Morgunblaðið - 16.02.2006, Page 37

Morgunblaðið - 16.02.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 37 MINNINGAR ✝ GuðmundurJónsson fæddist í Reykjavík 26. jan- úar 1937. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 6. febr- úar síðastliðinn. Mansi, eins og hann var ávallt kallaður, var sonur hjónanna Sigurðar Jóns Guð- mundssonar, f. 28. júli 1893, d. 1. maí 1977 og Jórunnar Guðrúnar Guðna- dóttur, f. 8. október 1895, d. 6. 7. júní 1958 kvæntist Mansi Mar- gréti Sigurjónsdóttur, f. 9. mars 1939. Þau skildu síðar. Börn þeirra eru: 1) Sigurður Jón Guðmunds- son, f. 29. október 1956, hann á fjögur börn. 2) Meyvant Lúther Guðmundsson, f. 28. desember 1960, maki Kolbrún Jónsdóttir. Lúther á tvo syni. 3) Sigurjón Úlfar Guðmundsson, f. 5. maí 1962, maki Sólveig Eiríks- dóttir. Úlfar á eina dóttur. 4) Berg- lind Harpa Guðmundsdóttir, f. 30. nóvember 1964, maki Benjamín Sigursteinsson og eiga þau þrjú börn. Mansi starfaði lengst af í fyrir- tæki fjölskyldunnar, Belgjagerð- inni. Síðustu áratugi bjó hann er- lendis. Útför Mansa verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. október 1981. Mansi var yngstur systkina sinna. Elst er Helga, f. 6. apríl 1919, Guðni, f. 13. október 1920, d. 23. júlí 1995, Ingólfur, f. 23. des- ember 1921, d. 22. júní 1941, Árni, f. 21. febrúar 1925, Valdi- mar, f. 3 mars 1927, d. 20. nóvember 2000, og Sólveig, f. 3. ágúst 1929, d. 4. ágúst 1997. Auk þess er fósturbróðir þeirra Guðmundur Gíslason. Það eru nær 60 ár frá því að ég kynntist ungum dreng sem fagnaði bróður sínum og mágkonu. Augu hans voru glöð og full trúnaðar- trausts. Frá þeirri stundu var hann litli bróðir minn. Guðmundur Jónsson, eða Mansi, var yngstur barna Jóns Guð- mundssonar, sem lengstum var kenndur við Belgjagerðina og konu hans, Jórunnar Guðrúnar Guðna- dóttur. Drengurinn var fæddur heilsutæpur. Foreldrar hans og systkini báru hann á höndum sér og vildu honum allt það besta sem völ var á. Guðmundur var hugmyndaríkur og var alla ævi sína að koma að nýjum og nýjum verkefnum. En því miður bar hugarflugið hann oft ofurliði. Besti tíminn í lífi hans var tví- mælalaust er hann var giftur konu sinni og þau voru að koma sér upp glæsilegu heimili í Breiðholtinu á meðal góðra nágranna. Guðmund- ur sagði eitt sinn við mig: „Ég held hún Gréta mín sé fallegasta stúlk- an sem ég hef séð. Sjáðu bara hárið á henni“. Það vantaði heldur ekki að hann væri ánægður með drengina sína, Sigurð, Lúther og Úlfar. En þegar Harpa Berglind fæddist varð hún prinsessan hans. Sjúkleiki Guðmundar villti svo um fyrir honum að hann tapaði átt- um. En þegar dró að leiðarlokum leitaði hann skjóls í faðmi barna sinna sem alla tíð hafa verið hin sönnu auðæfi hans. Við kveðjum Guðmund, sem okk- ur hefur alla tíð þótt vænt um. Nú fær hann hvílu hjá móður sinni og föður, sem elskuðu án nokkurra takmarka drenginn sinn. Sólveig, Árni bróðir og fjölskylda. GUÐMUNDUR JÓNSSON Elsku langamma mín, það var alltaf svo gaman að hitta þig, langafa og „langa“ Lilju systur þína á Birki- völlunum. Ég fór oft með Sessu ömmu og Magga afa í sveitina og við komum alltaf við hjá ykkur þeg- ar við vorum á leiðinni í bæinn aft- ur. Mér fannst þið öll svo „lang“ gömul en alltaf voruð þið hress og skemmtileg, alltaf hlæjandi og það ríkti mikil gleði þar sem þið voruð. Ekki spillti fyrir gleðinni rjómatert- urnar, pönnukökurnar með sultu og rjóma, súkkulaðiterturnar, klein- urnar, flatkökurnar og allar hinar kökurnar og svo auðvitað nammi- dósin. Þú varst algjör nammiamma sem ég kem aldrei til með að gleyma. Ég elska þig og knúsaðu langafa og „langa“ Lilju frá mér. Linda Björk. Langamma mín, það er erfitt að hugsa sér lífið án þin. Núna ertu LOVÍSA INGVARSDÓTTIR ✝ Lovísa Ingv-arsdóttir fædd- ist í Neðra-Dal