Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 43

Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 43 HESTAR HÓLASKÓLI og norðurdeild Fé- lags tamningamanna halda þessa dagana reiðnámskeið með Eyjólfi Ísólfssyni, yfirreiðkennara á Hólum og tamningameistara, og líkt og fram kemur á heimasíðu skólans, holar.is, er námskeiðið einstakt tækifæri til að auka færni og skiln- ing á reiðmennskunni. Námstíminn er fjórar helgar og eiga nemendur nú eftir að mæta tvisvar en nær ein- göngu FT-félagar eru þátttakendur. Námið er bæði verklegt og bóklegt og byggist á því að nemendur vinni við þjálfun hrossanna á milli helg- anna. Svipað námskeið var haldið í fyrra og var það vinsælt og þótti takast vel. Ásóknin í ár er enn meiri og Eyjólfur segir í samtali við Morg- unblaðið að gripið hafi verið til þess ráðs að bjóða fleirum að sitja fyrir- lestrana og fylgjast með verklegum tímum. „Það er líf og fjör á nám- skeiðinu og saman komnir margir góðir og flinkir hestamenn,“ segir Eyjólfur. Við fáum að skyggnast ör- lítið bak við tjöldin og fáum nasasjón af vinnubrögðum „meistarans“. Hestur verður að vera í andlegu jafnvægi til að læra Eyjólfur er í fyrstu spurður hvort námskeiðið byggist á hinum vinsælu kennslumyndböndum hans, Á hest- baki: „Auðvitað er þetta eitthvað tengt, við erum að þjálfa og byggja upp íslenska hestinn en ég fylgi efni þeirra ekki í smáatriðum. Nem- endur þjálfa á milli tímanna þannig að þeir og hestarnir verði betri í þeim atriðum sem búið er að fara í og þá er hægt að byggja ofan á og halda áfram. Ég legg mjög mikla áherslu á kerfisbundin og skipulögð vinnubrögð sem byggjast á skilningi og þekkingu á hestinum sjálfum, bæði andlega og líkamlega. Námskeiðið hófst með því að huga að andlegu hliðinni og þeirri stað- reynd að það verður að hafa hestinn í andlegu jafnvægi til þess að hægt sé að kenna honum. Ég legg mikla áherslu á þetta, því annars eru menn að reyna að troða einhverju inn í hausinn á hestinum sem ekki tekst og eyða tíma sínum í vitleysu. Og þá tekur tamn- ingin auðvitað langan tíma. Fyrsta skrefið í þessu öllu saman er að gera hestinn tilbúinn til að taka á móti kennslunni andlega. Til þess verður hann að vera rólegur og sáttur við manninn og þá gengur allt miklu hraðar. Þannig er það fyrsti þátturinn að skoða samband manns og hests – leyniþráðinn. Hrossin á námskeiðinu eru á mismunandi stigi en þau eru tamin og þjálfuð. En þótt verið sé að þjálfa fullorðinn hest byggist vinnan ekki síður á því að þetta samband sé í lagi. Ég tala um þetta mikilvæga samband manns og hests í fyrstu myndinni, Á hestbaki 1.“ Eyjólfur segir að vinnan á reið- námskeiðinu hafi strax skilað ár- angri: „Við byrjuðum á því að vinna með hestinn lausan og kanna viðhorf hestsins. Það er alltaf verið að ræða um það í hestamennsku hvernig manninum þyki ganga en það er líka ágætt að athuga hvernig hestinum líður, hvort hann sé sáttur við að vera hjá manninum og að vinna með honum. Það er hægt að æfa hestinn í að treysta manninum þannig að hann beri virðingu fyrir honum og að þessi félagsskapur og þetta sam- spil verði á góðum samskipta- grunni.“ Að lokinni grunnvinnu með and- legu þættina, ásamt fræðilegri um- ræðu, sneru þátttakendur sér að lík- ama hestsins, þeirri þekkingu á honum sem menn þurfi að búa yfir til að vita hvernig hesturinn geti beitt sér sem best með manninn á baki. Knapi með neikvætt hugarfar skrúfar fyrir allar framfarir Markmið námskeiðsins eru að sögn Eyjólfs að auka þekkingu á hestinum og kenna nýjustu aðferðir með það að markmiði að ná betri ár- angri og það fyrr en ella. „Segja má að markmiðið í sjálfu sér sé betri meðferð og þjálfun á íslenska hest- inum. Það er yfirleitt undir mann- inum komið hversu miklar framfar- irnar verða, ef einhver lendir í vandræðum er það ekki hestinum að kenna heldur okkur sjálfum. Við þurfum að líta í eigin barm og fara yfir hvað við gerum. Ef knapinn leyfir sér að hugsa að hesturinn sé bjáni og slæmur árangur sé honum að kenna þá er hann um leið búinn að skrúfa fyrir allir framfarir hjá sjálfum sér í greininni – það er svo einfalt mál. Um leið og hestinum er sýnt og kennt þannig að hann skilji eru nán- ast engin takmörk fyrir því hvað er hægt að fá hestinn til að gera. Ef hann verður hræddur og óöruggur eða verður fyrir áreiti sem er mót- sagnakennt á hann aftur á móti erf- itt