Morgunblaðið - 16.02.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 16.02.2006, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR kápur, jakkar, bolir, buxur og samkvæmisklæðnaður Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. Sími 462 3505. Opið virka daga 10-18, laugardaga kl. 10-16. NÝTT KORTATÍMABIL HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI lausa bíla undanfarnar tvær vikur, þar sem eigendum er gefinn viku- frestur til að fjarlægja ökutækin. Í frétt Umhverfissviðs segir að bílhræin leynist víða, við bílskúra, á almennum bílastæðum, bak við hús eða á víðavangi. Telja starfsmenn Umhverfissviðs sennilegt að ástæð- an fyrir aukningu þeirra sé falin í því að fjölgað hafi í bílaflotanum í borg- inni, íbúar skipti örar um bifreiðar og eigi fleiri en eina. Brýnt er að fjarlægja bílhræ bæði vegna mögulegrar mengunar, sjón- mengunar og hættu sem skapast á slysum, t.d. vegna brotinna rúða. Þá er hinn mesti subbuskapur og óprýði að slíkum bílhræjum og gefa þau slæmt fordæmi fyrir annarri um- gengni við umhverfi borgarinnar. Skráðir eigendur ökutækja geta skilað ökutæki til úrvinnslu og fengið skilagjald, en aftur á móti þarf eig- andi að greiða fyrir þann kostnað sem hlýst af því ef fjarlægja þarf bif- reiðina með aðgerðum. Það ætti því að vera eigendum hræjanna í hag að koma þeim á haugana áður en borg- arstarfsmenn ganga í málið. Reykjavík | Nokkuð ber á fjölgun mála vegna bifreiða í niðurníðslu á borgarlandi og einkalóðum undan- farið og segir Tómas G. Gíslason heilbrigðisfulltrúi hjá Umhverfis- sviði Reykjavíkurborgar slík mál viðamikinn kæruflokk, en jafnframt viðkvæman. Þetta kemur fram í frétt á síðu Umhverfissviðs Reykjavíkur- borgar, www.umhverfissvid.is. Á liðnu ári voru 1276 tilkynningar límdar á bifreiðar þar sem eiganda var gert að fjarlægja gripinn. Málaflokkurinn er sameiginlega á höndum Umhverfissviðs og Fram- kvæmdasviðs, en Umhverfissvið gerir athugasemdir við bifreiðar í niðurníðslu á borgarlandinu og Framkvæmdasvið fjarlægir númers- lausar bifreiðar. Bifreiðar á sam- eignalóðum fjölbýlishúsa má fjar- lægja að ósk húsfélags og Umhverf- issvið gerir athugasemdir við bifreiðar í niðurníðslu á einkalóðum, en gerir aftur á móti ekki athuga- semdir við númerslausar bifreiðar á einkalóðum ef þær eru ekki bílhræ. Um eitt hundrað tilkynningar hafa verið límdar á bílhræ eða númers- Bílhræjum fjölgar ört Samkomulagið kveður á um sam- starf bæjarfélagsins og Leirvogs- tungu um alhliða uppbyggingu á u.þ.b. 400 íbúðum ásamt, gatna- gerð, byggingu skólamannvirkja o.fl. atriða sem eru órjúfanlegur hluti við uppbyggingu á nútíma íbúðahverfi. Mosfellsbær | Fulltrúar Leirvogs- tungu ehf og Mosfellsbæjar und- irrituðu í gær samkomulag um upp- byggingu íbúðabyggðar í Leirvogs- tungu í Mosfellsbæ. Samkomulagið er gert í fram- haldi af viljayfirlýsingu sömu aðila um sama efni frá því í ágúst 2005. Samkomulag um uppbygg- ingu í LeirvogstunguANDARUNGINN Engilráð, sem þekkt er úr Stundinni okkar, heim- sótti börnin á Barnaspítala Hrings- ins í gær. Spjallaði hún og sprellaði við börnin auk þess sem hún söng Faðmlagið. Þá færði Engilráð leik- stofu Barnaspítalans tuskudýrið Engilráð að gjöf. Engilráð segir að það sé mikið hjartans mál að fá að faðma sem flesta krakka, stóra sem smáa, mjóa og mjúka. Þá viti hún fátt sem jafnast á við hlý faðmlög, sem geti gert kraftaverk, virkað uppörvandi og verið huggun á erfiðum stund- um. Þótt Engilráð geti ekki sjálf heimsótt spítalann eins oft og hún vildi verður tuskudýrið Engilráð alltaf á leikstofu spítalans til að knúsa, kreista og hvísla að öll heimsins leyndarmál. Að sögn starfsfólks Sjónarhóls geta tuskudýr örvað tilfinninga- þroska barna, hjálpað þeim að tjá ástúð og væntumþykju eða verið hughreystandi og dregið úr streitu á erfiðum augnablikum. Þá hvetji þau til samskipta fólks, glæði ímyndunarafl og veki forvitni. Morgunblaðið/Ásdís Viðstaddir fylgdust kátir með ærslum Engilráðar á Barnaspítalanum og kunnu vel að meta skemmtilegt fas hennar. Engilráð heimsótti Barnaspítalann Sundlaug | Sveitarstjórn Eyjafjarð- arsveitar hefur samþykkt að ganga að end- urskoðuðu tilboði B. Hreiðarssonar ehf. í annan og síðari áfanga sundlaugarbygg- ingar við Hrafnagil en það hljóðar upp á tæpar 122 milljónir króna sem er tæplega 16% yfir kostnaðaráætlun. Skilafrestur er framlengdur til 1. ág. 2006.    