Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 20

Morgunblaðið - 23.02.2006, Síða 20
LEIFSGATA 21, RVÍK OPIÐ HÚS Í DAG KL. 16-19 Falleg og töluvert endurnýjuð 5 herb. sérhæð, um 115 fm, á sléttri jarðhæð með sérinngangi í góðu fimmbýli á þessum vinsæla stað. Stofa og 4 rúmgóð svefnherb. (eða 2 stofur og 3 svefnh.), eldhús og baðherbergi. Nýlegt parket og linoleum-dúkur. Góðar geymslur. Góð lóð. Hús í góðu ástandi. Áhv. 14,9 millj. 40 ára lán með 4,15% fasta vexti. Ásett verð 23,3 millj. VERIÐ VELKOMIN. Ólafsvík | Stóri sunnan var í Ólafsvík í gærmorgun, ásamt miklu úrfelli. Þetta hugtak er notað um hvassa sunnanátt sem engu eirir. Niðurföll gatna hafa ekki haft undan úrkomunni og starfs- menn Snæfellsbæjar hafa haft nóg að gera við að bjarga hlut- unum. Úrkoman á mæli Ólafs Helga Ólafssonar mældist 57,3 mm frá miðnætti til hádegis í gær og er það mesta úrkoma sem Helgi hefur mælt. Þá skilar úrkoman sé fljótt í ár og læki og bæjarfossinn var orðinn ansi myndarlegur um há- degið. Morgunblaðið/Alfons Stóri sunnan í Ólafsvík Veður Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 461-1601, Margrét Þóra Þórs- dóttir, maggath@mbl.is, 669-1117 og Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmunds- dóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi- @mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Athygli vakti á fundi nemenda við Há- skólann á Akureyri í vikunni, þar sem mótmælt var niðurskurði framlaga til skólans, hve harðorður Kristján Þór Júl- íusson bæjarstjóri var – samflokksmaður ráðherra fjár- og menntamála. Hét Krist- ján stuðningi allra bæjarfulltrúa við það að „berja til hlýðni þá sem fara með fjár- veitingavaldið í landinu,“ eins og hann komst að orði, við góðar undirtektir.    Maríubjallan, sem Leikfélag Akureyrar frumsýndi um síðustu helgi, er frábær sýning, þar sem lýst er nöturlegu lífi þeirra sem orðið hafa undir við breyting- arnar í Rússlandi síðustu ár. En eitt var vont og rétt að benda væntanlegum áhorf- endum á það: Mikið er reykt í sýningunni – það er því miður nauðsynlegt í því skyni að gera persónurnar nógu trúverðugar – og ég var kominn með mikinn varaþurrk þegar á leið. Bendi þeim, sem þola illa síg- arettureyk eins og ég, að hafa með sér varasalva.    Jóhannes Bjarnason gaf sér ekki langan tíma til að fagna sigri í prófkjöri fram- sóknarmanna á laugardagskvöldið. Hann fór snemma að sofa, enda þurfti hann að stjórna 3. flokki KA í handboltaleik klukk- an hálf tíu morguninn eftir.    Erlingur Kristjánsson varð í 4. sæti í próf- kjörinu og fór líka snemma heim. Hann átti að dæma leikinn morguninn eftir!    Maríanna Clara Lúthersdóttir, sem fór á kostum í hlutverki þjónustustúlkunnar í Fullkomnu brúðkaupi hjá LA, varð fyrir því óláni í seinni föstudagssýningunni fyr- ir tæpri viku, að hurð var skellt á enni hennar, sem bólgnaði upp, hratt og örugg- lega í anda sýningarinnar! Leikkonan lauk sýningunni eins og ekkert hefði í skorist en með býsna myndarlegt „horn“, enda beið hennar kælipoki baksviðs um leið og klappað hafði verið fyrir leikurunum.    Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ og forsprakki verkefnisins Akureyri í önd- vegi, hefur sótt um bókstafinn A til kjör- stjórnar vegna sveitarstjórnarkosning- anna í vor. Framboð er hugsanlegt, en ekkert ákveðið. Úr bæjarlífinu AKUREYRI Eftir Skapta Hallgrímsson blaðamann Hólmaröst ehf. hefurlýst yfir vilja sín-um til að takast á við uppbyggingu safns, menningar- og mannlífs- miðstöðvar, í húsnæði fyr- irtækisins að Hafnarskeiði 8 í Þorlákshöfn í samstarfi við opinbera aðila, fyr- irtæki og einstaklinga. Hólmaröst hefur verið með fiskvinnslu en hús fyr- irtækisins á Stokkseyri eru