Morgunblaðið - 16.02.2006, Side 52
52 FIMMTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Frá framleiðendum
„Bridget Jones Diary“
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley),
bestu listrænu leikstjórn og tónlist.4
M.M. J. Kvikmyndir.com
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
S.V. Mbl.
L.I.B. Topp5.is
S.U.S. XFM 91,9
kvikmyndir.is
Ó.Ö. DV
mynd eftir
steven spielberg
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
S.V. Mbl.
Frábær og
kraftmikil mynd
sem styðst við raun-
verulega atburði með
Óskarsverðlauna-
höfunum, Charlize
Theron, Frances
McDormand og
Sissy Spacek.
North Country kl. 5:30 - 8 og 10:30 b.i. 12 ára
Munich kl. 5:50 og 9 b.i. 16 ára
Pride & Prejudice kl. 5:30 - 8 og 10:30
Bambi 2 - íslenskt tal kl. 6
Caché - Falinn kl. 8 og 10:30 b.i. 16 ára
Harry Potter & the Goblet of Fire kl. 5:15 b.i. 10 ára
Crash kl. 8 og 10:20 b.i. 16 ára
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand
sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
Sýnd með íslensku tali.
H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
Sýnd með íslensku tali.
H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
H.J. Mbl.
L.I.N. topp5.is
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. besta aðalhlutverk kvenna (Keira Knigthley),
bestu listrænu leikstjórn og tónlist.4 SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG ÓSTÖÐVANDI
FORSÝND Í SAMBÍÓUNUM
KRINGLUNNI Í KVÖLD
The Rushes á rætur sínar að rekja tilborgarinnar Leeds í bresku Miðlönd-unum. Þar kynntust þeir Gez O’Conn-el, söngvari og gítarleikari, og Dan
Armstrong píanóleikari og boltinn fór að rúlla.
„Við vorum báðir í námi í Leeds,“ segir O’Con-
nel. „Við kynntumst þegar við fórum að spila
fótbolta saman, og á einni æfingunni sagði ég
Dan að ég spilaði á gítar. Í kjölfarið spilaði ég
svo fyrir hann eitt fyrsta lagið sem ég samdi og
hann varð mjög hrifinn. Stuttu síðar fór hann og
keypti sér hljómborð, en hann hafði aldrei átt
hljóðfæri þrátt fyrir að spila á píanó. Upp frá
því byrjuðum við svo að spila saman,“ segir
O’Connel. Þrátt fyrir að þetta hafi verið árið
2002 hafi hljómsveitin einungis verið til í núver-
andi mynd í átta mánuði, en trommuleikarinn
Joe Allen bættist í hópinn síðastliðið sumar.
Fyrsta plata sveitarinnar er í bígerð og segir
O’Connel að sú vinna gangi mjög vel.
„Hljómsveitin er svo ung að okkur finnst eins
og við séum alltaf að semja nýtt efni. Það er erf-
itt að takmarka sig því við erum ánægðir með
öll lög sem við semjum, en getum samt ekki sett
nema hluta þeirra á plötuna,“ segir söngvarinn.
Vinna með reyndum fagmönnum
Þrátt fyrir að The Rushes sé ný af nálinni
hefur hljómsveitin nú þegar unnið náið með
reyndum fagmönnum í tónlistarbransanum, og
ber þar hæst að nefna lagasmiðinn og upp-
tökustjórann Youth, sem stjórnað hefur upp-
tökum fyrir tónlistarmenn á borð við Dido, Fine
Young Cannibals og sjálfan Paul McCartney,
auk þess sem hann hlaut BRIT-verðlaunin fyrir
upptökustjórn á breiðskífu Verve, Urban
Hymns. O’Connel segir að þeir félagar hafi not-
ið góðs af kynnum sínum við Youth, sem hófust í
hljóðveri í Brixton. „Þar var mikil veisla sem við
höfðum komist í í gegnum vin Dans sem var
plötusnúður í veislunni, en við vorum líka fengn-
ir til að spila. Þar hittum við Youth sem var
mjög hrifinn af okkur og bauð okkur að koma og
vinna með sér í kjölfarið,“ segir O’Connel. „Við
fórum beint heim til hans þar sem hann er með
hljóðver og byrjuðum að vinna að nokkrum lög-
um. Hann hjálpaði okkur mikið og gaf okkur
góð ráð hvað varðar lagasmíðar. Við vorum ný-
liðar í þessu og þess vegna var frábært að fá
mann með slíka þekkingu og reynslu til að
hjálpa sér.“
Stefna að plötu í sumar
Vinna við fyrstu plötu The Rushes er hafin og
O’Connel segir að stefnt sé að útgáfu hennar í
sumar, líklega í júlí. Áður en að því kemur ætlar
sveitin hins vegar að gefa út hljómleikaplötu.
„Við höfum verið að taka upp tónleikana okk-
ar og vonumst til þess að geta gefið út hljóm-
leikaplötu. Við komum hins vegar með nokkra
geisladiska með upptökum frá tónleikum okkar
til Íslands,“ segir O’Connel, og bætir því við að
hægt verði að nálgast þá á tónleikunum í kvöld.
