Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 12

Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA -5 4 7 7 HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 Verð aðeins 4.290.000 kr. Hörkutól og eðalvagn Staðalbúnaður í Pajero GLX: Öflug 3,2 lítra DI-D dísilvél • 5 þrepa sjálfskipting • fjölvalsbúnaður á drifi • driflæsing að aftan • sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum • heildstæð yfirbygging • 7 manna – niðurfellanleg aftursæti • skyggðar afturrúður • álfelgur • þakbogar • skriðstillir • o.fl. Mitsubishi Pajero er sigursælasti bíll frá upphafi í Paris-Dakar rallinu. Pajero er tilbúinn í allt sem þú leggur á hann – og það er öruggt að það fer vel um þig á meðan. FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur mótmælt framsetningu Kastljóss Ríkissjónvarpsins í umfjöllun um þróun skattbyrði hér á landi, í bréfi sem sent var Þórhalli Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóssins. Í svarbréfi benda þau Þórhallur og Jóhanna Vilhjálmsdóttir á að í þættinum hafi aðeins verið bent á að mismunandi forsendur gefi ólíkar niðurstöður varðandi þróun skatt- byrði. Í bréfi ráðherra segir að Jóhanna Vilhjálmsdóttir þáttastjórnandi hafi sýnt stuttan bút úr viðtali við ráð- herrann, þar sem hann segi: „...en allar tölur sem eru reiknaðar með reglum ársins í ár á tölur frá 1994 munu gefa þér lægri skatta í ár“. Jóhanna hafi síðar í yfirferðinni sagt: „...ef við skoðum nú þessa mynd í heild sinni þá sjáum við að allir tekjuhóparnir, nema þessi síð- asti, hefur orðið fyrir aukinni skatt- byrði ef við skoðum hana út frá upp- reiknuðum launum samkvæmt launavísitölu.“ Í bréfi ráðherra segir að þarna sé byggt á samanburði ósambærilegra talna til að gefa til kynna að fjár- málaráðherra hafi farið með rangt mál. „Bornar eru saman tölur, sem fjármálaráðherra vitnaði til, við töl- ur sem eru uppreiknaðar með launavísitölu. Þá fæst niðurstaða sem ræðst af öðrum þáttum en skattalækkunum ríkisstjórnarinnar, þ.e. launaþróun, og ályktun um að skattar hafi verið hækkaðir rang- lega dregin. Hefði þróun launa verið á annan veg, t.d. undir þróun verð- lags hefði niðurstaðan orðið önnur,“ segir í bréfinu. Aðferðin sé því ónothæf til þess að meta áhrif skattalækkana rík- isstjórnarinnar þó hún geti nýst til þess að meta breytingar á kaup- mætti ráðstöfunartekna. Einungis bent á mismunandi forsendur Í svarbréfi þeirra Þórhalls og Jó- hönnu til ráðuneytisins segir að ætl- unin hafi ekki verið að bera brigður á málflutning fjármálaráðherra, heldur hafi einungis verið bent á að mismunandi forsendur um launaþróun gefi mismunandi niður- stöður um þróun skattbyrði. Í bréfinu segir að í umfjöllun þáttarins hafi verið borin saman skattbyrði á laun frá 1995 miðað við laun í dag, uppreiknuð bæði miðað við launaþróun og verðlag. Sá sam- anburður í umfjöllun þáttarins sem ráðherra felli sig ekki við sýni hvernig skattbyrði hafi breyst eftir því hvar á tekjuskalanum viðkom- andi hjón voru þegar skoðuð voru uppreiknuð laun samkvæmt launa- vísitölu. Í þættinum hafi verið bent á að skattbyrði hafi aukist hjá um 80 prósentum framteljanda þegar laun voru uppreiknuð samkvæmt launavísitölu en lækkað hjá 20 pró- sentum hjóna á tekjuskalanum mið- að við sömu forsendur. Áður hafi verið farið yfir nokkra tekjuhópa hjóna með tvö börn undir sjö ára aldri. Þar hafi verið bent á að ef laun væru reiknuð upp samkvæmt þróun verðlags, þ.e. ef laun 1995 væru borin saman við jafnverðmæt laun í dag, hefði skattbyrðin staðið í stað eða minnkað. Það eigi við um alla