Morgunblaðið - 23.02.2006, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Rokksveitin Dimma hefur núákveðið að rísa upp og rjúfa
þögnina eftir stutt frí, með hörku
rokktónleikum á Gauknum í kvöld en
sveitin steig
einnig á stokk
á Dillon í gær.
Dimma, sem
skipuð er þeim
Hjalta Ómari
Ágústssyni
söngvara, Ingó
Geirdal gít-
arleikara og
galdramanni,
Silla Geirdal
bassaleikara og
Bjarka Magn-
ússyni trommuleikara, mun á tónleik-
unum leika efni af samnefndri breið-
skífu sinni sem kom út fyrir jól en þar
er meðal annars að finna lagið „Big
Bad Mama“, en myndbandi við það
lag, sem Ingólfur Júlíusson fram-
leiddi, verður dreift á allar sjónvarps-
stöðvar (nema sjónvarpsstöðina
Omega) í vikunni.
Auk þess verður fljótlega hægt að
sjá myndbandið á nýja vefnum
www.myspace.com/dimmarock.
Það er Perfect Disorder sem ríður
á vaðið með hörku rokki í kvöld. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22 og geta áhuga-
samir rokkarar nælt sér í boli og
diska með Dimmu sem verða á til-
boði.
Hljómsveitin Sign heldur tvennatónleika á Gauki á Stöng nú á
föstudaginn.Tónleikar hefjast kl. 17
fyrir alla aldurshópa en síðan verða
aðrir tónleikar fyrir 18 ára og eldri á
miðnætti. Sign eru svo á förum til
Bretlands þar sem þeir koma fram á
sínum fyrstu tónleikum utan Íslands.
Tónleikarnir fara fram á Barfly í
Camden Town í London og sam-
kvæmt fréttatilkynningu hefur tölu-
verður fjöldi blaðamanna og útsend-
ara plötufyrirtækja boðað komu sína.
Þar á meðal tímaritið Kerrang! sem
fór lofsamlegum orðum um frammi-
stöðu Sign á Kerrang!-kvöldinu á Ice-
land Airwaves hátíðinni á síðasta ári.
Hljómsveitin hefur einnig sent frá
sér nýtt myndband í tengslum við al-
þjóðlega útgáfu af laginu „A Little
Bit“ sem kemur út í stafrænni dreif-
ingu í apríl. Sign gefa smáskífuna út í
sínu eigin fyrirtæki, R&R music, í
samstarfi við IC records Ltd. í Bret-
landi. Stafræna útgáfan af laginu
verður fáanleg m.a. í verslunum iT-
unes, Napster, e-music, Yahoo og
Karma Download.
Sign halda síðan til Bandaríkjana í
mars þar sem þeir koma meðal ann-
ars fram á hinum sögufræga klúbbi
CBGB’s, taka svo þátt í SXSW í Aust-
in og halda því næst tvenna tónleika í
LA, m.a. á The Viper Room.
Fólk folk@mbl.is
NÝLEGA var opnaður vefurinn
hljomsveitir.is, en um er að ræða
síðu þar sem hægt er að leita að
hljóðfæraleikurum og hljóm-
sveitum. Notendur geta einnig
skráð sína eigin auglýsingu þar
sem fram kemur að hverju þeir
leita. Leitarvél vefjarins er hönnuð
með það í huga að sem einfaldast sé
að finna það sem verið er að leita
að, en markmið vefjarins er að auð-
velda og auka samstarf tónlist-
arfólks á landinu.
Jón Dal Kristbjörnsson, ábyrgð-
armaður og hugmyndasmiður, seg-
ist hafa fengið hugmyndina eftir að
hafa kynnst fjölmörgum tónlist-
armönnum sem hafi verið að leita
að öðrum tónlistarmönnum en ekki
vitað hvar þeir ættu að leita. Jón
segist vona að vefurinn leysi þetta
vandamál, og að eftir því sem not-
endum á vefnum fjölgi muni þar
skapast samfélag tónlistarfólks úr
öllum áttum. Þjónustan á vefnum er
gjaldfrjáls.
Tónlist | Hljomsveitir.is er fyrir íslenska tónlistarmenn
Morgunblaðið/Sverrir
Á hljomsveitir.is geta íslenskir tónlistarmenn haft uppi á öðrum tónlistarmönnum.
Ný leitarsíða opnuð
www.hljomsveitir.is
KVIKMYNDAFÉLAG Íslands hef-
ur gengið frá samningum um sölu á
kvikmyndinni Strákarnir okkar eftir
Róbert Douglas til Bandaríkjanna.
Samningar tókust á kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín, sem lauk um helgina.
Myndin var sýnd í Panorama-hluta
hátíðarinnar og í kjölfarið náðust
samningar um sýningar á myndinni í
Bandaríkjunum, á Spáni og í Þýska-
landi. Í tilkynningu kemur fram, að
ekki hafi spillt fyrir, að í nýjasta
hefti Newsweek sé fjallað um mynd-
ina með áberandi hætti í stórri grein
um fótboltamyndir.
Um er að ræða dreifingu í öllum
miðlum á kvikmyndinni, frá kvik-
myndahúsadreifingu til sjónvarps-
dreifingar, en samningstímabil er að
jafnaði 10 ár. Samningsupphæðir
verða ekki gefnar upp, en áður hafði
verið gengið frá sölu til Frakklands,
Belgíu, Hollands, Lúxemborgar,
Ísraels, Finnlands og Bretlands.
Kvikmyndir | Vel gengur með Strákana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðalleikarinn, framleiðandinn og leikstjórinn fyrir frumsýninguna.
Newsweek hjálpaði til