í V- Eyjafjallahreppi í Rangárvallasýslu hinn 20. júlí 1912. Hún lést á dvalar- heimilinu Lundi á Hellu hinn 26. jan- úar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Selfoss- kirkju 4. febrúar. búin að fá þína ósk uppfyllta sem betur fer fyrir þig og Óskar langafa sem hefur beðið eftir þér í 16 ár. Ég kem til með að sakan þín og nammi- dósarinnar mikið. Þúsund kossar til þín og langafa sem ég hitti aldrei en ber samt nafn hans. Andrea Ósk. Langamma mín, ég hef hugsað mikið til þín eftir að við komum til Íslands í ágúst 2005. Við komum í heimsókn til þín og þú varst svo fín eins og þú hefur alltaf verið. Nammidósin var svo girnileg og ekki vantaði gleðina hjá þér. Þú varst svo hress og kát, það var svo gaman að hitta þig, elsku langamma mín. Ég á eftir að minn- ast þín í myndunum mínum. Ég elska þig. Helga Rut. Amma gamla, núna á ég enga ömmu gömlu lengur, núna ertu far- in til afa gamla og hinar gömlu ömmurnar eru farnar til karlanna sinna. Ég sakna þín mikið og nammidósarinnar. Ég ætla samt að vera eins og þú og mamma, vera með svuntu á mér og baka mikið af góðum kökum og eiga fullt box af nammi. Ég elska þig endalaust. Brynja Sif. Við Ellen Vala Schneider, uppáhalds- frænka mín, kynnt- umst fyrst þegar við vorum báðar komnar yfir tvítugt. Ég var við nám við háskólann í Lundi í Svíþjóð, en Ellen var skiptinemi við danskan háskóla, þar sem hún lagði stund á nám í dönsku og í norrænni menn- ingu. Þegar ég sá Ellen í fyrsta sinn varð mér ljóst að myndirnar sem við höfum fengið af henni frá Ameríku í gegnum árin lugu engu. Ellen var gullfalleg, há og grönn og tíguleg í fasi, með stór, brún geislandi augu, breitt, fallegt bros og alltaf stutt í hláturinn. Þegar við kvöddumst dag- inn eftir var eins og við höfðum þekkst alla ævi og oft sofið saman um helgar hjá afa og ömmu á Ásvallagöt- unni. Við vorum orðnar bestu vinkon- ur, enda annað ekki hægt, Ellen var svo skemmtileg og fyndin, svo hlý og umhyggjusöm að öllum leið vel í ná- vist hennar. Örlögin höguðu því þannig að nokkrum árum síðar var ég komin í framhaldsnám til New York borgar. Þá varð heimili foreldra Ellenar, þeirra Öddu móðursystur minnar og Henry í Falls Church í Virginíu, okk- ar annað heimili. Að loknu fyrrihluta námi í stjórn- málafræði frá Tuftsháskóla hóf Ellen laganám við Virginíuháskóla. Þangað heimsótti ég hana og var merkilegt að koma í þessa fallegu, virðulegu menntastofnun sem sjálfur Thomas Jefferson hafði sett á stofn á landar- eign sinni. Í leiðinni skoðuðum við heimili Thomas Jeffersons að Monte- cello, sem var ógleymanleg sjón. Eftir tveggja ára nám í lagaskól- anum tók Ellen sér frí, forsetakosn- ingar voru í uppsiglingu og mikið í húfi. Ellen hóf störf í kosningabaráttu Walters Mondale, þáverandi varafor- seta Bandaríkjanna. Walter Mondale var ekki lengi að átta sig á kostum Ellenar og um leið skyldleika þeirra. Þau voru bæði af víkingakyni, hann af Norðmönnum kominn, hún af íslensk- um ættum. Walter Mondale kallaði ELLEN VALA SCHNEIDER ✝ Ellen ValaSchneider lög- fræðingur fæddist 10. desember 1954. Hún lést í Wash- ington D.C. 2. febr- úar síðastliðinn og var útför hennar gerð 8. febrúar. Ellen síðan aldrei ann- að en Iceland. Að afstöðnum kosn- ingum hóf Ellen laga- námið á ný og var varla komin aftur í skólann þegar hún hitti verð- andi eiginmann sinn Matthew Jacobs, sem féll flatur fyrir henni við fyrstu sýn. Að loknu námi gengu þau í hjónaband og hófu bú- skap í Washington D.C. Fyrst í stað leigðu þau sér kjallaraíbúð í gömlu raðhúsi í hjarta borgarinnar. Eigandi hússins og íbúinn á efri hæð- inni var læknir. Þegar þau voru að ganga frá leigusamningnum barst það í tal að Ellen væri af íslenskum ættum. Þá sagðist hann hafa þekkt einn Íslending, barnalækni að nafni Björn