Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 47

Morgunblaðið - 23.02.2006, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 47 MENNING : Skóverslun - Kringlunni Sími 553 2888 www.skor.is Teg. 23260 Stærð 36-42 Litur Rautt, hvítt og beige Verð 12.950,- Teg. 24210 Stærð 36-42 Litur Hvítt og bleikt Verð 9.995,- Teg. 22702 Stærð 36-42 Litur Svart, hvítt og beige Verð 11.995,- Teg. 21741 Stærð 36-41 Litur Camel og hvítt Verð 13.995,- Teg. 25886 Stærð 36-41 Litur Grænt og svart Verð 11950,- Teg. 21494 Stærð 36-41 Litur Gyllt Verð 14.995,- Vorlínan frá Gabor er komin Opið í kvöld til kl. 21 ÞRJÚ ÓLÍK verk voru á dag- skránni í Kammermúsíkklúbbnum á sunnudagskvöldið. Fyrst var kvart- ett fyrir óbó, fiðlu, víólu og selló eftir afmælisbarnið Mozart. Daði Kol- beinsson óbóleikari spilaði þar með þeim Gretu Guðnadóttur fiðluleik- ara, Þórunni Ósk Marinósdóttur víóluleikara og Hrafnkatli Orra Eg- ilssyni sellóleikara og var flutning- urinn í fremstu röð; tær og yfirveg- aður, en líka innilegur og líflegur. Næst á efnisskránni var strengja- kvartett nr. 1 í e-moll eftir tékk- neska tónskáldið Smetana og hvarf Daði þá út í næturhúmið en Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari kom inn í staðinn og leiddi hópinn. Kvartettinn eftir Smetana ber yf- irskriftina „Úr lífi mínu“ og er eins- konar tónræn mynd af lífshlaupi tónskáldsins. Fyrir þá sem ekki vita var Smetana uppi á nítjándu öldinni og kvartettinn samdi hann átta ár- um áður en hann lést. Tónlistin er í síðrómantískum stíl með sterku þjóðlegu ívafi og á fyrsti kaflinn að lýsa „ástardraumum og listrænum metnaði ungs manns“, svo vitnað sé í tónleikaskrána. Miðað við það hefðu fjórmenningarnir sennilega mátt spila af auknum krafti til að yfir- vinna nokkuð drungalegt tónmálið, eins og það var virkaði kaflinn frem- ur þunglyndislegur. Hinir þættirnir voru meira sann- færandi, t.d. var polkinn í öðrum kaflanum skemmtilega galsa- kenndur; innhverf og ljóðræn stef þess þriðja voru sömuleiðis afar fal- lega útfærð. Vissulega voru einstaka hnökrar greinanlegir hér og þar, en þeir gerðu flutninginn og verkið bara mannlegri fyrir vikið. Svipaða sögu er að segja um síð- asta atriði dagskrárinnar; strengja- kvartett ópus 13 eftir danska tón- skáldið Carl Nielsen. Nielsen fæddist um fjörutíu árum eftir Smetana en ber ekki eins sterk höf- undareinkenni; tónlist hans rennur ljúflega áfram og er haganlega gerð en ristir ekki sérlega djúpt. Fjórmenningunum tókst þó að gera viðfangsefni sitt áhugavert; leikur þeirra var samstæður og í prýðilegu jafnvægi og einhver ill- skilgreinanleg heiðríkja var yfir túlkuninni sem var einkar heillandi. Tæknileg atriði voru jafnframt flest á hreinu og þótt eilítið óöryggi væri heyranlegt í fáeinum hendingum var það ekki áberandi. Í það heila voru þetta prýðilegir tónleikar og vonandi að þessi hópur hljóðfæraleikara, sem enn ber ekk- ert nafn, muni halda áfram að spila opinberlega. Nafnlausi strengjakvartettinn TÓNLIST Bústaðakirkja Tónsmíðar eftir Mozart, Smetana og Nielsen í flutningi Daða Kolbeinssonar, Unu Sveinbjarnardóttur, Gretu Guðna- dóttur, Þórunnar Óskar Marinósdóttur og Hrafnkels Orra Egilssonar. Sunnudagur 19. febrúar. Kammermúsíkklúbburinn Jónas Sen LISTVINAFÉLAG Hallgrímskirkju efndi til kórtónleika án undirleiks á sunnudag, er voru að vanda vel sótt- ir. Fór hvort tveggja saman for- vitnilegt viðfangsefni og vænlegir flytjendur þar sem einn reyndasti og einn yngsti kammerkór landsins komu fram sem einn hópur. Í ljósi árangurs hins eftirtekt- arverða akureyrska kammerkórs Hymnodiu á Myrkum músíkdögum aðeins rúmri viku áður er von að maður spyrji hvort íslenzkur kamm- erkórsöngur, er tók hraustlega við sér laust fyrir síðustu aldamót, hafi nú hafið nýja sókn er gæti á end- anum