Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 11

Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Laugavegi 28, sími 562 6062 Útsala St. frá 34-46 Enn meiri afsláttur Nýtt kortatímabil VANTAR ÞIG GÓÐAR SÍÐBUXUR? Tískuverslun Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970 Finnur þú ekki stærðina þína? Gerum buxur eftir pöntun. Opið: mán.-fös. kl. 14-18. Hlíðasmára 11, Kóp. s. 517 6460 • Stærðir 38-60 Á Akureyri Hafnarstræti 94 Nýjar vörur - Útsala Adeins 16.-18. febrúar Nýtt kortatímabil fyrri umsögn, en þar var mikilvæg- asta athugasemdin sú að skilgrein- ing á útvarpsþjónustu í almanna- þágu væri alltof víðtæk og óljós. Engin marktæk breyting hafi orðið að þessu leyti í nýju frumvarpi, þó ljóst sé að íslensk stjórnvöld hafi talsvert svigrúm til túlkunar hvað þetta snertir miðað við fordæmi á Evrópska efnahagsvæðinu. Heimildarákvæði Síðan segir: „Ekki er þó heimilt að víkja frá þeim skilyrðum sem nefnd eru í athugasemdum ESA til íslenskra stjórnvalda. Ólíkt því sem EES reglur um ríkisaðstoð krefj- ast og getið er um í athugasemdum ESA, er ekki með skýrum hætti mælt fyrir um skyldu RÚV til að veita tiltekna og magngreinda þjónustu í almannaþágu gegn þeim ríkisstyrk sem félaginu er ætlaður, heldur er ákvæðið skrifað nánast eins og heimildarákvæði í kringum alla núverandi starfsemi RÚV. Þegar þannig er búið um hnút- ana er ákvæði um fjárhagslegan aðskilnað dauður bókstafur. Þá er ákvæði um tekjustofna RÚV óbreytt frá fyrra frumvarpi. Láta SA því á ný í ljós efasemdir um að nefskattur sem veitir eigi lægri ríkisstyrk en núverandi afnotagjöld gera geti falið í sér ásættanlega lausn á fjármögnun Ríkisútvarps- ins og að verjandi sé að ráðstafa opinberu fé til RÚV í þeim mæli sem gert hefur verið undanfarin ár.“ SAMTÖK atvinnulífsins leggjast gegn því að frumvarp til laga um Ríkisútvarpið verði að lögum, þar sem frumvarpið samrýmist ekki ákvæðum samningsins um Evr- ópska efnahagssvæðið um ríkis- styrki, sé í andstöðu við markmið samkeppnislaga og tryggi ekki við- unandi jafnræði milli opinberra að- ila og einkaaðila í útvarpsrekstri. SA telur þó að frumvarpið feli í sér vissa framför frá fyrra frum- varpi þar sem nú sé gert ráð fyrir að RÚV verði hlutafélag alfarið í eigu ríkisins en ekki sameignar- félag eins og áður og það sé til bóta að nú sé gert ráð fyrir þeim möguleika að fjárhagslegur að- skilnaður verði milli útvarps í al- mannaþágu og annarrar hugsan- legrar starfsemi Ríkisútvarpsins. Þetta kemur fram í umsögn Samtaka atvinnulífsins um frum- varp til laga um Ríkisútvarpið hf., en áður höfðu samtökin gefið um- sögn um fyrra frumvarp sem lagt var fram á síðasta löggjafarþingi. Í umsögninni nú er vísað til bréfs Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá því í fyrrasumar þar sem kemur fram sú afstaða ESA að fjármögnun RÚV með nefskatti feli í sér ríkisaðstoð sem sé ósam- þýðanleg ákvæðum EES-samn- ingsins nema að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá er vísað til athugasemda SA í SA leggjast gegn frumvarpi um RÚV hf. Tryggir ekki við- unandi jafnræði Framför að RÚV verði hlutafélag Morgunblaðið/Árni Sæberg JARÐSKJÁLFTI upp á 2,9 stig á Richter varð undir Esjufjöllum í Vatnajökli kl. 3.19 í fyrrinótt. Að sögn Bergþóru S. Þorbjarnar- dóttur á eðlisfræðisviði Veður- stofunnar mældust ekki fleiri skjálftar á svæðinu. Einstakir skjálftar og hrinur eru ekki óal- geng á svæðinu að sögn hennar en síðast kom skjálftahrina þar í október 2002. Skjálftar hafa einnig mælst við Grímsey og var mesti styrkurinn 11. og 12. febrúar, um og yfir 3 á Richter en fjaraði út í miðri vik- unni. Að sögn Bergþóru mældist engin virkni þar í gær. Skjálfti í Vatnajökli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.