Morgunblaðið - 27.02.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nú bjóðum við síðustu sætin til Kanarí 7. mars í 2 vikur á frábærum kjörum.
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti og fjórum dögum fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir. Að sjálfsögðu nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra
okkar á Kanarí allan tímann.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
7. mars
frá kr. 39.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
2 vikur - síðustu sætin
kr.54.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó
í 2 vikur, stökktu tilboð 7. mars.
Innifalið: Flug,skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
kr.39.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára
í íbúð í 2 vikur, stökktu tilboð 7. mars.
Innifalið: Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn.
eyri, einn frá Dalbjörg í Eyjafjarð-
arsveit, einn frá Dalvík, einn frá
Grenivík og einn frá Svalbarðseyri.
Enginn veit nákvæman fjölda, en
sagt að 4–5 hafi verið í hverjum bíl.
Sem sagt 24–30.
FJÖLMARGIR björgunarsveitar-
menn voru kallaðir til þegar tilkynn-
ing um slysið á Hofsjökli barst. Snjó-
bíll frá Árborg var m.a. tilbúinn að
fara upp á jökulinn þegar afboðun
barst síðar um kvöldið og síðan var
öllum björgunarsveitarmönnum snú-
ið frá jöklinum í kjölfarið.
Björgunarsveitarmenn úr Bisk-
upstungum voru ásamt fleirum á ferð
á Langjökli þegar kallið kom um slys
á Hofsjökli og fóru þeir strax á vett-
vang og voru ásamt öðrum björgun-
arsveitarmönnum tilbúnir að fara á
jökulinn sunnan frá. Helgi Guð-
mundsson, formaður sveitarinnar,
sagði ferð þeirra um svæðið hafa
gengið rólega vegna þess hversu mik-
ið væri runnið úr vegum og slóðum.
Hópurinn lenti í smávegis erfiðleik-
um nærri Kerlingarfjöllum vegna bil-
unar sem auðveldlega var leyst úr.
Sex bílar fóru með björgunarmenn
upp úr Eyjafirði. Tveir bílar frá
björgunarsveitinni Súlum á Akur-
Björgunarsveitarmaður í Eyjafirði
lýsti ferðinni þaðan þannig: „Þetta
var frekar seinfarið framan af; eng-
inn vegur, við keyrðum yfir stórgrýti,
skriður og móa en þegar komið var
ofar, upp á hjarnið, gekk vel.“
Komið að jöklinum að
norðan og sunnan
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarsveitarmenn í námunda við Kerlingarfjöll gera við jeppa.
ARNAR Þór Hjaltason, 23 ára Eyfirðingur
búsettur á Akureyri, ók fyrsta jeppanum í
röð þeirra þriggja sem voru á Hofsjökli á
laugardaginn. Hann ók yfir sprunguna, sem
gaf sig, skömmu áður en slysið varð, en seg-
ist ekki hafa orðið var við neitt óeðlilegt.
Þeir voru fjórir sem fóru á þremur bílum
frá Akureyri klukkan átta á laugardags-
morgun. Óku upp úr Eyjafirði og þaðan
áfram upp á jökul. Fóru upp á hábungu jök-
ulsins og ætluðu að halda heim á leið á ný
þegar slysið varð. Höfðu hugsað sér að
koma við í Laugarfelli, baða sig þar í laug-
inni og ráðgerðu að koma heim til Akureyr-
ar á milli klukkan 9 og 10 um kvöldið.
„Við fórum upp á hábunguna, ég fór fyrst-
ur niður og þegar ég var kominn niður á
flatann – um það bil einum kílómetra frá
þeim stað þar sem slysið varð – hafði Dóri
samband við mig í gegnum talstöðina og
sagði að félagi okkar hefði keyrt yfir
sprungu, sem hefði hrunið úr, en allt væri
samt í lagi,“ sagði Arnar Þór í samtali við
Morgunblaðið í gær. Dóri er Halldór Örn
Árnason, vinur Arnars Þórs og jafnaldri, en
Halldór ók bílnum sem var annar í röðinni.
Arnar sá brekkuna vel neðan að. Hann
leiðbeindi Halldóri niður af bungunni í
gegnum talstöðina og síðan ætlaði hann að
aðstoða félaga þeirra tvo, sem voru á síðasta
jeppanum, með sama hætti. „En svo heyrð-
um við ekkert í þeim og sáum ekki bílinn
þannig að við fórum upp eftir aftur. Þegar
þangað kom heyrðum við ekkert í bílnum
þeirra.“
Kallaði til félaganna
en fékk ekkert svar
Þeir Halldór vissu einungis af sprungunni
sem hrunið hafði úr fyrst. Þeir óku mestalla
leiðina upp á ný en gengu síðasta hlutann og
áttuðu sig fljótlega á því sem hafði gerst.
„Um leið og við sáum sprunguna, förin mín
öðrum megin og förin eftir þeirra bíl hinum
megin við hana, vissum við hvað hafði
gerst.“
Halldór og Arnar sáu jeppann ofan í
sprungunni þegar þeir kíktu þangað af
brúninni og þá hljóp Arnar strax niður í
sinn bíl til þess að hringja eftir hjálp.