Guðbrandsson. Þeir höfðu unn- ið saman á Washington Childreńs Hospital. Leigusalinn varð auðvitað yfir sig hissa þegar Ellen sagði að hann væri giftur móðursystur henn- ar. Svona var heimurinn lítill þrátt fyrir allt, en Ellen var mikill Íslands- vinur, land móður hennar var henni afar kært og hún dvaldi eitt sinn í Grænuhlíð 6 í hálft ár, lagði stund á ís- lenskunám og vann hjá Flugleiðum. Ellen og Matthew hófu strax laga- störf í Washington DC og farnaðist báðum mjög vel. Þau eignuðust fyrsta barn sitt, soninn Matthew Jr. árið 1984, seinni sonur þeirra John Henry, fæddist árið 1989. Skömmu eftir að John Henry fæddist hætti Ellen laga- störfum og helgaði sig upp frá því heimilinu og hinum ýmsu félagsmál- um. Hún var til dæmis kennari í sunnudagaskóla Lútersku kirkjunnar í hverfinu sínu, hún gerðist virkur fé- lagi í skólasamtökum skólaumdæm- isins síns og stofnaði meðal annars sjóð sem styrkir efnilega námsmenn til háskólanáms. Svona mætti lengi telja, því Ellen þreyttist seint á því að gefa og gleðja aðra. Hún var líka stoð og stytta aldraðra foreldra sinna og tengdamóður. Heimili Ellenar og Matthews stóð öllum opið og dóttir okkar Adda var ekki ýkja gömul þegar hún dvaldi hjá þeim í fyrsta sinn hluta úr sumri og tók miklu ástfóstri við þau öll. Matt- hew Jr. sem er ári eldri en hún var henni sem bróðir og Ellen sem önnur móðir. Þegar hún hóf háskólanám í New Haven í Connecticut víðsfjarri heimahögum varð heimili Ellenar og Matthews í Chevy Chase hennar ann- að heimili. Þegar við foreldrar hennar dvöldum árlangt á Spáni, þá gengu Ellen og Matthew henni í foreldra stað og heimsóttu hana yfir foreldra- helgina, sem haldin er árlega fyrir fyrsta árs nemendur háskólans. Fyrir það verður þeim aldrei fullþakkað. Rétt fyrir jólin 2004 þá kom ég við í Washington D.C. á leið minni heim frá Íslandi. Ég gat ekki látið neitt tækifæri ónotað til að heilsa upp á Öddu og Henry, þau eru bæði yfir átt- rætt og geta kvatt þennan heim hve- nær sem er. Ég bjó hjá Ellen og síð- asta daginn minn þar áttum við Ellen saman einar. Þetta var einn fyrsti kaldi dagur vetrarins, heiður og bjartur, svo við dúðuðum okkur upp og fórum í göngu um fallega hverfið hennar, ræddum um heima og geima og borðuðum síðan saman hádegis- verð í miðbæ Bethesda. Þegar ég kvaddi Ellen, þessa glæsilegu og góðu frænku mína á tröppunum á fallega heimilinu hennar síðar þennan fagra vetrardag, vissi ég ekki að ég hafði í raun komið til að kveðja hana í hinsta sinn. – Adda og Henry lifa enn og vona ég að guð og góðir vættir verndi þau og styrki í þessari miklu sorg. – Hvíl þú í friði, elsku Ellen Vala mín. Inga Dóra Björnsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, SVAVAR SIGURÐUR SÆBJÖRNSSON, Tjarnargötu 10, Sandgerði, verður jarðsunginn frá safnaðarheimilinu í Sand- gerði laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Guðbjörg Svala Guðnadóttir, Sesselja Svavarsdóttir, Grétar Sigurbjörnsson, Sigurgeir Svavarsson, Soffía Gunnþórsdóttir, Fjóla Svavarsdóttir, Torfi Gunnþórsson, Sæbjörn Ágúst Svavarsson, Bryndís Guðrún Kristjánsdóttir, barnabörn og systkini. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HELGA BJÖRNSSONAR, Helgafelli 5, Eskifirði. Jóhanna Valgerður Lauritzdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, INGI BERG GUÐMUNDSSON loftskeytamaður, Völvufelli 42, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg föstudaginn 17. febrúar kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð hjúkrunarþjónust- unnar Karitasar. Tekið er á móti framlögum í síma 551 5606. Fanney Vigfúsdóttir, Auður Björg Ingadóttir, Elías Jón Sveinsson, Jóna Rán Ingadóttir, Rúnar Þór Vilhjálmsson, Ingi Berg Ingason, Anna Lísa Hassing og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.