Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 21 MINNSTAÐUR LANDIÐ Neskaupstaður | Sigfús Sigfússon, starfsmaður Síldarvinnslunnar, var á fullu að þvo gluggana á skrif- stofum fyrirtækisins þegar frétta- ritari átti leið um nú á dögunum. Ekki er verra fyrir framkvæmda- stjórann að hafa gott útsýni út á fjörðinn nú þegar loðnuskipin koma hvert af öðru með afla til löndunar. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Framkvæmdastjórinn þarf að sjá út Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Mjóeyrarhöfn | Tilboð hafa verið opnuð í hluta framkvæmda við stór- iðjuhöfnina á Mjóeyri í Reyðarfirði. Kostnaðaráætlun við verkið, sem felur í sér frágang lagna, yfirborðs og undirstaða fyrir færiband og turn á svæðinu, nam rúmum 140 millj- ónum króna, en alls bárust fimm til- boð í verkið. Hið lægsta nam 74,8% af kostnaðaráætlun og hið hæsta 119,4% af áætlun. Héraðsfjörður átti lægsta tilboð, 104,7 milljónir króna, en Viðhald fasteigna næstlægst, eða 109,8 milljónir króna. Djúpivogur | Hávella er afar skrautlegur fugl, sérstaklega þó blikinn. Í nóvember hefst tilhugalíf hávellunnar og er í algleymingi á fyrstu mánuðum ársins og eru blik- arnir þá afar tilkomumiklir. Þessi fjaðrafallegi hávellubliki í Djúpa- vogshöfn vildi sýna að hann væri enginn eftirbátur félaga sinna er hann synti eggjandi hreyfingum í kringum nærliggjandi kollur. Há- vellan er þó ekki lauslátur fugl, heldur er hann einmitt þekktur fyr- ir tryggð við maka sinn. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Hávellubliki í tilhugalífi Kárahnjúkavirkjun | Íslenskum trún- aðarmanni hjá Impregilo við Kára- hnjúkavirkjun var á þriðjudag sagt upp störfum. Oddur Friðriksson, yfirtrúnaðar- maður við Kárahnjúka, segist þegar hafa óskað formlega eftir að Imp- regilo geri grein fyrir ástæðum upp- sagnarinnar. Trúnaðarmenn njóti sérstakrar verndar skv. lögum og verði þeir að hafa brotið öryggisregl- ur eða brugðist starfsskyldum til að vinnuveitandi geti sagt þeim upp. „Manninum var sagt upp, væntanlega á grundvelli áminningar sem hann hefur fengið frá fyrirtækinu, þó það sé ekki orðað þannig í uppsagnar- bréfi,“ segir Oddur. „Til þess að segja upp trúnaðarmanni þurfa að liggja að baki rökstuddar ástæður. Eftir þeim ástæðum hef ég kallað.“ Oddur sagðist í gær enn bíða skýr- inga fyrirtækisins og aðhafist ekki frekar fyrr en þær liggi fyrir. „Áminningar ganga yfirleitt út á brot á öryggisreglum meira eða minna. Í svari til mín frá Ómari Valdimarssyni, upplýsingafulltrúa Impregilo, kemur fram að borið sé upp á trúnaðarmann- inn umferðarlagabrot. Það á ekki við nein rök að styðjast. Impregilo hefur aldrei verið tilnefnt sem lögregla við Kárahnjúka og mér vitanlega hefur maðurinn ekki verið kærður fyrir um- ferðarlagabrot.“ „Umræddum manni var sagt upp í kjölfarið á fjórðu athugasemdinni sem gerð hefur verið við starfshætti hans“ segir Ómar Valdimarsson. „Hann hefur ítrekað farið á svig við vinnureglur fyrirtækisins, auk þess sem hann hefur stigið út fyrir verk- svið sitt með því að leggja undirverk- tökum Impregilo línurnar. Impregilo skilur mikilvægi þess að trúnaðar- menn séu á svæðinu og virðir rétt verkalýðshreyfingarinnar að fullu til þess að hafa trúnaðarmenn á sínum snærum. En þar sem brot umrædds manns í starfi hafa verið hættuleg bæði umræddum manni og sam- starfsmönnum hans, auk þess sem þau hafa valdið fyrirtækinu eigna- tjóni, er ekki vilji til þess að hafa leng- ur á launaskrá fyrirtækisins.“ Þrír íslenskir trúnaðarmenn og einn kínverskur hafa verið við Kára- hnjúkavirkjun, en að auki er Oddur yfirtrúnaðarmaður verkalýðshreyf- ingarinnar á staðnum. Impregilo rekur trúnaðarmann Byggingarstál | Hollenska flutn- ingaskipið MV Alexandergraght lagðist að Mjóeyrarhöfn í Reyð- arfirði sl. mánudag með fjórðu sendingu byggingarstáls til álvers- framkvæmdanna. Skipið kom frá Kína og í því voru 3.393 tonn af til- búnu byggingarstáli fyrir kerskála og skautasmiðju, auk fjögurra gál- gakrana. MV Alexandergraght verður affermt á dag- og næt- urvöktum þar til það hefur verið tæmt en búist er við að það sigli frá höfninni seint í vikunni. Aðaldalur | „Forystuféð gefur mér mjög mikið og það er mjög gaman að hafa það. Það er nauðsynlegt þegar sett er út, en það er mín mikla ánægja að viðra kindurnar.