Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 10

Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ BAUGSMÁLIÐ VITNALEIÐSLUM í Baugsmálinu lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en þá komu m.a. þrír fyrrver- andi stjórnarmenn Baugs fyrir rétt- inn. Málinu verður fram haldið á morgun þegar sækjendur og verj- endur flytja málið munnlega fyrir dómi. Um er að ræða aðalmeðferð á þeim átta ákæruliðum sem Hæsti- réttur vísaði ekki frá. Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður, og þau Guðfinna S. Bjarnadóttir og Þorgeir Baldurs- son, fyrrverandi stjórnarmenn, voru öll spurð að því nákvæmlega hvaða upplýsingar stjórnin hefði fengið um meintar ólöglegar lántökur út úr Baugi til Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar og Kristínar Jóhannesdóttur, tveggja ákærðu, og fyrirtækja á þeirra vegum, Fjárfars og Gaums. Óskar bar fyrir réttinum að hann myndi ekki til þess að leitað hefði verið til stjórnar vegna lánveitinga, en í starfsreglum sem hann sjálfur samdi sem stjórnarformaður Baugs kemur fram að bera eigi viðskipti Baugs við tengd félög og aðila undir stjórnina. Óskar sagði það ákvæði hafa verið sett inn í starfsreglurnar til að tryggja að eigendur sætu ekki beggja vegna borðsins. Hann nefndi sem dæmi frá tíma sínum sem stjórnarformaður viðskipti Baugs við Ferskar kjötvörur, fyrirtæki í eigu Gaums. Ekki samkomulag um samskipti Baugs og Gaums Spurður af Sigurði Tómasi Magn- ússyni, settum ríkissaksóknara í málinu, hvort viðskiptafærslur á reikninga Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, Kristínar Jóhannesdóttur, Fjárfars eða Gaums, hefðu verið lagðir fyrir stjórnina, sagði Óskar að sér væri ekki kunnugt um að svo væri. Spurður nánar út í þetta af Gesti Jónssyni, verjanda Jóns Ás- geirs, sagði hann að ekki hefði tíðk- ast að leggja slík viðskipti fyrir stjórn ef um hefði verið að ræða fé- lög í viðvarandi viðskiptum. Hvorki var formlegt né óformlegt samkomulag um það fyrirkomulag að Gaumur gengi á undan Baugi í fjárfestingar, sem síðar væru yfir- teknar af Baugi, sagði Óskar. Hann sagði þó að um hefði verið að ræða tilvik þar sem gerð voru viðskipti í nafni Gaums sem síðan voru yfirtek- in af Baugi. Spurður af Jakobi R. Möller, verjanda Tryggva Jónsson- ar, hvers vegna viðskipti hefðu farið fram á þann hátt sagði Óskar að þeg- ar forstjórinn, Jón Ásgeir, hefði talið þurfa að hafa hraðan á í viðskiptum, og ekki hefði verið tími til að leita samþykkis stjórnar fyrir viðskiptun- um, hefði hann gert kaupin í gegnum Gaum. Guðfinna S. Bjarnadóttir, sem sat í stjórn Baugs frá 1998-2003, þar af eitt ár sem varamaður í stjórn, sagði að á meðan hún sat í stjórn hefði sér ekki verið kunnugt um stöðu á við- skiptareikningi Jóns Ásgeirs, Krist- ínar, Fjárfars eða Gaums hjá Baugi. Hún sagði ekkert eftirlit hafa verið haft með því af hálfu stjórnarinnar. Þurfti ekki að hafa áhyggjur af skuld Jóns Ásgeirs Mikil umræða var þó um þessi mál á fundi stjórnar Baugs þann 23. maí 2002, þegar ytri endurskoðendur Baugs kynntu úttekt sem unnin var að frumkvæði Hreins Loftssonar, stjórnarformanns, sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. Spurð af settum ríkissaksóknara hvort hún kannaðist við þá yfirlýs- ingu Jóns Ásgeirs á fundinum að hann teldi að engin skuld hefði verið milli Baugs og Gaums um áramótin 2001 til 2002 sagðist hún muna eftir því. Spurð hvernig hún hefði metið þá yfirlýsingu sagði Guðfinna að hún hefði metið málin þannig að ekki þyrfti að hafa neinar áhyggjur af stöðu þessa máls eftir það. Spurð af Þórunni Guðmundsdótt- ur, verjanda Stefáns Hilmarssonar og Önnu Þórðardóttur, hvort það hefði verið rætt á stjórnarfundum að Gaumur færi á undan Baugi í við- skipti, sagði Guðfinna að það hefði verið rætt í einhverjum tilvikum. Nefndi hún sérstaklega viðskipti með bréf í Arcadia, sem rædd voru á umræddum stjórnarfundi í maí 2002. Guðfinna sagði ennfremur að það hefði ekki verið vanalegt að stjórn fjallaði um stöðu á viðskiptareikn- ingum, hvorki í stjórn Baugs né í öðrum stjórnum þar sem hún þekkti til. Fylgdust