tekjuhópa. Þegar skattbyrði var hins vegar reiknuð á uppreiknuð laun sam- kvæmt launavísitölu hafi niðurstað- an ekki verið sú sama fyrir alla tekjuhópa og í því hafi falist sá sam- anburður sem gerður var. Í bréfinu segir að sá samanburð- ur skipti máli fyrir áframhaldandi umfjöllun, því Kastljós hyggist skoða hvernig greiðsla skatta í rík- issjóð hafi færst á milli tekjuhópa. Í bréfinu segir að margendurtekið hafi verið í umfjölluninni að það skipti máli hvort skattbyrðin 1995 sé borin saman við uppreiknuð laun í ár samkvæmt launavísitiölu eða samkvæmt þróun verðlags. Enn- fremur hafi verið bent á að laun hafi hækkað langt umfram verðlag. Samanburðurinn hafi því ekkert haft með orð ráðherra að gera og hvergi hafi verið lagður nokkur dómur á orð hans. Í lok bréfsins segir að Kastljósið hyggist halda áfram umfjöllun sinni um skattamál, enda hafi varla farið framhjá nokkrum manni að allur al- menningur hafi átt í erfiðleikum með að fá botn í þverstæðukenndar fullyrðingar stjórnmálamanna. Bréfaskriftir milli fjármálaráðherra og Kastljóss Segir byggt á samanburði ósambærilegra talna Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is VILHJÁLMUR Bjarnason, aðjúnkt við viðskipta- og hagfræðideild Há- skóla Íslands, segir að ummæli Pet- ers Gatti, framkvæmdastjóra þýska bankans Hauck & Aufhäuser, í Fréttablaðinu í gær, útskýri ekki að- komu bankans að Eglu ehf. og kaup- um S-hópsins á ráðandi hlut í Bún- aðarbankanum á sínum tíma. Gatti segir að eign Hauck & Auf- häuser í Eglu ehf. hafi verið færð í veltubók bankans og að samkvæmt þýskum reglum hafi bankinn fimm ára frest til að ákveða hvort hann fjárfesti í öðru fjármálafyrirtæki til langframa. Þá geri bankinn ekki upp sam- kvæmt alþjóðareikningsskilum þar sem hann hafi heimild samkvæmt þýskum lögum til að fara öðruvísi með hagnað. „Þetta breytir engu og er bara bull. Ef þetta er á veltubók og þeir vita hvað þeir eru að tala um, þá er það einfaldlega þannig að allar verð- breytingar á veltubók eiga að koma fram í rekstrarreikningi,“ segir Vil- hjálmur og bætir við að hann hafi yf- irfarið rekstrarreikning þýska bank- ans og ekki séð að hagnaðurinn komi þar fram. „Athugasemd Gatti um að hagn- aðurinn sé færður með öðrum hætti hefur ekkert að segja. Reikningur- inn er settur fram með hefðbundnum hætti, með þeim hætti sem fjármála- stofnanir á evrópska efnahagssvæð- inu eiga að gera,“ segir Vilhjálmur. Gögn til ríkisendurskoðanda Vilhjálmur afhenti ríkisendur- skoðanda gögn varðandi ársreikning þýska bankans í gær og afhenti Fjár- málaeftirlitinu sömu gögn í fyrra- dag. Sigurður Þórðarson ríkisendur- skoðandi segir gögnin verða skoðuð og ákvörðun tekin um framhaldið að því loknu. Sú ákvörðun mun senni- lega liggja fyrir í byrjun næstu viku. Í umræðum um málið á Alþingi á dögunum kom fram af hálfu for- sætisráðherra að hann hefði haft samband við ríkisendurskoðanda, sem hefði tjáð sér að ekkert nýtt væri í málinu. Þegar Sigurður var inntur eftir þessu, segir hann að mál- ið hafi þegar verið rannsakað og að menn hafi vitað af þýska bankanum þá. Ársreikningurinn hafi hins vegar verið ekki skoðaður sérstaklega enda segi hann ekki mikla sögu. „Það eru aðrir hlutir sem skipta meira máli,“ segir Sigurður og bætir við að erfitt sé að lesa mikið út úr slíkum reikningum. Vilhjálmur Bjarnason um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser Hagnaður kemur ekki fram í rekstrarreikningi Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Sigurður Þórðarson Vilhjálmur Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.