með að átta sig, og flóttavið- brögðin fá yfirhöndina. Umbunin er það allra mikilvægasta við þjálfun hesta – segja má að umbunin hvetji hestinn til dáða,“ segir Eyjólfur. „Ríðum heim til Hóla“ Hvorki fleiri né færri en 900 ár eru liðin frá stofnun skóla á Hólum í Hjaltadal og má segja að gamla við- kvæðið „heim að Hólum“, frá tíð Jóns Ögmundssonar Hólabiskups, sé í fullu gildi. Hólaskóli hefur mikið umleikis og ásóknin mikil en hrossa- rækt og reiðmennska er ein þriggja deilda skólans, hinar eru ferðamál og fiskeldi og fiskalíffræði. „Það er mikið um að vera hérna hjá okkur og við reynum að fylgjast með því sem er að gerast úti í heimi. Hér er alþjóðlegt umhverfi því nem- endur eru frá mörgum löndum, og þegar best hefur látið hafa nem- endur komið frá níu löndum. Skiln- ingur á hestinum, andlega og lík- amlega, er alltaf að aukast og þróunin er töluverð. Við sækjum þekkingu til ýmissa aðila og rann- sókna, til dæmis á atferli, vítt og breitt um heiminn. Ef það kemur eitthvað nýtt fram og nýr skiln- ingur, og kannski ný aðferðafræði í kjölfarið, höfum við haft að leið- arljósi að athuga hvort það nýtist okkur. Eftir því sem við skiljum hestinn betur vitum við betur hvern- ig við eigum að meðhöndla hann.“ Það er ekki úr vegi að spyrja Eyj- ólf að lokum hvort hann hafi ef til vill annað eins heillandi hross og Rás frá Ragnheiðarstöðum í spil- unum. „Ég er með nokkur hross í þjálfun og það eru mest ung hross. Vonandi er eitthvað efnilegt í því en þau eru líklega of ung fyrir lands- mótið,“ segir yfirreiðkennarinn á Hólum. Leyniþráðurinn á milli manns og hests Ógleymanlegt par: Eyjólfur Ísólfsson og Rás frá Ragn- heiðarstöðum, hér efst í tölti á Íslandsmótinu í Reykjavík 2002 en sama ár unnu þau einnig í tölti á Landsmótinu á Vindheimamelum. Rás er fyrst íslenskra hesta til að læra spænska skrefið svo vitað sé (sjá mynd til vinstri). Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is  Á námskeiðinu hjá Eyjólfi er m.a. farið í æfingar sem miða að því að bæta leið- togahlutverk mannsins. Morgunblaðið/jt  Eyjólfur Ísólfsson virðir fyrir sér hluta af nemend- unum á námskeiðinu. Þeir eru (f.v.) Magnús Bragi Magnússon á Farsæli frá Íbishóli, Björn Sveinsson á Kósa frá Varmalæk, Páll Bjarki Pálsson á Boga frá Flugumýri, Guðmundur Sveinsson á Hvítasunnu frá Sauðárkróki og Skapti Steinbjörnsson á Lúkasi frá Hafsteinsstöðum. HESTAMANNAFÉLAGIÐ Gust í Kópavogi hefur oft borið á góma undanfarið í uppkaupsmálunum svonefndu en Gustsfélagar eru ekki af baki dottnir og héldu fyrstu vetr- arleika sína í reiðhöllinni í Glað- heimum síðastliðinn laugardag þar sem keppt var í fjölbreyttum flokk- um og var þátttaka með ágætum eins og fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Flestir keppendur voru í polla- flokki – og þarf Gustur því ekki að óttast um framtíðina – en Auður Ása Waagfjörð vann flokkinn á Þyrli frá Kílhrauni. Í barnaflokki varð Sigrún Gyða Sveinsdóttir efst á Toppi frá Svínafelli, Bára Bryndís Kristjánsdóttir og Stefnir frá Hofi unnu í unglingaflokki og Ólafur Andri Guðmundsson hrósaði sigri í ungmennaflokki á Leiftri frá Búð- ardal. Hulda G. Geirsdóttir á Gull- skjónu frá Stóra-Sandfelli varð efst í flokknum konur I, Oddný M. Jóns- dóttir og Ála frá Svignaskarði efst í konum II, Ríkharður Fl. Jensen efstur í karlaflokki I á Hæng frá Hæli og Rögnvaldur Jónsson og Léttir frá Eystri-Hól sigruðu í karlaflokki II. Um kvöldið fjölmenntu Gusts- menn síðan á árshátíð sem þótti takast vel. Þar veitti félagið nokkr- um hestaíþróttamönnum við- urkenningu fyrir góðan árangur á liðnu ári og var Berglind Rósa Guð- mundsdóttir útnefnd knapi ársins 2005. „Berglind Rósa stóð sig feikna- vel […] varð m.a. Íslandsmeistari í fimmgangi og bronsverðlaunahafi í tölti og fjórgangi á Íslandsmóti yngri flokka. Hún sigraði í B-flokki á Fjórðungsmóti Vesturlands …“ segir í fréttatilkynningu. Ásta Dögg Bjarnadóttir, Birgitta Dröfn Kristinsdóttir, Bjarnleifur Smári Bjarnleifsson, Elka Halldórsdóttir, Freyja Þorvaldardóttir og Rík- harður Fl. Jensen hlutu einnig viðurkenningu fyrir góðan árang- ur. Góð þátttaka á vetrarleikum Gusts Morgunblaðið/Eyþór Knapi ársins hjá Gusti, Berglind Rósa Guðmundsdóttir, á Þjótanda frá Svignaskarði, ásamt afa sínum, Skúla heitnum Kristjónssyni.  Meira á mbl.is/ítarefni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.