„Við Dóri sáum jeppann þegar við lögð-
umst á magann á brúninni og horfðum niður
í sprunguna. Ég kallaði á þá en fékk ekkert
svar. En ég skynjaði lífsmark þarna niðri;
heyrði að einhver ýtti á bílflautuna og hafði
kveikt ljósin.“
Á leiðinni niður af bungunni ók Halldór
ekki sömu leið og Arnar, og fyrst í stað fór
þriðji bíllinn heldur ekki í slóð hans, „en eft-
ir að hrundi undan honum í fyrra skiptið
færði hann sig aftur inn á mína slóð og ætl-
aði að þræða hana niður; taldi sig öruggari
þar. En þá lenti hann í sprungunni sem við
vissum ekkert um. Ég fór þarna yfir stuttu
áður og varð ekki var við neitt. Það var
óslétt þarna, eins og þetta væru öldur, en
þannig er svæðið allt.“
Arnar segir að hringt hafi verið í þá Hall-
dór til baka frá Neyðarlínunni og tilkynnt
að um það bil þrír stundarfjórðungar væru
þar til þyrlan kæmi á vettvang, en einn og
hálfur klukkutími hefði reyndar liðið þar til
hún kom.
Erfitt að bíða
Hann segir það hafa verið óþægilega til-
finningu að bíða. „Það var samt skárra að
vera tveir heldur en ef maður hefði beðið
einn.“ Arnari fannst líka slæmt að geta ekki
komið félögum sínum til hjálpar niðri í
sprungunni. „En við höfðum engan búnað til
þess, við hefðum þurft mannbrodda og ísax-
ir og bíl á staðnum til þess að láta okkur
síga niður.“
Sá sem slasaðist og fluttur var með þyrlu
til Reykjavíkur er tengdur Arnari; eigin-
kona Arnars og hinn slasaði eru systk-
inabörn. „Ég náði ekkert að tala við hann.
Hann var fluttur með þyrlunni burt um leið
og hægt var,“ sagði Arnar sem hyggst fara
til Reykjavíkur í dag til þess að hitta vin
sinn á sjúkrahúsinu.
Arnar segir þá Halldór hafa verið í mikilli
óvissu allan tímann sem þeir biðu. „Það var
svo ekki fyrr en skömmu fyrir miðnætti að
mér var sagt að Tómas væri farinn.“
Ekki var haldið af stað niður af jöklinum
fyrr en hinn slasaði hafði verið fluttur burt í
þyrlunni. „Þá fóru allir saman niður. Föð-
urbróðir minn í hjálparsveitinni Dalbjörgu
kom uppeftir og líka strákar sem ég hef
ferðast mest með. Með okkur voru líka tveir
slökkviliðsmenn frá Akureyri, báðir frændur
mínir.“
Arnar var kominn heim til sín á Akureyri
um klukkan hálfsjö í gærmorgun.
Sá bílinn í sprungunni og
heyrði að einhver flautaði
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Ljósmynd/Ómar Ragnarsson
Þyrla frá Varnarliðinu lenti talsvert frá slysstaðnum, en sprungurnar voru mjög varasamar.
Jeppinn sem lenti í
sprungunni var síð-
astur í röð þriggja bíla
RIGNINGAR síðustu daga hafa farið illa með
Kjalveg, en hann er á köflum mjög erfiður yf-
irferðar vegna skorninga í veginum. Þessi bif-
reið, sem er á 44 tomma dekkjum, fór um þenn-
an veg fyrir viku og var hann þá í þokkalegu
ástandi. Um helgina var hins vegar erfitt að
komast um Kjalveg. Mjög snjólétt hefur verið
á hálendinu frá áramótum og lítið frost.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kjalvegur erf-
iður yfirferðar
MIKIÐ var um hraðakstur í umdæmi
Blönduósslögreglunnar um helgina. Að sögn
varðstjóra voru á bilinu 50–60 ökumenn
stöðvaðir frá föstudegi til sunnudags og þykir
það nokkuð mikið en sól hefur hækkað í lofti
og vilja því ökumenn oft þyngja bensínfótinn
í takt við það. Lögreglan vill beina því til öku-
manna að stilla hraða ökutækja sinna í hóf og
minnir á að enn sé vetur og ísing geti mynd-
ast mjög snögglega.
50–60 ökumenn
teknir fyrir hrað-
akstur um helgina
♦♦♦
HÁLKA olli því að bíll fór út af í Norðurárdal
seint í gærkvöldi. Ökumaðurinn, ung stúlka,
slapp ómeidd að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi. Hún var á suðurleið.
Á meðan verið var að ná bílnum upp á veginn
varð að hægja verulega á umferð um svæðið
sem olli nokkrum töfum fyrir bílstjóra á leið
um Norðurárdalinn. Það stóð þó stutt.
Bíll út af í Norð-
urárdal í gær
♦♦♦