Morgunblaðið - 27.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 57. TBL. 94. ÁRG. MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Takt
u en
ga
áhæ
ttu v
ið v
erk
lega
r
fra
mkv
æm
dir
Þar
finn
ur þ
ú m
eist
ara
og
fagm
enn
til v
erk
sins
Samtök iðnaðarins
Íslenskt lamb
er einstakt
Anthony A. Williams, borgarstjóri
Washington, í Reykjavík 6
Fasteignablaðið | Íbúðaturnar á Eskifirði Viðhald gamalla
húsa í Hafnarfirði Kyrrðin við Arnarnesvoginn Íþróttir |
Snæfell sigraði í Borgarnesi Manchester United bikarmeistari
Jerúsalem. AP. | Starfandi utanríkis-
ráðherra Ísraels, Tzipi Livni, telur
ekki að Mahmoud Abbas, forseti Pal-
estínumanna, skipti máli nú þegar
Hamas-samtökin eru um það bil að
taka við stjórn palestínsku heima-
stjórnarinnar í krafti sigurs í þing-
kosningum í síðasta mánuði.
Livni ræddi við David Welch, sér-
legan sendimann Bandaríkjastjórnar,
í gær og að loknum fundinum sagði
ísraelska útvarpið frá því að Welch
hefði greint Livni frá því að bandarísk
stjórnvöld vildu halda þeirri stefnu,
að eiga samstarf
við Abbas en
hunsa heima-
stjórn Hamas; en
bæði bandarísk og
ísraelsk stjórn-
völd skilgreina
Hamas sem
hryðjuverkasam-
tök, og það gerir
raunar Evrópu-
sambandið einnig. Skv. frétt útvarps-
ins hafnaði Livni hins vegar þessari
stefnu.
Livni sagði sjálf í viðtali að Abbas
gæti ekki „verið laglegt andlit [út á
við] sem felur hina hrikalegu ógn sem
býr að baki“. Hún sagði Hamas verða
að ákveða hvort samtökin hlíttu þeim
tilmælum að viðurkenna tilverurétt
Ísraelsríkis eður ei og að Abbas
„skipti engu máli“ í því samhengi.
Fyrr í gær hafði Abbas ýjað að því
að hann myndi segja af sér ef enginn
skriður kæmist á friðarumleitanir
Ísraela og Palestínumanna vegna
tregðu Hamas til að breyta stefnu
sinni.
Segir Abbas ekki skipta máli
Tzipi Livni
BJÖRGUNARMENN unnu við gríðar-
lega erfiðar aðstæður við að ná tveimur
mönnum úr jeppa sem féll ofan í
sprungu á Hofsjökli á laugardag. Annar
mannanna er talinn hafa látist sam-
stundis en hinn liggur nú alvarlega slas-
aður á gjörgæsludeild Landspítalans.
Sigu fjórir björgunarmenn um 30 m of-
an í sprunguna að samanþjöppuðu bíl-
flakinu og reyndu í marga klukkutíma
með ýmsum ráðum að ná mönnunum út.
Það tókst loksins þegar komið var með
öflugar klippur á svæðið.
„Þetta gekk alveg ótrúlega vel miðað
við erfiðar aðstæður,“ segir Guðmundur
Guðjónsson, bráðaliði hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins sem stjórnaði að-
gerðum úr sprungunni en þar var
svartamyrkur. Segir hann aðstæður
hafa verið næsta vonlausar. „Á tímabili
leið mér mjög illa yfir því að ég hélt að
þetta myndi ekki ganga. [...] Það var
mikið íshrun ofan frá í hvert sinn sem
búnaður var að fara yfir brúnina niður
til okkar. Þá rigndi ísnum stöðugt yfir
okkur.“ Að lokum náðist þó að klippa
bílinn í sundur og ná mönnunum út.
Einn björgunarmanna segist ekki
vita til þess að áður hafi þurft að klippa
bílflak í sundur niðri í jökulsprungu.
Umfangsmikil aðgerð
Um 150 björgunarmenn af Norður-
landi, Suðurlandi og höfuðborgarsvæð-
inu, á þremur þyrlum, flugvél, 28 jepp-
um, tveimur snjóbílum og 15 vélsleðum,
tóku þátt í björgunaraðgerðinni vegna
slyssins þó aðeins hluti þeirra hafi farið
upp á jökulinn sjálfan eða um 30–40
manns. Báðar þyrlur Landhelgisgæsl-
unnar voru óvirkar og voru því tvær
þyrlur Varnarliðsins kallaðar út, sem og
þyrla danska varðskipsins Triton sem
var statt í Reykjavíkurhöfn.