jafnvel leyst stóru blönduðu kórana af hólmi. A.m.k. hefur lengi þrengt illþyrmilega að stærri miðl- inum miðað við ástand fyrri áratuga, meðan áhugasöngvarar hafa í vax- andi mæli flykkzt í karla- og kvenna- kórana. Eftir ýmsu að dæma lítur því út fyrir að stórum blönduðum kórum fari senn fækkandi á móti fjölgun kammerkóra, er með tilstyrk æ menntaðri söngvara eiga auðveldara með að sérhæfa sig í erfiðum verk- efnum. Meðal neikvæðari hvata kamm- erkóra má auðvitað telja króníska karlaeklu. Enda tókst jafnvel ekki einu sinni hér að fullskipa í tenór (10- 8-5-8), er háði svolítið fullum heildar- hljómi. Það var hins vegar nánast eini dragbíturinn á frammistöðu kór- anna tveggja, því hljómgæði hverrar raddar fyrir sig voru óhikað í úrvals- flokki, og í markvissri og sveigj- anlegri mótun stjórnandans fékkst hið bezta úr hverri í undragóðri sam- blöndun. Gerði það, ásamt ósviknu gæðamarki viðfangsefna, tónleikana að einni samfelldri unaðsstund – og er þá vægt til orða tekið. Fjórar kórperlur Þorkels Sig- urbjörnssonar – Til þín, Drottinn, Legg ég nú bæði líf og önd, Heyr himna smiður og Englar hæstir – er jafnvel í miðlungsflutningi hafa yljað landsmönnum um hjartarætur, náðu hér virkilega að blómstra. Þ. á m. hin næstsíðasttalda – þrátt fyrir óvenju- hratt tempó sem raunar fór henni betur en fyrst hefði mátt ætla. Túlk- un hinnar rytmískt líflegu tónsetn- ingar Hildigunnar Rúnarsdóttur á Drottinsfagnandi 150. Davíðssálmi hefði, ásamt kraftmestu stöðunum í ljóðrænum Trois chansons Debussys (einkum í Quant j’ai ouy la tambour- in) að vísu mátt létta ögn af fáguninni til ágóða fyrir beinskeyttari lífsgleði, en listileg mótunin lét þó hvergi að sér hæða. Hér fór seiðandi smíð er þyldi jafnvel enn meira slagverk en handsymbala Steefs van Oosterhout. Vinsæl Guðsmóðurlög Báru Gríms- dóttur, María Drottins liljan og erki- smellurinn Ég vil lofa eina þá, stein- lágu eins og sagt er. Loks var komið að „munkinum með götustráksinnrætið“, skv. sjálfs- lýsingu Francis Poulencs. Einlæg hómófónísk mótetta hans Salve Reg- ina (1941) skartaði, líkt og fleira und- angengið, skemmtilega víðfeðmri dýnamík og næmari textatúlkun en gengur og gerist í hérlendum kór- söng. Lokaverkið, 16 mín. löng Credo-laus Messa Poulencs í G-dúr (1935), var kröfuharðasta atriði dags- ins, m.a. fyrir krómatískt djarfa hljómabeitingu, auk þess sem mikið var lagt á einsöngvara og smærri sönghópa (einkum í háttlægum kven- röddum), en í óþvingaðri túlkun kór- anna var samt engu líkara en að flest væri þeim kálfskinn eitt. Sérstaklega bar Agnus Dei lokaþátturinn yf- irbragð innblásins frumleika, enda nánast eins og mannshugurinn næði þar þyngdarlausri „satori“ alsælu í eftirminnilega ómsætri meðferð kór- anna. Þar sem fyrr mátti og heyra bráðfallegan smáhóp- og einsöng. Er vonandi á engan hallað þó sér- staklega sé tilgreint íðiltært sóló- framlag Hallveigar Rúnarsdóttur, er í Kyrie og Agnus Dei jafnaðist á við það fegursta sem maður hafði nokkru sinni heyrt frá þeirri frábæru seiðkonu efstu upphæða. Samfelld unaðsstund TÓNLIST Hallgrímskirkja Frönsk og íslenzk verk fyrir kór a capp- ella eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Hildi- gunni Rúnarsdóttur, Debussy, Báru Grímsdóttur og Poulenc. Kór Áskirkju og Hljómeyki. Stjórnandi: Kári Þormar. Sunnudaginn 19. febrúar. Kórtónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Það var alveg sérstök tilfinningsem fylgdi því í gamla dagaað fara á bókamarkað Félags íslenskra bókaútgefenda í Lista- mannaskálanum. Þar mátti finna gömul númer í strákabókaseríur sem maður var að safna og lá svo á eins og ormur á gulli og lánaði helst ekki nema gegn afarkostum. Á fullorðinsárum hafa ferðir á bókamarkaðinn ekki verið jafn ár- vissar og stundum hef ég markvisst haldið mig fjarri