Reiðvegur | Hestamannafélagið Þrá- inn hefur farið fram á að Grýtubakka- hreppur skipuleggi og veiti leyfi fyrir reiðvegi frá Kaplaskjóli norður á Skælu. Jafnframt er óskað eftir því að sveitar- félagið standi straum af kostnaði við byggingu vegarins. Sveitarstjórn tók á fundi sínum í vikunni jákvætt í að koma slíkum vegi á skipulag. Varðandi fram- kvæmdir sér hún sér ekki fært að verða við beiðninni, þar sem framkvæmdirnar rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar ársins.    Í samband | Sveitarstjórn Grýtubakka- hrepps hefur borist undirskriftalisti þar sem 112 íbúar sveitarfélagsins skora á Símann að koma upp ADSL-tengingu (bæði tölvu- og sjónvarpssambandi) á Grenivík hið fyrsta. Sveitarstjóra hefur verið falið að koma listanum á framfæri við Símann.    Afmælisgjöf | Skólanefnd hefur sam- þykkt að veita Tónlistarskólanum á Ak- ureyri 350 þúsund krónur í afmælisgjöf, en skólinn átti nýlega 60 ára afmæli, 20. jan- úar síðastliðinn, en haldið verður upp á daginn nú síðar í þessum mánuði, 26. febr- úar. Starfandi skólastjóri, Kaldo Kiis, hafði óskað eftir aukafjárveitingu að upp- hæð 500 þúsund krónur til að standa straum af hátíðarhöldunum.    Blús og djass | Blúskompaníið og Park Projekt koma fram á blús- og djasshátíð í Ketilhúsinu í kvöld. Í þeirri fyrrnefndu eru Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson en í hinni eru Agnar Már Magnússon, Kristján Edelstein og Gunnlaugur Briem auk Pálma. Tónleikarnir hefjast kl. 21.    Hvað er kynlífsfíkn? | Reynir Harð- arson sálfræðingur flytur fyrirlesturinn Hvað er kynlífsfíkn? í dag, miðvikudag, kl. 12.00 á Sólborg við Norðurslóð. MIÐBÆRINN á Akureyri hefur talsvert verið í fréttum undanfarin misseri, enda stendur mikið til eftir hugmyndasamkeppni um breyt- ingar á svæðinu. Hér má sjá aðra hlið á miðbænum en venjulega; þetta er miðbærinn aftan frá, ef svo má að orði komast. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Miðbærinn - aftan frá LENGING brautarinnar á Akureyr- arflugvelli er grundvallaratriði varð- andi framtíðaruppbyggingu milli- landaflugs um völlinn. Þetta kemur fram í skýrslu sem Njáll Trausti Friðbertsson vann fyrir Rannsókn- arstofnun Háskólans á Akureyri. Efni skýrslunnar var að hluta til kynnt í haust en hún hefur nú verið gerð opinber í heild sinni á heima- síðu RHA. Í samgönguáætlun fyrir árin 2005 til 2008 er gert ráð fyrir fjármunum til að skoða hvaða möguleikar eru til staðar til að lengja flugbrautina og hver kostnaður yrði af slíkri fram- kvæmd. Skýrsluhöfundur segir að við vinnslu hennar hafi komið mjög sterk skilaboð bæði frá fólki í ferða- þjónustu og flugrekstri að ef eigi að byggja upp millilandaflug frá Akur- eyrarflugvelli í framtíðinni sé nauð- synlegt að lengja flugbrautina. Njáll Trausti telur að lengja þurfi brautina um 460 metra. Hann segir þegar hafa skapast aðstæður til að skoða möguleika á sérstöku frakt- flugi frá Akureyrarflugvelli með ferskan fisk en útflutningur á fersk- um fiskflökum frá Norður- og Aust- urlandi hafi aukist úr 300 tonnum ár- ið 2001 í rúm 4.000 tonn árið 2004 og um það bil 4.800 hafa sennilega verið flutt út á síðasta ári. „Þetta magn myndi fylla 300 Boeing 737-300 fraktflugvélar sem þýðir að ef eft- irspurnin væri alltaf jöfn væri hægt að fljúga slíkt flug sex daga vikunnar út frá þessu landsvæði.“ En lengja þyrfti flugbrautina til að hægt væri að koma til móts við þarfir slíkrar fraktvélar og annarra sambærilegra véla til að hægt væri að nýta flug- völlinn yfir allt árið. Skýrsluhöfundur segir að með hverju árinu sem líður skapist betri markaðslegar aðstæður til að slíkt flug sé stundað til Akureyrar með reglulegum hætti. „Erlendum ferða- mönnum til Íslands hefur fjölgað mikið og einnig stækkar heima- markaðurinn hratt. Sérstaklega má benda á ákveðin markaðssvæði er- lendis, t.d. þýska markaðinn. Mik- ilvægt er að gera sér grein fyrir að markaðssetning á erlendum mörk- uðum er tímafrek og æskilegt að gott samband náist við gamalgróna aðila á erlendum mörkuðum í sölu Íslandsferða til Norður- og Austur- lands.“ Rétt er að geta þess að nýverið til- kynnti Iceland Express að félagið hygðist fljúga tvisvar í viku í sumar frá Akureyri til Kaupmannahafnar. Framtíðaruppbygging millilandaflugs Lengja verður flugbrautina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.