“ Þetta segir Jón Ólafsson, bóndi á Kraunastöðum í Aðaldal, en áhugi hans á forystufé er mörgum kunnur og rekja má ættir fjölda forystuk- inda í Suður-Þingeyjarsýslu til Kraunastaða. „Stofninn hérna er allur kominn út af Flugu sem var hreinræktuð forystugimbur sem við keyptum í fjárskiptunum á Núpi í Öxarfirði, haustið 1944. Hún var svört með hvítan blett í andlitinu og reyndist mjög vel. Við fórum á hestum héð- an austur í Öxarfjörð og vorum milli 10 og 20 saman. Þá var ég á 18. ári. Hingað komu 52 lömb og er þá Fluga meðtalin. Þetta eru orðnir mjög margir ættliðir, en ég útveg- aði mér alltaf óskylda hrúta til við- halds stofninum.“ Hóar með vissu hói Jón, sem verður áttræður í haust, býr á Kraunastöðum ásamt konu sinni Svanhildi Daníelsdóttur, en þar býr einnig dóttursonur þeirra hjóna, Björgvin Viðarsson sem er afa sínum mjög hjálplegur við féð. Á bænum er á annað hundrað fjár á fóðrum og hreint forystublóð renn- ur í æðum a.m.k. 10 kinda, ef ekki meira. Mest segist Jón hafa haft 16 forystukindur á fóðrum. Ég hef haldið upp á þær allar og ekkert gert neinn sérstakan mun á þeim. Þær eru vitrar og eftirtektarsamar bæði úti og inni. „Hann hóar bara með vissu hói og þá koma þær,“ segir Björgvin um afa sinn. „Ég hef ekki náð þessu hljóði enda koma þær ekki þegar ég kalla.“ Björgvin hefur líka gaman af fénu og oft er gaman í húsunum. Jón hefur sett féð út daglega undanfarið enda hefur tíðin verið þannig. Hann segir forystuærnar vita margt og ef illa lítur út með veður þá snúa þær einfaldlega við þegar þær eru komnar spölkorn frá húsunum. Vildi eiga heila kró af forystufé Flestar eru þær svartflekkóttar eða svartbíldóttar en með þeim er mórauður sauður sem heitir Kápur. Jón segir að forystuféð þurfi tamn- ingu og ein leiðin sé að setja út daglega og hýsa alltaf á kvöldin. Hann segir engin sérstök vandamál með hópinn þótt forystuféð sé svona margt, en í uppeldi eru þrír forystulambhrútar og þrjár gimbr- ar sem fara út seinna í vetur ef vel viðrar. „Ég hef auðvitað fækkað þessu aðeins, en ef ég væri að byrja þá vildi ég eiga heila kró af fallegum forystukindum,“ segir Jón og brosir þegar hann horfir á stofninn sinn hverfa upp túnið á sína daglegu beit. Fallegt forystufé er prýði í fjárhúsum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Forysta Jón Ólafsson á Kraunastöðum og Björgvin Viðarsson, dóttursonur hans, með fallegt forystufé. Á húsi Forystukindur í kró í fjár- húsunum á Kraunastöðum. Eftir Atla Vigfússon Fljót | Nú á miðjum þorra fæddist lítið hestfolald á bænum Miðmóa í Fljótum. Þetta er að sjálfsögðu ekki hefðbundinn tími fyrir folöld að fæðast á. Hryssan sem er kölluð Jörp kastaði á sama tíma í fyrra en reyndar tveimur vikum fyrr en nú. Það var hennar fyrsta folald. Fæðing folaldsins nú kom heim- ilisfólkinu ekki á óvart því nú var vitað hvað var í vændum. Eigandi hryssunnar og folaldsins er Guð- mundur Pálsson. Hann býr á Sauð- árkróki en er með nokkur hross á jörð foreldra sinna í Fljótunum. Ágætt veður var þegar folaldið kom í heiminn og hefur verið síðan. Þrátt fyrir að talsvert frost væri daginn sem fréttamaður fór til að mynda folaldið virtist það ekkert bíta á ungviðið sem skokkaði um- hverfis móður sína. Þrátt fyrir snjó- leysi eru hrossin að sjálfsögðu á fullri gjöf og hafa aðgang að húsi ef veður skyldi breytast til hins verra. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Kastaði í annað sinn á þorra AUSTURLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.