Svæðið sem jeppinn, ásamt tveimur
öðrum jeppum, ók um er alltaf mjög
sprungið, að sögn Odds Sigurðssonar
jarðfræðings. Þarna er jökullinn bratt-
ur og skríður hratt fram og við slíkar
aðstæður myndast stórar og djúpar
sprungur.
Einn maður lést og annar slasaðist alvarlega er jeppi féll í sprungu á Hofsjökli
Unnið að björgun und-
ir íshruni á 30 m dýpi
Ljósmynd/Ómar Ragnarsson
Jeppinn féll 30 m ofan í sprunguna. Fjórir björgunarmenn sigu niður að flakinu til að ná mönnunum út.
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur og
Skapta Hallgrímsson
Björgun á Hofsjökli | 4 og miðopna
TUTTUGUSTU vetrarólympíuleikunum
lauk formlega í Tórínó á Ítalíu í gærkvöldi
og var mikið um dýrðir af því tilefni á ól-
ympíuleikvanginum í borginni. Söngv-
ararnir Ricky Martin og Andrea Bocelli
tróðu m.a. upp á sviði leikvangsins en alls
tóku 2.350 listamenn þátt í hátíðahöld-
unum. Leikarnir í Tórínó þóttu takast vel
og Jacques Rogge, formaður alþjóðaól-
ympíunefndarinnar, lýsti þeim sem „sann-
arlega frábærum“ um leið og hann bauð
bæði íþróttafólki og áhugamönnum vin-
samlegast að hittast á nýjan leik í Van-
couver í Kanada þar sem næstu vetraról-
ympíuleikar verða að fjórum árum
liðnum. | Íþróttir
Vetrar-
ólympíuleik-
unum lokið
Reuters
„En svo heyrðum
við ekkert í þeim“
ARNAR Þór Hjaltason ók fyrsta jeppanum í röð þeirra þriggja
sem voru á Hofsjökli á laugardaginn. Hann ók yfir sprunguna,
sem opnaðist skömmu áður en slysið varð, en segist ekki hafa orð-
ið var við neitt óeðlilegt. Þeir óku upp á hábunguna einn af öðrum
og Arnar Þór lóðsaði þann sem á eftir honum kom niður af bung-
unni og ætlaði síðan að aðstoða félaga þeirra tvo, sem voru á síð-
asta jeppanum. „En svo heyrðum við ekkert í þeim og sáum ekki
bílinn þannig að við fórum upp eftir aftur. Þegar þangað kom
heyrðum við ekkert í bílnum þeirra.“
Arnar Þór og félagi hans Halldór Örn Árnason gengu síðasta
spölinn að slysstaðnum.
„Við Dóri sáum jeppann þegar við lögðumst á magann á brún-
inni og horfðum niður í sprunguna. Ég kallaði á þá en fékk ekkert
svar. En ég skynjaði lífsmark þarna niðri; heyrði að einhver ýtti á
bílflautuna og hafði kveikt ljósin.“ Í kjölfarið hljóp hann að bíl sín-
um og hringdi eftir hjálp.
MAÐURINN
sem lést þegar
jeppabifreið
sem hann var í
féll í sprungu á
Hofsjökli á
laugardag hét
Tómas Ýmir
Óskarsson.
Hann var til heimilis að Keilu-
síðu 6k á Akureyri.
Tómas Ýmir var fæddur árið
1984 og lætur eftir sig unnustu.
Minningarathöfn um Tómas
Ými fór fram í Glerárkirkju í
gærdag.
Lést á
Hofsjökli
♦♦♦
Kaíró. AFP. | Ævafornt sólhof hefur fundist
á stað í úthverfi Kaíró-borgar þar sem ver-
ið hefur flóamarkaður. Egypska þjóð-
minjasafnið greindi frá þessu í gær.
Risavaxnar granítstyttur fundust í hof-
inu en þær vega um fimm tonn. Er talið að
munirnir séu frá tímum Ramsesar II. en
hann var uppi um þrettán öldum fyrir
Krist, þ.e. fyrir um 3.000 árum. Fannst m.a.
1,5 metra há stytta af faraóinum.
Úthverfið sem um ræðir, Ein Shams, var
byggt ofan á hina fornu borg Heliopolis en
hún var fræg fyrir heimspekiskóla sína.
Sólhof undir
flóamarkaði
Fasteignablaðið og Íþróttir