þúsund
tonn, og ef tiltekin skilyrði verða
uppfyllt er fyrirhugað að þeirri
framkvæmd ljúki árið 2008.
Raforkan öll frá
jarðvarmavirkjunum
„Þessi stækkun er hluti af lang-
tímaáætlun fyrirtækisins [Century
Aluminum], og við hlökkum til að
eiga hér samstarf og viðskipti við
Íslendinga um ókomna tíð,“ sagði
Logan W. Kruger, forstjóri Cent-
ury Aluminum, við athöfnina í gær.
Þegar stækkunin verður að fullu
komin í notkun verða starfsmenn
Norðuráls orðnir 355, en áður en
farið var að stækka álverið voru
þeir tæplega 200. Búið er að ráða
að mestu í nýju störfin. Aukning
útflutningsverðmæta frá Íslandi
vegna stækkunarinnar mun nema
um 16 milljörðum króna á árs-
grundvelli, miðað við meðalverð á
áli til lengri tíma.
Það þykir marka nokkur tíma-
mót að raforkan til stækkunarinn-
ar kemur eingöngu frá jarðvarma-
virkjunum, bæði frá Orkuveitu
Reykjavíkur og Hitaveitu Suður-
nesja, en orkan sem notuð er í öðr-
um hlutum álversins kemur bæði
úr jarðvarma- og vatnsaflsvirkjun-
um.
„Verkinu hefur miðað vel og
áfallalaust áfram, og ef til vill þess
vegna hefur verið fremur hljótt um
það í almennri umfjöllun,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra í ávarpi sínu við gang-
setninguna í gær. „Öll skipulagn-
ing og framkvæmd verksins hefur
verið farsæl og hagstæð fyrir ís-
lenskt atvinnulíf. Því hefur verið
skipt í hæfilega áfanga, sem gert
hefur íslenskum fyrirtækjum kleift
að takast á við það.“
Grunnur að útflutningi
tækniþekkingar
Valgerður hrósaði sérstaklega
Norðuráli fyrir að hafa í gegnum
árin nýtt íslenskt hugvit og verk-
kunnáttu.
„Framkvæmdirnar hafa verið
undir stjórn verkfræðistofu HRV,
sem samanstendur af íslensku
verkfræðifyrirtækjunum Hönnun,
Rafhönnun og VST. Þetta er í
fyrsta skipti sem innlendir verk-
fræðingar sjá nánast alfarið um
hönnun og framkvæmdaeftirlit
með verkefni af þessu tagi,“ sagði
Valgerður.
„Það hefur orðið til verðmæt
þekking sem nú hefur myndað
grunn að útflutningi tækniþekking-
ar. Ef vel tekst til við að markaðs-
setja þessa þekkingu erlendis gæti
hér verið komið upphaf að mik-
ilvægum útflutningi á þekkingar-
starfsemi í framtíðinni, sem mun
tvímælalaust verða til þess að efla
starfsemina hér heima enn frekar.
Alls hafa um 100 íslenskir verk-
fræðingar komið að þessu verki,
auk um 600 starfsmanna bygging-
arverktaka, en um 85% þeirra hafa
verið Íslendingar,“ sagði hún enn-
fremur.
Nýr áfangi álvers Norðuráls á Grundartanga í notkun á næstu mánuðum
Morgunblaðið/Ómar
Stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga hefur gengið vel, en ársframleiðslan verður 220 þúsund tonn í haust.
Straumur á fyrstu kerin
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Logan W. Kruger, forstjóri Century Aluminum, og Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra klipptu á borða við kerin sem gangsett voru í gær.
LOGAN W. Kruger, nýr forstjóri Century Aluminum,
móðurfélags Norðuráls, segir að staða fyrirtækisins sé
góð, sér í lagi með aukinni framleiðslu í kjölfar stækk-
unar á Grundartanga.
„Fyrirtækið stendur vel, og markaðurinn fyrir ál
stendur vel svo ég met það svo að staðan sé í heildina
mjög góð,“ segir Kruger í samtali við Morgunblaðið.
„Ég er persónulega mjög ánægður, bæði fyrir hönd
Norðuráls og Century Aluminum með framtíðarmögu-
leika Norðuráls hér á Íslandi.“
Hann segir Íslendinga geta verið stolta af stækkun
álversins á Grundartanga. „Þessi stækkun sem við
hleyptum strauminum á í dag er Íslendingum að þakka.
