Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 41
HESTAR
MÖNNUM verður tíðrætt um að
skyldleiki íslenskra hrossa sé að
verða alltof mikill. Að þeir Hrafn frá
Holtsmúla og Orri frá Þúfu séu
ríkjandi í megninu af hrossum hér á
landi, bara mismikið. Ekki finnst öll-
um þetta áhyggjuefni og víst er að
skyldleikarækt er á undanhaldi.
Upp úr aldamótunum 1900 og
fram eftir síðustu öld var víða
stunduð markviss skyldleikarækt
þar sem mikið skyldum hrossum var
æxlað saman, gjarnan alsystkinum, í
þeim tilgangi að efla kosti þeirra og í
mörgum tilfellum með góðum ár-
angri. Hættan var auðvitað sú að
gallarnir efldust ekki síður en kost-
irnir. Þannig urðu til þeir stofnar
sem allir hestamenn hafa heyrt getið
eins og Svaðastaðastofninn í Skaga-
firði og Hornafjarðarstofninn. Síð-
ustu áratugina hafa þessir stofnar
blandast hver öðrum og erfitt er að
finna hreina stofnrækt í dag.
Svaðastaðastofninn
Á Svaðastöðum í Skagafirði hófst
markviss skyldleikarækt upp úr
aldamótunum 1900. Svaðastaða-
hrossin má flest rekja til alsystk-
inanna Sörla 71 og Tinnu 124 frá
Svaðastöðum sem voru fædd 1915 og
1916. Sörli og Tinna fengu fyrstu
verðlaun í kynbótadómi árið 1921,
Sörli þá fimm vetra gamall og Tinna
sex vetra. Synir Sörla voru mikið not-
aðir á þriðja áratugnum og breiddist
Svaðastaðastofninn út um allt land út
frá honum. Í dag er vandfundið það
hross sem ekki er afsprengi Svaða-
staðahrossa.
Svaðastaðastofninum var lýst í
Búnaðarriti árið 1924 sem fínbyggð-
um hrossum með mikinn vilja eða
fjör, fjölbreyttan gang, þjála lund,
kergjulausum og ljúfum í tamningu.
Gott ef þessi lýsing kemur ekki heim
og saman við þann hest sem flestir
hestamenn vilja eiga í dag.
Út frá Svaðastaðastofninum komu
svo tvær þekktar línur, Kirkjubæj-
arhrossin og Kolkuósshrossin.
Kolkuósslínan
Á Kolkuósi í Skagafirði hófst
skyldleikarækt á hrossum af
Svaðastaðastofni upp úr 1920. Sonur
Sörla 71, Hörður 112 frá Kolkuósi,
fæddur 1922, markar upphafið að
Kolkuósslínunni og mörg afkvæma
hans voru notuð í framrækt á
Kolkuósi. Annar Hörður frá Kolkuósi
fæddist árið 1957 og komst til
metorða á sjöunda áratugnum. Til
hans er hægt að rekja margan gæð-
inginn og var til dæmis um hríð
stunduð skyldleikarækt hrossa út frá
honum á Árbakka í Landsveit. Víða í
Skagafirði skildi Hörður eftir sig
spor og sem dæmi má nefna að móðir
Lydíu frá Vatnsleysu er undan
Herði.
Kirkjubæjarlínan
Á Kirkjubæ á Rangárvöllum var
stofnað hrossaræktarbú árið 1944.
Markmiðið var að rækta rauðbles-
óttan gæðingastofn og hefur það ver-
ið leiðarljós ræktenda í Kirkjubæ all-
ar götur síðan. Hryssurnar sem lagt
var upp með voru víða að af landinu
og flestar af Svaðastaðastofni. Marg-
ar þeirra voru út frá Sörla 168 frá
Miklabæ sem var undan Létti frá
Svaðastöðum sem var undan alsystk-
inunum Sörla 71 og Tinnu frá Svaða-
stöðum sem áður var getið.
Þáttur 722 frá Kirkjubæ fæddist
árið 1967 og var hann undan tveimur
Kirkjubæingum, Hyl 721 og Von
2791. Þáttur er líklega kynsælastur
Kirkjubæjarhrossanna og meðal af-
kvæma hans er Rauðhetta frá
Kirkjubæ, hæst dæmda kynbóta-
hross allra tíma með 9,23 fyrir hæfi-
leika.
Séreinkenni Kirkjubæjarhross-
anna er liturinn, rautt er ríkjandi og
oftar en ekki með blesu eða stjörnu.
Kirkjubæjarhrossin þykja fríð, ljúf og
meðfærileg en á tímabili þóttu þau
kannski fullljúf.
