Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 16.02.2006, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Í KVÖLD verður leikritið Maríu- bjallan frumsýnt í Rýminu, nýju leikhúsi Leikfélags Akureyrar í Hafnarstræti 73. Maríubjallan er kraftmikið nú- tímaverk eftir Vassily Sigarev. Dima er 19 ára. Hann býr í blokk við hliðina á kirkjugarðinum, þaðan sem hann stelur legsteinum og selur. Á morgun hefur hann herþjónustu en í kvöld heldur hann vinum sínum kveðjupartí. Þangað koma vinir hans Slavik og Arkasha auk stúlknanna Leru og Júlkua. Á einu kvöldi fáum við innsýn í líf persónanna, kynnumst sorgum þeirra og þrám. Í ömurlegum að- stæðum er að finna allt litróf mannlegra tilfinninga og hver um sig hefur fundið sína leið til að lifa af. Vassily Sigarev er talinn eitt fremsta leikskáld nýrrar kynslóðar í Evrópu og hefur hlotið fjölda verðlauna á síðastliðnum miss- erum. Meðal annarra verka hans eru Plasticine og Svört mjólk sem bæði voru frumsýnd í Royal Court- leikhúsinu í London. Það síðast- nefnda var einnig sýnt í Þjóðleik- húsinu fyrir skömmu. Jón Páll Eyjólfsson er leikstjóri sýningarinnar. Hann segir að verk- ið sé heimur Sigarevs og rúss- neskra ungmenna í dag, hífður upp á svið í allri sinni ómynd. Unga fólkið stendur á mörkum hins horfna heims Sovétríkjanna, þar sem ekkert er til, og markaðs- hagkerfisins, þar sem allt er falt. „Dima stelur járnminnisvörðum úr kirkjugarðinum og dregur fram líf- ið með því að selja þá í brotajárn.“ Hversu dýr mella er ég? „Sigarev sagði frá því sjálfur í viðtali í Independent, að hann kæmi úr litlu þorpi í Úralfjöllunum þar sem höfðu verið títan-námur. Þegar hrunið kom – eða upprisan – eftir því hvernig það er skilgreint, sem sjálfsagt fer eftir tengslum fólks við markaðskerfið – þá hirtu bæjarbúar, og hann sem ungur strákur þar með, þá títan-mola sem eftir urðu í námunum þegar starf- seminni var hætt, og gátu selt þá. Í nokkurn tíma var allt gott. En svo kom að því að allt kláraðist og þá var stutt í að krakkarnir færu í fíkniefni og dræpu hvert annað hreinlega úr leiðindum. Kvöl Sigarevs – og um leið kvöl okkar – er sú, að ef þú býrð þar sem guð er ekki til, samkvæmt skilgreiningu ríkisins, er auðvelt að trúa á mátt peninga til breytinga. Okkar nán- asta umhverfi er orðið þannig að auður og gróðavon réttlæta hvaða gjörð eða gjörning sem er. Ef ein- hver vill kaupa þjónustu eða vöru þá segir lögmál markaðarins að þeirri þörf skuli mætt. Enginn rök trúarlegs eða siðferðislegs eðlis duga gegn því lögmáli. Sama hver fórnin er. Lögmál markaðarins segja honum að um leið og hann geti grætt á einhverju sé það rétt- lætanlegt. Eina spurningin er hvað er ég dýr mella. En sem mann- eskjur höfum við alltaf val. Mark- aðurinn er búinn til af okkur og við ráðum því hvort peningar séu hreyfiafl alls eða ekki. Þetta er grundvallarsetning verksins. Krakkarnir í verkinu upplifa mikla niðurlægingu og örvæntingu, en mitt í þessum skít og vonleysi, þá ákveða þau þetta. Þau hafa val um að vera manneskjur.