notuð fyrir svokallaða menningarverstöð. Bæjarráð Sveitarfé- lagsins Ölfuss tók vel í er- indið á síðasta fundi sínum og lýsti yfir ánægju sinn með þann áhuga sem fyr- irtækið sýnir byggðarlag- inu með hugmyndum sín- um. Mannlífs- miðstöð Það eru misjafnlegastór verkefnin semmenn takast á við í lífinu. Ólafur Áki Ragn- arsson, nú bæjarstjóri í Ölfushreppi og fyrrum sveitarstjóri í Djúpavogs- hreppi, ákvað að ganga á hæsta fjall Afríku, Kilim- anjaro. Er skemmst frá því að segja að Ólafur sigraði fjallið mikla og í tilefni þess mætti hann sl. laug- ardag á sínar gömlu heimaslóðir og efndi til samkomu í menningar- miðstöð Djúpavogs, Löngubúð, til að deila þessari reynslu sinni í máli og myndum. Íbúar Djúpavogs mættu vel á fyrirlestur Ólafs og var gerður mjög góður rómur að frásögn hans og myndasýningu frá ferðinni. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Knár og þolinn Ólafur Áki Ragnarsson greindi frá ferð sinni á risann Kilim- anjaro. Bæjarstjóri sækir á brattann Jóhannes Sigmunds-son frá Syðra-Langholti átti leið meðfram Ingólfsfjalli, þar sem mikið malarnám á sér stað: Mjög er sótt í möl og gjall, mun á degi hverjum sérðu. Eftir situr Ingólfsfjall allsnakið að sunnanverðu. Davíð Hjálmar Haralds- son yrkir upp til fjalla: Herlegt er að halda til á fjöllum, hásumar við lyng og blóma skart, við fábreytt líf svo fjarri húsum öllum en frekar er nú Morgunblaðið hart. Bútaldi bylur: Alltaf getur í það rýnt ef á kamar mætir; innihaldið er svo fínt það áferðina bætir! Allsnakið Ingólfsfjall pebl@mbl.is Skagaströnd | Hreppsnefnd Skaga- strandar og Rafmagnsveitur ríkisins hafa ákveðið að ganga til samstarfs um lagningu hitaveitu á Skagaströnd. Vatn- ið verður leitt frá Blönduósi þar sem RARIK rekur hitaveitu. Þrátt fyrir töluverða leit og tilrauna- boranir í kringum Skagaströnd á und- anförnum árum hefur ekki tekist að finna heitt vatn til húshitunar. Í ljósi þess er hér um merkan atburð að ræða fyrir íbúa Skagastrandar sem geta nú, innan alltof langs tíma, lagt af að kynda hýbýli sín með rafmagni því stefnt er að því að hefja framkvæmdir við veituna á næsta ári. RARIK keypti hitaveitu Blönduóss á síðasta ári en heita vatnið til hennar er fengið á Reykjum og dælt þaðan til Blönduóss, um 15 km leið. Milli Blöndu- óss og Skagastrandar eru síðan um 20 km til viðbótar. Gjaldskrá hitaveitunnar mun verða sú sama á Blönduósi og Skagaströnd eftir að hún kemst í gagnið en áætlaður kostnaður við lagningu hennar til Skagastrandar er 300 til 350 milljónir króna. Hitaveita verður lögð á Skagaströnd Ísafjörður | Söngleikurinn Hið ljúfa líf eftir Benóný Ægisson verður settur á svið af leikfélagi nemendafélags Mennta- skólans á Ísafirði í sólrisuvikunni. Frum- sýning verður í sal Menntaskólans á Ísa- firði kl. 20 á morgun, föstudag. Hið ljúfa líf fjallar um kvöldstund á skemmtistaðnum Nátthrafninum þar sem fastagestirnir eru fyllibyttur, dóp- istar og glæpamenn. Leikstjóri er Dar- ren Forman. Öll lög söngleiksins eru frumsamin nema eitt sem er eftir KK og Jón Ólafsson. Af sextán lögum í söng- leiknum eru fjórtán samin af þremur nemendum úr MÍ, en þeir eru Valdimar Olgeirsson, Halldór Smárason og Krist- inn Gauti Einarsson. Auk þess samdi Hildur Dagbjört eitt lag. Titillag sýning- arinnar heitir Hið ljúfa líf, lag eftir Valdimar Olgeirsson, og má nálgast það á vefsíðu söngleiksins, www.simnet.is/ base/nmi. Hápunktur Sólrisuhátíðarinnar ár hvert er jafnan frumsýning á Sólrisu- leikritinu, segir í fréttatilkynningu. Næstu sýningar eru á sunnudag, þriðju- dag og fimmtudag og lokasýning verður á sunnudaginn eftir viku. Söngleikurinn Hið ljúfa líf á Ísafirði ♦♦♦ Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.