Hornfirðingar
Í Hornafirði hefur í gegnum tíðina
þróast skyldleikaræktaður stofn vilj-
ugra og taugasterkra fjörhesta. Ætt-
móðir Hornafjarðarstofnsins er Óða-
Rauðka frá Árnanesi sem hlaut ætt-
bókarnúmerið 2 og var hún líklega
fædd um 1895.
Hornafjarðarstofninn skiptist í
tvær línur um miðja síðustu öld,
Árnaneslínuna og Bjarnaneslínuna.
Niðjar Blakks 129 frá Árnanesi
mynda Árnaneslínuna en sonarsonur
Blakks, Skuggi frá Bjarnanesi, er
grunnurinn að Bjarnaneslínunni.
Skuggi fæddist 1937 og var undan
Víkingi frá Árnanesi og allir eru þeir
niðjar Óðu-Rauðku. Frægasti sonur
Skugga er Nökkvi frá Hólmi og út frá
honum kom mikið gæðingakyn.
Nökkvi var lengi í Landeyjum og
síðar í Borgarfirði og átti mikinn þátt
í því að dreifa Hornafjarðarblóði um
landið.
Hindisvíkingar
Í Hindisvík á Vatnsnesi í Húna-
vatnssýslu var stunduð skyld-
leikarækt Hindisvíkurhrossa. Stofn-
faðir þeirra er Stjarni 118 frá
Hindisvík, fæddur 1917. Hindisvík-
urhrossin þóttu fögur en með harðan
svip, kaldlynd og eitthvað örlaði á
hrekkjum. Í seinni tíð var brokkið
orðið nokkuð ríkjandi í kyninu.
Hindisvíkingar blönduðust aftur á
móti stundum vel með öðrum ljúf-
lyndari stofnum eins og dæmið um
Rauðhettu frá Kirkjubæ sannar en
móðir hennar var undan Hindisvík-
ingi.
Sauðárkrókslínan
Sauðárkrókshrossin eiga öll Síðu
frá Sauðárkróki sem ættmóður. Síða
var fædd 1952 af hryssu af Svaða-
staðakyni. Afkvæmi hennar, Sörli,
Hrafnhetta, Hrafnkatla og Hervör
frá Sauðárkróki, koma víða fyrir í
ættum vinsælla hrossa í dag.
Svo dæmi sé tekið eru bæði Þór-
oddur frá Þóroddsstöðum, hæst
dæmdi stóðhestur fyrr og síðar, og
Orri frá Þúfu, líklega vinsælasti stóð-
hestur allra tíma, afsprengi skyld-
leikaræktar út frá Síðubörnum.
Hrafnhettu og Hrafnkötlu, systrum
Hervarar, var haldið undir Hervarar-
soninn Hervar frá Sauðárkróki, og af-
kvæmi þeirra voru Otur og Kjarval
frá Sauðárkróki, feður Orra frá Þúfu
og Odds frá Selfossi sem er faðir Þór-
odds. Reyndar er mikill Hornfirðing-
ur í Þóroddi, móðir hans, Hlökk frá
Laugarvatni, er undan Hrafni frá
Holtsmúla og Sif frá Laugarvatni sem
var af sterkum hornfirskum ættum.
Ófeigur og Hrafn
Ófeigur frá Flugumýri var mikið
skyldleikaræktaður, hann var undan
alsystkinum sem rekja ættir sínar til
Nökkva frá Hólmi og Sörla 71. Hann
er því blanda af Hornfirðingum og
Svaðastaðakyni. Ófeigur var arf-
hreinn bleikálóttur og það er mikið til
honum að þakka hversu mikið er af
bleikálóttum og móálóttum hrossum í
stofninum í dag.
Hæst dæmda afkvæmi Ófeigs frá
Flugumýri er Keilir frá Miðsitju.
Móðir hans, Krafla frá Miðsitju, er
sonardóttir Sörla frá Sauðárkróki.
Það afkvæmi Ófeigs sem er með
hæstan hæfileikadóm er Galsi frá
Sauðárkróki. Móðir hans er komin út
frá Sörla og systur hans, Hervöru frá
Sauðárkróki.
Ekki er hægt að tala um skyldleika
hrossa án þess að minnast á Hrafn frá
Holtsmúla en stóran hluta hrossa-
stofnsins má rekja til hans. Móðir
Hrafns var af Hornafjarðarkyni út
frá Nökkva frá Hólmi en faðir hans
var af Svaðastaðakyni. Þar er því
blönduð ræktun á ferð.