Íslenskur almenningur, íslenska ríkisstjórnin, íslenskir
bankar og íslenskir sérfræðingar og starfsmenn eiga
þátt í hversu vel hefur gengið, og ég held að það séu
ekki mörg dæmi um álíka verk sem hafa gengið svo vel
í heiminum. Tímaáætlanir hafa staðist vel, og fjárhags-
áætlanir einnig, svo ég er mjög ánægður með það
hvernig þetta verk hefur gengið.“
Spurður hvort þetta góða gengi hafi áhrif á fyrir-
ætlanir fyrirtækisins í Helguvík á Reykjanesi, segir
Kruger álver í Helguvík afar spennandi möguleika, og
nú sé unnið að umhverfismati. „Ég hef alla trú á því að
það sé framtíðarverkefni fyrir okkur. Persónulega
vildi ég fá það verkefni í gang fyrr en síðar, en það eru
enn þættir sem eftir á að vinna, til dæmis samningar
um raforku, umhverfismat og hönnunarvinna.“
Kruger segir allt stefna í það að næstu tíu árin verði
áhugaverður tími fyrir Century Aluminum. „Í fyrsta
lagi viljum við auka framleiðslu okkar á Íslandi, sem og
í öðrum álverum okkar í heiminum. En við lítum svo á
að Ísland sé grundvöllur í áætlunum okkar fyrir fram-
tíðina.“ Hann segir Century Aluminum einnig hafa
uppi áform um að auka umsvif sín með því að hefja
framleiðslu á súráli.
Þrátt fyrir aukna eftirspurn eftir orku til álfram-
leiðslu, segist Kruger ekki hafa áhyggjur af því að
erfitt verði að fá orku fyrir frekari stækkun, eða
hugsanlegt nýtt álver. „Ég held að við munum bjóða
upp á bestu framtíðarhorfurnar og bestu tækifærin.
Okkar álver er vel staðsett, við njótum stuðnings úr
samfélaginu, og það er meðal þess sem á eftir að skipta
miklu máli í framtíðinni.“
Ekki mörg dæmi um
verk sem ganga jafnvel
KVENNAHREYFINGIN hefur lagt
fram tillögur að endurbótum á
stjórnarskrá Íslands. Birna Þór-
arinsdóttir, framkvæmdastýra
UNIFEM á Íslandi, segir tillögurn-
ar hafa jafnrétti kynjanna að leið-
arljósi og að þær byggist á þeirri
staðreynd að í reynd ríki ekki jafn-
rétti.
„Stjórnarskráin þarf að endur-
spegla þann raunveruleika og mæla
fyrir um skyldur stjórnvalda til úr-
bóta,“ sagði Birna. Opnaður hefur
verið undirskriftalisti inn á heima-
síðu UNIFEM þar sem hægt er að
lýsa yfir stuðningi við tillögurnar.
Listinn verður síðan afhentur
stjórnarskrárnefnd.
Tillögur þessar voru fyrst kynnt-
ar stjórnarskrárnefnd í júní á síð-
asta ári.
Krefjast breytinga
á stjórnarskránni
ELDRI hjón voru flutt á slysadeild
eftir árekstur á mótum Snorra-
brautar og Egilsgötu um kl. hálf-
fimm síðdegis í gær. Þau slösuðust
þó ekki alvarlega að sögn lögregl-
unnar. Þau voru í bíl sem lenti á
öðrum bíl á gatnamótunum og rák-
ust ökutækin á kyrrstæðan bíl sem
þar stóð hjá.
Sjúkrabílar og tækjabíll slökkvi-
liðsins voru sendir á vettvang og
voru bílarnir sem í árekstrinum
lentu fjarlægðir með krana. Þó
nokkur ár eru síðan umferðarljós
voru sett upp á gatnamótunum og
er slysatíðni þar ekki hærri en
gengur og gerist í borginni. Til-
drögin í gær munu hafa verið þau
að sól blindaði annan ökumannanna
með fyrrgreindum afleiðingum.
Hjón slösuðust
í árekstri
FYRIR liggur að
sameina stjórnir
kirkjugarða á
landinu. Í dag
eru þær 250 tals-
ins, þar af 190 í
dreifbýli. Flestar
eru sóknirnar í
dreifbýlinu með
færri en 100 íbúa
og að jafnaði er
ekki jarðsett oft-
ar en annað eða
þriðja hvert ár.
Sameining mun auka rekstrar-
hagkvæmni og bæta samninga við
garðyrkjumenn og grafartöku-
menn.
Kirkjugarðar í Eyjafirði hafa
þegar hafist handa við að sameina
sinn rekstur, kirkjugarðarnir verða
þó á sínum stað um ókomna tíð.
Þetta kemur fram í fréttabréfi
Kirkjugarðasambands Íslands.
Sameining kirkju-
garðastjórna á
landsbyggðinni