Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 14

Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Cayenne Turbo S prófaður í eyði- mörkinni í Dubai Bílar á morgun AKUREYRI ÚTGERÐ frystitogarans Baldvins Njálssonar GK, sem sjávarútvegs- fyrirtækið Nesfiskur ehf. í Garði gerir út, hefur gengið ágætlega síð- an útgerð hans hófst í lok ágúst- mánaðar á síðasta ári. Togarinn kom inn til löndunar í Hafnarfirði úr sínum fjórða túr með yfir 9.000 kassa af frosnum afurð- um, blönduðum afla, aðallega þorski og karfa, sem skipið fékk á Vest- fjarðamiðum og suð-vestur af land- inu. Að sögn Ingibergs Þorgeirsson, útgerðarstjóra Nesfisks, er afla- verðmætið í þessari veiðiferð lið- lega 62 milljónir. „Nesfiskur gerir út nokkra snur- voðarbáta auk ísfisktogara og rekur öfluga fiskvinnslu í Garðinum og Sandgerði, en tilkoma frystitogar- ans, sem áður hét Ímir HF, mun ekki taka afla frá landvinnslunni þó aldrei sé nægur kvóti, heldur er leigður kvóti til að halda rekstri hans algjörlega aðskildum,“ sagði Ingibergur. Útgerð Baldvins Njálssonar gengur vel Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson EINAR K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra átti í gær fund í Ósló með Helgu Pedersen sjávarútvegs- ráðherra Noregs. Á fundinum var rætt um þau mál sem eru efst á baugi í samskiptum landanna á sviði sjávarútvegs, bæði þar sem Ísland og Noregur standa saman og þar sem ágreiningur er. Helsta ágreiningsefnið er stjórn veiða úr norsk-íslenska síldar- stofninum. Ráðherrarnir ræddu þá stöðu sem upp er komin í þessu máli í kjölfar þess að Norðmenn hafa tekið sér stærri hlutdeild úr veiðunum, en þeir höfðu sam- kvæmt samningnum sem áður var í gildi. Einar lagði áherslu á að nú- verandi ástand leiddi til ofveiða og setti stofninn í hættu. Allir aðilar hefðu hag af því að stöðugleiki ríkti og að veiðarnar gengju ekki of nærri stofninum. Ráðherrarnir vilja leita leiða til þess að leysa þann hnút sem málið er komið í og var í því sambandi bent á að sam- ráð hagsmunaaðila hefði haft já- kvæð áhrif til lausnar kolmunna- deilunnar á síðasta ári. Samstarf á sviði hvalveiða Full samstaða er með ráðherr- unum um að nýta beri hvalastofna. Rætt var um áform landanna varð- andi hvalveiðar, í því sambandi kynnti Helga Pedersen samþykkt Stórþingsins um að fela Norður- Atlantshafs-sjávarspendýraráðinu (NAMMCO) hlutverk í stjórn hval- veiða Norðmanna. Ennfremur ræddu ráðherrarnir um möguleika á frekara samstarfi varðandi milli- ríkjaverslun með hvalaafurðir. Ráðherrarnir voru sammála um að halda áfram því góða samstarfi sem verið hefur milli þjóðanna í þessum málaflokki. Rætt var um ólöglegar veiðar, bæði í Barentshafi og á Reykja- neshrygg, og farið yfir aðgerðir þjóðanna gegn þessum veiðum. Báðar þjóðirnar hafa hafið sér- stakt átak gegn ólöglegum fisk- veiðum sem meðal annars felst í því að hindra viðskipti þjónustuað- ila við þá sem stunda ólöglegar veiðar og gera þessum aðilum erf- iðara að koma afurðum sínum á markað. Lofuðu Norðmenn það framtak Íslands að senda mark- aðsaðilum sérstakt bréf þar sem varað er við viðskiptum við útgerð- ir þeirra skipa sem stundað hafa ólöglegar karfaveiðar á Reykja- neshrygg. Einar skýrði frá stöðu mála í loðnuveiðum en vegna gildandi samninga við Norðmenn þarf að fjalla um hvernig bregðast skuli við því að Norðmenn geta ekki veitt það magn sem þeim ber sam- kvæmt gildandi samningum. Ákveðið var að hefja viðræður um málið að lokinni loðnuvertíð. Leita leiða til lausnar síldardeilu FJALLAÐ er um rannsóknir og starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) í opnugrein í nýjasta hefti bandaríska tímaritsins Time. Greinin ber fyrirsögnina „Íslandstilraunin. Hvernig örsmá eyþjóð náði foryst- unni í erfðafræðibyltingunni.“ Farið er yfir tíu ára sögu ÍE og lýst fjölmörgum uppgötvunum og rannsóknaniðurstöðum ÍE á umliðn- um árum. Þar er m.a. fjallað um að vísindamönnum ÍE hafi nýlega tekist að finna erfðabreytileika sem virðist hafa veruleg áhrif á hættuna á að fólk fái syk- ursýki 2, og greint er frá því að innan fárra vikna hefjist lokafasi lyfjaprófana sem byggist á uppgötvun á erfðabreytileika sem tengist auknum líkum á hjartaáföllum, einkum meðal svartra Bandaríkja- manna. Rætt er um rannsóknir ÍE við dr. Francis Collins, hjá bandarísku heilbrigðisstofnuninni, en hann hefur einnig stýrt svonefndri genamengisáætlun (e. Human Genome Project). Collins lýsir mikilli hrifningu sinni á þeim árangri sem ÍE hefur náð. „Það sem deCODE [móðurfélag ÍE] er að gera er auðsjáanlega spennandi og ég óska þeim til hamingju,“ segir Collins. Í grein- inni segir að starfsemi ÍE njóti mikils stuðnings meðal Íslendinga. Fyrirtækið hafi nú safnað blóðsýnum úr um 100 þúsund einstaklingum, sem hafi m.a. gert vís- indamönnum ÍE kleift að ná fyrrnefndum árangri í rannsóknum á orsökum hjartaáfalla. Leiða megi líkur að því að lyfjaþróunin geti leitt af sér minni hættu á hjartaáföllum og aukið lífslíkur, þótt nokkur ár geti liðið áður en lyfið kæmist á markað í Bandaríkjunum. Lýst er samstarfi ÍE og svissneska lyfjafyrirtæk- isins Hoffmann-La Roche um kortlagningu erfðavísa sem tengjast ýmsum sjúkdómum og velt er upp spurningum um hvort tryggingafélög og atvinnurek- endur muni notfæra sér uppgötvanir mannerfðafræð- innar um erfðaþætti sem tengjast sjúkdómum, til að mismuna viðskiptavinum og starfsmönnum. Tímaritið ber þetta undir Kára Stefánsson, forstjóra ÍE, sem segir Bandaríkjamenn til þessa ekki hafa þurft á erfðafræði að halda til að beita svarta Bandaríkja- menn misrétti. ,,Það hafið þið gert algerlega án að- stoðar erfðafræðiuppgötvana.“ Time fjallar um Íslenska erfðagreiningu í opnugrein Í forystu fyrir erfða- fræðibyltingunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.