Gustur og Aron
Einn af vinsælustu stóðhestunum
síðustu árin, Gustur frá Hóli, er
blanda af Hornfirðingi og Svaða-
staða/Kolkuósskyni. Aðeins þrír ætt-
liðir eru frá Skugga frá Bjarnanesi til
föður Gusts, Gáska frá Hofsstöðum.
Móðir Gusts er undan syni Hrafns frá
Holtsmúla og stutt er í Hörð frá
Kolkuósi.
Annar vinsæll, Aron frá Strand-
arhöfði, er líka mikið blandaður. Móð-
ir hans, Yrsa frá Skjálg, er undan
Náttfarasyni frá Ytra-Dalsgerði, þar
kemur Sauðárkrókslínan og móð-
urætt hennar rekur sig líka til Svaða-
staða. Faðir hans, Óður frá Brún, er
blanda af Ófeigi, Náttfara og
Kirkjubæingi.
Þessir gömlu stofnar eru nú orðnir
mikið blandaðir. Megnið af íslenska
hrossastofninum í dag er hægt að
rekja til Sörla 71 og Óðu-Rauðku 2.
Blöndun Hornafjarðarhrossa og
Svaðastaðahrossa hefur eflaust leitt
gott eitt af sér þar sem töluverðar
andstæður voru í gerð stofnanna bæði
hvað útlit og geðslag varðar. Hrein
stofnrækt er vandfundin í dag; erfitt
er að benda á hreinræktaðan
Kirkjubæing, Hindisvíkurræktunin
hefur liðið undir lok, Kolkuósshrossin
hafa blandast öðrum, Svaðastaðablóð
er í flestöllum hrossum og þó að
Hornfirðing megi finna í mörgum
hestum er erfitt að finna hross þar
sem hornfirsku genin eru ríkjandi.
Skyldleikarækt hafði vafalaust mjög
góðar afleiðingar fyrir íslenska hesta-
kynið en hæfileg blöndun ólíkra
stofna hefur skilað góðum árangri.
Gamlir hrossastofnar –
stofnrækt á undanhaldi
Síða frá Sauðárkróki, ættmóðir Sauðárkrókshrossa.
Þáttur frá Kirkjubæ. Knapi er Sigurður Haraldsson.
Hornfirðingurinn Skuggi frá Bjarnanesi, faðir Nökkva frá Hólmi.
Eftir Berglind Karlsdóttur
barna, unglinga og ungmenna var í
Ölfushöllinni, hjá Sörla var hið ár-
lega Grímutöltmót, hjá Fáki var
fyrsta mót vetrarins, í skautahöll-
inni á Akureyri var Bautamótið, og
annað mótið í meistaradeild Hún-
vetninga fór fram á Blönduósi.
Ekki verður minna um að vera
um næstu helgi; á föstudagskvöldið
er opið töltmót hjá Andvara í reið-
höllinni á Kjóavöllum, á laugardag-
inn verður árshátíðarmót Harðar í
Mosfellsbæ og fyrsta stigamót af
fimm í Víðavangshlaupi hjá Herði,
Hraunhamarsmótið á Sörlastöðum í
Hafnarfirði, Svellkaldar konur
verða í Skautahöllinni í Laugardal
og svo verður Ístölt Austurland á
Lagarfljóti.
MEISTARADEILD VÍS í hesta-
íþróttum fer fram í Ölfushöllinni í
vetur. Þetta er mótaröð þar sem
keppt er á tveggja vikna fresti fram
á vor, alls sex mót. Keppt verður í
fjórgangi, tölti, „smala“ og flug-
skeiði, gæðingafimi, fimmgangi,
gæðingaskeiði og 150 m skeiði.
Fyrsta mótið fer fram í kvöld, 23.
febrúar, og mótaröðinni lýkur 4.
maí með verðlaunaafhendingu.
Eftir miklu er að slægjast því
verðlaunin eru 3,2 millj. kr. Kepp-
endur eru 24 talsins.
Mótahald á fullt skrið
Mótahald er komið á fullt skrið
og er mikið um að vera þessar vik-
urnar.
Fjögur mót fóru fram um síðustu
helgi. Fyrsta mótið í mótaröð
Meistaradeild VÍS
Meira á mbl.is/ítarefni
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
533 4200
eða 892 0667
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar:
Ársalir ehf. - fasteignamiðlun
Magnús og Anna taka á móti áhugasömum kaupendum sem
vilja skoða góða 2ja herbergja íbúð í kjallara. Sérbílastæði fylgir
íbúðinni.
Verð kr. 13,5 millj.
BARMAHLÍÐ 43
Opið hús í kvöld frá kl. 20-22.