“ Jón Páll segir að þegar krakk- arnir hafi verið sviptir öllu – sjálfs- virðingunni líka, og jafnvel minn- ingunum, sem Dima selur í brotajárn; þá geti þau alveg eins trúað þjóðsögunni um að það að elta maríubjölluna og fanga hana, geti fært þeim eitthvað – kannski gæfu. Sú ákvörðun er þó alla vega óháð peningum. Ef við gæfum öllum rónum þúsund kall … „Umhverfið skilgreinir samúð og meðaumkvun sem veikleika. Það þykir veikleiki í viðskiptum að hafa samúð með fyrirtækinu sem þú skiptir við. Útvegsmaður sem kaupir upp kvóta í litlu plássi má ekki leyfa sér að hafa samúð með þeim sem þar með missa vinnuna. Sum okkar fara í kirkju og hlusta á sögur af manni sem var hengdur upp á kross fyrir að segja sannleik- ann fyrir tvö þúsund árum, en svo förum við út, og vitum að við get- um ekki iðkað þennan sannleika og megum það ekki, því þá erum við að brjóta markaðsreglurnar. Ef við gæfum öllum rónum á vegi okkar þúsund kall yrði það til þess að við sjálf yrðum blönk. Það er mikil eskja í verkinu og það er ekki fyrr en undir lokin að krakkarnir ná að sýna þann þátt mannlegs eðlis, sem ég held að okkur sé jafnt í blóð borinn og drápseðlið; – að hugsa hvert um annað. Við erum hópdýr og eigum að sjá um náungann. Þetta er svartur og myrkur heimur, en alls staðar heldur fólk í glóðina; – von- arglætuna. Vonin getur líka búið í skítnum.“ Hvað segir plasmasjónvarpið um mig sem manneskju? Jón Páll Eyjólfsson kveðst vera úr Keflavík, en í London lærði hann til leikara. Hann segist vera búinn að böðlast út um allt síðan hann kom heim úr námi; – um tíma hjá Hafnarfjarðarleikhúsinu, að- eins í Þjóðleikhúsinu – og víðar. Þörfina til að leikstýra rekur hann til þess hve íslenskt samfélag hafi breyst mikið á fáum árum. „Sem leikara fannst mér leikhúsið ekki vera að taka á stóru spurningunum sem brenna á okkur öllum. Tökum sem dæmi að margir voru í þeim sporum fyrir jólin að vera allt í einu komnir með plasmaskjá inn á heimili sín. Svo horfir fólk á tækin og hugsar með sér: „Hvað er ég eiginlega að gera með 300 þúsund króna rafmagnstæki á stofugólfinu hjá mér. Segir þetta plasma- sjónvarp eitthvað um það fyrir hvað ég stend sem manneskja?“ Ég stóð frammi fyrir spurningunni fyrir hvað ég sjálfur stæði sem leikari. Ég hef nefnilega þá barna- legu trú á leiklistinni að hún geti hreyft við fólki og að tilgangur hennar sé sá að viðhalda manneskj- unni í okkur. Það hefur aldrei verið eins áríðandi fyrir okkur að eiga það tæki sem leiklistin er, því við verðum að geta sýnt hluttekningu. Plasmasjónvarpið okkar er tækið sem græðir á hinu. Þar ganga heilu þættirnir út á það að niðurlægja fólk: survivor-alzheimer, whore- factor, og hvað þetta heitir nú allt. Og lógíkin er auðvitað sú að þetta sé eitthvað sem fólk vilji sjá. Mark- aðurinn krefjist þess. Ég hafði fengið tækifæri hjá Stúdentaleikhúsinu að skapa ná- kvæmlega það leikhús sem mig langaði til, og í þessum tveimur uppfærslum mínum; í Þjóðleikhús- inu og hér núna, hef ég viljað gefa leikurunum tækifæri til að skapa góðar og skemmtilegar vinnuað- stæður. Þetta snýst líka um það að við verðum eftir sem áður að halda í þá barnatrú að það sé í lagi að brenna fyrir það sem manni þykir vænt um – brenna fyrir málstað- inn; – annars væri engin ástæða til að setja upp leikhúsverk.“ Jón Páll kveðst alltaf hafa verið pólitískur, enda alinn upp við sam- ræður og skoðanaskipti og kominn af stjórnmálamönnum. Afi hans var Eysteinn Jónsson ráðherra. „Sam- félagsumræðan hefur alltaf verið rík í mér, en leikhúsið er mín leið til að ræða málin.