Söngvarinn segir tónleikana í kvöld af öðrum
toga en tónleikarnir á Airwaves. „Þetta verður
ólíkt síðustu heimsókn vegna þess að núna er
engin hátíð, við verðum einir með þessa tónleika
þannig að það er meiri pressa á okkur en síðast.
En við hlökkum mikið til.“
Aðspurður segir hann erfitt að skilgreina tón-
list sveitarinnar. „Mér finnst best að lýsa tón-
listinni þannig að þetta sé bara gítar, píanó og
trommur,“ segir O’Connel og bætir því við að
áhrifin komi víðs vegar að. „Við erum allir mjög
hrifnir af gömlum tónlistarmönnum á borð við
Marvin Gay, Al Green, John Martin, Nick
Drake, Cat Stevens, Paul Simon og Ninu Sim-
one. Svo erum við líka mjög hrifnir af nýrra efni
eins og Jeff Buckley og Radiohead, og svo því
allra nýjasta, til dæmis Arcade Fire. Það má
segja að tónlist The Rushes sé einhvers staðar
þarna á milli,“ segir O’Connel. „Hver okkar
kemur með sín áhrif í hljómsveitina. Hljóm-
borðsleikarinn hefur til dæmis miklu meira vit á
söngvurum og lagahöfundum en ég. Ég hlusta
miklu meira á sálartónlist.“
Elska Ísland
Stutt er síðan The Rushes var hér á landi síð-
ast, en sveitin lék á Iceland Airwaves-hátíðinni í
október. Aðspurður segir O’Connel hljómsveit-
armeðlimi mjög hrifna af landi og þjóð. „Já, við
elskum Ísland. Við fengum frábær viðbrögð frá
Íslendingum kvöldið sem við spiluðum á Iceland
Airwaves. Svo skrifaði fólk mikið á heimasíðuna
okkar í kjölfarið og sagði að við hefðum komið
mest á óvart á hátíðinni og fleira í þeim dúr,“
segir hann. Þrátt fyrir þétta dagskrá í síðustu
heimsókn segir O’Connel að þeim félögum hafi
tekist að skoða nokkra staði á landinu. „Við
höfðum ekkert alltof mikinn tíma til þess en við
fórum þó í Bláa lónið og svo sáum við Gullfoss.
Þegar við komum að fossinum var hann ísi lagð-
ur og það var stórfengleg sjón. Landslagið á Ís-
landi er stórfenglegt, sérstaklega í augum fólks
frá Bretlandi,“ segir O’Connel og bætir því við
að í þessari heimsókn gefist meiri tími til ferða-
laga. „Við verðum í viku í þetta skipti og von-
umst til að geta ferðast meira.“
Meðlimum sveitarinnar kom nokkuð á óvart
hversu öflugt íslenskt tónlistarlíf er og þeir hrif-
ust mjög af því sem fyrir augu bar á Iceland
Airwaves. „Okkur fannst frábært að sjá allar
þessar hljómsveitir þegar við komum á Airwav-
es,“ segir O’Connel og bætir því við að hann
hlusti töluvert á íslenska tónlist sjálfur. „Ég er
mjög hrifinn af bæði Sigur Rós og Björk, þótt
ég sé reyndar viss um að það sé það sem allir
segja. Svo er ég líka mjög hrifinn af Lights On
The Highway. En almennt var ég mjög hissa á
því hvað tónlistarlífið á Íslandi er öflugt. Þetta
er svo fámennt samfélag en samt er eins og allir
séu eitthvað að fást við tónlist,“ segir hann. „Þar
að auki er nálgunin við tónlist á Íslandi með allt
öðrum hætti en hér í Bretlandi, hér væri tónlist
til dæmis aldrei leyfð í listasöfnum, hvað þá í
kjallara breska þjóðleikhússins. Fólk er einfald-
lega ekki eins frjálslynt hér og á Íslandi,“ segir
O’Connel.
Tónlist | The Rushes heldur tónleika í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld
Ljúflingar frá Leeds
Morgunblaðið/Sverrir
Joe Allen, Gez O’Connel og Dan Armstrong mynda The Rushes, en þetta er önnur heimsókn sveitarinnar hingað til lands.
Breska hljómsveitin The
Rushes leikur á tónleikum í
Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld, en sveitin vakti tölu-
verða athygli á Iceland Air-
waves-hátíðinni í október.
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
ræddi við Gez O’Connel,
söngvara og gítarleikara
sveitarinnar, um uppruna
hennar, áhrifavalda og tón-
leikana í kvöld.
The Rushes í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.
Bluebird og Idir hita upp. Húsið verður opnað
klukkan 21 en tónleikar hefjast klukkan 22.
Miðasala í verslunum Skífunnar og á midi.is.
Miðaverð er 1.200 kr. auk 150 kr. miðagjalds.
jbk@mbl.is