Morgunblaðið - 27.02.2006, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 27. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÓLÍNA Þorvarðardóttir, skóla-
meistari Menntaskólans á Ísafirði,
hefur ákveðið að sækjast ekki eftir
endurskipun í embætti skólameist-
ara þegar skipunartími hennar
rennur út að loknu þessu skólaári,
eða í lok júlí í sumar. Þetta kemur
fram í fréttatilkynningu sem Ólína
sendi frá sér.
„Undirrituð hefur ákveðið að
óska ekki eftir áframhaldandi skip-
un í embætti skólameistara við
Menntaskólann á Ísafirði eftir lok
yfirstandandi skipunartíma, sem
rennur út 31. júlí næstkomandi.
Hef ég óskað lausnar frá embætti
frá sama tíma. Ákvörðun þessa hef
ég tekið að vel athuguðu máli á eig-
in forsendum. Hún er tekin með
velferð skólans í huga, í þeirri von
að takast megi að leysa þennan
mikilvæga vinnustað úr þeim helj-
argreipum ófriðar sem honum hef-
ur verið haldið í undanfarin miss-
eri.
Menntaskólinn á Ísafirði hefur á
undanförnum 5 árum skipað sér í
hóp framsæknustu og best reknu
framhaldsskóla landsins. Þann
ótvíræða árangur staðfestir
skýrsla Félagsvísindastofnunar
HÍ um starfsumhverfi Mennta-
skólans á Ísafirði frá því í desem-
ber 2005.
Það er harmsefni að sá árangur
sem náðst hefur í starfrækslu skól-
ans skuli undanfarin misseri hafa
verið yfirskyggður af innanhús-
deilum og niðurrifsumræðu sem
enn sér ekki fyrir endann á. Óvissa
ríkir um áframhald skólaþróunar-
verkefnisins sem ætlað var að efla
frið og eindrægni meðal starfs-
fólks. Enn hafa ekki allir starfs-
menn skólans skuldbundið sig til
þátttöku í verkefninu og ekki verð-
ur séð að ráðuneytið hafi úrræði til
að bregðast við í þeirri stöðu. Fá-
mennur en hávær hópur andstæð-
inga minna heldur skólanum í
herkví, skólanefnd og ráðuneyti
standa ráðþrota frammi fyrir
vandanum og hafa ekki veitt
stjórnendum eða hinum almenna
starfsmanni þann tilstyrk sem
þurft hefði. Við þessar aðstæður er
stjórnendum í reynd gert ókleift að
vinna að framför skólans – og við
svo búið má ekki standa lengur.
Um leið og ég tilkynni brott-
hvarf mitt úr starfi skólameistara
Menntaskólans á Ísafirði skora ég
á menntamálaráðuneytið og skóla-
nefnd að standa til fulls við for-
sendur tillögu þeirrar sem kynnt
var starfsmönnum af fulltrúum Fé-
lagsvísindastofnunar og ráðuneyt-
isins þann 6. desember s.l. svo
tryggja megi framtíðarstarfsfrið í
skólanum.
Þá mánuði sem eftir eru af
starfstíma mínum hyggst ég nýta
til þess að búa í haginn fyrir kom-
andi skólaár og ljúka verkefnum
sem bíða úrlausnar fram að þeim
tíma. Að því loknu vonast ég til
þess að geta staðið upp frá vel
unnu verki og kvatt nemendur
skólans og starfsfólk í fullum friði
og sátt.
Menntaskólanum á Ísafirði,
stjórnendum hans, nemendum og
dyggum starfsmönnum óska ég
allrar blessunar í bráð og lengd.
Ísafirði 25. febrúar 2006, Ólína
Þorvarðardóttir, skólameistari
Menntaskólans á Ísafirði.“
Ólína Þorvarðardóttir
hættir sem skólameistari
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
á morgun
ÞJÓÐAHÁTÍÐ Alþjóðahússins var
haldin með pomp og prakt í gær en
hátíðin er hluti af Vetrarhátíð í
Reykjavík.