“ Leiklist | Leikfélag Akureyrar frumsýnir Maríubjölluna eftir Sigarev í Rýminu í kvöld Að viðhalda manneskjunni í okkur Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Guðjón Þorsteinn Pálmarsson í hlutverki vinarins, Slavik. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is Guðjón Davíð Karlsson fer með aðalhlutverkið, Dima. eftir Vassily Sigarev Íslensk þýðing: Árni Berg- mann Leikmynd og búningar: Halla Gunnarsdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson Tónlist: Hallur Ingólfsson Leikarar: Álfrún Helga Örn- ólfsdóttir, Esther Thalía Cas- ey, Guðjón Davíð Karlsson, Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Þráinn Karlsson Maríu- bjallan TENGLAR ....................................... Leikhópurinn heldur úti æfinga- dagbók á netinu. Slóðin er: www.mariubjallan.blogspot.com „Í lagi að brenna fyrir það sem manni þykir vænt um …“ Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri Maríubjöllunnar. FJÖGUR tónverk eftir Lars Graugaard voru á dagskránni á tón- leikum í Norræna húsinu á sunnu- daginn. Þar af var eitt frumflutt og var það tileinkað Eydísi Franzdótt- ur óbóleikara, sem lék það. Og hún lék það í orðsins fyllstu merkingu; verkið hét Those Gestures You Made og spilaði gagnvirk tölva stórt hlutverk. Bæði réðu óbó- hljóðin ýmsum bakgrunnshljóðum úr tölvunni, og í síðari hluta nam hreyfiskynjari allskonar bendingar og líkamsstellingar Eydísar og breytti tölvan þeim í hin kynlegustu hljóð. En þótt þau væru sérstæð voru þau ekki sérlega fjölbreytt; í raun- inni virtust þau aðeins vera fram- hald hljóðanna sem höfðu skreytt tónlistina frá byrjun. Og hvað varð- ar hreyfingar óbóleikarans hefur maður hefur séð svona kúnstir áð- ur, svo ekki er hægt að segja að þau hafi komið á óvart. Það sem eftir stóð var fremur klaufalegur dans, það var eins og Eydís væri að reyna að gera tai chi án þess að kunna það. Eða leika eitthvað sem ekki nokkur leið var að skilja hvað átti að vera. Eða bara hvað sem var. Og tónlistin í heild var fremur lit- laus og náði engan veginn þeim hæðum sem tvær tónsmíðar á und- an höfðu náð. Því miður. Öll verkin á tónleikunum voru fyrir hljóðfæri og gagnvirka tölvu. En þau voru samt býsna ólík; bassaklarinettutónsmíðin Conceal- ed Behaviours var t.d. frábær. Djúpir tónar Guðna Franzsonar voru einstaklega seiðandi og hljóðin sem þeir framkölluðu úr tölvunni voru gæddir stórfenglegum lit- brigðum, sem réðust af ólíkum þátt- um klarinettuleiksins. Og flautuverkið Speak My Mind í flutningi Kolbeins Bjarnasonar var líka fallegt; hrífandi var hve tölvu- hljóðin smátt og smátt greindu sig frá flautuleiknum og mynduðu sterka heild í lokin. Sísta tónsmíðin á efnisskránni var að mínu mati sú fyrsta, en einn- ig hún var fyrir flautu og spiluð af Kolbeini. Hún hét Doors, Windows: Handles. Þar náðu tölvuhljóðin aldrei að verða neitt annað en gervilegt bergmál flautuleiksins, og þar eð laglínurnar sem Kolbeinn lék voru óttalega flatneskjulegar var tónsmíðin í heild gleymd um leið og hún var búin. Samræða manns og tölvuTÓNLISTNorræna húsið Fjórar tónsmíðar eftir Lars Graugaard í flutningi Guðna Franzsonar, Kolbeins Bjarnasonar og Eydísar Franzdóttur. Sunnudagur 14. febrúar. Myrkir músíkdagar: Kammertónleikar Jónas Sen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.