Morgunblaðið - 16.02.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 19
MINNSTAÐUR
Básúnu- og túbutónleikar |
Timothy William Buzbee túbuleik-
ari og Jessica Gustavsson bás-
únuleikari halda tónleika í Lista-
safni Reykjanesbæjar næst-
komandi sunnudag, klukkan 17.
Timothy William Buzbee er
Bandaríkjamaður og nýráðinn aðal
túbuleikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Hann hefur haldið tón-
leika víða um heim, m.a. í Banda-
ríkjunum, Asíu og Mexíkó og
haldið námskeið og fyrirlestra í
tónlistarháskólum, á tónlist-
arhátíðum og ráðstefnum víðs veg-
ar.
Jessica Gustavsson, sem er
sænsk, er 1. básúnuleikari Sinfón-
íuhljómsveitarinnar í Gävle í Sví-
þjóð. Hún hefur haldið fjölda tón-
leika víða um heim, haldið
fyrirlestra á tónlistarráðstefnum
sem og einleikstónleika í tengslum
við þær og fengið góða dóma fyrir
tónlistarflutning sinn, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Tónlistarskólanum í Reykjanesbæ.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
vinnu við menningarfulltrúa
Reykjanesbæjar og Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar og fá nemendur
Tónlistarskólans afslátt af verði
aðgöngumiða.
Reykjanesbær | Níu vinir í Innri-
Njarðvík lögðu leið sína á Barna-
spítala Hringsins sl. mánudag til
þess að afhenda Hjörleifi Jóhann-
essyni 21 þúsund krónur sem börn-
in höfðu safnað til styrktar Bryndísi
Evu, dóttur hans og Bergþóru Ólaf-
ar Björnsdóttur sem liggur alvar-
lega veik á sjúkrahúsinu.
Bryndís Eva Hjörleifsdóttir var
lögð inn á Barnaspítala Hringsins í
desemberbyrjun sl. vegna mikilla
krampa sem hún fékk. Henni var í
fyrstu haldið sofandi en í rúma tvo
mánuði hefur verið reynt að finna
rétta lyfjaskammtinn handa henni.
Börnin fréttu af veikindum Bryn-
dísar Evu í febrúarbyrjun og um
leið og foreldrarnir fóru að ræða
málin við þau létu þau til skarar
skríða. Þau ákváðu að hefja söfnun í
því skyni að styðja við bakið á þeim,
en Hjörleifur er gamall kennari
þeirra allra, bæði úr Njarðvík-
urskóla og Holtaskóla. Þau byrjuðu
á því að teikna myndir og selja í
húsum í Innri Njarðvík, seldu blöð
og heimabakaðar bollur og héldu
tombólu við einn stórmarkaðanna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þessi sömu krakkar standa fyrir
umfangsmikilli söfnun. Þegar þau
voru nemendur í 1. HM í Njarðvík-
urskóla komu þau saman tvær dag-
stundir ásamt öðrum bekkjar-
félögum og föndruðu kort sem þau
seldu til styrktar fjórum börnum
Kristínar heitinnar Ólafsdóttur á
Tálknafirði. Þar var grunnurinn
lagður. Vinirnir níu stunda nú allir
nám í 3. bekk Akurskóla og heita
Berglind Björgvinsdóttir, Ellen
Hilda Sigurðardóttir, Karítas Lára
Rafnkelsdóttir, Ólafur Andri Magn-
ússon, Ríta Kristín Haraldsdóttir,
Salka Björt Kristjánsdóttir, Teitur
Ari Theódórsson, Thelma Lind
Karlsdóttir og Þórdís Helga Más-
dóttir.
„Ég kaupi eitthvað fallegt handa
Bryndísi Evu,“ sagði Hjörleifur
þegar hann tók á móti peningunum.
Hann hældu krökkunum fyrir vaska
framgöngu og dugnað og eyddi með
þeim dágóðri stund sem þau mátu
mikils, enda eiga þau hvert bein í
Hjörleifi eftir að hann kenndi þeim.
„Kaupi eitthvað fallegt
handa Bryndísi Evu“
Morgunblaðið/Svanhildur
Söfnunarféð afhent Börnin vildu öll fá að halda í umslagið og afhenda
Hjörleifi Jóhannessyni peningana til styrktar dóttur hans, Bryndísi Evu.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
SUÐURNES
Keflavík | Vox Arena, leikfélag
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
Keflavík, hefur í samvinnu við
Leikfélag Keflavíkur hafið æfingar
á nýju leikriti. Sigurður Eyberg,
leikari og fyrrum nemandi skól-
ans, hefur tekið að sér að leik-
stýra verkinu sem verður samið af
hópnum.
Á heimasíðum Fjölbrautaskól-
ans og Leikfélagsins er auglýst
eftir áhugasömu fólki til að vinna
við uppsetninguna og sérstaklega
tekið fram að það vanti fólk yfir
tvítugu.
Semja og æfa
nýtt leikrit
FRÉTTIR
mbl.is