ekki með stöðu á viðskiptum stjórnenda Þriðji fyrrverandi stjórnarmaður Baugs sem kallaður var sem vitni í málinu í gær var Þorgeir Baldurs- son, sem sat í stjórn félagsins frá 1998-2003. Hann tók í sama streng og Guðfinna og sagði stjórnina ekki hafa fylgst sérstaklega með stöðu á viðskiptum Baugs við Jón Ásgeir, Kristínu eða félög tengd þeim. Hann sagði þó að á stjórnarfundi 23. maí 2002 hefði bréf ytri endur- skoðanda Baugs verið rætt, og þar hefði komið fram að skuldir Jóns Ás- geirs, Kristínar, Fjárfars og Gaums yrðu gerðar upp. Aðspurður af sækjanda sagðist Þorgeir muna eftir því að Jón Ásgeir hefði lýst því yfir á fundinum að eng- in skuld hefði verið milli Gaums og Baugs um áramótin 2001–2002. Eftir spurningu verjanda staðfesti Þor- geir einnig að sá háttur hefði í ein- hverjum tilvikum verið hafður á að Gaumur hefði fjárfest og Baugur hefði svo yfirtekið þau viðskipti. Fyrir héraðsdóm í gær voru einn- ig kallaðir nokkrir núverandi og fyrrverandi starfsmenn Baugs, sem og starfsmenn KPMG endurskoðun- ar. Saksóknari bar fjölmörg gögn úr bókhaldi Baugs undir Lindu Jó- hannsdóttur, sem var fjármálastjóri Baugs frá árinu 1998 til 2001. Hún sagðist sjálf hafa haft yfirumsjón með innheimtu viðskiptakrafna á þessum tíma. Spurð hvort hún hefði eitthvað reynt að innheimta við- skiptakröfur á Jón Ásgeir, Kristínu, Fjárfar eða Baug, sagði Linda að hún hefði fengið þau svör að ekki væri þörf á því að setja þær skuldir í innheimtu. Lögregla kynnti ekki undantekninguna Jakob R. Möller, verjandi Tryggva Jónssonar – sem var næsti yfirmaður Lindu, spurði hana út í yf- irheyrslur hjá lögreglu. Þar var hún spurð út í meintar ólöglegar lánveit- ingar Baugs til stjórnenda. Hún sagði að fyrir yfirheyrsluna hefði lögreglumaður vitnað í 104. grein laga um hlutafélög. Í fyrstu málsgreinum þeirrar lagagreinar segir: „Hlutafélagi er hvorki heimilt að veita hluthöfum, stjórnarmönnum eða framkvæmda- stjórum félagsins eða móðurfélags þess lán né setja tryggingu fyrir þá. Félagi er einnig óheimilt að veita þeim lán eða setja fyrir þann trygg- ingu sem giftur er eða í óvígðri sam- búð með aðila skv. 1. málsl. eða er skyldur honum að feðgatali eða niðja ellegar stendur hlutaðeigandi að öðru leyti sérstaklega nærri. Ákvæði þessarar málsgreinar taka þó ekki til venjulegra viðskiptalána. Hlutafélag má ekki veita lán til að fjármagna kaup á hlutum í félaginu eða móð- urfélagi þess hvort heldur móður- félagið er hlutafélag eða einkahluta- félag. Hlutafélag má heldur ekki leggja fram fé né setja tryggingu í tengslum við slík kaup.“ Jakob spurði þá Lindu hvort henni hefði verið kynnt undantekningin sem fram kemur síðar í 104. grein- inni, en hún sagði að það hefði ekki verið gert. Raunar hefði hún staðið í þeirri trú að lánveitingar til starfs- manna væru löglegar þar til henni var sagt annað við yfirheyrslur hjá lögreglu. Í undantekningunni segir: „Ákvæði 1.–2. málsl. [sbr. fyrri til- vitnun] eiga þó ekki við um kaup starfsmanna félagsins eða tengds fé- lags á hlutum eða kaup á hlutum fyr- ir þá.“ Hluti endurgreiðslu til Byrgisins Lítið var fjallað um þann þátt málsins sem snýr að bílakaupum í gær, en þó voru nokkur vitni kölluð fyrir dóminn vegna þeirra, t.d. fólk sem starfað hafði við tollskýrslugerð og annað tengt innflutningnum. Voru þau vitni að mestu látin bera kennsl á skjöl sem þau höfðu unnið vegna innflutningsins. Meðal þeirra sem báru vitni var Halldór S. Hestnes, starfsmaður Baugs. Hann starfaði að tollskýrslu- gerð fyrir félagið, og rak augun í að opinber gjöld vegna innflutnings á tveimur bílum, ætluðum Jóhannesi Jónssyni og Kristínu Jóhannesdótt- ur, væru líklega of há. Hann sagði fyrir rétti í gær að hann hefði borið það undir Kristínu og Jóhannes, og þau hefðu beðið hann að fara fram á leiðréttingu á þessu við tollayfirvöld. Það hefði hann gert, og hefði Jóhannes heitið helmingi þess fjár, sem við þetta fengist, til Byrgisins. Samtals hefðu fengist um 500 þúsund krónur til baka, og hefðu 250 þúsund krónur runnið til Byrgisins. Fyrrverandi stjórnarformaður Baugs bar vitni í Baugsmálinu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær Samdi starfsreglur svo eigendur sætu ekki beggja vegna borðsins Morgunblaðið/ÞÖK Lögmennirnir Jakob R. Möller og Kristín Edwald, tveir af verjendum ákærðu, koma inn í dómsalinn í gær. Morgunblaðið/ÞÖK Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs, bar vitni við aðalmeðferð málsins í gær. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is ENDURSKOÐENDUR frá endurskoð- unarfyrirtækjunum PricewaterhouseCoopers og Deloitte voru kallaðir fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við aðalmeðferð Baugsmálsins í gær, en fyrirtækin hafa bæði unnið skýrslur vegna málsins. PricewaterhouseCoopers hefur unnið þrjár skýrslur fyrir verjendur, og var Ólafur B. Kristinsson, löggiltur endurskoðandi hjá fyr- irtækinu, kallaður fyrir sem vitni verjenda í gær. PricewaterhouseCoopers hefur gert úttekt á bókhaldi Baugs vegna þessa dómsmáls, og spurði Þórunn Guðmundsdóttir, verjandi Stef- áns Hilmarssonar og Önnu Þórðardóttur, út í niðurstöður þeirrar úttektar. Ólafur segir að miðað við úttektina virðist sem upphæðir í ákærunum séu ekki réttar. Ákæruvaldið leggi saman upphæðir, og því sé erfitt að finna út nákvæmlega hvernig þær séu samsettar. Það hafi hreinlega ekki tekist að púsla saman þeim upphæðum sem um er að ræða fyrir árin 2000 og 2001, sem bendi til þess að upphæðirnar sem ákæruvaldið leggur fram séu rangar. Ólafur var einnig beðinn um að skýra hvað átt sé við með orðalaginu „glögg mynd“, en endurskoðendur sem undirrita ársreikninga gera það með þeim fyrirvara að þeir séu ekki endilega að öllu leyti réttir, en þeir gefi þó „glögga mynd“ af ástandi fyrirtækisins. Ólaf- ur sagði það gert til þess að tryggja að upp- lýstur lesandi ársreikninga fái allar upplýs- ingar sem hann þurfi til að draga rétta ályktun af reikningsskilunum. Lán eða viðskiptakröfur? Ólafur var einnig spurður um skýrslu sem PricewaterhouseCoopers vann, þar sem fjallað er um hvað flokkist sem formlegar lán- veitingar. Hann benti á 43. grein laga um árs- reikninga, en þar segir: „Tilgreina skal fjár- hæðir lána, svo og veðsetningar, ábyrgðir og tryggingar sem veittar hafa verið félags- aðilum eða stjórnendum félags eða móður- félags þess vegna tengsla þessara aðila við fé- lögin, sundurliðað ásamt upplýsingum um vexti, greiðslukjör og aðra helstu skilmála. Ákvæði 1. mgr. eiga einnig við gagnvart ein- staklingum, nátengdum þeim sem þar eru taldir.“ Hann sagði þarna skorta á umfjöllun um hvað væri eðlileg lánveiting, og sagði að í um- fjöllun í skýrslu PricewaterhouseCoopers sé það skilgreint sem svo að það vísi í samning á milli tveggja aðila um að annar láni verðmæti, og samið sé um endurgreiðslur og vexti. Hann segir að með tilvísun í 104. grein hluta- félagalaga sé ljóst að átt sé við eiginleg lán, ekki viðskiptastöðu milli aðila. Vantaði endurkröfur Jóns Ásgeirs í bókhaldið? Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, spurði Ólaf hvort rétt sé að kröfur Baugs á hendur Jóni Ásgeiri hafi aldrei verið hærri en gagnkröfur Jóns Ásgeirs á Baug, og sagði Ólafur það rétt. Sækjandi spurði á móti hvort það þýddi þá ekki að ársreikningur hafi þar með verið rangur, því ekki sé minnst á þessar gagnkröfur þar. Svo sagði Ólafur ekki vera, endurskoðendur geri ráð fyrir óvissuatriðum sem þessum með sérstökum lið í ársreikning- unum. Hann gat þó ekki sagt hvort svo hafi verið gert í þessu tilviki. Sigurður H. Steinþórsson, endurskoðandi hjá Deloitte, var því næst kallaður fyrir sem vitni sækjanda og bar hann vitni um skýrslur sem Deloitte vann fyrir bæði efnahags- brotadeild ríkislögreglustjóra og skýrslu fyrir sækjanda í málinu. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, spurði Sigurð að því hvort hann teldi við- skiptakröfur falla undir 43. grein laga um árs- reikninga, þar sem kveðið er á um að geta skuli lána til stjórnenda í ársreikningum. Sig- urður sagði að hann teldi svo vera. Greina þyrfti frá öllum slíkum viðskiptum sem ekki séu reglubundin. Átök um störf endurskoðendanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.