af einskærri nísku; veit sem er að ef ég fer á bókamark- aðinn þá kaupi ég alltof margar bækur, á mig rennur útsöluæði sem ég er annars blessunarlega laus við. Þetta fór í gegnum hugann þegar ég hitti þá Benedikt Sigurðsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bókaútgefenda, og Snæbjörn Arn- grímsson, formann hins sama félags, þar sem þeir voru í óða önn að setja upp markaðinn (ásamt fjölda ann- arra) í Perlunni í gær, fyrir opn- unina í dag klukkan 10 fyrir hádegi. Og hvílíkt úrval af bókum sem nú er í boði. „Í ár eru útgefendur sem eiga bækur á bókamarkaðnum nærri 100 talsins og fjöldi titla er um tíu þús- und,“ segir Benedikt. Hann bætir því við að þar sem fornbóksalinn Bragi Kristjónsson sé með sérstakan bás á Bókamark- aðnum og keyri inn heilu bílfarmana af bókum og aðeins eitt eintak af hverri þá mætti segja að titlafjöldinn færi vel yfir tuttugu þúsund!    Snæbjörn stingur því að mér aðnýjung á Bókamarkaðnum í ár sé að nú verði bækur síðasta árs – já þessarar nýliðnu jólavertíðar – einn- ig á boðstólum. „Við ákváðum að heimila hverjum útgefanda að setja nokkra titla af nýjum bókum á markaðinn svo hér gefst kjörið tæki- færi til að kaupa bækurnar sem þig langaði í en fékkst ekki í jólagjöf.“ Það er engin ástæða til að hugsa sig lengi um því nýjustu bækurnar verða ekki í ótakmörkuðu upplagi að sögn Benedikts. „Útgefendur setja kannski 50 eintök af völdum bókum í sölu og þegar þau eru upp- seld verða ekki fleiri í boði.“ Ef haft er í huga að undanfarin ár hafa allt að 80 þúsund manns komið á bókamarkaðinn þá eru 50 eintök býsna fljót að seljast upp. Hvenær er annars opið? „Það verður opið alla daga til 7. mars frá kl. 10 á morgnana til 18 hér í Perlunni en á Akureyri til kl. 19.“ Og verðið sem verið var að skella á bækurnar er allt að því hlægilegt – eða hættulegt eftir því hvernig á það er litið – því afslátturinn er í sumum tilfellum nærri 90% og Benedikt bendir til dæmis á eina veglega bók sem kostaði út úr búð 24.700 en kost- ar hér 7.900. Það er góður afsláttur. Barnabækur eru í hundraðatali og algengt verð á þeim virðist vera frá 99 krónum og upp í 499 og dettur sjálfsagt fleirum en mér í hug að hér sé gott tækifæri til að kaupa árs- birgðir af barnaafmælisgjöfum. Svo hafa allir svo gott af því að lesa og þarf þá eitthvað að réttlæta bóka- kaup frekar. Jú, það er hægt að kaupa ævisögur, skáldsögur og fræðirit fyrir spottprís og setja sér það markmið að lesa þær allar fyrir næsta haust og vera þar með búinn að vinna upp áralangan hala af ólesnum jólabókum fyrri jóla sem samviskan hefur sífellt nagað mann yfir. Og handbækur um hreyfingu, útivist, megrun, fluguhnýtingar, innri ró og ytri frið, og hvaðeina annað sem hugurinn stendur til, eru hér í stórum stöflum. Að ógleymdum reyfurum og ástarsögum. Benedikt segir að veltan á bóka-markaðnum hafi undanfarin ár verið á milli 40 og 50 milljónir króna og Félag íslenskra bókaútgefenda njóti góðs af. „Við fáum í okkar hlut það sem gengur af þegar búið er gera upp við útgefendur og greiða allan kostnað af rekstri Bókamark- aðarins. Við nýtum síðan hagnaðinn til að greiða niður kostnað við Ís- lensku bókmenntaverðlaunin og Viku bókarinnar sem haldin er í lok apríl.“ Bókaunnendur geta því glaðst yf- ir því að aurarnir fara í að styrkja ís- lenska bókaútgáfu á ýmsa vegu sam- tímis því að þeir styrkja eigin bóklestur og annarra með því að hamstra bækur þessa 11 daga sem Bókamarkaðurinn í Perlunni og á Akureyri er opin. Þúsundir bóka á spottprís ’Í ár eru útgefendur sem eiga bækur á bókamarkaðnum nærri 100 talsins og fjöldi titla er um tíu þúsund.‘ Morgunblaðið/Ásdís Snæbjörn Arngrímsson og Benedikt Sigurðsson í bókaparadísinni í Perlunni. havar@mbl.is AF LISTUM Hávar Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.