Markmið hátíðarinnar er að
kynna fjölmenningarsamfélagið á
Íslandi, stuðla að fjölbreyttu mann-
lífi og auka skilning milli fólks af
ólíkum uppruna. Yfir 300 manns
komu að undirbúningi hátíðarinnar
en í Reykjavík búa yfir 5.000 er-
lendir ríkisborgarar af 116 þjóð-
ernum. Margt var um manninn í
gamla Blómavalshúsinu við Sigtún
og bauðst gestum að fylgjast með
skemmtiatriðum á sviði, smakka
um 50 mismunandi þjóðarrétti og
tala 30 til 40 tungumál. Jafnframt
voru kynntir ýmsir menning-
armunir, ljósmyndir, tónlist, fatn-
aður og fleira, og gestum bauðst að
kaupa matvæli og minjagripi í
sannkallaðri götumarkaðsstemn-
ingu.
Morgunblaðið/Eggert
Ánægjan skein úr svip gesta á hátíð
Alþjóðahússins, en einum gesti
þótti þó ástæða til að hafa gætur á
ljósmyndaranum frekar en að fylgj-
ast með sýningunni.
Þessi unga stúlka á Þjóðahátíð Alþjóðahússins sannaði að maður þarf
ekki að vera hár í loftinu til að sýna tilþrif við trommurnar.
Þjóðahátíð
Alþjóða-
hússins
ÓLÍNA Þorvarðar-
dóttir, skólameistari
Menntaskólans á Ísa-
firði, sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki
geta annað en sagt upp
störfum, en hún myndi
engu að síður starfa til
loka skólaárs.
„Ég harma það að
taka þessa ákvörðun
undir þessum kring-
umstæðum. Ég sé ekki
neitt annað í stöðunni
eins og sakir standa.
Ég vil skólanum allt hið
besta og vona að þegar
ég er komin úr sjónlín-
unni átti menn sig á hver meinsemd-
in er. Umræðan hefur snúist of mik-
ið um mína persónu, þetta hefur
verið óvenjuhörð og persónuleg
deila og því hafa menn ekki verið að
horfa á málsatvik og hvað sé rétt og
rangt heldur hafa þeir þyrlast upp í
einhverju persónustríði. Ég vil ekki
gefa mönnum þær ástæður lengur.
Mér finnst að þar til bærir aðilar,
það er skólanefndin og ráðuneytið,
verði að fara að meta stöðuna út frá
skólanum sjálfum.“
Í tilkynningu Ólínu um uppsögn
sína segir hún að ákvörðunin sé tek-
in með velferð skólans í huga og í
þeirri von að leysa
vinnustaðinn úr helj-
argreipum ófriðar. Að-
spurð hvort ófriðurinn
stæði um hana sagði
Ólína að rót vandans
væri djúpstæð og
margþætt. Hún benti
á að fámennur hópur
andstæðinga skóla-
meistarans hefði beint
skotum sínum að per-
sónu hans en ekki
embætti.
Spurð hvort hún
mundi leita réttar síns
varðandi þetta mál
taldi hún ótímabært að
tjá sig um það að svo stöddu. Fram
kemur í skýrslu Félagsvísindastofn-
unar Háskóla Íslands frá því í des-
ember að ef deilum linni ekki innan
skólans og skólameistari þurfi að
víkja af þeim sökum þurfi 5–7 starfs-
menn einnig að víkja. Mennta-
málaráðuneytið hefur sagst ætla að
fylgja þessari skýrslu en óljóst er
um aðgerðir ráðuneytisins.
Birna Lárusdóttir, formaður
skólanefndar Menntaskólans á Ísa-
firði, vildi ekki tjá sig að svo stöddu
um ákvörðun Ólínu og það sama gilti
um Tryggva Sigtryggsson, trún-
aðarmann kennara við skólann.
Telur að uppsögn sé óum-
flýjanleg í ljósi aðstæðna
Ólína Þorvarðardóttir